Morgunblaðið - 12.07.1997, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 12.07.1997, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ oo .............. 22 LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997 NEYTENDUR Útsalan var hafin í Englabörnum en þar er veittur 30-70% afsláttur. Henni Önnu leist auðsjáanlega vel á sig í þessum kjól. Hann kostaði 6.980 krónur en er nú á 4.790 krónur. „Peysurnar fara fyrst og síðan jakkar“, sagði Jónina Þórarinsdóttir hjá verslun- inni Centrum þegar litið var inn fyrsta útsöludaginn. „Þegar mesta ösin er afstaðin eftir nokkra daga þá fer fólk að gefa sér tíma til að máta buxur.“ Útsölur að byrja um allan bæ Algengt að 30-60% afsláttur sé veittur HÁLFTÍMA eftir að útsalan í Hagkaup Kringlunni hófst síðast- liðinn fimmtudag voru þrír eða fjórir einnar krónu hlutir eftir en hálftíma áður námu þeir hundr- uðum. Það var örtröð við inn- ganginn þar sem karlmenn voru við stóran kassa að máta jakka- föt á 995 krónur og eiginkonurn- ar að skoða úlpur við hliðina. Þegar útsölurnar hefjast er mikið um að vera og á rölti okkar um verslanir vítt og breitt um bæinn mátti sjá ótal kerrur og vagna með óþreyjufullu smáfólki sem beið á meðan mamma eða pabbi voru að máta eða velta fyrir sér Morgunblaðið/Golli Mamma eða pabbi að athuga með föt á smáfólkið sem beið óþreyjufullt fyrir utan. kaupum. Afgreiðslufólki bar saman um að margir vissu hvað þeir vildu þegar þeir kæmu á útsölu, væru semsagt búnir að skoða flíkurnar áður og gengu að þeim þegar útsölur byijuðu. Svo eru aðrir sem eru bara að skoða og athuga hvort þeim líst á eitthvað. Foreldrar eni gjarnan að leita að fötum á börnin fyrir skólann. „Fólk veltir minna fyrir sér en til dæmis í fyrra hvað hlutirnir kosta og það er undantekning að verið sé að biðja um að setja vörur á nýtt kortatímabil", segir Aðalheiður Karlsdóttir eigandi Englabarna. „Einnig er áberandi að fólk staðgreiðir það sem verið er að kaupa.“ Elísa er að hjálpa Kaj að máta strigaskó en þá var hægt að fá á útsölunni hjá Hagkaupi á 200 krónur. Næstu vikurnar geta lesendur semsagt kíkt á útsölur víða um bæinn og gert reyfarakaup - það er að segja svo framarlega sem ekki er verið að kaupa óþarfa bara af því að varan er á útsölu. Vörurnar eru gjarnan lækkaðar um 30-60%. Við rákumst á þennan fatnað í Oasis. Jakkinn var áður á 4.895 krónur en kostar á útsölunni 1.995 krónur. Buxurnar kostuðu 4.595 en eru núna á 2.495 krónur og bolurinn var á 2.195 krónur en kostar núna 1.295 krónur. Græni skápurinn FYRIR skömmu var opnuð ný versl- un, Græni skápurinn, að Laugalæk 4. í fréttatilkynningu frá verslun- inni segir að á boðstólum sé ýmis gjafavara, leikföng, ritföng, gjafa- pappír, kort, minjagripir, kerti, tré- vara og margt fleira. Þá eru alltaf einhveijar vörur á tilboði. Um helg- ar eru seldir tilbúnir blómavendir í Græna skápnum. Eigendur verslunarinnar eru Ágústa Pálsdóttir og Gréta Önund- ardóttir. ÁGÚSTA Pálsdóttir og Gréta Önundardóttir eigendur Græna skápsins. Hlunkar með ávaxta- Nýtt og lakkrísbragði KJÖRÍS hefur sett á markað hlunka með ávaxta- og lakkrísbragði. Ávaxtahlunkurinn er tvílitur með tvennskonar ávaxtabragði og súkk- ulaðitopp. Lakkríshlunkurinn er með lakkrísbragði og lakkrísdýfu. Þá hefur Kjörís einnig sett á mark- að nýjan Lúxus íspinna. Pinninn er með súkkulaðibragði og með Síríus súkkulaðidýfu. Books Opið til 22 og neyðar- lína HERRAFATAVERSLUNIN Books býður nú viðskiptavin- um sínum upp á lengdan af- greiðslutíma en opið er frá klukkan 10-22 alla daga vik- unnar nema á sunnudögum. Auk þess er hægt að fá upp- gefið sérstakt neyðarnúmer hjá versluninni ef viðskipta- vinir þurfa nauðsynlega á aðstoð að halda utan af- greiðslutímans. Athugasemd Iðgjöld íslensku trygg- ingafélaganna enn lægri SIÐASTLIÐINN þriðjudag birtist á síðum Morgunblaðsins grein þar sem fram kom að heimilistryggingar og líftryggingar væru næst lægstar á íslandi af Norðurlöndunum. Þær nið- urstöður fengust úr könnum sem Norræna ráðherranefndin lét gera fyrir skömmu. í töflu sem Neytenda- samtökin sendu frá sér var greint frá iðgjöldum félaganna. Alþjóða líf- tryggingarfélagið og Samlíf hafa sent blaðinu athugasemdir þar sem fram kemur að iðgjöldin séu enn lægri sé miðað við vágryggingarfjár- hæð 4,6 milljónir króna. Alþjóða líftryggingarfélagið Ársiðgjald líftryggingar ef karl- maður reykir og er þrítugur er 9.423 krónur og 28.718 ef viðkomandi karl- maður er 50 ára. Sé um konu að ræða er iðgjaldið lægra. Hún borgar 5.808 krónur á ári ef hún reykir og er þrítug og 19.126 ef hún er fimm- tug og reykir. Iðgjaldið verður enn lægra ef konan og karlinn reykja ekki. Þá borgar þrítugur karlinn 9.016 krónur og 22.071 ef hann er fimmtugur. Þrítug kona borgar 5.304 krónur og fímmtug 15.055 krónur. Samlíf Iðgjald þrítugrar konur hjá Sam- lífi var sagt 6.470 krónur í töflu Neytendasamtakanna en er 6.159 krónur og ef um fimmtuga konu er að ræða er það 18.147 krónur en ekki 19.064 krónur. Sé um þrítugan karlmann að ræða er það 9.301 en ekki 9.770 krónur og hjá fimmtug- um karlmanni 25.650 en ekki 26.942 krónur. Breytilegt iðgjald þýðir að aðeins er vitað hvað borgað er í iðgjald fyrsta árið. Iðgjald fer eftir aldri og hækkar því að raungildi milli ára. Nýtt Granini grænmetissafar SÓL hf. hefur hafið sölu á Granini söfum. Fyrst um sinn eru það þijár tegundir sem eru á boðstólum, gul- rótarsafi, grænmetissafi sem inni- heldur sjö tegundir af grænmeti og tómatsafi. Granini hefur verið til um áraraðir hérlendis, safarnir koma frá Austurríki og fást í hálfs lítra flöskum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.