Morgunblaðið - 12.07.1997, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 12.07.1997, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 12. JIJLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ AFMÆLI GUÐBJÖRG SIGRÍÐUR PÁLSDÓTTIR ÉG VEIT það vel, elsku Gaua mín, að þér er engin þökk í að skrifuð sé afmælisgrein í til- efni þeirra tímamóta, sem nú eru í lífi þínu á níræðisafmælinu. Það ætla ég heldur ekki að gera, en samt get ég ekki stillt mig um að biðja Morgun- blaðið að bera þér örfá og fátækleg kveðjuorð frá okkur hjónum og fjölskyldu okkar. Ég held að ég full- yrði ekkert of mikið þó ég segi, að bjartasta æskuminning- in, sem ég á í barmi geymda, er bundin okkar fyrstu kynnum. Þú varst þá ung stúlka, ég lítill, þriggja ára drengur. Þú komst norður í Skagafjörð með unnusta þínum og yngsta móðurbróður minum, Bergi Björnssyni, sem skömmu síðar vígð- ist til prests að Breiðabólsstað á Skógarströnd, en fluttist nokkrum árum seinna að Stafholti í Staf- holtstungum, þar sem þið hjónin gerðuð garðinn frægan um langa hríð. Þú komst norður í Skagaljörðinn til þess að heimsækja ömmu mína og verðandi tengdamóður þína, Guðfínnu Jensdóttur, ekkju sr. Björns Jónssonar á Miklabæ. Hún bjó þá í Sólheimum í Blönduhlíð. Þar átti ég líka heima með foreldr- um mínum og þar voru einnig fleiri frændsystkini á mínum aldri. Þú varst svo falleg og góð, að þar gat ekki verið um neinn samjöfnuð eða samanburð að ræða. Á þeim árum sungu allir, sem sungið gátu, hið fagra ljóð Davíðs Stefánssonar, „Þú komst í hlaðið á hvítum hesti“. Þú komst að vísu ekki á hvítum hesti, en þú komst eins og bjartur engill, og áreiðanlega komstu með „vor í augum þér“. Allir fögnuðu þér sem hinum „góða gesti,“ og hvað mig snerti a.m.k. þá get ég fullyrt, að ég „gaf þér hjartað í brjósti mér.“ Enn í dag kemur þessi ógleyman- lega sumarheimsókn þín fram í huga minn, þegar ég heyri hið ljúfa ljóð Davíðs sungið. Kynni okkar endurnýjuðust og efldust þegar persónutengslin tvö- földuðust, ef svo mætti segja, þegar ég giftist Sjöfn, systurdóttur þinni, dóttur Lilju og sr. Jóns á Ákra- nési. Þó að margt væri breytt og mörg ár liðin frá okkar fyrstu kynn- Pennavinir í 210 löndum. International Pen Friends. Sími 881 8181. Mikiá úrvfll ðf fflllegum rúmfíifraái SkóLrvörÖustig 21 Sími 551 4050 Reykjavik f \ ALOE VERA Náttúrusnyrtivörur úr ekta ALOE VERA um fann ég hjá þér alla sömu eiginleikana, sem heilluðu mig mest og urðu mér kærastir og minnisstæðastir frá þeim sjólbjörtu bernskudögum. Sóknarfólki manns þíns varst þú alla tíð sem besta systir eða ástrík móðir. Öllum þótti vænt um þig. Eftir að þið fluttuð til Reykjavíkur fórst þú að vinna á Flóka- deildinni. Þar fékkst þú að takast á við hlut- verk, sem hæfði vel þínum fórnfúsu höndum og hlýja hjarta, að hjálpa þeim, sem áttu bágt og „lýsa þeim, sem ljósið þrá, en lifa í skugga.“ Þannig liðu árin. Þið áttuð tvo góða drengi, Ragnar Heiðar og Guðmund Pál, sem báðir fylgdu ykkur til Reykjavíkur. Ragnar hefir alltaf verið með ykkur, ykkar stoð og stytta og í smáu og stóru allt til þessa dags, og þeim mun styrk- ari eftir því sem þörfin hefir verið meiri. Guðmundur Páll kvæntist ungur, Erlu Valtýsdóttur. Þau eign- uðust eina dóttur, Berglind, sem nú er bankastarfsmaður í Reykja- vík. Erla lést 1969. Eftir það óluð þið Berglind upp sem ykkar elskuðu dóttur. Núverandi eiginkona Guð- mundar er Gerður Daníelsdóttir. Þau eiga tvö börn, Björn og Guð- björgu. Sonur Berglindar er Bergur Vilþjálmsson. í ársbyijun 1980 veiktist eigin- maður þinn af heilablæðingu, sem svipti hann máli og lamaði hann að verulegu leyti. Fyrstu árin á eft- ir var lifað í voninni um einhvern afturbata, sem þó varð aldrei að teljandi veruleika. Hann komst að vísu heim og klæddist hvern dag um 11 ára skeið. Þar stóðs þú, elsku Gaua mín sem hin sanna kærleiks- hetja við hlið ástvinar þíns og varst honum allt. Þó skal hlutur Ragnars í því stríði hvorki vanmetinn eða gleymdur. En það var þín ástríka umhyggja, sem öllu máli skipti. Frá henni ljómar af geislastöfum þess guðdómlega kærleika, sem „umber allt og aldrei fellur úr gildi“. Megi þeir kærleiksgeislar fylla hjarta þitt og varpa birtu sinni yfir veginn þinn, sem framundan er. Þá afmæl- isósk og bæn eigum við hjónin besta þér til handa. Björn Jónsson, Akranesi. Ferming í Reykjavík FERMING í Háteigskirkju sunnudag kl. 11. Prestur sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Fermd verður: Áslaug Heiða Gunnarsdóttir, Einimel 14. FERMING í Neskirkju sunnudag kl. 11. Prestur sr. Halldór Reyn- isson. Fermdur verður: Davíð Kristján Guðmundsson, Bræðraborgarstíg 49. Ferming á landsbyggðinni FERMING í Stöðvarfjarðar- kirkju sunnudag kl. 11. Prestur sr. Gunnlaugur Stefánsson. Fermd verður: Birgit Þorbjörg Ingirid Larsson, Rochester, USA. aðs.: Hóll, Stöðvarfirði. FERMING í Egilsstaðakirkju sunnudag kl. 14. Prestur sr. Kristín Pálsdóttir. Fermd verða: Eva Björk Harðardóttir, Faxatröð 14, Egilsstöðum. Hafþór Atli Rúnarsson, Ásmund-Vinjevej 1, 4009, Stavanger, Noregi, aðs.: Faxatröð 14, Egilsstöðum. ÍDAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Unaðsdagar á Örkinni VIÐ undirritaðar dvöld- umst ásamt mökum okkar á Hótel Örk í Hveragerði um páskahelgina. Sú dvöl var einstaklega ánægjuleg og viljum við láta í ljós þakklæti okkar með því að vekja athygli fólks á þessu ágæta hóteli. Öll þjónusta þar er með glæsibrag. Maturinn er ekki einungis mikill og góður heldur eru þarna listakokkar og fram- reiðslan eins og best verður á kosið. Morgunverðar- hlaðborðið er með því besta sem þekkist, flöibreytt og girnilegt, og staðsett í fallegum blómasal svo að okkur fannst að við værum komin á suðrænar slóðir. Aðalmatsalurinn er ákaflega glæsilegur enda prýddur (eins og raunar hótelið allt) listaverkum eftir suma af okkar bestu og þekktustu myndlistar- mönnum. Herbergi hótelsins eru bæði vistleg og aðlaðandi, búin fjölrása sjónvarpi, smábar og öllum þeim þægindum sem einkenna hótel í fremstu röð. Og ekki má gleyma því að rúmin eru þægileg og veita góða hvíld. Þá er sundlaug staðarins ágæt og búin rennibrautum og sérstakri aðstöðu fyrir börn, svo og gufubaði. Helgina sem við dvöldum á Hótel Örk voru skemmtiatriði á hveiju kvöldi með lifandi tónlist og dynjandi dansi. Þá er að geta þess, síðast en ekki síst, að hótelið er mjög vel í sveit sett. Þaðan er örstutt til ýmissa fegurstu og sögufrægustu staða landsins og í Hveragerði sjálfu er umhverfi sem vart á sinn líka á íslandi, þar sem skiptast á ólgandi hverir og hitabeltisgróður í gróðurhúsunum. Erna Hjaltalín, Hanna Magnúsdóttir. Raunir Víkverja RAUNUM Víkveija í dag- lega lífinu ætlar seint að linna. Hann virðist ekki eiga kristilega þolinmæði gagnvart náunganum 10. júlí. Enn er það akstur, umferð og bílastæði sem raska geðró Víkveija. Umferðarsniglar teija á aðalveginum þegar Vík- veiji þarf að flýta sér. Bíla- stæði eru of þröng svo að Víkveiji neyðist til að aka á stólpa. Áður hefur Vík- veiji bent á kolómöguleg sjálfvirk bílastæði og vonda óþolandi stöðu- mælaverði. Hvað persónu- legar raunarollur af þessu tagi eiga erindi til almenn- ings, er mér með öllu óskiljanlegt! Bjarni Valdimarsson, Baldursgötu 7a. Tapað/fundið G-SHOCK úr fannst G-SHOCK úr fannst á gangstíg við Miklubraut miðvikudaginn 2. júlí. Uppl. í síma 565-5728. Olympus-myndavél tapaðist á Akureyri OLYMPUS-myndavél tap- aðist á Akureyri í síðustu viku, sennilega í nágrenni Lystigarðsins. Skilvís finnandi vinsamléga hafi samband í síma 557-3901 og 893-7113. Fundarlaun. Norskur skógar- köttur tapaðist SVARTUR, norskur skóg- arköttur, mjög loðinn með hvíta bringu og hvítar loppur, hvarf að heiman frá Blönduhlíð 17 hinn 27. júní. Hann er ólarlaus og ómerktur. Þeir sem hafa orðið varir við kisa hafi samband í síma 551-9848. Læða óskar eftir heimili SVÖRT og hvít læða, mjög gæf og kassavön, óskar eftir góðu heimili. Uppl. í síma 551-8086. Með morgunkaffinu í LJÓSI árangurs þíns í starfi og iðjusemi hef ég tekið ákvörðun um að láta pakka launaumslagi þínu í gjafapappír i framtíðinni. AÐRIR létu sér nægja að taka póstkort eða minja- grip með sér heim úr þjóðgarðinum. SKÁK llmsjón Margrir Pétursson STAÐAN kom upp á hol- lenska meistaramótinu í sumar. Johan Van der Wiel (2.555) var með hvítt og átti leik gegn Liafbern Riemersma (2.435). 29. Hd7! - Bxd7 (Eða 29. - He7 30. Hxc7 - Hxc7 31. Kd4 - Kf6 32. Kd5 - Ke7 33. Ba6! með vinnings- stöðu] 30. cxd7 — Hexc4+ 31. Bxc4 - Hxd7 32. Ha6 (Með biskup fyrir tvö peð vinnur hvítui' enda- taflið) 32. - h5 33. Bb5 - Hd5 34. Bc6 - Hf5 35. Bf3 - h4 36. h3 - Kh6 37. Hxa7 - Kg5 38. Kd3 - Hf6 39. Ha5+ - Kh6 40. Ha4 - g5 41. Hc4 og svartur gafst upp. Urslitin á hol- lenska meistara- mótinu urðu: 1,—2. Timman og P. Nikolic Vh v. af 11 mögulegum, 3.-4. Ivan Sokolov og Van der Wiel 7 v., 5. Sosonko 6 'h v., 6. Nijboer 6 v., 7. Piket 5 'A v., 8. Van der Sterren 5 v., 9. Van den Doel 4 'h v., 10. Riemersma 4 v., 11. Cifuentes 3‘/z v. 12. Van der Weide 2 v. Víkveiji * IALLT sumar hefur í íjölmiðlum verið talað um úrvalsdeildina í knattspyrnu sem „Sjóvá-Almennra- deildina“. Þetta kvað vera hið opin- bera heiti deildarinnar, ákveðið af Knattspyrnusambandi íslands. Nafngiftin hefur komið Víkveija spánskt fyrir sjónir, því að í henni er augljós málvilla. Auðvitað ætti að beygja bæði nöfn tryggingafyrir- tækisins, sem styrkir KSI, og deild- in að heita Sjóvár-Almennra-deild- in. Víkveiji skilur ekki hvers vegna Knattspyrnusambandið vill flagga málvillu í heiti úrvalsdeildarinnar og því síður skilur hann að fyrir- tæki, sem leggur nafn sitt við deild- ina, skuli samþykkja að það sé vit- laust beygt! xxx VÍÐAR má finna villur þar sem sízt skyldi og fyrir allra aug- um. Undanfarið hafa ný götuskilti verið fest upp í Kvosinni. Á þau eru ietruð nöfn gatnanna og jafnframt fyrri nöfn þeirra, sem flestir höfðu gleymt. Þetta er auðvitað prýðilegt framtak og til þess fallið að auka skrifar... þekkingu og áhuga á sögu Reykja- víkur. Hins vegar stingur í augun að á skiltinu á horni Austurstrætis og Lækjargötu stendur „Austur- stæti“. Skiltamálarinn hefði greini- lega þurft að hafa prófarkalesara sér til halds og trausts. xxx UM ÞESSAR mundir er mikið um gatnaframkvæmdir í Reykjavík og götur eru því oft lok- aðar um lengri eða skemmri tíma. Þar sem stórframkvæmdir standa yfir virðist vera vel gengið frá öllu með rækilegum merkingum og leið- beiningum tii vegfarenda. Þar sem verið er að vinna ýmis smærri verk, til dæmis gerð hraðahindrana, virð- ast verktakarnir hins vegar oft gleyma að setja upp skilti, sem vara ökumenn við því í tæka tíð að gata sé lokuð. Þetta getur vald- ið ökumönnum miklum óþægindum og jafnvel aukið slysahættu. Hver á að hafa eftirlit með að verktakar standi rétt að svona málum? xxx TÍZKUHUGTÖKIN framleiðni og gæðastjórnun hafa augljós- iega farið framhjá stjómendum hins ágæta fyrirtækis Vinnuskóla Reykjavíkur. Víkveiji fylgdist með stuttu með unglingum úr vinnuskól- anum planta sumarblómum í beð á vegum borgarinnar. Þar virtist góð- ur vinnukraftur vannýttur. Garð- yrkjumennirnir ungu virtust eyða mestu af tíma sínum í að bíða - eftir fyrirskipunum, blómum, verk- færum, að verða sóttir o.s.frv. Sleif- arlag var á vinnunni og enn liggja moldar- og illgi-esishaugar við blómabeðin, sem um ræðir. Aukin- heldur var verkum skipt milli kynja með einkennilegum hætti; fyrst komu strákarnir og stungu upp ill- gresið, svo komu stelpurnar og plöntuðu blómunum. Ekki sýndist Víkveija þetta nútímalegur rekstur og varla til fyrirmyndar það sem unglingarnir læra í „vinnuskólan- um“. Þótt Vinnuskólinn sé auðvitað öðrum þræði atvinnubótavinna, hlýt- ur að mega taka þar upp skilvirk vinnubrögð - nóg eru verkefnin við snyrtingu og fegrun borgarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.