Morgunblaðið - 12.07.1997, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.07.1997, Blaðsíða 18
GUÐJON ÞÓRÐARSON: FAÐIR og symr a hatið- arstund. Myndin er tek- in á Akranesi eftir að Skagamenn höfðu unnið tvöfalt undir stjórn Guðjóns árið 1993. Leikjahæsti leikmaður Skagamanna frá upphafí með um 400 leiki. Titlar Guðjóns Þórðarsonar Guðjón Þórðarson hefur náð einstökum árangri sem leikmaður og síðan þjálfari, og alls unnið til 23 meistaratitla í mótum KSÍ. p..— lai.iAMiin III 9sinnum íslandsmeistari 9 sinnum Bikarmeistari 1 sinni Deildarbikarmeistari 1 sinni 2. deildarmeistari 3 sinnum Meistarakeppni KSÍ cgaiagB 1974 1975 1977 ÍBafi 978 1982 2 1993 19941995 984 1986 1987 1989 1990 1991 19< 18 LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Guðjón Þórðarson stendur á tímamótum og kveðst ekki ætla að velta sér upp úr því sem liðið er. Hann er þegar farinn að líta í _____kringum sig eftir hugsanlegum___ landsliðsmönnum framtíðarinnar og fylgdist Sveinn Guðjónsson með honum við _______þá iðju á knattspyrnuleik í___ Vestmannaeyjum nú í vikunni. HLÝTT og milt sumarveð- ur heilsar okkur á flug- vellinum í Vestmannaeyj- um og Guðjón hefur orð á því að hann hafi aldrei komið til Eyja í betra veðri. Kannski er þetta bara táknrænt. Það hefur nefnilega sjaldnast verið lognmolla í kringum Guðjón Þórðarson, en í dag hefur storminn greinilega lægt og lands- liðsþjálfarinn virðist sáttur við lífíð og tilveruna enda ekki ástæða til annars. Hann hefur nú tekið við því starfi sem margir telja hann manna hæfastan til að gegna, þótt ekki hafi það gengið átakalaust, fremur en svo margt annað í lífí hans. En Guð- jón kveðst staðráðinn í að horfa til framtíðar í stað þess að velta sér upg úr því sem liðið er. Aður en ieikurinn hefst fáum við okkur að borða á veitingahúsinu Lantema og pöntum fisk dagsins, sem er háfur. Hvorugur hefur smakkað þá skepnu áður þótt Guð- jón hafí nánast alist upp í návígi við hinar ýmsu fisktegundir, sem lifa í sjónum í kringum landið. Það mun- aði nefnilega „ekki nema hárs- breidd að ég fetaði í fótspor föður míns og yrði sjómaður" eins og hann orðar það sjálfur. „Það var móðir mín sem kom í veg fyrir það. Henni fannst víst nóg að hafa pabba á sjón- um og fannst ég eiga eitthvað betra skilið, því þótt sjómennskan sé vissulega virðingar- vert starf þá kostaði hún á árum áður mikl- ar fjarvistir frá heimil- inu og menn sem hana stunduðu áttu ekki mikið fjölskyldulíf. Þá tók við ein vertíðin af annarri og um leið og vetrarvertíð lauk voru menn komnir á síld, síðan aftur á línu og net og svo koll af kolh. Eg byrjaði sem strákur að fara á sjóinn með pabba og líkaði það í sjálfu sér ekki illa. En það var ekkert „elsku mamma“ þegar komið var um borð. Þarna var mér strax kennt að menn þyrftu að hafa fyrir hfinu og mér var ekki sýnd nein miskunn heldur varð ég að standa klár á mínu. Kannski hef- ur það öðru fremur mótað lífsvið- horf mitt og verklag." Knattspyrnuætt Guðjón er fæddur og uppalinn á Akranesi, sonur hjónanna Marselíu Guðjónsdóttur frá Ólafsfirði og Þórðar Guðjónssonar skipstjóra og útgerðarmanns á Skipaskaga. Hann á tvær eldri systur, Ingu Jónu og Herdísi og úr frændgarði hans í föð- urætt má þekkja kunna kappa úr glæsilegri knattspymusögu Skaga- manna. Afasystir hans, Ragnheiður Þórðardóttir, er til að mynda móðir Ríkharðs og Þórðar Jónssona, sem gerðu garðinn frægan með gullald- arliði Skagamanna hér á árum áður. Knattspyrnan er því í blóðinu og virðist ganga í erfðir. Má í því sam- bandi nefna að Karl, sonur Þórðar Jóns. lék leneri með liði Skaea- Pað var ekkert „elsku mamma“ þegar komið var um tmrð manna áður en hann gerðist at- vinnumaður erlendis, Ríkharður Daðason, dóttursonur Rikka Jóns, er leikmaður með meistaraflokkshði KR og hefur leikið nokkra lands- leiki og synir Guðjóns sjálfs, þeir Þórður og Bjarni, eru landsliðs- menn og báðir orðnir atvinnumenn með þekktum félagsliðum í Evrópu. Og einhver laumaði því að undirrit- uðum að Jóhannes, 17 ára sonur Guðjóns, væri jafnvel efnilegastur af þeim öllum, en hann leikur nú með KA frá Akureyri í fyrstu deild- inni. Það liggur því beinast við að spyrja hversu stóran þátt þjálfarinn Guðjón hafi átt í hinu knattspymu- lega uppeldi strákanna? „Sjálfsagt hef ég reynt að segja þeim eitthvað til, en ég held þó að minn þáttur í þjálfuninni hafi ekki skipt sköpum í þeim árangri sem strákarnir hafa náð heldur fyrst og fremst upplag og viljastyrkur þeirra sjálfra. Hins vegar má skjóta þvi inn hér til gamans að sjálfur tel ég mér ekki alls varnað sem upp- alanda, í venjulegum skilningi þess orðs, því eftir að ég skildi við fyrri konu mína bjó Þórður, sá elsti af sonum mínum af fyrra hjónabandi, hjá mér þangað til hann stofnaði sitt eigið heimili. Eg vissi að ýmsar raddir sögðu þá: „Aum- ingja drengurinn að al- ast upp hjá föður sín- um“, - en Doddi hefur spjarað sig vel í hinum harða heimi atvinnu- mennskunnar og ekki að sjá að hann hafi beð- ið alvarlegan skaða af samvistunum við föður sinn á þessum árum. En ég vissi það ekki fyrr en löngu seinna að ég átti rétt á feðralaunum sem ein- stæður faðir," segir Guðjón og þyk- ir það greinilega skondið. Guðjón er kvæntur Hrönn Jóns- dóttur íþróttakennara og eiga þau synina Atla og Tjörva, en Hrönn átti fyrir soninn Leó. Synirnir eru allir ungir að árum og því verður tíminn að skera úr um hvort þeir eigi eftir að gera garðinn frægan á knattspyrnusviðinu eins og faðir þeirra, bræður og frændur og er aldrei að vita nema að þama leynist enn einn knattspyrnusnillingurinn. Viljinn til að vinna Víð víkjum nú talinu að ferli Guð- jóns sjálfs sem knattspyrnumanns og uppeldi hans á Akranesi: - Voru og eru ungir strákar á Skaganum ef til vill ekki gjaldgengir meðal félag- anna nema að kunna eitthvað fyrir sér í knattspyrn u ? „Knattspyrnuhefðin er auðvitað mjög sterk á Skaganum, en ég held þó að strákar séu samt ekki settir til hliðar af félögunum þótt þeir séu ekki liðtækir í boltanum. Það er vissulega draumur margra ungra drengja á Akranesi að spila með meistaraflokki og gera garðinn frægan, en þetta er auðvitað upp og ofan oe liorerur kannski meira í ákveðnum fjölskyldum en öðrum. En menn eru ekkert dregnir í dilka eftir getu í knattspyrnu, það held ég að sé af og frá. Sjálfur stundaði ég fótboltann eins og svo margir aðrir, en bæði sumrin sem ég var í þriðja flokki gat ég lítið æft þar sem ég var á sjónum með pabba. Þá stefndi allt í að ég myndi hætta í boltanum, en svo gerðist það seinna sumarið að ég hætti á sjónum viku áður en skólinn byrjaði og fór á æfingu hjá þriðja flokki IA og var valinn strax í lið sem var að fara í keppnisferða- lag til Englands. Eftir það varð ekki aftur snúið og um veturinn stundaði ég æfíngar af kappi og vorið eftir var ég kominn í meistaraflokkshóp- inn.“ Guðjón er leikjahæsti leikmaður ÍA frá upphafi, á að baki um 400 leiki með meistaraflokki. Fyrsta meistaraflokksleikinn lék hann árið 1972 gegn Fram og töpuðu Skaga- menn þeim leik. Tveimur árum síð- ar vann Guðjón sinn fyrsta meist- aratitil með IA oe hann hefur land- að þeim nokkrum síðan, bæði sem leikmaður og þjálfari, en alls hefur hann unnið 23 meistaratitla á mót- um KSI, sem leikmaður og þjálfari, sem er fáheyrt afrek. Því hefur líka verið slegið fram að Guðjón sé „fæddur sigurvegari“ og ég spyr hann hvort sigurvilji sé meðfæddur eiginleiki eða áskapaður? „Viljinn til að sigra er að minu mati eiginleiki sem menn tileinka sér, en þó held ég að ákveðið skap- ferli þurfi að vera fyrir hendi til að menn geti tileinkað sér hann. Hitt er svo líka staðreynd að með reynsl- unni leggur þú inn ákveðna hluti, sem þú notar svo síðar til að bæta árangurinn. Það er ekki hægt að tryggja toppárangur, en það er hægt að bæta árangur með mark- vissri vinnu. Menn hafa sagt að þetta sé ákveðinn „frasi“ hjá mér, en ég er sannfærður um að árangur næst ekki nema með vinnu og aftur vinnu. Ég þekki enga aðra leið. Sannur árangur byggist ekki á til- viliunum eða ..kraftaverkum". Ée á ekki eftir að gera nein „kraftaverk" með landsliðið heldur mun árangur- inn byggjast á þeirri vinnu sem við, ég og leikmenn, leggjum fram, og við verðum allfr að leggja okkur fram.“ - Hvað er það sem þér hefur helst fundist á skorta hjá landslið- inu okkarað undanförnu? „Það er dálítið erfitt fyrir mig að fara að gagnrýna frammistöðu landsliðsins á þessu stigi enda hef ég ekki verið í aðstöðu til að fylgjast með þeirri vinnu sem fram hefur farið í þeim herbúðum. En sem ut- anaðkomandi aðili hef ég haft á til- fínningunni að menn hafi ekki verið að leggja sig alla fram í leikjum, með örfáum undantekningum að vísu, án þess þó að geta fullyrt nokkuð um það. Reyndar hefur mér einnig fundist votta fyrfr þessu í leikjum íslenskra félagsliða að und- anförnu og ef sú er raunin er þetta slæm þróun og býður heim hætt- unni á stöðnun í íslenskri knatt- snvrnu."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.