Morgunblaðið - 12.07.1997, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.07.1997, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ 11 LM „ÞEGAR maður lítur á eina blóm- jurt sem vex grönn og umkomulaus uppí öræfum meðal hundrað þúsund steina, og maður fann hana-aðeins af tilviljun, þá er spurt: hvemig stend- ur á því að lífíð er að reyna að brjót- ast fram?“ Ég gat ekki hætt að hugsa um þessa setningu úr Sjálfstæðu fólki, þar sem ég ók eftir rússíbanískum þjóðveginum á Tjömesi. ískalt haf, grýtt land; staður svo kuldalegur að hann fer fram úr manns villtustu nei- kvæðni. Skyldi vaxa hér friggjar- gras, smjörgras, lyfjafras, hjóna- gras, blóðberg; einhver af þessum grönnu og umkomulausu blómjurt- um, sem gefa lífinu ilm og bragð og græða sár - ekki síst í sálinni sem á það til að verða ekkert nema urð og grjót í amstri daganna. Lífið sko ... það er ekki andskotalaust, eins og hún amma mín sagði. Ferðinni er heitið yfir þetta tungl- kennda landslag að Lundi í Öxar- firði. Sama gamla áráttan, frétti af einhverju sem vekur áhuga minn og æði þangað, yfir allt sem fyrir verð- ur. Hvenær vex ég upp úr þessu? Keyri upp og niður brekkur, sem hafa 10% halla, 12% halla, 14% halla og em allar í bugðum og beygjum. I aftursætinu sitja dætur mínar með Islandskort og þylja upp nöfn á fjöll- um og dölum, hæðum og ásum og heiðum sem eiga það öll sameigin- legt að vera kennd við mat; smjör og naut og lamb og mjólk og rjómi. Landslag úr ísskápnum. Þær skemmta sér konunglega. Lundur í Öxarfirði. - sælureitur fyrir náttúruunnendur...? Trúlegt, eða hitt þó heldur. Keyri framhjá Mánárbakka og velti því fyrir mér að snúa við, fara aftur til Húsavíkur, þar sem er al- mennilegt malbik á stöku stað, bryggja og ilmur af fjöru, trébátum og alls konar tré og blóm, hús og fólk og ferðamenn, sjoppur sem seija samlokur og kók. Æi nei, segja stelpurnar þegar ég sting upp á því; þær siöðugt hamingjusamari, eftir því sem við fjarlægjumst mannlífið meira. Ég verð enn neikvæðari og breytist í verulega hallærislegt for- eldri: Þið hefðuð átt að fæðast í helli ... Þið vilduð kannski búa meðal þessara hundrað þúsund steina. Nei, nei, segja þær og horfast í augu. Það er æ-aumingja-mamma, augnaráðið. Ég held að þessi Lundur sé bara einhver grjótasælureitur. Allt í lagi, segja þær, við snúum þá bara við í Lundi og förum í As- byrgi eða Hljóðakletta. Fáum okkur göngutúr. Það er rigning. Þá er lyktin af gróðrinum líka svo góð. Á HEIMAVISTINNI er Iw IgP • « y Að Lundi í Oxarfírði rekur Asa Jó- hannesdóttir sumardvalarstað sem miðar að bættri heilsu, jafnt and- lega sem líkamlega. /'l dvaldi í Lundi eina helgi o g lýsir reynslu sinni. ........■.......................................: GRASATINSLUFERÐ. Við erum komnar að djúpri U- brekku með 14% halla og við blasir sandurinn í Öxarfirði. Og þá man ég það allt í einu - ég hef alltaf verið svo hrifin af þessum sandi. Hann var ástæðan fyrir því að ég ákvað að skoða þennan sælureit, náði bara ekki að hala það upp úr undirmeðvit- undinni. Það er svo langt síðan ég hef komið hingað. Ég slaka á í öxiun- um, sný höfðinu fram og til baka, það brakar í hálsliðunum. Við dólum okkur áfram og ég er alltaf að hugsa um sögu sem ég hafði heyrt deginum áður - um konuna sem var á „geðjafnaðarlyfjum" þegar hún kynntist manninum sínum. Keyri framhjá Ásbyrgi og velti því fyrir mér hvort margir Islendingar séu á „geðjafnaðarlyfjum“. Það hlýtur að vera óskaplega leiðinlegt. Líður þér betur? spyr eldri dóttir mín. Hvers vegna spyrðu að því? Vegna þess að þú ert hætt að anda upp í haus og farin að anda oní maga. Framhjá Ástjöm, yfir Jökulsár- ósa. Þetta er nú ekki farið að líta sem verst út. Sælureitur fyrir nátt- úruunnendur nálgast, sé vegaskilti sem segir að malbikið sem upphófst ÁSA Jóhannesdóttir á Lundi í Öxarfirði. rétt við Ásbyrgi sá á enda. Svo endar það - er komin að Skinnastöðum. Verð alveg undrandi hvað presturinn hefur rosalega stórt hús. Velti því fyrir mér hvort ég hefði átt að fara í guðfræði. Hætti við það næsta dag, þegar ég heyri að húsið sé helkalt yf- ir vetrartímann. Hlýtur að vera slæmt oní myrkrið. Einhver svona non-sælureitur. Bremsa. Var næstum komin framhjá Lundi. Alltaf á einhverju ani, líka í hausnum. Hús beggja vegna vegarins. I öðru skóli, hinu sundlaug. Hvorum megin skyldi maður eiga að fara? Úllen, dúllen doff. Fer upp í skólann. Allt greini- lega fullt af hestamönnum í svefn- pokagistingu; gallamir, stígvélin, farangurinn, lyktin. Dóttir mín kæt- ist, ekki ég. Ég er ofboðslega hrædd við hesta. Sný við, ákveð að athuga sundlaugina hinum megin við veg- Það er gamli skólinn, gamla heimavistin - og hér ræður ríkjum Ása Jóhannesdóttir, sem hefur tekið Lundaskóla á leigu í tíu sumur, beggja vegna þjóðvegar, þar sem hún ætlar að reka hótel undir kjör- orðunum: Náttúra - gleði - heilsa. Þegar stigið er út úr bílnum fyll- ast vit manns dýrðlegum birkiilmi. Það er satt, gróðurinn ilmar vel eftir rigningu. Og þá man ég að rétt utar í firðinum er Silfurstjaman með sil- ungs- og laxarækt og nú er einmitt dagur til að sjóða silung, búa til sil- ungssúpu með fíflablöðum, blóð- bergi, birkilaufum. En hvers vegna varð þessi staður fyrir valinu hjá Ásu? „Fyrir sjö áram fór mig að dreyma um að stofna heilsuparadís fyrir okkur öll sem höfum áhuga á að skapa okkar eigin tilveru," segir Ása. „Stað þar sem við getum verið saman úti í náttúranni og notað sum- arfríið til að næra okkur andlega og líkamlega. Þar sem við getum öðlast aukið jafnvægi og kyrrð, sótt eldinn í jörðina, virkjað sköpunarkraftinn og aukið styrk okkar. Ég var búin að leita í fjögur ár, víðs vegar um land- ið, þegar ég fann Lund. Ég vildi koma upp stað þar sem fólk getur náð tengslum við sjálft sig, fengið skjól frá firringu samfé- lagsins, umgengist hvort annað út frá sínu æðsta - sem er ástand sem skapast við hugleiðslu. Ég sé þetta sem heilsusamlegan sumardvalar- stað með leik, sköpun og gleði." Og trú sinni köllun, hefur Ása skipulagt fjölda námskeiða að Lundi þetta fyrsta sumar sem hún rekur sumardvalarstaðinn sinn. Þegar okk- ur mæðgur ber að garði, standa yfir kyrrðardagar, nýlokið fimm daga safafóstu, svitahofið komið af stað og 1 bígerð era námskeið í blómaskreyt- ingum sem Elísabet Valgeirsdóttir I draumsins litadýrð DRAUMSTAFIR Kristjáns Frímanns TIL ERU þeir dreymendur sem segja að þá dreymi ekki í lit heldur svarVhvítu eða grámósku tónum og draumamir séu heldur hráslagaleg- ir, þvi sé best að gleyma þeim enda séu þeir hvort eð er tómt rugl! Ligg- ur fiskur undir steini? Alla dreymir í lit, líka þá „draumlausu“ og vantrú- uðu. Én gráir draumar og svarVhvítir geta speglað dauft vöku- líf og tilbreytingarlaust eða skarpar andstæður í hugsun og gjörðum þó sverta næturinnar sé ekki öll sem sýnist. Svarti „liturinn" er í vöku sem svefni tákn jarðtengdra afla og dulúðar, hann er í draumi tákn dul- vitundarinnar og krafta henni tengdri, því era svartir draumar verðir allrar athygli. Gráir litir og litleysur venja svo komur sínar í drauma fólks um sálfarir. Með grósku náttúrannar í lit og birtu sem smitar fólkið í litrík klæði og ljær því draumkennt útlit eru frum- litimir rautt, gult og blátt áberandi undirstaða sem blanda má á ótelj- andi vegu eftir smekk og tísku þó jarðlitir lyndi því best. Sama má segja um drauminn frá landi dulvit- undarinnar, hann notar framliti mikið við táknmyndagerð: Rautt fyrir orku, hreinskilni og trú. Gult fyrir veikindi, visku og endurfæð- ingu. Blái liturinn er dularfullur sem draumlitur og sýnir á sér margar hliðar, hann speglar sálina, hugann og æðri vitund ásamt hæfileikum sínum til að töfra og blekkja. Græni liturinn er blanda af gulu og bláu og táknar meðal annars grósku, afrek og hörku. Litimir munu fá hver fyr- ir sig umfjöllun í Draumstöfum. Draumar lesenda Draumstöfum berast mörg bréf en í hverjum pistli er einungis hægt að birta tvo til þrjá drauma í senn svo ég bið bréfsendara að sýna draumum sínum þolinmæði, þeir koma. Draumur „Ásdís- „Mig dreymdi stóra íbúð sem verið var að gera upp sem ég og maðurinn minn áttum (fyrrver- andi). Mjög hátt til lofts og engin húsgögn. Eg sé dökkan reyk koma úr röri við gluggann. Við opnum hann og ég sé að við erum á 5.-6. hæð. Það var fólk úti og einn maður sagði að verið væri að laga orsök reyksins. A einum stað í íbúðinni voru nýir veggir, bogadregnir úr viði og náðu ekki alveg til gólfs. Lít- il dóttir mín hafði skriðið undir vegginn og ég vissi af henni. Faðir hennar (núverandi maki) var ná- lægt svo ég hafði engar áhyggjur. Hinum megin í íbúðinni voru veggirnir stórir fletir, ljósgulir. Ég sá gamallt ryk sem þurfti að þrífa og fannst (óljóst) fólk vera þama til þess. Hátt uppi á einum veggnum var kassi og á honum mikið ryk og óhreinindi, ég hugsaði að þetta yrði að þrífa. Á einum stað niðurgrafinn í gólfið með aðeins hluta sýnilegan var grænn krókódíll. „Mexíkani" sem var þarna var ekkert hræddur við krókódílinn, gekk að honum og beit hann í augað, hefði viljað fá sér meira en tókst ekki, dýrinu varð ekki meint af. Eldhúsið var stórt og aflangt með dökkgrænni nýlegri innréttingu. Ég sagði við mann sem þarna var, „Ég vil láta breyta þess- um lit!“. Hann sagði að það yrði aldrei samþykkt því þessi væri í lagi. Ég burstaði af borðplötu og sá að þetta leit bara vel út og var sátt við litinn. Konur í stóra herberginu elskast. Feitar, smávaxnar og ófrýnilegar en glaðar og óheftar. Ég fer afsíðis inn í stórt baðher- bergi, engin hreinlætistæki, bara gráir ómálaðir veggir. Ég klæði mig úr. Ég horfi á mig í spegli, er grönn og finnst ég falleg. Einhver segir - það er verið að horfa á þig. Ég sé ungan mann koma úr felum undan borði eða kassa. Rádning Húsið ert þú og í draumnum ertu að vinna úr fortíð þinni (verið var að gera íbúðina upp/reykur úr röri) til eflingar sjálfinu. Ibúðin er stór, hátt til lofts og þú ert á 5.-6. hæð sem bendir til þroskaðs og víðsýns persónuleika. Nýju veggirnir boga- dregnu úr viði benda til ákveðinnar mýktar í hugsun og sveigjanleika í samskiptum (sem ekki hafi verið til staðar áður) og lausn frá óþarfa áhyggjum (dóttirin skreið undir vegginn). Þó eru enn til staðar kantaðar/staðnaðar (kassinn með rykinu) hugmyndir sem þú vinnur að hreinsun á. Þá era í þér þættir meinfýsni (krókódíllinn) sem era þér á vissan hátt framandi (Mexík- ani) en þú ert lúmskt (dýrið var nið- urgrafið) ánægð með og vilt ekki missa (skepnunni varð ekki meint af biti Mexíkanans). I eldhúsinu (hjartastöð) birtist visst ósjálfstæði (innréttingin var græn, þú vilt breyta um lit, það er ekki hægt og þú samþykkir gamla litinn orða- laust), hræðsla við álit annarra (ein- hver segir - það er verið að horfa á þig), óánægja með eigið sjálf (útlit baðherbergisins og kvennanna) og líkamlegt útlit. Þessir neikvæðu þættir hamla þér en ungi maðurinn (Animus) sem skreið undan kassan- um er bending um breytingu þar á. „/Máni" sendir þennan draum „Mig dreymdi að ég var stödd í margmenni og Ragnarökum nýlok- ið. Fólk ráfaði um án tilgangs og öllu virtist lokið. Fólkið var veikt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.