Morgunblaðið - 12.07.1997, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.07.1997, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Minnisvarði reist ur um Bjarna Heijólfsson HÁTÍÐARFUNDUR hreppsnefndar Eyrarbakkahrepps var haldinn þriðjudaginn 8. júlí sl. í tilefni af 100 ára afmæli Eyrarbakkahrepps. Á fundinum samþykkti hrepps- nefndin að reisa minnisvarða um Eyrbekkinginn Bjarna Hetjólfsson sem fyrstur Evrópumanna fann meginland Norður-Ameríku. Skal minnisvarðinn vera táknmynd um afrek Bjarna og þátt hans í landa- fundunum í Vesturheimi fyrir um það bil 1000 árum. Kjörin var nefnd til þess að hrinda samþykktinni í framkvæmd og eiga sæti í henni Úlfar Guðmundsson, sóknarprestur, Svanborg Oddsdótt- ir, kennari og Magnús Karel Hann- esson, oddviti I greinagerð með samþykktinni. kemur m.a. fram að það sé verðugt verkefni Eyrbekkinga að halda á lofti nafni Bjarna Hetjólfssonar þó að hann stigi ekki á land né næmi lönd þau í vestri sem hann fann. Það verði ekki ft'á honum tekið að hann var brautryðjandinn sem vís- aði veginn til nýrrar heimsálfu. Nýtt aðalskipulag Á hátíðarfundinum staðfesti Guð- mundur Bjarnason, umhverfisráð- herra, nýtt aðalskipulag fyrir Eyrar- bakkahrepp. í frétt frá Eyrarbakkahreppi seg- ir að þetta sé þriðja aðalskipulagið sem gert sé á þessu einnar aldar skeiði Eyrarbakkahrepps. Hið fyrsta var staðfest árið 1936 og var þá tímamótaskipulag að því leyti að Eyrarbakki verður þá fyrsti þéttbýl- isstaðurinn á landinu sem skipu- lagður er út frá landbúnaðarsjón- armiðum. Gert var ráð fyrir því að við hvert íbúðarhús í þorpinu væri gripahús þar sem íbúarnir gætu haldið búfé, sér og sínum til búbótar. Á árinu 1989 var svo staðfest nýtt aðalskipulag fyrir Eyrarbakka þar sem horfið er frá landbúnaðar- skipulaginu. Á þessum tíma er það gamla götumyndin og sérkenni byggðarinnar sem sett eru í önd- vegi. Gert vat' t'áð fyrir því að Eyrar- bakki kæmist aftur í þjóðbraut með tilkomu brúar yfir Ölfusá við Óseyri og ferðamönnum íjölgaði á næstu árum. Það aðalskipulag sem staðfest var á hátíðarfundinum nær yfit' sveitar- félagið allt og með því er get'ð áætl- un um nýtingu lands innan hreppa: markanna til næstu tuttugu ára. í skipulaginu er lögð áhersla á vernd náttúru, landslags og byggðar en þessir þættir allir eiga að geta skap- að Eyrarbakka sérstöðu og aukið aðdráttarafl sveitarfélagsins fyrir ferðamenn. Með skipulaginu et'jafn- framt reynt að skapa ákjósanleg skilyrði fyrir uppbyggingu atvinnu- lífs og að tryggja góð lífsskilyrði fyrir íbúa sveitarfélagsins. Ráðgjafar hreppsnefndar Eyrar- bakkahrepps við skipulagsgerðina voru arkitektarnir Jon Nordstein, MNAL og Ólöf Flygenring, FAÍ. Á fundinum fluttu ávrörp þeir Guðmundur Bjarnason, umhverfis- ráðherra, Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og Jón Gunnar Ottós- son, oddviti Stokkseyrarhrepps sem færði Eyrbekkingum að gjöf frá íbúum Stokkseyrarhrepps málverk eftir staðarmálara Stokkseyringa, Elfar Guðna Þórðarson, er sýnit' götumynd frá Eyrarbakka. Erlendir ráðgjafar á Sólheimum Selfossi - Tveir af yfirmönnum ráðgjafafyrirtækisins SA IC, Science Ápplications International Corporation, komu til íslands á dögunum, gagngert til þess að kynna sér starfsemi Sólheima í Grímsnesi. SAIC er eitt stærsta ráðgjafafyrirtæki í veröldinni á sviði umhverfis-, heilbrigðis- og félags- mála. Tilgangurinn með heimsókn ráð- gjafanna var að kynnast starfsem- inni á Sólheimum, með sérstöku tilliti til samspils umhverfismála, starfsemi fyrir fatlaða og uppbygg- ingu smáatvinnureksturs í vistvænu byggðahverfi. Pétur Sveinbjarnarson, formaður framkvæmdastjórnar Sólheima, sagði að það sem vakið hafi mesta athygli ráðgjafanna væri uppbygg- ing iítilla fyrirtækja í vistvænu sam- félagi. Það vakti einnig athygli þeirra að Sólheimar eru eina byggðahverfið í alþjóðasamtökun- um Global Eco Village Network sem hefur með höndum þjónustu við fatiaða. Nýkomnar til sölu meðal annarra eigna: Austurgerði - stórt hús - skipti Steinhús hæð og kjallari með innb. bílskúr. Samtals um 360 fm. margskonar nýtingarmöguleikar. Ræktuð lóð - trjágarður 914 fm. Ýmisskonar skipti möguleg. Rétt við Rauðagerði - fráb. útsýni Rúmgóð sólrfk 6 herb. efri hæö, tæpir 150 fm. Inng. og hiti sér. Þvottahús á hæð. Sólsvalir, bílskúr 27,6 fm. Tilboð óskast. Skammt frá Reiðhöllinni - fráb. kjör Glæsileg suðuríbúð á 3. hæð, 83 fm. Öll eins og ný. 40 ára byggingarsj.lán kr. 2,5 millj. Mikið útsýni. Rétt við Glæsibæ - góð kjör Sólrík 3ja herb. íb. á 2. hæð um 70 fm. Nýtt parket o.fl. Fullnaðarfrág. ekki lokið. laus 1. sept. Tilboð óskast. Hæð - einbýli - eignaskipti Sérhæð óskast, helst á svæðinu Heimar - Stóragerði - nágr. Skipti möguleg á góðu húsi í smáíb.hverfi. Nánar á skrifstofunni. Selfoss - Rvík - skipti Leitum að 2ja-3ja herb. íbúð, á Selfossi, helst litlu sérbýli í skiptum fyrir góða 3ja herb. íb. í borginni með bílskúr. Opið ídag kl. 10-14. Fjöldi fjársterkra kaupenda að íbúðum hæðum raðhúsum og einb.húsum ALMENNA FASTEIGNASALAN LAUGAVEG118 S. 5521150 - 5521370 LAIMDIÐ Morgunblaðið/Albert Kemp MYNDIN var tekin á Frönskum dögum í fyrra sem haldnir voru á Fáskrúðsfirði. 90 ára afmæli Búða- hrepps á Fáskrúðsfirði Fáskrúðsfirði - Fyrir aldamót og fram undir 1935 voru Búðir helsta bækistöð franskrar skútuútgerðar á Austfjörðum. Þar var franskur konsúll, franskt sjúkrahús og frönsk kapella. Franskur grafreitur er út með ströndinni nokkru utan við þorpið, þar eru 49 franskir og belgískir sjómenn grafnir. Til að minnast frönsku Is- landssjómannanna og halda upp á afmæli Búðahrepps sem er 90 ára í ár verður haldin bæjarhátíð á Fáskrúðsfirði helgina 25.-27. júlí nk. sem ber yfirskriftina Franskir dag- ar/ 90 ára afmæli Búðahrepps. Margt verður gert til há- tíðarbrigða og ættu allir ald- ursflokkar að finna eitthvað við sitt hæ.fi. Minnisvarði um franska sjómenn vígður Hátíðin byrjar á föstudag og verður haldin kaþólsk messa undir handleiðslu kaþólska prestsins Jacques Roland sem starfar við Landakotskirkju. Hann verður hér ásamt fylgd- armönnum í vísitasíu um land- ið. I beinu framhaldi af því verður haldin minningarathöfn sem sóknarpresturinn á Kol- freyjustað, Carlos Ferrer, sér um. Hún verður við stein sem stendur við húsið Steinastaði og nefnt er eftir steininum. Búið er að fegra umhverfi steinsins sem var innsiglingar- tákn fyrir sjómenn á árum áður. Sennilegt þykir að frönsku sjómennirnir hafi talið hann helgan stað og notað sem bænastað. Steinninn verður við sama tækifæri vígður sem minnisvarði um frönsku ís- landssjómennina og afhjúpað- ur skjöldur til að minnast þeirra. Þá verður tendraður varð- eldur en á undan því verður formleg setningarathöfn. Síð- an verða sungnir íslenskir og franskir söngvar svo lengi sem logar í glæðunum. Þilfarsbáti hrint á flot Á laugardag verður reistur minnisvarði um Einar Sigurðs- son (1897-1984) skipasmió á Fáskrúðsfirði, en hundrað ár eru frá fæðingu hans. Alnafni og yngsta barnabarn hans mun afhjúpa minnisvarðann og ætla niðjar Einars heitins að hittast þessa lielgi á Fáskrúðsfirði. Samhliða verður einum af síð- ustu þilfarsbátum, sem Einar smíðaði 1963, komið fyrir í tjörn sem útbúin hefur verið sérstaklega og er í jaðri skrúð- garðs bæjarins. Upprunalegt nafn bátsins var LitlanesÞH52 en hann var síðast í eigu Árna Jóns Sigurðssonar á Seyðisfirði með núverandi nafni, Rex NS3. Hjólreiðakeppninn Tour de Fáskrúðsfjörður verður haldin í annað sinn og verður keppt í nokkrum aldursflokkum. Fyrstu þrír keppendur í hverj- unt aldursflokki fá verðlauna- pening og sá fyrsti í hverjum flokki fær að auki tákn hjól- reiðakeppninnar, gulan sér- merktan bol. Franskajazzhljómsveitin „Cadrave Exquis“ sem spila mun á Sóloni Islandusi með tríói Ólafs Stephensen í Reykja- vík 23. júlí, kemur ein síns liðs hingað austur og leikur á hátíð- inni bæði á laugardag og sunnudag. Ævintýrauppákomur Myndlistarmaðuritin og leik- stjórinn Orn Ingi Gíslason kem- ur frá Akureyri og undirbýr með hópi bæjarbúa ýmsar æv- intýrauppákomur fyrir hátíð- ina. Má búast við ýmsu óvæntu af þeirra hálfu alla helgina, en ekkert gefið upp hvað það verður enn sem komið er. Dansleikur með Geirmundi Valtýssyni verður haldinn á laugardagskvöldið í Félags- heimilinu Skrúði. Vinabær Fáskrúðsfjarðar í Frakklandi er Gravelines og þaðan koma gestir á hátíðina. Islandsvinurinn Francois Scheffer, sem hefur unnið ötult starf við að koma á tengslum franskra og íslenskra ung- menna, verður hér staddur ásamt konu sinni. Þá munu eins og í fyrrasumar dvelja hérna frönsk ungmenni í tvær vikur, en þau koma hingað sem sjálf- boðaliðar á vegum frönsku læknasamtakanna INSERM. Með þeim í för verða blaðamað- urinn Philippe Bouvet og ljós- myndarinn Ðominique Fradin sem jafnframt mun opna ljós- myndasýningu sem er afrakst- ur vinnu hans hér í sumar sem leið. Á slóðir Dúbba dúfu og Mábba mávs Á sunnudag verður öllum aðdáendum Dúbba dúfu boðið í gönguferð á slóðir hans og vinar hans, Mábba mávs. Hald- in verður lestrarstund á túninu hans en sögurnar um Dúbba dúfu og Mábba eru meðal fyrstu bóka sem yngstu börnin lesa þegar þau byrja í skóla. Og hver veit nema við sjáum vini okkar aftur ef við höfum ekki hátt. Karnivalstemmning verður á aðalgötu bæjarins bæði laug- ardag og sunnudag. Þar verða leiktæki ýmiskonar, hoppkast- alar og rennibrautir fyrir börn- in, lúðrasveit grunnskólans mun leika, uppákomur verða á útipalli, söngur, glens og gleði. Götubolti verður í gangi, dorg- keppni við höfnina og fólki boðið að fara á hestbak. Til að skapa franska smábæjar- stemmningu verða áhugamenn um franska kúluspilið „pét- anque“ bæði með kennslu og keppni. Og eins og í öllum af- mælum verður gestum og gangandi boðið upp á afmælis- tertu á sunnudeginum. Franskir réttir og vín Á hótelinu verður boðið upp á franskan matseðil og frönsk léttvín. Einnig verður opið kaffihús með frönsku bakkelsi frá franska bakaríinu „La baguette“. Leitast verður við að hafa á boðstólum og kynna franskar vörur í verslunum á staðnum, vikuna á undan hátíð- inni og meðan á henni stendur. Brottfluttir Fáskrúðsfirðing- ar sem og aðrir eru hvattir til að fjölmenna í f iörðinn við Skrúð. Opnuð hefur verið Upplýs- ingamiðstöð fyrir ferðamenn á lofti Ráðhúss Búðahrepps. Verður hún opin allan júlímán- uð og mun starfsmaður hennar leitast við að upplýsa bæði inn- lenda og erlenda ferðamenn um allt það sem að gagni gæti kom- ið í ferðum þeirra um landið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.