Morgunblaðið - 12.07.1997, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 12.07.1997, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP _> V aninn er harður húsbóndi ÞAÐ HEFUR vakið athygli, að Ríkisútvarpið hefur verið að segja upp dagskrárgerðarfólki, sem vegna starfa sinna er orðið þekkt- ar persónur í þjóðlífinu. Við er borið að nú eigi að spara. En þá má spyrja: Af hveiju spara þetta fólk? Við þessu fást náttúrlega ekki svör, en þeir sem horfa á og fylgjast með fjölmiðlum ríkisins, eru með allt annað í huga en sparn- að, þegar þeir velta fækkunum fyrir sér. Dagskrá bæði útvarps og sjónvarps myndi hafa gott af nokkurri grisjun. En þar erum við komin að helsta vanda sjónvarps- ins; dagskráin er einfaldlega ekki nógu hressilega valin og alla jafna hvorki skemmtileg né nógu upplýs- andi. Útvarpið er skárra að þessu leyti, en þó er eins og þar vanti ferskan blæ. Það er eins og maður vilji trúa því að þarna séu að störf- um tómir gamlir fauskar, sem hafa vanann fyrir sinn harða húsbónda. Ekkert er hættulegra einni stofun, þar sem menn streða við að sitja meira og minna hugmyndasnauðir í áratuga bið eftir eftirlaunum. Ég hef áður drepið á, að fyrir utan myndbirtingar af atburðum, þegar þeir eru að gerast, hafa dagblöð mikla yfirburði yfir sjón- vörp í fréttaflutningi. Þar verður allt einhvernveginn mikið ljósara en í snöggsoðnum texta frétta- manna sjónvarps og útvarps. Það er jafnvel svolítið pláss fyrir vangaveltur í blöðunum, sem ekki leyfist að vera með í ljósvakamiðl- um. Að vísu hefur eitt blað hér á landi, DV, sérhæft sig í nokkurs- konar ljósvakafréttum, en það hef- ur takmarkað fréttameðferð með sérkennilegun hætti. Sjónvörpin flytja svo til engar fréttir nema myndataka geti fylgt. Þetta gerir fréttaþjónustu þeirra stirða í vöf- um. Þeir eru af þessum sökum með meira af „tilbúnum" fréttum en dagblöðin. Til að skýra þetta nánar er fréttaþjónustan í sjón- varpi sett upp að nokkru eins og dagskrárgerð og hafðir á henni SJÓNVRP Á LAUGARDEGI fyrirvarar. Dagblað er hvað fréttir snertir nýtt og autt á hvetjum morgni. Þat' verða menn að svitna og þjást í fréttaleit allan daginn. Þeir eru ekki „prógrammeraðir" nema að litlu leyti. Ríkissjónvarpið sýnir þá sjálf- sögðu kurteisi að greiða flytjend- um og höfundum efnis. Stöð 2 aftur á móti greiðir mér vitanlega aldrei fyrir efni, þar sem einstakl- ingar eru kvaddir á vettvang til að láta ljós sitt skína. Þetta byggja þeir yfirleitt á því, að upparnir í landinu myndu fegnir bot'ga ein- hvetjar fúlgur fyrir að mega koma í sjónvarp. Aðrir slæðast á þennan vettvang af því þeir nenna ekki að röfla út af nokkrum krónum. Sú kurteisi sem ríkisfjölmiðlanir sýna með greiðslu til gestkomandi einstakiinga, setur þá hátt yfir Stöð 2 hvað samskipti við fólk snertir. Þá er jafnvel minna um það hjá ríkisíjölmiðlunum, að talað sé niður til fólks í útsendingum heldur en á Stöð 2. Einkum er þetta áberandi í þættinum „ísland í dag. Þar er stundum talað við eldra og virðulegra fólk eins og barnshnokka sem hefur pissað á sig. Og gælunöfn notuð sem eru komin beint úr poppmenningunni eða síðrassagenginu. Þátturinn „60 mínútur" er á dagskrá Stöðvar 2 á sunnudags- kvöldum. Þetta er einhver huggu- legasti fréttapistill, sem hér birt- ist. Að vísu er hann oft um ein- hver bandarísk vandamál, en þau eru nóg þar í landi. Ekki virðist þurfa nein fíflalæti til að halda úti góðum sjónvarpsþætti, eins og virðist álit ráðamanna í sjónvörp- um hér. Nú síðast fjölluðu frétta- mennirnir um skiptingu í skólum eftir litarhætti. Það virðist nefni- lega enn eima eftir af kynþáttafor- dómum, þótt skólurn hefi verið breytt fyrir löngu. Málið er ein- falt. Svörtum námsmönnum er haldið í C, D og E deildum hvetjar sem einkunnir þeirra eru. Hvítii' eru hins vegar í A og B deildum þótt þeir kunni ekkert. Hérna er þetta allt miklu skemmtilegra og meira í ætt við að horfa á sjón- varp en lesa. Hér má enginn skara fram úr og doktor í stærðfræði varð að fara í Kennaraháskólann til að geta heitið kennari. Hann fær að kenna nú urn sinn, en heit- ir aðeins leiðbeinandi. Indriði G. Þorsteinsson. Kvikmyndafréttir Mel Gibson og Danny Glover eru að hugleiða að gera fjórðu „Lethal Weapon“-myndina. Gibson hefur verið lofað 20 milljónum Bandaríkja- dala ef hann tekur þátt í hasarnum. Að auki hefur honum verið lofað hluta af öllum gróða tengdum mynd- jnni sem ef vel tekst til gæti gert hann 15 til 20 milljónum ríkari. m Talað hefur verið við Richard Donn- er um að leikstýra siagsmálunum. Kevin Costner leikur og leikstýr- ir framtíðarmyndinni „The Post- ntan“. Hún §allar um bréfbera sem heldur heiminum gangandi í orðsins fyllstu merkingu. Gamli söngvarinn Tom Petty fer með aukahlutverk í myndinni sem borgarstjóri borgar- innar þar sem bréfberinn vinnur. Anthony Hopkins, Elle Mac- Pherson, og Alec Baldwin eru föst í óbyggðum Alaska í „The Edge“. Hopkins og MacPherson leika hjón sem lenda í spennufullum þríhyrn- ingi með ljósmyndara sem Baldwin leikur. Persóna Hopkins bregst illa við þegar hann grunar að Baldwin girnist eiginkonuna og vilji drepa hann. Antonio Banderas og Omar Sharif ætla að leika Araba sem ferð- ast á bronsöld til landa víkinga í norðri og hjálpa þeim að sigrast á alvarlegri pest í „Eaters of the Dead“. Myndin er byggð á skáldsögu TVÆR myndir eru væntan- legar með Robert Mitchum. Michaels Crichton frá árinu 1976. Anthcny Minghella hefur tekið að sér að leikstýra „Cold Mountain". Myndin verður byggð á skáldsögu Charles Fraizer um Suðurríkjaher- mann sem einn á báti og illa særður reynir að komast heim til konu sinnar í Norður-Karólínu eftir sigur Norðurríkjahers. Ekki hefur enn verið tilkynnt hvetjir leiki helstu hlutverk. Tvær myndir sem Robert Mitc- hum lék í skömmu fyrir andlát sitt eru væntanlegar á markaðinn. Önn- ur heitir „Waiting for the Sunset“ ELLE MacPherson leikur í „The Edge“. en hin „Race with Destiny". Sú síð- arnefnda fjallar um ævi James Dean og fór Mitchum með hlutverk kvik- myndaleikstjórans George Stevens. Michael Cimino ætlar að leik- stýra „The Dreaming Place“. Mynd- in fjallar um sjálfskipaðan löggæslu- mann sem reynir að hjálpa minni máttar. John Frankenheimer stýrir næst „Ronin“ hjá United Artists. Myndin segir frá hópi yfirburðanjósnara frá öllum heimshornum sem ákveða að vinna saman að mjög áhættusömu verkefni. MYNPBÖNP Damme í ham Hættumörk (Maximum Risk) Spcnnumynd ★ ★ 'A Frantleiðandi: Moshe Diamant. Leikstjóri: Ringo Lam. Handrits- höfundur: Larry Ferguson. Kvik- myndataka: Alexander Gruszynski. Tónlist: Robert Folk. Aðalhlutverk: Jean-Claude Van Damrae, Natashia Henstridge, Jean-Hugues Anglade. 97 mín. Bandaríkin. Skífan 1997. Útgáfudagur: 2. júní. Myndin er bönnuð börnum innan 16 ára. Alan Moreu er margverðlaunað- ut' hermaður, sem hefur snúið baki við herþjón- ustunni og gerst lögregla. Dag einn finnur hann lík manns, sem er nauðalíkur honum sjálfum. Hann kemst að því að móðir hans hafði hald- ið honum en gefið tvíbura- bróður hans til ættleiðingar þegar hún átti í fjárhagsvandræðum. Alan uppgötvar einnig margt í fari tvíburabróður síns sem bendir á að hann hafi ekki verið löghlýðn- asti maður í heimi og ákveður að lokum að fara til Litlu-Odessu í New York til að komast endanlega til botns í morðmáli bróður síns. Van Damme hefur fengið til liðs við sig einn af hinum ijöldamörgu spennumyndaleiksjórum frá Hong Kong, Ringo Lam. Lam á að baki myndir eins og Jackie Chan mynd- ina „Twin Dragons" og „City on Fire“ sem Quentin Tarantino viðurkennir að hafa fengið lánað úr þegar hann gerði „Reservoir Dogs“. Lam sem veit að hann hef- ur ekki neinn afburðarleikara til að stjórna notast við hraðar klipp- ingar og aðrar brellur til að leikut' Van Damme verði ekki of áber- andi. Van Damme er virkilega flottur í slagsmálaatriðum og er nóg af þeim stráð inn í myndina til að seðja hungur allra hörðustu slagsmálafíklanna. Mörg slagsmálanna eru vel út- færð, skemmtileg á að horfa og Lam sækir mikið í Hong Kong hasarmyndastílinn í myndrænni uppbyggingu þeirra. Hættumörk er góð Van Damme-mynd og hin ágætasta afþreying fyrir spennuf- íkla. Ottó Geir Borg Fylgikvillar framhi áhalds Gripin glóðvolg (Caught) I) r a m a ★ '/2 Framleiðandi: Richard Brick og Irwin Young. Leikstjóri: Robert M. Young. Handritshöfundur: Edw- ard Pomerantz. Kvikmyndataka: Michael Barrow. Tónlist: Chris Botti. Aðalhlutverk: Edward James Olmos, Maria Conchita Alonso, Ste- ven Schub, Bitty Schram. 109 mín. Bandaríkin. Skifan 1997. Útgáfu- dagur: 2. júní. Myndin er bönnuð börnum innan 16 ára. Lífið hefur ekki verið Nick mjög „Caught" bytjar virðist hann ekki vera annað en ótíndur glæpa- maður, sem hvergi á heima. Fyrir tilviljun kemur hann inn í fiskbúð Joe og konu hans Betty, til þess að hlýja sér, en fyrr en varir eru þau búin að bjóða honum heim til sín og Joe að láta hann fá vinnu í fiskbúðinni. Mikil kærleikur tekst á með þeim öllum en hann fer yfir strikið í sambandi Nick og Betty. Framhjáhaldið er dæmt til að kom- ast upp fyrr eða síðar og spurning- in er bara sú hve margir munu meiðast af hátterni þeirra. Gripin glóðvolg kemur þó nokk- uð á óvart. Þessi ódýra mynd hef- ut' að geyma nokkuð vel skrifað handrit, sem er að mestu iaust við ódýrar úrlausnir eins og vill oft gerast í dýrum bandarískum myndum, persónurnar prýðilega skrifaðar og leikarahóput'inn stendur sig vel, með einni undan- tekningu. Steven Schub sem leikur Danny, son Joe og Betty (Edwat'd James Olmos og Maria Conchita Alonso) er hreint út sagt stórkost- legur í hiutverki sínu. í bytjun kynnumst við honum bara af myndbandsspólum sem hann hefur sent móður sinni til að láta vita hvernig honum gangi að fá vinnu í Hollywood sem gamanleikari. Þegar hann loksins kemur í mynd- ina stelur hann öllum þeim senum sem hann er í. Danny er í senn fyrirlitleg og aumkunarverð per- sóna og leikur Scub gerir hann ógleymanlegan. Margt mætti betur fara í myndinni, þá sérstaklega hvernig unnið er úr framhjáhaldinu og afleiðingum þess. En leikur Steven Schub gerir það að verkum að Gripin glóðvolg er þess vit'ði að sjá. Ottó Geir Bore FORNMENNINQARHÁTÍÐ - FJÖLSKYLDUSKEMMTUN - FRÓÐLEIKUR - FÓLK OQ SAQA Víkingahátíð í Hafnarfirði 12. júlí kl. 10.45 I kl 17.30 PINQVELLIR, hátíðardagskrá, erindi, leikrít, söngur og hestasýning. VÍÐISTAÐATUN, víkingamarkaður, hestasýningar, handverksfólk, bardagamenn, eldsmíðja, leikþættir, víkingaveitingar, glímumenn o.fl. „Hallgerður '97" val á hárprúðustu konu hátíðarinnar. rslæstsíöasti dagur Víkingahátíöarínnar - ekkí missa af þessari einstöku söguhátíö! LANDNÁM INTERNATIONAL VlKING FESTIVAL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.