Morgunblaðið - 12.07.1997, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997 9
Álftar-
ungií
öruggum
höndum
Vaðbrekku. Jökuldal. Morgunblaðið.
FYRRI hluta sumars lifnar allt
við í náttúrunni, ungar komast
á legg og fuglar syngja sumrinu
fagnaðaróð. Steinunn Sigurðar-
dóttir fann þennan álftarunga
við Topphól í Hrafnkelsdal, tók
hann upp kjassaði hann svolítið
og skilaði honum síðan aftur til
móðuririnnar sem átti tvo aðra
eins hnoðra á tjörn við hreiðrið
sitt.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
íslendingabyggðir í Bandaríkjunum
og Kanada
Forsetahjón-
ín í heímsókn
FORSETI íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson og frú Guðrún Katrín
Þorbergsdóttir munu í lok júlí og
bytjun ágúst heimsækja íslendinga-
byggðir í Bandaríkjunum og
Kanada og taka þátt í hátíðarhöld-
um í Utah-ríki og íslendingadegin-
um í Gimli.
Fyrsta dag ferðarinnar, _mánu-
daginn 12. júlí, mun forseti íslands
flytja ræðu í National Press Club í
Washington og svara fyrirspurnum
í hádegisverði samtaka blaða- og
fréttamanna. í Washington mun
forseti einnig eiga viðræður um
sýningu aidamótaárið og um um-
hverfismál.
Síðan verður haldið til Utah en
þar verða forsetahjónin heiðurs-
gestir á aðalhátíðarhöldum Utah-
ríkis í Spanish Fork og leiða sér-
staka hátíðarskrúðgöngu 24. júlí.
Forsetahjónin munu heimsækja
íslensk heimili í Utah og taka þátt
íslenskri fjölskyldusamkomu. I ár
er haldinn hátíðlegur hundraðasti
íslendingadagurinn í Utah en um
150 ár eru síðan íslenskir landnem-
ar komu til Utah.
Forsetahjónin verða gestir borg-
arstjórnar Salt Lake City, eiga
fund með ríkisstjóra Utah-ríkis pg
ríkisstjórum annarra ríkja sem ís-
lendingar fóru um á leið sinni til
Utah, heimsækja Brigham Young
háskólann og fyrirtæki og ræða
við forystumenn úr viðskiptalífinu.
Þriðjudaginn 29. júlí verður sam-
koma fyrir Islendinga og íslandsvini
í San Francisco í Kaliforníu-ríki.
Næsta dag munu forsetahjónin
heimsækja aðalstöðvar hugbúnað-
arfyrirtækis Oz í San Francisco og
eiga viðræður við bandarísk fyrir-
tæki sem áhuga hafa á að fjárfesta
í íslenskum hugbúnaðariðnaði.
Föstudaginn 1. ágúst munu for-
setahjónin hitta íslendinga sem
búsettir eru í Seattle-borg og ná-
grenni í Washington-ríki.
Frá Seattle verður haldið til
Winnipeg í Kanada og þaðan á
hátíðarhöldin í Gimli en mánudag-
inn 4. ágúst er íslendingadagurinn
í Kanada en hann er nú haldinn
hátíðlegur í 108. sinn.
Forsetahjónin verða síðan heið-
ursgestir á íslendingadeginum í
Gimli, leiða skrúðgöngu dagsins og
forseti flytur hátíðarræðuna í Gimli.
Áætlað er að um 30.000 manns af
íslenskum ættum muni taka þátt í
hátíðarhöldunum.
Síðan munu forsetahjónin heim-
sækja íslendingaslóðir, hitta full-
trúa stjórnvalda Kanada í boði
Johns Harvard þingmanns sem er
af íslenskum ættum, eiga viðræður
við forystumenn íslenska samfé-
lagsins í Kanada og taka þátt í
hátíðarkvöldverði íslendingafélags-
ins.
1
Tannlæknastofan STUDIO TÖNN hefur haiið
starfsemi að Vesturgötu 9 í Hahiarfirði
(þar sem Bæjarútgerð Hafnarfjarðar
var áður til húsa).
Sigurður Örn Eiríksson tannlœknir
Sími 555 2050 ‘897 2050
í ferðalagið
- Ferðatöskur
- Handtöskur
- Lítil seðlaveski
- Töskuólar
Laugavegi 58, sími 551 3311
- Bakpokar
- Magaveski
- Regnhlífar
- Merkispjöld
FRÉTTIR
Islenskur prófessor settur
við bandarískan háskóla
HARALDUR Rúnar Karlsson var
nýlega fastráðinn við jarðvísinda-
deild Tækniháskóla Texas (Texas
Tech University) í bænum Lubbock
í Norðvestur-Texas. Haraldur lauk
stúdentsprófi úr MR og síðan BS-
prófi í jarðfræði við Háskóla ís-
íands. Áð því loknu hélt hann til
Bandaríkjanna í framhaldsnám við
Chicago-háskóla og var leiðbein-
andi hans próf. Robert N. Clayton.
Haraldur lauk doktorsprófi frá
Chicago með samsætujarðfræði
sem sérsvið. Prófverkefni hans
fjallaði um stöðugar súrefnis- og
vetnissamsætur í geislasteinum.
Meðan á námi stóð við Háskóla
íslands og Chicago-háskóla vann
Haraldur sumur sem áðstoðarmað-
ur á Náttúrufræðistofnun íslands,
Orkustofnun og á Norrænu eld-
fjallastöðinni. Að doktorsnámi
loknu hreppti Haraldur styrk frá
Rannsóknarráði Bandaríkjanna til
þess að vinna að rannsóknum á
loftsteinum við Geimrannsóknar-
stofnun Bandaríkjanna í Houston,
Texas. Þar stundaði hann rann-
sóknir á veðrun loftsteina frá Suð-
urskautslandi og uppruna vatns í
Mars-loftsteinum með dr. Evertt
K. Gibson og fyrri félögum við
Chicago-háskóla. Mars-loftstein-
arnir hafa valdið miklu fjaðrafoki
undanfarið vegna fullyrðinga fyrr-
um vinnufélaga Har-
alds við Geimrann-
sóknarstofnunina um
tilvist steingerðra
gerla í einum þessara
loftsteina.
Frá Houston hélt
Haraldur til Tæknihá-
skóla Texas þar sem
honum bauðst aðstoð-
arprófessorsstaða. Við
Tækniháskólann vann
hann áfram við loft-
steinarannsóknir þótt
meiri áherzla væri lögð
á jarðneskt grjót þar á
meðal með mælingum
á súrefnis- og kolefn-
issamsætum í kalsít-
ríku jarðvegsgijóti til þess að öðlast
vitneskju um veðurfar og plöntu-
gróður fyrri tíma. Haraldur kom
upp stórri rannsóknarstofu sem
inniheldur öll þau tól og tæki sem
tilheyra mælingum stöðugra sam-
sæta í steindum, bergi og vatni.
Þar á meðal er fjöldi massagreina
og sérsmíðuð kerfi sem notuð eru
til þess að leysa og hreinsa súrefni
úr grjótum og steindum. Súrefnis-
aðferðin var upphaflega hönnuð af
kennara Haralds við Chicago-
háskóla. Dr. Irving Friedman við
Bandarísku jarðfræðistofnunina í
Denver, Colorado, gaf Haraldi stór-
an hluta þess tækja-
búnaðar sem hann hef-
ur umsjón yfir. Þess
má geta að Friedman
setti upp fyrsta massa-
greininn sem var not-
aður hér á landi og ber
enn mikinn hlýhug til
íslendinga eftir þá vist
eins • og gjafir hans
sýna fram á. Nýverið
hefur Haraldur mest
fengist við rannsóknir
við innskotaberg frá
Norður-Noregi ásamt
félögum við Tæknihá-
skólann og norska
samstarfsmenn.
Frammistaða Haralds
á kennslu- og rannsóknarsviðum
leiddu til fastráðningar (tenure) og
stöðuhækkunar úr „assistant" pró-
fessor í „associate" prófessor.
Haraldur er sonur Karls Guð-
brandssonar húsasmíðameistara
heitins og Guðrúnar Haraldsdóttur.
Hann er kvæntur Abbie L. Kleppa,
ljósmóður, dóttur Abbie Joy og
Norðmannsins Ole J. Kleppa, fyrr-
um efnafræðiprófessors við
Chicago-háskóla. Haraldur og
Abbie eru búsett í Lubbock, Texas,
og eiga þijú börn; Karl Jakob og
tvíburana Evu Kristínu og Eirík
Svavar.
Haraldur Rúnar
Karlsson
SNARSALA
áhjámogrunnum
EIJNfSTAKT
TRJARÆKTAR-
TILBOÐ
Sumarlandeigendur og aðrir landeigendur,
við bjóðum nú afslátt svo um munar á margskonar trjám.
Nú er tækifæri til að gróðursetja svo um munar.
Heiti Stærð/ár Rétt verð Tilboðsverð Afsláttur
Alaskaösp 200 cm 3 stk. í pakka 4.800 1.800 62,5%
Birki 175-200 cm 1.800 1.350 25%
Limgerdisbirki 60-80 cm 270 200 26%
Lodvíöir 2ja ára 120 72 40%
Loövíðir 2ja ára í potti 160 96 40%
Vídir í limgerði Viðja Brekkuvíðir Alaskavíðir Tröllavíðir 2ja ára 90 45 50%
Birkikvistur 3ja ára í potti 590 413 30%
Alaskayllir 3ja ára í potti 590 413 30%
Páfarós 3ja ára í potti 620 434 30%
Sitkagreni 100-200 cm 3-8.000 2-6.000 20-50%
Blágreni 100-200 cm 3-8.000 2-6.000 20-50%
Opnunartímar:
• Virka daga kl. 9-21
•Umhelgarkl. 9-18
STJÖRNUGRÓF18, SÍMl 581 4288, FAX 581 2228
• Nýr ítarlegur
píontulisti korainn
• Glæsileg veggspjöld,
um skrautrunna,
lauftré og barrtré
Sækið sumarið til okkar
cd
'ÍÁ
O