Morgunblaðið - 12.07.1997, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997 11
íslenski safna-
dagurinn á morgun
Ljósmynda-
sýning
á Minja-
safninu
ÍSLENSKI safnadagurinn er á
morgun, sunnudag, og er meiningin
að söfn í landinu noti daginn til að
vekja athygli á starfsemi sinni. Á
Minjasafninu á Akureyri verður
safnadagurinn tileinkaður ljós-
myndum.
Sýndar verða 800 þjóðlífsmyndir
frá ljósmyndastofu Jóns og Vigfús-
ar á Akureyri en myndirnar eru
flestar frá tímabilinu 1930-1950
og hafa fæstar verið til sýnis áður.
Hörður Geirsson, umsjónarmaður
ljósmyndadeildar safnsins, verður á
staðnum frá kl. 11-13 og svarar
spurningum gesta og gefur upplýs-
ingar um ljósmyndaskráningu
safnsins.
Undanfarin ár hefur verið unnið
að tölvuskráningu ljósmynda og er
nú búið að skrá um 70.000 ljós-
myndir. Á safnadaginn gefst því
kjörið tækifæri að koma á Minja-
safnið og leita að myndum af vinum
og ættingjum sem gætu verið til í
ljósmyndadeild safnsins.
Minjasafnið er opið alla daga frá
kl. 11-17. í júlí og ágúst er einnig
opið þriðjudags- og fimmtudags-
kvöld frá kl. 20-23. Aðgangseyrir
er 250 krónur fyrir fullorðna en
ókeypis er fyrir 16 ára og yngri og
eldri borgara.
EINSTAKT TÆKIFÆRI
Til sölu eru lóðirnar Ráðhústorg 9 og Strandgata 4 við Ráðhús-
torg á Akureyri ásamt öllum mannvirkjum. Við Strandgötu 4 er
168 m2 baklóð auk innkeyrslu. Eignirnar seljast annað hvort
saman eða hvor í sínu lagi. Hús Nýja Bíós skemmdist í eldi og
þarfnast endurbóta. Vátryggingabætur fylgja eigninni.
Símar 462 1744 og 462 1820.
/ tfi \ Jón Kr. Sólnes hrl.
FASTEI G.\ASA L A.\ Sölumenn:
BYGGD Ágústa Ólafsdóttir
BllGKKUUðTU 4 Björn Guðmundsson
Tómas I. Olrich alþingismaður
verður með viðtalstíma á eftirtöldum stöðum
• Kelduhverfi, mánudag 14. júlí n.k.
kl. 10.00 til 13.00 í Skúlagarði;
• Húsavík, mánudag 14. júlí kl. 15.00 til 18.00
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofu;
• Mývatnssveit, þriðjudag 15. júlí
kl. 10.00 til 13.00 í Hótel Reynihlíð;
• Eyjafjarðarsveit, þriðjudag 15. júlí
kl. 15.00 til 18.00 á skrifstofu sveitastjórnar
að Syðra-Laugalandi.
Iðnaðarmenn farnir að leita suður í vinnu
íbúðir við
Snæg-il
afhentar
HÚSNÆÐISNEFND Akureyrar af-
hendir fyrstu 20 íbúðirnar í 1. áfanga
við Snægil næstkomandi þriðjudag.
íbúðirnar eru í fimm fjölbýlishúsum
við Snægil 10-18. Húsin eru öll á
tveimur hæðum og hafa allar íbúðirn-
ar sérinngang.
Húsnæðisnefnd óskaði eftir hug-
myndum frá arkitektum að skipulagi
byggingasvæðis við Snægil 2-36 og
valdi dómnefnd tillögu frá Arkitekta-
og verkfrfeðistofu Hauks á Akur-
eyri. Skipulagi og hönnum lauk í
apríl á síðasta ári og þar var boðin
út bygging 36 íbúða sem fyrirhugað
er að byggja á næstu þremur árum.
Jafnframt var ákveðið að taka til-
boð Hymu hf. í byggingu íbúðanna.
Danskur leiklistarfrömuður á ferð
Ræðir um framtíð
mannsins á jörðinni
JYTTE Abildström heldur fyrirlest-
ur í Aksjón café í dag, laugardag-
inn 12. júlí kl. 16. Jytte er vel þekkt
fyrir leiklistarstarfsemi sína og
ekki síður fyrir að hafa ákveðnar
skoðanir á ýmsum málum sem lúta
að framtíð mannsins á jörðinni.
Fyrirlesturinn fjallar einmitt um
þessi málefni og hún kryddar hann
með leikrænum tilburðum af ýmsu
tagi. Aðgangur er ókeypis.
Jytte fæddist í Kaupmannahöfn
1934 og byijaði snemma að starfa
með stúdentaleikhúsinu þar. Eftir
nokkrun tíma færði hún út kvíarn-
ar og varð þátttakandi í uppfærsl-
um á revíum og gamanleikritum
hjá stóru leikhúsunum.
Jytte fór í námsferð til Englands
1962 og lærði að búa til brúðuleik-
hús sem hún hefur þróað og unnið
með síðan. Hún rekur sitt eigið
leikhús í Riddarasalnum á Fred-
riksberg og hefur ferðast með
brúðuleikhúsið víða um lönd og auk
þess flutt fjölda fyrirlestra um
umhverfismál.
Hún undirbýr nú byggingu um-
hverfisvæns leikhúss í tengslum við
Riddarasalinn. Húsið verður kynnt
með sólarorku en þar verður gróð-
urhús og leikhúsverkstæði.
Morgunblaðið/Hólmfríður Haraldsdóttir
*
Ovenjulegur
varpstaður
Grímsey. Morgunblaðið.
SILFURMAVSPAR hreiðraði um
sig á nokkuð óvenjulegum stað
hér í Grímsey. Venjan er sú að
mávarnir eins og aðrir bjargfugl-
ar verpi í bjarginu en þetta par
gerði sér hreiður um eitt hund-
rað metra frá bjargi, reyndar
undir steini.
Þegar fréttaritara bar að var
einn ungi skriðinn úr eggi og var
ennþá blautur. Foreldrarnir voru
órólegir yfir þessari óvæntu
heimsókn og létu á sér skiljast
að þeir vildu fá að gæta afkvæma
sinna i friði fyrir mannfólkinu.
Sækja í hærra kaup
og meiri vinnu
SMIÐIR á Akureyri og jafnvel fleiri
iðnaðarmenn eru farnir að fara
suður yfir heiðar til vinnu. Guð-
mundur Ómar Guðmundsson, for-
maður Félags byggingamanna í
Eyjafirði, segir að það sé mikill
hugur í mönnum að sækja sér hærra
kaup og jafnvel meiri vinnu. „Það
er skortur á smiðurn fyrir sunnan
og ég veit að menn eru farnir að
líta vel í kringum sig.“
„Við höfum dregist afturúr í
launum í þessu kreppuástandi, bæði
miðað við byggingamenn í Reykja-
vík og aðra iðnaðarmenn. Það er
helst að málmiðnaðurinn hafi rétt
hraðar úr sér hér á svæðinu en
byggingaiðnaðurinn," segir Guð-
mundur Ómar.
Atvinnuástand nokkuð gott
Atvinnuástand hjá bygginga-
mönnum hefur verið nokkuð gott í
rúmt ár en á árunum frá 1992 og
fram á útmánuði 1996 var atvinnu-
ástandið slæmt á Akureyri. „Það
hefur samt ekki skilað sér í leiðrétt-
ingu á launum og þeir bygginga-
menn sem eru lausir horfa örugg-
lega til Reykjavíkursvæðisins. Og
menn þurfa ekki að fara alla leið
þangað og það getur verið nóg að
fara niður á Grundartanga. Það er
ekki flókið að búa á Akureyri og
vinna t.d. á Grundartanga en þang-
að er ekki nema fjögurra tíma
ferðalag."
Guðmundur Ómar segir að þrátt
fyrir launin á Akureyri séu lægri
en fyrir sunnan, sé nýtt íbúðarhús-
næði ekki ódýrara á Akureyri en í
Reykjavík. „Eg átta mig ekki alveg
á því í hvað sá mismunur fer.“
Þörf á mótvægi í
atvinnuuppbyggingu
Framkvæmdir á virkjanasvæðum
eru að fara í gang og verða í gangi
næstu árin. Guðmundur Ómar segir
því nauðsynlegt að menn í Eyjafirði
finni mótvægi í atvinnuuppbygg-
ingu á svæðinu. „Ég veit ekki hvort
stóriðja er sá kostur sem menn eiga
endilega að horfa á en það þarf
einhveija vítamínsprautu í atvinnu-
lífið svo hægt verði að fjölga störf-
um.“
Fyrstu laxarnir
Morgunblaðið/Björn Gíslason
A sléttum Pollinum
VEÐRIÐ hefur leikið við Norð-
lendinga síðustu daga og útlitið
framundan er nokkuð bjart.
Á Akureyri fór hitastigið yfir
20 gráður í gær. Þessi ung-
menni í Siglingaklúbbnum
Nökkva voru á fleytum sínum
á sléttum Polllinum í góðviðr-
inu í gær og skemmtu sér hið
besta.
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
STANGAVEIÐIMENN hafa
margir hverjir ekki haft erindi
sem erfiði í veiðiferðum sínum á
þessu sumri. Til að mynda hefur
laxveiðin verið mjög dræm í lax-
veiðiám á Norðurlandi, eins og
fram kemur í Morgunblaðinu í
gær. Benedikt Kristjánsson, 11
ára snáði frá Akureyri, fór aðra
leið og reyndi fyrir sér í tjörn
við Ystu-Vík með góðum ár-
angri. Hann kom heim með tvo
væna eldislaxa, 5 og 7 pund.
Benedikt var að vonum ánægður
með feng sinn, enda eru þetta
fyrstu laxarnir sem hann dregur
á land.
Messur
AKUREYRARKIRKJA: Guðs-
þjónusta sunnudaginn 13. júlí
kl 11.00, séra Birgir Snæ-
björnsson. Flytjendur á Sum-
artónleikum taka þátt í at-
höfninni. Sumartónleikar kl.
17.00. Ferðamenn og heima-
fólk er boðið velkomið til
messu og á tónleikana.
GLERARKIRKJA: Kvöld-
guðsþjónusta sunnudaginn
13. júlí kl. 21.00. Athugið
breyttan messutíma.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Messa laugardaginn 12. júlí
kl. 18.00 og sunnudaginn 13.
júlí kl. 11.00 á Eyrarlandsvegi
26.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Almenn samkoma sunnudag-
inn 13. júlí kl. 20.00. Indriði
A. Kristjánsson predikar.
Miðvikudagur 16. júlí kl.
20.30, bænastund og biblíu-
kennsla, Natalie Breneman.
Föstudagur 18. júli kl. 20.30,
Unglingasamkoma, Natalie
Breneman predikar. Bæna-
stundir á mánudags-, mið-
vikudags- og föstudags-
morgnum kl. 6-7.