Morgunblaðið - 12.07.1997, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
URVERINU
Samkeppni um sjávarútvegssýningar á íslandi
Ný íslensk sýning
haldin 1 maí 1999
STOFNAÐ hefur verið íslenskt
vörusýningarfyrirtæki, Sýningar
ehf., en fyrsta verkefni þess er að
standa að alþjóðlegri tækni- og
sjávarútvegssýningu í Reykjavík i
maí 1999. Sýningunni er ætlað að
ná til sýnenda og kaupenda um
allan þeim og er einn liður í að
gera ísland að miðstöð sjávarút-
vegs og fiskveiðitækni við Norður-
Atlantshafið. íslensku sjávarút-
vegssýningunni, sem haidin hefur
verið hér á landi á þriggja ára fresti
frá árinu 1984, hefur verið flýtt
um eitt ár vegna góðs árangurs
fyrri sýninga.
Eigendur hins nýja sýningarfyr-
irtækis eru Samtök iðnaðarins og
Kynning og markaður hf. Jón
Hákon Magnússon, framkvæmda-
stjóri KOM hf. og stjórnarmaður í
Sýningum hf., segir að að baki
sýningunni liggi löng þróun. ís-
lenskur iðnaður hafi ekki haft að-
gang að íslensku sýningarfyrirtæki
en vill íslenska sýningu. Hann seg-
ir ástæðu þess að farið var út í
samstarf af þessu tagi, þá að KOM
hf. búi yfir mikilli þekkingu á
flóknum skipulagsmálum.
Sýningin ber yfirskriftina Fish
Tech ’99 - North-Atlantic Techno-
logy and Fisheries Exposition og
verður á henni lögð áhersla á að
sýna íslenskan tölvu- og hátækni-
búnað fyrir útgerð og fiskvinnslu
og aðrar innlendar iðnaðar- og
framleiðsluvörur sem ætlaðar eru
í sjávarútvegi, fiskeldi ogmatvæla-
framleiðslu. Áætlað er að halda
sýninguna annað hvert ár.
Fyrst og fremst íslensk sýning
„Að undirbúningnum hefur
komið fjöldi aðila sem vill hafa
áhrif á að efla sýninguna og skapa
stærri vettvang fyrir íslensku iðn-
fyrirtækin sem framleiða vöru fyr-
ir sjávarútveg um allan heim. Sjáv-
arútvegssýningin sem verið hefur
hér á landi er skipulögð og fram-
kvæmd af breskum aðilum. Þessi
störf koma til með að flytjast öll
hingað heim, þannig að virðisauk-
inn verður hér. Við erum vissulega
komnir í samkeppni við sýninguna
sem verið hefur hér fyrir en ég
skal ekki segja til um hvort grund-
völlur er fyrir tvær sýningar hér á
landi, það verður að koma í ljós,“
segir Jón Hákon.
Samhliða ráðstefnunni munu
Sýningar ehf. standa fyrir röð ráð-
stefna og málþinga um ýmis hags-
munamál sem snerta veiðar,
vinnslu, markaðsmál og fiskistofna
Norður-Atlantshafsins. Auk þess
verður fjallað um tölvur, hugbúnað
og flutningsmáta framtíðarinnar í
þessum heimshluta. Segir Jón Há-
kon að þannig muni gestahópurinn
sem komi til landsins stækka tölu-
vert.
Jón Hákon segir að sýningunni
sé sérstaklega ætlað að ná til sýn-
íslensku sjávarút-
vegssýningunni
hefur verið flýtt
um eitt ár
enda og kaupenda við Norður-Atl-
antshafið, allt frá Kanada í vestri
og til Rússlands í austri, auk ann-
arra helstu fiskveiðiþjóða Evrópu.
Sýningin sé þannig einn liður í að
gera Island að sjávarútvegsmið-
stöð Norður-Atlantshafsins.
„Segja má að sýningin sé liður í
þeirri þróun sem hefur átt sér stað
síðustu ár. íslendingar hafa boðist
til að hýsa aðalstöðvar Norðaustur-
Atlantshafsfiskveiðiráðsins (NE-
AFC), sem og Sjávarútvegsskóla
Sameinuðu þjóðanna. Eimskipafé-
lag íslands lítur á Norður-Atlants-
haf sem sinn bakgarð, auk þess
sem Flugleiðir hafa opnað leiðir til
Kanada. íslensku fiskvinnslufyrir-
tækin eru einnig að hasla sér völl
á þessu svæði. Þróunin virðist því
sú að unnið sé bæði skipulega og
óskipulega að því að Island verði
miðstöð sjávarútvegs við Norður-
Atlantshaf. Þess vegna kom upp
sú hugmynd að setja upp íslenska
sýningu. Það er ljóst að markaður
fyrir íslenskt hugvit og framleiðslu
er að stækka. Við búum yfir mik-
illi þekkingu og erum að öðlast
meira sjálfstraust. Það sýnir sig í
því að íslensk fyrirtæki eru í sókn
út um allan heim, svo sem í Suður-
Ameríku.“
Tveggja ára undirbúningur
Jón Hákon segir að einnig sé
búist við mikilli þátttöku fyrir-
tækja og sýningargesta frá öðrum
heimshlutum en skipulega hafi
verið unnið að því að fá sem flesta
erlenda gesti og sýnendur. Sam-
tals er reiknað með að um 15.000
gestir sæki sýninguna. „Það hefur
verið unnið geysilega mikið að
undirbúningi sýningarinnar og
hann tekið vel á annað ár. Rætt
hefur verið við aðila í öllum löndum
við Norður-Atlantshaf, í Banda-
ríkjunum og Evrópu og okkur hef-
ur undantekningalaust verið tekið
vel. Við munum samt sem áður
leggja höfuðkapp á að sýningin
verði íslensk en sniðin að þörfum
íslenskra jafnt sem erlendra sýn-
enda og gesta,“ segir Jón Hákon.
Styrkir stöðu íslands
Þorsteinn Pálsson, sjávarút-
vegsráðherra, segist fagna nýrri
sýningu. Hún sé þarft framtak og
telur hann að hún muni efla sjávar-
útveginn í landinu og ekki síst iðn-
aðinn sem sé nátengdur sjávarút-
veginum. „Eg tel engan vafa á því
að þetta styrkir stöðu íslands sem
sjávarútvegsþjóðar mitt á milli
Evrópu og Ameríku. Sýningar af
þessu tagi eru að verða vaxandi
þáttur í viðskiptum. Við höfum orð
á okkur fyrir að vera framarlega
í fiskveiðistjórnun og tækniþróun
í sjávarútvegi. Framleiðni í ís-
lenskri útgerð er meiri en annars-
staðar, þannig að menn horfa
gjarnan hingað þegar finna þarf
hagkvæmar lausnir og ég er sann-
færður að það er grundvöllur fyrir
tveimur sýningum hér á landi,"
segir Þorsteinn.
Flýtt um eitt ár vegna
velgengni
Islensku sjávarútvegssýning-
unni, sem haldin hefur verið hér á
landi á þriggja ára fresti allt frá
árinu 1984, hefur verið flýtt uin
eitt ár og verður hún því haldin
dagana 30. september til 3. októ-
ber á næsta ári. Skipuleggjendur
sýningarinnar, breska útgáfu- og
sýningarfyrirtækið Nexus Media
Ltd., segja ástæðuna einkum þá
miklu velgengni sem íslenska sjáv-
arútvegssýningin hefur átt að
fagna og þá alþjóðlegu athygli sem
hún hefur hlotið. Jón Hákon segir
að búist hafi verið við þessum
mótleik af hálfu Nexus Media og
hann hafi ekki áhrif á undirbúning
hinnar nýju sýningar.
Ellen Ingvadóttir, blaðafulltrúi
íslensku sjávarútvegssýningarinn-
ar, segir að sýningunni hafi ekki
verið flýtt til að mæta þeirri sam-
keppni sem nú standi fyrir dyrum.
„Ákvörðunin um að halda sýning-
una ári fyrr var tekin fyrir um
þremur mánuðum síðan, meðal
annars til þess að hún stangaðist
ekki á við aðra sýningu á vegum
Nexus Media Ltd. árið 1999.
Ástæðan er þó fyrst og fremst að
íslenska sjávarútvegssýningin er
orðin ein af stóru • sýningunum í
þessum geira í heiminum. Sýningin
í fyrra lukkaðist geysilega vel og
álitið heillavænlegt að halda sýn-
inguna aftur árið 1998 og halda
áfram á öldu velgengninnar," seg-
ir Ellen.
Undirbúningur þegar hafinn
Í fréttatilkynningu frá Nexus
Media Ltd. segir John Legate,
framkvæmdastjóri íslensku sjávar-
útvegssýningarinnar að mjög verði
vandað til sýningarinnar á næsta
ári. Mikil vinna hafi verið lögð í
að kynna hana erlendis og besti
vitnisburðurinn um árangurinn sé
sú staðreynd að innlendum og er-
lendum sýnendum hafi fjölgað ört
á hverri einustu sýningu frá árinu
1984. „Gildi vel skipulagðra sýn-
inga fyrir útflutningsfyrirtæki
verður aldrei ofmetið og sú stað-
reynd að íslendingar búa yfir mik-
illi og sérhæfðri þekkingu á öllu
er lýtur að sjávarútvegs- og fisk-
vinnslutækni er mikilvægur þáttur
í því hve vel hefur tekist til með
Islensku sjávarútvegssýninguna
frá upphafi," segir John Legate.
Loðnuveiðin glæðist á ný
ÞOKKALEG veiði er nú á loðnu-
miðunum en skipin hafa undan-
farna daga verið deifð við leit.
Nokkur skip fengu afla um 120
mílur norður úr Melrakkasléttu í
fyrrakvöld, nálægt „nýju“ land-
helgislínunni, eins og einn skip-
stjórnarmaður orðaði það í samtali
við Morgunblaðið. Frést hafði af
góðum loðnuafla danskra skipa á
þeim slóðum og stefndu flest ís-
lensku skipin á svæðið í gær. Segja
skipstjórar loðnuna þá koma á
hefðbundnar slóðir en veiði var góð
á þessu svæði á síðustu vertíð.
Norðmenn að klára kvótann
Loðnuskipum er nú haldið í lönd-
unarhöfnum eftir löndum til að
stýra sókn á miðin, enda flestar
verksmiðjur yfirfullar. Afli ís-
lensku loðnuskipanna er nú orðin
um 110.000 þúsund tonn á vertíð-
inni en samtals hafa borist um
120.000 tonn til verksmiðja hér á
landi. Norsku loðnuskipin eru nú
langt með kvóta sinn hér við land,
hafa samtals fengið um 60.000
tonn á vertíðinni en heildarkvóti
þeirra er um 80.000 tonn.
Routcr
Mið-Evrópa á kafi
FLÓÐIN í Tékklandi og Póllandi
hafa kostað 55 manns lífið og ótt-
ast er, að þau eigi eftir að aukast
enn. Sólin gægðist að vísu fram
úr skýjaþykkninu í gær en vatnið
í ám og fljótum hækkar enn og
verður því hærra sem neðar dreg-
ur. í Tékklandi nær flóðahættan
yfir þriðjung alls landsins og þar
og í Póllandi er atvinnustarfsemi
lömuð vegna ástandsins. Hvutti
var á sundi í bænum Uherske
Hradiste í Tékklandi í gær og
reyndi að komast á þurrt. I Aust-
urríki eru flóðin þau mestu á öld-
inni og austar eða í Azerbaidjan
er óttast, að farsóttir komi upp í
kjölfar mikilla flóða. Hafa stjórn-
völd þar farið fram á aðstoð Sam-
einuðu þjóðanna.
Þing lútherska heimssambandsins í Hong Kong
Sambandið stend-
ur á tímamótum
ÞING lútherska heimssambandsins
hófst í Hong Kong á þriðjudags-
kvöld. Þetta er í fyrsta skiptið sem
þingið er haldið í Asíu. Lútherska
heimssambandið stendur á tímamót-
um því á þessu ári eru 50 ár liðin
frá stofnun þess og framundan eru
ný viðfangsefni í ljósi breyttra að-
stæðna lútherskra kirkna víða um
heim.
Aðstæður hafa svo sannarlega
breyst hér í Hong Kong. Breska
nýlendan hefur verið afhent Kína
eftir 156 ára yfirráð Breta. Kínversk
áhrif og menning eru þó allsráð-
andi. Þó svo að breskur og vestrænn
bragur sé á ýmsu þá fer það ekki á
milli mála, að þetta er kínverskur
staður.
Við upphaf þingsins ávarpaði
Tung, nýskipaður yfirmaður sjálf-
stjórnarsvæðisins Hong Kong, fund-
armenn og var honum ákaflega vel
tekið. Tung sagði að sjálfstæði Hong
Kong yrði tryggt um langa framtíð
undir kjörorðinu ,Eitt ríki, tvö kerfi".
Þá hét hann því að mannréttindamál
yrðu virt sem og trúfrelsi og starf-
semi trúfélaga.
Dr. Gottfried Brakemeier, forseti
heimssambandsins, sagði í setning-
arræðu sinni, að meginverkefni
Þúsund fulltrúar
lúthersku kirkjunnar
funda nú í Hong Kong.
Meðal þeirra er Þor-
björn Hlynur Arna-
son, sem segir hér frá
opnun þingsins.
lútherskra manna væri, að standa
vörð um manngildi í heimi þar sem
samskipti fólks einkenndust æ meir
af gróðahyggju og neikvæðri sam-
keppni, meira að segja á hinum trú-
arlega vettvangi.
Brakemeier, sem er frá Brasilíu,
sagði brýnt fyrir lútherskar kirkjur
að snúast gegn framrás mannfyrir-
litningar og auðhyggju með því að
bera vitni um frelsi fagnaðarerind-
isins og efna til samvinnu með öllu
góðviljuðu fólki til að vinna að rétt-
læti og jöfnuði.
Þetta níunda þing lútherska
heimssambandsins sitja yfir þúsund
manns, fulltrúar 122 kirkna.
14 ára fangelsi fyr-
ir að valda alnæmi
Hclsinki. Morgunblaðið.
STEVEN Thomas, 36 ára banda-
rískur karlmaður sem slarfað hefur
í Helsinki undanfarin ár, var dæmd-
ur í 14 ára fangelsi í fyrradag fyrir
að hafa hugsanlega smitað a.m.k.
17 konur af alnæmi. Er þetta einn
þyngsti dómur sem felldur hefur
verið í Finnlandi.
Thomas starfaði m.a. sem dyra-
vörður á veitingahúsum í Helsinki.
Sagði í niðurstöðum réttarins, að
hann hafi gert sig sekan um mann-
drápstilraunir með því að stunda
kynlíf án getnaðarvarna þó svo hann
vissi að hann væri smitaður af al-
næmi. Hafi hann samrekkt stórum
hópi kvenna á fjögurra ára tímabili.
í dag hafa fimm þeirra greinst með
alnæmi.
Sérfræðingar í réttarfarsfræðum
sögðu í gær, að dómurinn væri
óvenjustrangur og myndi hafa for-
dæmisgildi. Áður hefur fallið dómur
þar sem hommi var dæmdur í þriggja
ára fangelsi fyrir að vera valdur að
manndrápi með því að smita rekkju-
naut sinn af alnæmi.
Þyngsta hegningarlagabrot í
Finnlandi er lífstíðarfangelsi fyrir
morð en með sérstakri forsetanáðun
er hægt að fá dóm af því tagi mildað-
an í 12 ára vist.