Morgunblaðið - 12.07.1997, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997 15
Samningur við bandarísk tóbaksfyrirtæki
Vill endurskoð-
un grunnþátta
BANDARÍKJASTJÓRN vill ekki
ganga að einum af grundvallar-
þáttum nýgerðs samkomulags við
tóbaksfyrirtæki, sem m.a. felur í
sér að fyrirtækin greiði sem svarar
26 þúsund milljörðum ísl. króna.
Er ástæða höfnunar stjórnarinnar
sú, að þessi tiltekni þáttur sam-
komulagsins myndi setja víðtækar
hömlur á vald alríkisyfirvalda yfir
því hversu mikið nikótínmagn má
vera í sígarettum. Washington
Post greindi frá þessu fyrr í vik-
unni.
Greint var frá því um miðjan síð-
asta mánuð að tóbaksfyrirtæki
hefðu fallist á að inna þessar
greiðslur af hendi, m.a. til að standa
straum af kostnaði við læknisþjón-
ustu við fólk, sem hefði beðið heilsu-
tjón vegna reykinga. Gegn þessu
ábyrgðust yfírvöld að ekki verði
sótt mál á hendur tóbaksfyrirtækj-
um.
Kemur ekki á óvart
Ráðgjafar Bills Clintons, forseta
Bandaríkjanna, ætla að endur-
skoða samkomulagsdrögin sjálfir,
eftir að þeir komust að þein-i niður-
stöðu að eins og þau eru nú séu
of mikil höft sett á völd Matvæla-
og lyfjaeftirlitsins (FDA). Slíkt
myndi hamla viðieitni yfirvalda til
að setja lög um tóbak.
Fréttaskýrendur segja þetta
ekki koma á óvart í ljósi þeirra
efasemda sem forsetinn hafi látið
í ljósi, síðan samkomulagsdrögin
voru gerð heyrinkunn í síðasta
mánuði, um þau takmörk sem FDA
væru sett. Hins vegar bendi þetta
til þess að forsetinn telji sig hafa
pólitískan meðbyr í þessu máli og
því sé vogandi að endurskoða
samninginn, sem var lengi í smíð-
um og er að mörgu leyti viðkvæmt
plagg. Forsetinn sé þess fullviss
að tóbaksfyrirtækin hafi lítið svig-
rúm til viðbragða.
Myndi frekar hafna
samningnum algerlega
Ráðgjafar Clintons fullyrða að
forsetinn myndi fremur hafna
samningsdrögunum algerlega en
að samþykkja þau án breytinga.
Það tók fulltrúa stærstu tóbaks-
fyrirtækjanna í Bandaríkjunum og
hóp dómsmálaráðherra 40 ein-
stakra ríkja, auk lögfræðinga,
marga mánuði að komast að niður-
stöðu um samkomulagið. Það verð-
ur ekki að lögum fyrr en bæði for-
setinn og þingið hefur samþykkt
það.
ETA-samtökin á Spáni taka
bæjarfulltrúa PP í gíslingu
Hóta að myrða
unga mann-
inn síðdegis
Malaga. Morgunblaðið.
MIKIL reiði ríkir á Spáni eftir að
sú tilkynning barst frá basknesku
hryðjuverkasamtökunum ETA síð-
degis á fimmtudag að þau hefðu
tekið ungan mann í gíslingu og
hygðust myrða hann yrði félögum
í hreyfingunni ekki sleppt úr fang-
elsi á Norður-Spáni innan 48
klukkustunda. í liðinni viku fengu
tveir gíslar samtakanna frelsið á
ný og hafa sjónvarpsmyndir af ein-
angrunarklefa þeim, sem annar
þeirra var geymdur í í rúma 500
daga, vakið reiði og almennan við-
bjóð á Spáni.
Tilkynningin frá ETA-sam-
tökunum, sem beijast fyrir stofnun
sjálfstæðs ríkis Baska á Norður-
Spáni, barst um kl. 17.30 að stað-
artíma á fimmtudag. Óþekktur
maður hringdi þá í baskneska dag-
blaðið Egin og skýrði frá því að
hinn 29 ára gamli Miguel Angel
Blanco Garrido hefði verið tekinn
í gíslingu. Yrði hann myrtur ef
dæmdum ETA-liðum yrði ekki
sleppt úr fangelsum innan 48
stunda. Þessi frestur mun renna
út í dag kl. tvö að íslenskum tíma.
Virkur innau PP
Blanco Garrido er hagfræðingur
að mennt og býr í bæ er nefnist
Ermua, í Vizcaya-héraði í Baska-
landi. Hann hefur um nokkurt
skeið verið virkur innan Þjóðar-
flokksins (PP) sem er í stjórn á
Spáni og er bæjarfulltrúi í Ermua.
Hann starfar hins vegar fyrir ráð-
gjafarfyrirtæki í einum nágranna-
bænunt. Hann er ókvæntur og býr
með foreldrum sínum. Svo virðist
sem honum hafi verið rænt er hann
var á leið til vinnu.
ETA-samtökin hafa tvívegis
tekið menn í gíslingu og hótað að
myrða þá yrði félögum í hreyfing-
unni ekki sleppt. Í bæði skiptin
hafa illvirkjarnir staðið við hótanir
sínar. Lemoniz Jose Maria Ryan
var tekin af lífi 6. febrúar 1981
og Aerto Martin Barrios í október-
mánuði 1983.
Fordæmingar
og mótmæli
Bylgja reiði og fordæminga hef-
ur riðið yfir Spán. Stjórnmála-
flokkar hafa fordæmt þennan
verknað og hvatt þjóðina til að
sýna samstöðu með ijölskyldu
Blanco Garrido. Fjöldafundir voru
haldnir í gær í Bilbao og víðar á
Spáni þar sem ETA-hreyfingin var
fordæmd með öllu og þess krafist
að unga manninum yrði sleppt.
Á þriðjudag í liðinni viku frels-
uðu þjóðvarðliðar mann einn sem
ETA-samtökin höfðu haft í gísl-
ingu í 532 daga. Maðurinn var
geymdur í örlitlum einangrunar-
klefa undir kjallara verkstæðis eins
á Norður-Spáni og hafa myndir
sem teknai1 voru í klefanum vakið
almennan hrylling á Spáni. Sama
dag slepptu ETA-samtökin öðrum
manni, sem þau höfðu haft á valdi
sínu í rúmlega 230 daga eftir að
fjölskylda hans hafði greitt um 500
milljónir króna í lausnargjald.
NASA
Arekstur
áMars
MYND tekin með myndavél
Carl Sagan-stöðvarinnar á
Mars sýnir jeppann Ferðalang-
kominn í hann all krappan.
Jeppinn, sem fjarstýrt er frá
miðstöð Ieiðangursins í Pasad-
ena í Kaliforníu, fór öllu hraðar
en ráð var fyrir gert þegar
liann nálgaðist steinhnullung,
sem vísindamenn hafa nefnt
Jóga, og til stóð að rannsaka
með efnagreiningartæki jepp-
ans. Lagði jeppinn af stað upp
eftir hnullungnum með einu af
sex hjólum sínum, en sjálfvirk
stýring í jeppanum stöðvaði
hann samstundis og ók honum
frá steininum, rétt eins og for-
rit sjálfstýringarinnar kvað á
um. Ekki urðu skemmdir á
tækjum. í gær var vika liðin frá
því Ratvís, eða Pathfinder, lenti
á Mars og segja vísindamenn
að leiðangurinn gangi að ósk-
ASTMA- OG 0FNÆMI5-
UPPLÝSINGALÍNA
GLAXO WELLCOME
Upplýsingabæklingar liggja
frammi i öllum Apótekum
og á heilsugæslustöðvum.
-kjarni málsins!