Morgunblaðið - 12.07.1997, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997 17
Talið að 100 manns hafi farist í hótelbruna í Tælandi
Reuter
SLÖKKVILIÐ berst við eldinn í 16 hæða hótelinu. Eldurinn
kom upp á jarðhæð en barst upp á þá 12. og lokuðust margir
inni á milli brennandi hæða.
Allir
neyðar-
útgangar
læstir
Pattaya. Reuter.
SJÖTÍU og fjórir menn að minnsta
kosti létu lífið í mesta hótelbruna,
sem orðið hefur í Tælandi, og ótt-
ast var, að tala látinna færi yfir
100. Kom eldurinn upp í Royal
Jomtien-hótelinu, sem er 16 hæða,
í strandbænum Pattaya en hann
er 200 km suðaustur af höfuðborg-
inni, Bangkok.
Búið var að bera kennsl á lík
43 manna, flestra Tælendinga, en
vitað er, að fimm Vesturlandabúar
eru meðal hinna látnu. Einn maður
lést þegar hann stökk út um glugga
á 11. hæð og 65 manns slösuðust
meira eða minna.
Kom upp á jarðhæð
Þyrlur voru notaðar til að þjarga
fólki af þaki hússins og út um
glugga á efstu hæðunum en emb-
ættismenn segja, að þetta mikla
manntjón megi meðal annars rekja
til ófullkomins eldvarnarkerfis auk
þess sem neyðardyr hafi verið læst-
ar.
Eldurinn kom upp í kaffistofu á
jarðhæð hótelsins klukkan hálf níu
í gærmorgun að staðartíma og fyrr
en varði teygði hann sig alla leið
upp á 12. hæðina. Eftir fimm
klukkustunda baráttu við eldinn
höfðu slökkviliðsmenn náð tökum
á honum og þeir fundu látið fólk
í næstum öllum herbergjum, sem
þeir fóru inn í.
„Þetta er mesta slys í sögu
Pattaya," sagði bæjarstjórinn.
„Það var ekkert slökkvi- eða
vatnsúðunarkerfi í hótelinu.“
Sanoh Thienthong, innanríkisráð-
herra Tælands, sagði í gær, að
komið hefði í Ijós, að allir neyðar-
útgangar í hótelinu hefðu verið
læstir. Hefði það verið gert til að
koma í veg fyrir, að gestir gætu
laumast út án þess að greiða reikn-
inginn.
Innilokaðir milli
brennandi hæða
Bæjarstjórinn í Pattaya sagði,
að eldurinn hefði breiðst jafn hratt
út og raun bar vitni vegna spreng-
inga, sem urðu í gaskútum í kaffi-
stofunni.
Um 300 gestir voru á hótelinu,
aðallega Tælendingar á ráðstefnu,
og þegar eldurinn kom upp, hlupu
þeir ofan af fimmtu og sjöttu hæð
til að komast út en lokuðust inni á
milli brennandi hæða.
Neanderthalsmenn ekki
forfeður nútímamannsins
London. Reuter.
ALÞJÓÐLEGUR hópur vísinda-
manna tilkynnti í fyrradag að útilok-
að væri að Neandeithalsmenn hafi
verið forfeður nútímamannsins.
Sérfræðingum frá Þýskalandi og
Bandaríkjunum tókst að einangra
DNA kjarnsýru úr beinum Neand-
erthalsmanns sem lifði fyrir meira
en 30 þúsund árum. Við rannsókn
kom í ljós að genauppbygging hans
var of ólík genum manna til að um
tengsl geti verið að ræða. Þeir telja
að forfaðir Neanderthalsmannsins
hafi skilist frá ættartré manna fyr-
ir 600 þúsund árum.
Chris Stringer, sérfræðingur í
frummönnum hjá Náttúrusögu-
safninu í London, segir að uppgötv-
unin renni stoðum undir þá kenn-
ingu að nútímamaðurinn hafi þró-
ast í Afríku og dreifst þaðan um
jörðina fyrir um'100 þúsund árum.
Margir hafa hingað til talið að for-
faðir bæði nútímamanna og Neand-
erthalsmanna, Homo Erectus, hafi
hafið ferðina frá Afríku og menn
hafi þróast frá honum samtímis um
allan heim.
Að sögn Stringers er ástæða til
að ætla að Cro-Magnonmenn, forf-
eður nútímamanna, hafi átt sam-
skipti við Neanderthalsmenn, sem
dóu út fyrir um 30 þúsund árum.
Forn verkfæri og skartgripir bendi
til að þeir gætu hafa stundað versl-
un sín á milli.
ÚTSALf)
Silfurbúöin
Kringlunni, simi 568 9066
STEINAR WAAGE
Tegund: 2061
Verð áðurJÍMÍ95>-
Verð nú: 3.495,-
Tegund: 2060
Verð áður
Verð nú: 3.995,"
Ath: Margar tegundir til
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
SÍMI 551 8519 ^
OpiS 10-14
V
|oppskórinn
• Vsltusundi vlö Ingólfstorg
• Síml 652 1212.
OpiS 10-14
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
SÍMI 568 9212
Opið 10-16 .
. Brúðhjón
Allur boröbiinaður Glæsilcg gjdfdvara Briíðaihjóna listar
(/\0<U7Í
VERSLUNIN
Langavegi 52, s. 562 4244.
Lítil sæla í
sumarleyfinu
London. Reuler.
ÞJÓFNAÐUR, veikindi og
rifrildi milli hjóna valda því
meðal annars, að Bretum
finnst sumarleyfisferð til út-
landa miklu erfiðari en að
vera bara heima. Kemur
þetta fram í könnun, sem
birt var á mánudag.
Yfirleitt tekst sæmilega til
í sumarleyfisferðinni en
margir hafa þó af því
áhyggjur allan tímann, að
eitthvað fari úrskeiðis. Það
kom líka fram í könnuninni,
sem Barclaycard gekkst fyr-
ir, að 40% hlökkuðu til að
komast heim.
Algengt áhyggjuefni með-
al sumarferðalanga eru fjár-
málin eða veikindi. Kvaðst
fjórðungur svarenda hafa
fengið einhverja slæmsku og
þriðjungurinn óttaðist að
verða uppiskroppa með fé.
Reynir á
hjónabandið
Oft getur gengið illa hjá
hjónum, sem vinna hörðum
höndum og stökkva síðan
beint út úr stressinu til að
slappa ærlega af. Nærri
helmingurinn viðurkenndi,
að til rifrildis og leiðinda
hefði komið milli þeirra.
„Sumarfríin geta verið
mikið álag á hjónabandið og
fjármál heimilisins. Þau geta
kallað fram það versta í fólki
og einkum ef ferðin er ekki
jafn skemmtileg og búist
hafði verið við,“ segir sál-
fræðingurinn Trevor Jellis.
Þrátt fyrir alls konar
tryggingar hefur fólk
áhyggjur af veikindum og
slysum, magakveisu, mata-
reitrun og alvarlegri veik-
indum, enda hefur þessum
tilfellum fjölgað með aukn-
um ferðalögum til sumra
ríkja í Asíu, Suður-Ameriku
og Afríku. Eyjarnar í
Karíbahafi eru mjög vinsæl-
ar meðal Breta en nú hefur
bæst við nýtt áhyggjuefni,
sem er húðkrabbamein af
völdum sólarinnar.
3000 m2 sýningarsalur
Opið virka daga 9-18
Laugardaga 10-16
Sunnudaga 14-16