Morgunblaðið - 12.07.1997, Qupperneq 19
LAUGAEDAGUR 11. JÚLÍ 1997 19
1_
Morgunblaðið/Sigfús
LANDSLIÐSÞJÁLFARINN fylgist með leiknum einbeittur á svip.
■ vh
KR-INGAR fagna þjálfara sínum Guðjóni Þórðarsyni eftir fyrsta bikarsigur félagsins í 27 ár árið 1994.
GUÐJÓN á Hásteinsvelli í Eyjum: „Hef sjaldan komið hingað í betra veðri
Llndir smásjánni
Það eru tuttugu mínútur í leik og
við röltum af stað upp á Hásteins-
völl, þar sem leikur IBV og Breiða-
bliks í bikarkeppninni er að hefjast.
Fólk streymir á völlinn og margir
vegfarendur koma til landsliðsþjálf-
arans og óska honum til hamingju
með nýja starfið. A „Hólnum" eru
hörðustu stuðningsmenn ÍBV,
kjaftforir menn, sem þekktir eru
fyrir að láta ýmislegt fjúka í hita
leiksins og vanda þá oft ekki and-
stæðingunum kveðjurnar. Guðjón,
eins og aðrir þjálfarar aðkomuliða,
hefur oft orðið fyrir barðinu á hnit-
miðuðum skotum „Hólaranna", en
nú bregður svo við að þeir heilsa
honum með virktum, óska honum til
hamingju og segjast munu sakna
hans úr deildarleikjunum. Þetta var
þá bara í kjaftinum á þeim þegar
allt kemur til alls og greinilegt að
Guðjóni þykir vænt um umskiptin
og hlý orð í sinn garð.
Við komum okkur fyrir í blaða-
mannaskýlinu, fyrir miðjum vellin-
um, við hlið Guðmundar Þ.B. Ólafs-
sonar, sem situr þar með heyrnar-
tæki og hljóðnema, klár í útvarps-
lýsinguna. Hann óskar landsliðs-
þjálfaranum til hamingju og vill fá
að vita hver það sé úr liði ÍBV sem
hann sé nú með undir smásjánni.
Guðjón lætur ekkert uppi um það
en dregur upp úr pússi sínu spjald-
skrá, sem hann hefur útbúið til að
skrá hjá sér frammistöðu leik-
manna. Þar er til að mynda dálkur
með yfírskriftinni sendingar til
snmherjn og annar fyrir sendingar
sem rata ekki rétta leið. Það er
greinilegt að hér fer skipulagður
maður, sem veit hvað hann er að
gera. í dálkinn fyrir nöfn leikmanna
skráir landsliðsþjálfarinn fjórar
skamstafanir: HH, SS, SÓ og TG.
Blaðamaður lætur á engu bera og
spyr sakleysislega hvort þjálfarinn
sé kominn til að fylgjast með
frammistöðu ákveðinna leikmanna
eða hvort liðsheildin sé öll undir
smásjánni. Guðjón gefur loðin svör
en á honum má þó skilja að hann sé
vitaskuld að skoða menn í ákveðnar
stöður í landsliðinu.
- Hvaða kostir eru ómissandi hjá
leikmanni til að hann sé gjaldgeng-
ur í landslið?
„Tækni og hraði eru auðvitað
góðir kostir, en hann þarf fyrst og
fremst að hafa vilja, vilja til að
vinna. Hann þarf að hafa „karakter"
til að þola bæði mótlæti og vel-
gengni og má ekki verða kærulaus
þótt mótspyrnan sé lítil. Þess vegna
tel ég nauðsynlegt að skoða leik-
menn í leikjum gegn svokölluðum
„veikari" liðum því það er oft í slík-
um leikjum sem hinn rétti „karakt-
er“ kemur í ljós. Leikmaður sem
verður kærulaus, jafnvel þótt sigur
sé í höfn, á ekkert erindi í landslið-
ið.“
Góður ÍEÍkþáttur
Leikurinn er hafinn og þótt
blaðamaður hafi gefið sér það fyrir-
fram að Breiðablik sé „veikara" lið-
ið er það ekki að sjá á upphafsmín-
Kærulaus
leikmaður á
ekkert erindi
landsliðið
útum leiksins. Blikamir taka hressi-
lega á og Eyjamenn verða að hafa
sig alla við til að halda þeim í skefj-
um. En svo fá Eyjamenn auka-
spyrnu á hættulegum stað rétt utan
vítateigs. Þeir gefa sér góðan tíma
til að taka spyrnuna og bogra lengi
þrír saman yfir knettinum þar til
Guðmundur Maríasson, dómari, að-
varar þá. Þá skyndilega er spyrnan
tekin stutt og boltinn
flýgur með glæsilegu
skoti í mark Blikanna.
„Þetta var góður leik-
þáttur,“ segir landsliðs-
þjálfarinn og virðist
hrifinn. „Þetta var
greinilega æft og undir-
búið. Þú sást að þeir voru að hangsa
þama yfir boltanum og svo gengur
Ingi (Sigurðsson) til hliðar og virð-
ist hættur við, en svo taka þeir
þetta stutt, Ingi fær boltann og
hamrar honum í netið,“ segir Guð-
jón og lyftist örlítið í sæti sínu.
Áhorfendur kætast líka, enda flestir
á bandi Eyjamanna.
Eftir þetta virðast leikmenn ÍBV
hafa leikinn í hendi sér. Land.sliðs-
þjálfarinn fylgist með og skráir hjá
sér frammistöðu leikmannanna
fjögurra, sem eru undir smásjánni
að þessu sinni. Það er líka fróðlegt
að hlusta á athugasemdir hans um
einstaka leikmenn og leikinn í heild.
Það er eins og hann kortleggi þetta
allt saman jafnóðum, eins og hann
gerði til dæmis í lýsingum í Suður-
Ameríku-keppninni á Sýn hér á
dögunum, en lýsingar hans þar
fengu marga, sem jafnvel höfðu
engan áhuga á knattspyrnu, til að
staldra við og leggja við hlustir.
- Hvaðan kemur öll þessi þekk-
ing á knattspyrnu ?
„Ég hef lengi haft áhuga á íþrótt-
inni og viðað að mér upplýsingum
og þekkingu úr öllum áttum. Þessi
árátta nær allar götur aftur til þess
tíma sem Kirby var að þjálfa Skaga-
menn á árunum eftir 1970. Þá fékk
hann mig stundum til að aðstoða sig
við þjálfunina og ég lærði mikið af
því. Eins hef ég á seinni árum sótt
öll þau þjálfaranámskeið sem í boði
hafa verið og farið utan á hverju ári
í því skyni að afla mér meiri þekk-
ingar á íþróttinni. Menn hafa stund-
um verið að núa mér því um nasir
að þessar utanlandsferðir stafi af
„ferðagleði" einni saman, en allt
hefur þetta hjálpað
mér í því að ná ár-
angri.“
- Asamt óskapleg-
um metnaði ?
„Já, ég neita því ekki
að ég hef mikinn metn-
að, enda held ég að án
hans sé til lítils að
standa i þessu. Hins
vegar hef ég alltaf sagt, svo ég
bregði aftur fyrir mig „frasanum",
að árangur næst ekki nema með
„massífri vinnu“.“
í þeim orðum töluðum skora
Eyjamenn þriðja mark sitt og
skömmu síðar er blásið til leikhlés
og við röltum upp í félagsheimili til
að fá okkur kaffisopa.
Að lifa mecl___________________
umtalinu_______________________
I seinni hálfleik vill Guðjón horfa
á leikinn úr brekkunni fyrir ofan og
aftan mark Blikanna. „Ég geri þetta
oft þegar ég er erlendis að horfa á
leikinn frá þessu sjónarhorni, en
margir eiga erfitt með að skilja það
því flestir vilja horfa á leikinn frá
hlið,“ segir hann til skýringar þessu
uppátæki. „Frá þessum sjónarhóli
sér maður leikinn eins og á töflu og
það er auðveldara að kortleggja
hann héðan,“ segir þjálfarinn og
hefur lög að mæla. Þegar Eyjamenn
sækja má glöggt sjá leikskipulagið
og hvernig sóknarmennirnir sækja
fram í breiðfylkingu, með þríhyrn-
ingsspili og öllu tilheyrandi. Guðjón
heldur áfram að gera athugasemdir
um frammistöðu einstaki’a leik-
manna, en er hættur að skrá hjá sér
punkta. Eyjamenn eru líka komnir í
fimm núll og hann segist vera búinn
að sjá það sem hann hafi ætlað sér.
I
Ég mun
kappkasta að
vinna með fólki
eins vel og mér
framast er
unnt
Ferðin til Eyja hafi styrkt þá skoð-
un sem hann hafði áður myndað sér
um þessa ákveðnu leikmenn, sem
voru undir smásjánni. Auk þess hafi
nokkrir aðrir leikmenn vakið athygli
hans, sem ef til vill nýtist síðar.
Það er greinilegt að landsliðs-
þjálfarinn vekur óskipta athygli á
áhorfendapöllunum og margir gefa
sig á tal við hann. Hann er vanur at-
hyglinni og umtalinu,
hvort heldur það hefur
verið neikvætt eða já-
kvætt. Aðspurður um
hvernig það sé að vera
orðinn eins konar „þjóð-
sagnapersóna" og sífellt
á milli tanna fólks segir
hann að það sé nokkuð sem menn í
hans aðstöðu verði að læra að lifa
með.
„Það sem mér hefur þótt verst í
þessu sambandi er þegar fjölskylda
mín og böm hafa orðið fyrir áreitni,
og oft mjög óvæginni áreitni, vegna
minna mála. Mér hefur vissulega
orðið á í messunni, en það er sár-
grætilegt að vita til þess að börnin
mín hafa verið grætt opinberlega
með framferði manna sem virðast
hafa það eitt að leiðarljósi að vera
fyndnir á annarra kostnað. Þegar
skemmtilegheitin eru komin á þetta
stig hættir þetta að vera sniðugt og
lýsir engu öðru en illkvittni og ill-
gimi og segir í rauninni meira um
þá menn, sem þannig hegða sér, en
um þann sem er skotspónn þeirra.
Öfund og illgirni em því miður hvat-
ir sem em ríkjandi í of mörgum og
ég hef vissulega orðið var við slíkar
raddir illgimi og öfundar í minn
garð.“
- Nú komstu fram í sjónvarpi
fyrr á þessu ári og viðurkenndir
hreinskilnislega að þú hefðir farið
halloka í baráttunni við Bakkus kon-
ung, og hefðir tekið á því máli og
leitað þér hjálpar. Hefur þú fundið
fyrir einhverjum viðhorfsbreyting-
um íþinn garðíkjölfarþess?
„Já, ég hef vissulega fundið fyrir
jákvæðum viðhorfum í kjölfarið, en
eftir sem áður em ákveðnir menn
sem enn finna sig knúna til að djöfl-
ast á þessum málum, sennilega í
þeirri von að mér mistakist svo að
þeir geti haldið áfram að velta sér
upp úr þessu.
Hins vegar hef ég að undanfömu
fundið fyrir miklum velviija víða í
þjóðfélaginu og al-
mennt miklum stuðn-
ingi við það að ég skuli
vera að taka við þessu
krefjandi starfi sem
landsliðsþjálfari. Ég
hef fundið fyrir mikilli
hvatningu, nánast hvar
sem ég kem. Bláó-
kunnugt fólk kemur til
mín á bensínstöðvum og tekur i
höndina á mér og óskar mér til
hamingju og á götum úti kemur fólk
sem óskar mér velfamaðar í starfi.
Jú, ég hef fundið fyrir miklum vel-
vilja og það er mér mjög mikils
virði.“
Rétt í þessu skora Eyjamenn sitt
sjöunda mark og Guðjón gerir hlé á
máli sínu meðan fagnaðaraldan
gengur yfir, en bætir síðan við:
„Ég hef stundað fundi hjá AA-
samtökunum síðan um áramót og
þar hef ég fengið mikinn stuðning.
Þar er fólk ekki að bulla einhverja
vitleysu við mann heldur talar um
hluti sem skipta máli og gott er að
heyra og er virkilega hvetjandi. En
það sem að mér snýr núna er að
horfa til framtíðar í stað þess að
velta mér of mikið upp úr fortíðinni
þótt málshátturinn segi að vísu: „Að
fortíð skal hyggja er framtíð skal
byggja". Ég mun kappkosta að
vinna með fólki eins vel og mér
framast er unnt, því ég þarf á því að
halda í þessu starfi. Eflaust eiga
einhverjir eftir að draga í efa að ég
geti unnið með þessum eða hinum í
ljósi einhverra atburða sem gerðust
í fortíðinni. En það sem var er liðið
og það sem skiptir máli nú er fram-
tíðin. Og hún skiptir ekki aðeins
mestu máli fyrir mig persónulega
heldur einnig fyrir velgengni og
framgang íslenska landsliðsins.“