Morgunblaðið - 12.07.1997, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997 37
f
!
1
I
ð
í
I
1
I
I
3
4
;
<
*
í
(
(
(
(
(
i
i
i
í
i
________MIIMWIMGAR
STEINFRÍÐ UR
MATTHILDUR
THOMASSEN
+ Steinfríður
Matthildur
Thomassen var
fædd á Eskifirði 6.
desember 1909.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Suðurlands 6.
júlí síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Guðríður Ein-
arsdóttir frá
Reykjavík og Crist-
jan Thomassen frá
Bergen í Noregi.
Hálfsystkini hennar
voru Carl, Margrét
og Einar Carlsson,
en þau voru öll eldri, og alsystk-
ini hennar Ágústa ísafold og
Norðmann Thobías. Öll eru
þessi systkini hennar nú látin,
Guðríður dó þegar Steinfríður
var barn og var henni þá kom-
ið að Kílhrauni á Skeiðum, þar
sem hún ólst upp hjá Arnbjörgu
Þórðardóttur og Guðmundi
Vigfússyni frá sjö ára aldri, og
var þar fram yfir tvítugt. Síðan
var hún í vistum, m.a. í Reykja-
vík en oftast heima um sláttu-
tímann.
Hinn 31. mai 1942 giftist
Steinfríður eftirlifandi manni
sínum Guðjóni Sigfússyni,
handverksmanni frá Eyrar-
bakka, f. á Egilsstöðum í Flóa
14. febrúar 1912. Þau bjuggu á
Litlu-Háeyri á Eyrarbakka þar
sem Guðjón starfaði aðallega
Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins
degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist
eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér.
(Ingibj. Sig.)
Þessar ljóðlínur eiga við nú þegar
sómakona er kvödd, og sem skilur
eftir í huga mínum svo margar og
fagrar endurminningar frá upp-
vaxtarárum mínum, því fátt er dýr-
mætara í þessu lífi en að fá að
umgangast og kynnast sönnum og
góðum vini og á skilnaðarstund
verður endurminningin eins og lýs-
andi perla þeim sem eftir standa.
Þá er líkast því að hinn horfni
vinur standi manni svo undarlega
nálægur, eins og hin innri vitund
greini ásýnd hans og anda.
Eg tel að það hafi verið mér
gæfa að kynnast Steinfríði eða Fríðu
eins og hún var ævinlega kölluð en
mínar fyrstu endurminningar frá
uppvaxtarárunum eru henni tengd-
ar. Hún var alin upp hjá afa mínum
og ömmu, en á þeim árum var tví-
við trésmíðar hjá
Trésmiðju Eyrar-
bakka, til ársins
1960 en þá fluttust
þau að Kirkjuvegi
13 á Selfossi sem
var heimili þeirra
allt til ársins 1990,
að þau taka þá
ákvörðun að fara
inn á dvalarheimil-
ið Sólvelli á Eyrar-
bakka, og þar dvel-
ur Guðjón enn. Þau
Steinfríður og Guð-
jón eignuðust eina
dóttur, Guðbjörgu,
en hún hefur starfað í Lands-
banka íslands um árabil, og er
búsett í Reykjavík. Hennar
sambýlismaður er Styrmir
Gunnarsson málari. Guðbjörg á
eina dóttur, Unni Fríðu Hall-
dórsdóttur, og er hún þroska-
þjálfi búsett á Egilsstöðum.
Hennar sambýlismaður er Mar-
inó Már Marinósson blaðamaður
og eiga þau tvö börn, Guðbjörgu
Arneyju, f. 27. febrúar 1994, og
Einar Guðjón, f. 24. apríl 1996.
Steinfríður hefur mörg hin síð-
ari ár átt við heilsuleysi að
stríða og um páska 1991 fót-
brotnaði hún illa og hefur verið
eftir það á Sjúkrahúsi Suður-
lands á Selfossi.
Útför Steinfríðar fer fram
frá Eyrarbakkakirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 10.30.
býli í Kílhrauni. Og hún var oft sem
mín önnur móðir þegar mamma var
fjarverandi végna veikinda.
Nær öll árin sem pabbi bjó var
Fríða kaupakona og það var eins
og öllum létti þegar hún var komin
enda sagði pabbi þá oft nú er Fríða
komin, nú fer heyskapurinn að
ganga. Á þeim árum voru vélarnar
ekki komnar til sögunnar og var
þá allt byggt á hestum og hand-
afli, góður sláttumaður var ómetan-
legur og svo var einnig kaupakon-
an. Fríða var forkur dugleg við
heyskap og hrífan var henni létt í
hendi á þeim árum, það var gaman
að sjá þær raka ljá eða snúa flekk,
Fríðu og Mæju, sem báðar voru
aldar upp í Kílhrauni, og það er enn
sem ég heyri dillandi hlátur þeirra
þegar þær voru að „gelda“ okkur
sláttumennina sem börðum þúfna-
kollana og höfðum ekki undan, svo
mikið var kappið í kaupakonunum
við raksturinn.
Öll störf fóru Fríðu vel úr hendi,
hún var nærgætin og góð við skepn-
ur og ef kýr voru óþægar við mjalt-
ir, sem oft vildi vera, var nokkuð
BALDUR
BRAGASON
-4- Baldur Braga-
’ son fæddist á
Oxará í Ljósavatns-
hreppi í S-Þingeyj-
arsýslu 1. október
1933. Hann lést á
Akureyri 30. júní
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Akureyrarkirkju 8.
júlí.
Fallinn er svo
skyndilega einn helzti
forystumaður Sjálfs-
bjargar, bæði í heima-
héraði sem á landsvísu. Ekki er svo
ýkja langt frá því kunnugleg rödd
hljómaði í símanum, spytjandi frétta
hversu fram gengi í sameiginlegum
baráttumálum. Hann hafði oft sam-
band, hann Baldur Braga, og hann
var ekki bara að spyrja, hitt var
oftar að hann reifaði hugmyndir sín-
ar eða bæði mig athuga
nánar fyrir sig eitthvert
mál, sem allrar athug-
unar var vert.
Kynni okkar rek ég
til sameiginlegs vinar,
Þorbjörns Magnússon-
ar, sem fyrir margt
löngu hringdi í mig á
þingfundartíma og bað
mig heimsækja sig eftir
fund upp í Sjálfsbjarg-
arheimili, það væri hjá
sér Norðlendingur, sem
hann tryði að væri hollt
fyrir mig að hitta.
Norðiendingurinn hans
Þorbjarnar var Baldur Braga og
sameiginlega kynntu þeir fyrir mér
hugmynd sína, sem síðar varð svo
að þingmáli, sem fékk farsæla af-
greiðslu.
Baldur Braga var ætíð að hugsa
um á hvern veg mætti breyta lífs-
kjörum fatlaðra til hins betra, bæta
MESSUR AMORGUN
öruggt að Fríða gat róað þær og
talað þær til svo þær hreyfðu sig
ekki. Eitt mesta tilhlökkunarefni
okkar krakkanna var þegar von var
á Fríðu og Guðjóni og svo líka
Mæju og Jóa frá Stokkseyri. Þetta
voru gömlu vinirnir sem alltaf komu
um jólin og dvöldu þá heima fram
yfir áramót. Þá ver hlegið og spjall-
að og mikið breyttist þá og léttist
heimilisbragurinn þegar þetta
blessað fólk var komið. Þannig var
þetta sem ein Qölskylda heimilis-
fólkið á báðum bæjum og fjölskylda
Fríðu og svo hefur það verið alla
tíð. Fyrstu ferðir mínar úr foreldra-
húsum voru svo auðvitað niður á
Eyrarbakka til Fríðu og Guðjóns
og allar voru þær heimsóknir mínar
til þeirra lærdómsríkar, ánægjuleg-
ar og uppbyggilegar fyrir óupplýst-
an sveitastrák. Fríða var vinaföst
og trygg þeim sem hún tók tryggð
við, en hún var ekki allra, eins og
sagt var.
Bræðurna í Kílhrauni mat hún
og virti og Arnbjörgu og Guðmund
elskaði hún ekki minna, en væri
hún þeirra dóttir, og aldrei var
henni efi í huga úr hvaða föðurtún-
um hún var uppsprottin. Þessarar
tryggðar Fríðu og vináttu höfum
við niðjar þeirra Kílhraunshjóna
notið. Nú á skilnaðarstund þegar
leiðir okkar Fríðu skiljast eftir sex-
tíu ára samfylgd og vináttu, fyllist
hugur minn einnig hlýju og þakk-
læti til allra þeirra sem léttu henni
þjáninguna og litu til hennar í veik-
indum hennar og það er eins og
mér finnist hún tala til mín og biðja
fyrir kveðjur til ykkar ailra. Fríða
mín er farin, en ég finn að andi
hennar er nálgæur, einlægur sem
fyrr, fullur þakklætis og kærleika
til allra, ekki síst til þín, Guðjón
minn, þín sem varst óþreytandi að
heimsækja hana á spítalann oft
sárlasinn sjálfur, og Guggu dóttur-
innar sem hefur farið helgi eftir
helgi hingað austur til að reyna að
gleðja mömmu sína í veikindastríð-
inu sem var bæði langt og strangt.
Og þá ber að minnast á þátt
dótturdótturinnar Unnar Fríðu sem
var sólargeisli ömmu frá fæðingu
og aldrei hitti maður Fríðu svo að
hún nefndi hana ekki og íjölskyld-
una hennar, sem var svo langt í
burtu en sem hún elskaði svo mjög.
Og einnig eru færðar þakkir lækn-
um og starfsfólki öllu á Sjúkrahúsi
Suðurlands fyrir fórnfúsa ummönn-
un í öll þessi ár sem Fríða dvaldi í
þeirra umsjá. Og þá vil ég færa
þakkir og kveðjur frá eina bróðurn-
um frá Kílhrauni sem enn er á lífi
og jafnaldri Fríðu, Kolbeini og fjöl-
skyldu hans.
Við Nína, börn okkar og aðrir
úr fjölskyldunni sendum þér, Guð-
jón minn, Guggu, Unni Fríðu og
fjölskyldum hugheilar samúðar-
kveðjur og biðjum algóðan Guð og
styrkja ykkur öll og leiða á þessari
skilnaðarstund. Blessun fylgi niðj-
um Steinfríðar Thomassen.
Árni Valdimarsson.
heildarhag fatlaðs fólks á landi hér.
Honum sviðu mjög atlögur síðustu
ára að lífskjörum fatlaðs fólks og
vildi snúa vörn í sókn og sækja fram
til nýrra sigra, ekkert annað væri
sæmandi. Honum var eðlilega falinn
margs konar trúnaður, hann var í
forystu Sjálfsbjargar á Akureyri og
stjórn Sjálfsbjargar - landssam-
bands og sat m.a. um skeið í svæðis-
stjórn um málefni fatlaðra á Norð-
urlandi eystra fyrir Öryrkjabanda-
lagið.
Hann var einstaklega duglegur
að sækja fundi og ráðstefnur hingað
suður, lá ekki á liði sínu þar fremur
en annars staðar, lagði þar jafnan
gott til mála. Hann var skýr í máli,
glöggur á aðalatriðj og gætinn í
mikilli einurð sinni. Ég sakna sann-
arlega hinna mörgu góðu og fræð-
andi samtala við Baldur. Öryrkja-
bandalag íslands þakkar Baldri hans
góðu störf að sameiginlegum hug-
sjónamálum og hið ágætasta sam-
starf.
Genginn er góður drengur sem
hvergi lét erfiða fötlun aftra sér til
ætlunarverka góðra. Að honum er
sjónarsviptir.
Helgi Seljan.
Guðspjall dagsins:
Jesús mettar fjögur
þúsund manna.
(Mark. 8.)
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Léttur hádegisverður eftir messu.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Organisti Guðni Þ. Guð-
mundsson. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Prestur sr. Hjalti Guðmundsson.
Skírn. Kammerkór Dómkirkjunnar
syngur. Organleikari Kjartan Sig-
urjónsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 10.15. Sr. Gylfi Jóns-
son.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11.
Prestur sr. Halldór S. Gröndal.
Organisti Árni Arinbjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11. Fermd verður Tanja Burt,
Njálsgötu 20. Kór Menntaskólans
við Hamrahlíð syngur undir stjórn
Þorgerðar Ingólfsdóttur. Organ-
isti Douglas A. Brotchie. Sr. Sig-
urður Pálsson. Tónleikar kl.
20.30. Gustavo Delgado Parra og
Ofelia G. Castellanos organistar
frá Mexíkó.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Fermd verður Áslaug Heiða
Gunnarsdóttir, Einimel 14. Sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11.
Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson.
Organisti Jón Stefánsson. Félagar
úr Kór Langholtskirkju (hópur III)
syngja. Kaffisopi eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Félagar úr Kór Laug-
arneskirkju syngja. Organisti
Gunnar Gunnarsson. Jón Dalbú
Hróbjartsson.
NESKIRKJA: Messa kl. 11.
Fermdur verður Davíð Kristján
Guðmundsson, Bræðraborgar-
stíg 49. Organisti Reynir Jónas-
son. Sr. Halldór Reynisson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11. Prestur sr. Solveig
Lára Guðmundsdóttir. Organisti
Sigrún Steingrímsdóttir.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Fyrsta
guðsþjónusta að loknu sumarleyfi
verður sunnudaginn 10. ágúst kl.
20.30.
HRAFNISTA, HAFNARFIRÐI:
Messa kl. 12.45. Sr. Gylfi Jóns-
son.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Organleikari Kristín G.
Jónsdóttir. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Engin
guðsþjónusta er í kirkjunni vegna
sumarleyfa starfsfólks kirkjunnar.
Fólki er bent á helgihald og þjón-
ustu í öðrum kirkjum í prófasts-
dæminu.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga. Organisti Eyþór I.
Jónasson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Hreinn
Hjartarson. Organisti Pavel Smid.
Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Hörður
Bragason. Sigurður Arnarson.
HJALLAKIRKJA: Vegna fram-
kvæmda í kirkjunni og sumarleyfa
starfsfólks kirkjunnar er fólki bent
á helgihald og þjónustu í öðrum
kirkjum í Kópavogi. Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Helgistund í
umsjá sr. Stefáns Lárussonar.
Boðið verður upp á kaffi eftir
stundina.
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
20. Sr. Ágúst Einarsson prédikar.
Sönghópurinn „Söngsystur" flyt-
ur tónlist við guðsþjónustuna.
Organisti Kjartan Sigurjónsson.
Sóknarprestur.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
KRISTSKIRKJA, Landakoti:
Messur sunnudaga kl. 10.30, 14
og 20 (á ensku). Laugardaga og
virka daga messur kl. 8 og 18.
MARÍUKIRKJA, Raufarseli 8:
Messa sunnudag kl. 11. Messa
laugardag og virka daga kl. 18.30.
GARÐABÆR, Holtsbúð 87:
Messa sunnudag kl. 10 á þýsku.
Laugardag og virka daga messa
kl. 7.15.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa sunnudag kl. 10.30.
Messa virka daga og laugardaga
kl. 18.
KARMELKLAUSTUR, Hafnar-
firði: Messa sunnudaga kl. 8.30.
Messa laugardaga og virka daga
kl. 8.
BARBÖRUKAPELLA, Keflavík:
Messa sunnudag kl. 14.
STYKKISHÓLMUR, Austurgata
7: Messa sunnudag kl. 10. Messa
laugardag og virka daga kl. 18.30.
KLETTURINN: Kristið samfélag,
Bæjarhrauni 2, Hafnarfirði. Sam-
koma sunnudag kl. 16.30. Jón Þór
Eyjólfsson prédikar. Barnastarf á
meðan á samkomu stendur. Allir
velkomnir.
KIRKJA JESÚ KRISTS hinna síð-
ari daga heilögu: Skólavörðustíg
46. Sakramentissamkoma sunnu-
dag kl. 11.
MESSÍAS-FRÍKIRKJA: Rauðarár-
stíg 26, Reykjavík. Guðsþjónusta
sunnudag icl. 20 og fimmtudag
kl. 20. Altarisganga öll sunnu-
dagskvöld. Prestur sr. Guðmund-
ur Örn Ragnarsson.
ORÐ LÍFSINS: Grensásvegi 8.
Almenn samkoma kl. 11. Ræðu-
maður Ásmundur Magnússon.
Fyrirbænaþjónusta/bænaklútar.
Allir hjartanlega velkomnir.
FÆREYSKA sjómannaheimilið:
Samkoma á morgun kl. 17.
KFUM og KFUK við Holtaveg:
Samkoma á morgun kl. 20. Upp-
hafsorð og bæn: Kristín M. Möll-
er. Ræðumaður: Guðmundur Jó-
hannsson.
HVÍTASUNNUKIRKJAN FHadelf-
ía: Almenn samkoma kl. 20.
Ræðumaður Vörður Traustason.
Allir hjartanlega velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Bæna-
stund sunnudag kl. 19.30 og
hjálpræðissamkoma kl. 20.
LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Bjarni Þór
Bjarnason. Jón Þorsteinsson.
VIDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Félagar úr kór Vídalíns-
kirkju leiða söng. Organisti Guð-
mundur Sigurðsson. Sóknar-
prestur.
BESSASTAÐAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 14. Almennur safn-
aðarsöngur. Organisti Þorvaldur
Björnsson. Sóknarprestur.
VIÐISTAÐAKIRKJA: Skandinav-
ísk guðsþjónusta á víkingahátíð
kl. 11. Lestrar á færeysku, norsku
og sænsku. Prédikun á dönsku.
Kór Víðistaðasóknar syngur. Org-
anisti Halldór Óskarsson. Sigurð-
ur Helgi Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Mið-
aldaguðsþjónusta kl. 15 á hátíð-
arsvæði Víkingahátíðarinnar á
Víðistaðatúni. Félagar úr kór
Hafnarfjarðarkirkju syngja undir
stjórn Natalíu Chow. Prestur sr.
Þórhallur Heimisson.
HVERAGERÐISKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 14. Prestur sr. Magn-
ús Guðjónsson. Organisti Kjartan
Ólafsson. Félag fyrrverandi sókn-
arpresta. Jón Ragnarsson.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl.
10.30. Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA: Messa kl.
11. Sóknarprestur.
STRANDARKIRKJA í Selvogi:
Messa kl. 14. Rútuferð frá barna-
skólanum í Þorlákshöfn kl. 13.15.
Sr. Úlfar Guðmundsson.
LANDAKIRKJA, Vestm.eyjum:
Almenn guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Flóki Kristinsson þjónar. Messu-
kaffi.
BREIÐAVÍKURKIRKJA: Kvöld-
messa kl. 22 sunnudag. Sóknar-
prestur.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Ferming-
armessa kl. 14. Fermd verða Eva
Björk Harðardóttir, Faxatröð 14,
Egilsstöðum, og Hafþór Atli Rún-
arsson, búsettur í Noregi með
aðsetur á Faxatröð 14, Egilsstöð-
um. Prestur sr. Kristín Pálsdóttir.
Organisti Kristján Gissurarson.
Sóknarprestur.
STÖÐVARFJARÐARKIRKJA:
Fermingarmessa sunnudag kl.
11. Fermd verður Birgit Þorbjörg
Ingirid Larsson, búsett í Banda-
ríkjunum, með aðsetur á Hóli,
Stöðvarfirði. Sr. Gunnlaugur Stef-
ánsson.
REYKHOLTSPRESTAKALL:
Messa verður í Reykholti sunnu-
dag kl. 11.
ÞINGVALLAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Ingunn Hild-
ur Hauksdóttir. Sóknarprestur.