Morgunblaðið - 12.07.1997, Síða 42
42 LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tæki
gefín til
vímuefna-
i vama
LIONSKLÚBBURINN Eir af-
henti fíkefnadeild lögreglunnar
| fyrir skömmu ýmis tæki til
vímuefnavarna.
y, Lionskonur úr Eir hafa síð-
\ astliðin þrettán ár haft vímu-
í efnavarnir sem aðalverkefni og
' hafa á hverju ári selt bíómiða
í Háskólabíó og ágóðinn runnið
óskiptur til vímuefnavarna.
Ágóðinn hefur yfirleitt runnið
til forvarna og hafa Lionskonur
liaft samráð við fíkniefnadeild
lögreglunnar um kaup á þeim
i tækjabúnaði sem þörf er á. Li-
onsklúbburinn Eir er þakklátur
OLVMRtíS
Böðvar Bragason lögreglustjóri, Guðmundur Guðjónsson yfirlög-
regluþjónn og Einar Karl Kristjánsson veittu tækjunum viðtöku
frá Lionskonunum Rannveigu Ingvarsdóttur, Hrefnu Guðmunds-
dóttur, Steinunni Friðriksdóttur og Guðríði Hafsteinsdóttur.
öllum styrktaraðilum og ein- plóginn við fjáröflunina, segir í
staklingum sem lögðu hönd á fréttatilkynningu.
Ulfaldinn 9 7-
útihátíð SÁÁ
SÁÁ HELDUR útihátíð í Galtalækj-
arskógi helgina 18.-20. júlí næst-
komandi. Þetta er fjölskylduvæn
útihátíð sem kallast Ulfaldinn 97.
„SÁÁ fagnar 20 ára afmæli sínu
á þessu ári og er kjörið fyrir allt
SÁÁ-fólk að koma saman á einni
útihátíð í tilefni af því. Úlfaldinn
97 er haldinn á fallegum og
hentugum stað. Templarar hafa
byggt aðstöðuna í Galtalækjar-
skógi upp með miklum myndar-
brag og af skynsemi. Þarna geta
verið þúsundir manna en samt
hefur hver og einn það næði sem
hann vill.
Á Úlfaldanum 97 verður vegleg
dagskrá fyrir alla aldurshópa.
Svæðið verður opið mótsgestum
frá morgni föstudagsins 18. júlí.
Hátíðin verður sett kl. 22.30 og
kl. 23 hefst stórdansleikur með
einni vinsælustu danshljómsveit
landsins, Sniglabandinu," segir í
fréttatilkynningu frá SÁÁ.
„Veitingasala er á mótssvæðinu
og einnig er þar góð aðstaða til
að hafa skemmtanir og dansleiki
undir þaki (tjaldi) ef veðrið er með
einhverja óþekkt. Hægt er að kom-
ast í veiði í Tangavatni skammt
frá.
Úlfaldinn 97 er öllum opinn,
jafnt SÁÁ-félögum sem öðrum sem
vilja njóta útiveru og skemmta sér
í vímuefnalausu umhverfi.
Aðgangseyrir er 3.000 kr. en
ókeypis er fyrir börn 13 ára og
yngri í fylgd með foreldrum," segir
ennfremur.
R A Q A U G L V S I I IM B A R
ATVINIMU-
AUGLÝSINGAP
miðlun
Starfskraftur
í Ijósritun
Miðlun ehf. óskar eftir starfskrafti til framtíðar-
starfa við Ijósritun og frágang á fjölmiðlaefni.
Viðkomandi þarf að búa yfir góðri athyglis-
gáfu, hafa gott frumkvæði, geta starfað sjálf-
stætt og í samstarfi með öðrum. Æskilegur
aldur 18—30 ára. Miðlun ehf. býður upp á góða
starfsaðstöðu í nýju húsnæði, þarsem ríkir
góður starfsandi. Reyklaus vinnustaður.
Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl. fyrir fimmtu-
daginn 17. júlí, merktar: „E — 16715".
u
r
Óskum eftir að ráða
vanan og mjög góðan
sölumann
til að selja auglýsingar og þjónustu sem xnet
býður upp á. Góð laun í boði.
Áhugasamir vinsamlegast hafi samband við
Jens Ingólfsson í síma 562 9030.
Xnet rekur Internet kaffihús í Nóatúni 17, Tölvustúdíó,
Tölvuskóla, Hljóðstúdíó, Internetþjónustu, Útvarpsstöd, Dag-
blad á Internetinu og fleira.
Breskir skólastyrkir
British Chevening Scholarships Awards
Breska sendiráðið er að reyna að ná sambandi
við fyrrum skólastyrkþega, sem fengið haf
styrk sem nefndur er the Chevening Scholars-
hip Awards og var áður nefndur The Foreign
and Commonwealth Scholarships and Awards
Scheme. Fyrrum styrkþegar geta annað hvort
hringt í Janine Chadwick eða skrifað Breska
sendiráðinu til að gefa upp nafn og heimilis-
fang. Heimilisfang sendiráðsins er Laufásveg-
ur 31,101 Reykjavík, símar 550 5100/1/2.
TiLBOQ / UTBOÐ
TIL
S 0 L U «<
Tilboð óskast í eftirtalin lóð og mæliker sem verða
til sýnisfrá 14, —18. júlí nk. hjá Löggildingarstofu
Síðumúla 13, Reykjavík.
22 stk. rúllulóð
2 stk. rúllulóð
10 stk kubbar
2 stk. kubbar
40 stk. köntuð
4 stk. köntuð
1 stk. kantað
41 stk sívöl
4 stk kassar
2 stk. mæliker
1 stk. mæliker
1 stk. mæliker
1 stk. safnker
1 stk. mæliker
1 stk. lóðagrind
500 kg
250 kg
200 kg
100 kg
20 kg
10 kg
5 kg
20 kg
Ml
5 lítra
10 lítra
25 lítra
250 lítra
1000 lítra
fyrir 25 lóð
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Ríkiskaupa Borg-
artúni 7, Reykjavík, mánudaginn 21. júlí kl. 14.00.
Réttur er áskilinn til að hafna tilboðum sem ekki
teljast viðunandi.
’S’ RÍKISKAUP
Ú t b o & s k i I a árangril
BORGARTÚNI 7, 105 REYKJAVÍK SÍMI 552-6844,
B r é f a s ! m i 562-6739-Netfang: rikiskaup@rikiskaup.is
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Félagsfundur
Stjórn Orlofsdvalar h/f boðartil hluthafafundar
laugardaginn 26. júlí 1997 kl. 14.00.
Fundarstaður: Nesvík, Kjalarnesi.
Fundarefni: Kauptilboð í Nesvíkina.
Stjórn Orlofsdvalar hf.
TIL SOLU
Til sölu lóðir í Selásnum
Undirritaður hefurtil sölumeðferðar eftirtaldar
lóðir. Þeir, sem áhuga hafa á kaupum, sendi
skriflegt tilboð til undirritaðs fyrir 15. júlí 1997.
Skógarás 20, 836 m2 einbýli.
Skógarás 21, 702 m2 einbýli.
Skógarás 23, 677 m2 einbýli.
Ólafur Axelsson hrl.,
Höfðabakka 9,112 Reykjavík,
sími 587 1211, bréfsími 567 1270.
Lagerútsala
Erum að rýma lager af lítið útlitsgölluðum vör-
um. Barnavara, stór og smá; kerrur, rúm, mat-
arstólar o.fl.
Leikföng t.d. hjól, þríhjól og petalabílar.
Ársel ehf.,
Bíldshöfða 16, ekið inní portið,
opið lau 12/7 frákl. 10-14.
Andblær liðinna ára
JVttttk-ptústft
Antikhúsið,
Skólavörðustíg 21,
Sími 552 2419.
Full búð af antikhúsgögnum og gjafavörum.
Opið 12—18 virka daga, 12—16 laugardaga.
AT VIIMNUHU 5 iMÆQ I
Til sölu í Hreyfilshúsinu
Til sölu eru eftirtaldar eignir að Fellsmúla 24,
í Reykjavík.
Verslunarhúsnæði 917 fm. Góð aðkoma og
bílastæði.
Lager og iðnaðarrými 617 fm. Góðar innkeyrsl-
udyr.
Eignin er í leigu til septemberloka árið 2000.
Allar upplýsingar eru veittar á skrifstofu Hreyf-
ils. Símar 588 5523 og 588 5524.
SMAAUGLYSINGAR
FELAGSLIF
FERÐAFELAG
MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533
Veljið Ferðafélagsferðir:
Sunnudagur 13. júli:
Kl. 08.00 Þórsmörk, dagsferð
eða til lengri dvalar. Verð kr.
2.700. Minnum á miðvikudags-
ferðirnar í Þórsmörk.
Kl. 10.30 Reykjavegur 6.
ferð. Gengið frá Vatnsskarði að
Djúpavatni. Verð kr. 1.000.
Kl. 13.00 Hellaskoðun í Blá-
fjallahella. Fjölskylduferð.
Munið Ijós og húfu. Fjöl-
breyttar hellamyndanir. Verð
kr. 1.200, frítt f. börn m. full-
orðnum.
Brottför frá BSÍ, austanmegin,
og Mörkinni 6..
Gangið „Laugaveg" óbyggð-
anna með Ferðafélaginu.
Næstu ferðir 11., 15., 16.,
17., 18. og 22. júlí.
KRISTIÐ SAMFÉLAG
Dalvegi 24, Kópavogi
Almenn samkoma í dag ki. 14.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
TILKYNNINGAR
þjóðgarður
Dagskrá helgarinnar.
Laugardagur 12. júlí
Kl. 13.00 Lambhagi.
Róleg og auðveld náttúruskoð-
unarferð. Gengið verður með
vatnsbakka Þingvallavatns þar
sem gróðurfar og dýralíf verður
skoðað í „samhengi alls sem
er". Farið verður frá bílastæði
við Lambhaga og tekur ferðin
um 3 klst. Verið vel búin og hafið
með ykkur nestisbita.
Kl. 15.00 Leikið ■ Hvannagjá
Barnastund fyrir alla krakka.
Farið verður í létta leiki. Hist
verður á bílastæði við Hvannagjá
og gengið saman upp eftir. Barn-
astundin tekur um Vh klst. og
nauðsynlegt er að vera vel
búinn.
Sunnudagur 13. júlí
Kl. 13.00 Gjár og sprungur
Gengið um gjár og sprungur að
Öxarárfossi, til baka um Fögru-
brekku og fjallað um sögu lands
og lýðs á Þingvöllum. Nauðsyn-
legt er að vera vel skóaður.
Gangan hefst við Þjónustumið-
stöð og tekur 2'/2—3 klst.
Kl. 14.00 Guðsþjónusta
í Þingvallakirkju, prestur séra
Heimir Steinsson og organisti
Ingunn Hildur Hauksdóttir.
Kl. 15.00 Þinghelgarganga
Gengið verður frá útsýnisskíf-
unni á Haki um hinn forna þing-
stað undir leiðsögn landvarðar.