Morgunblaðið - 15.10.1997, Síða 32
M2 MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR/PRÓFKJÖR
R-listinn svíkur aldraða
I VALDATIÐ R-list-
ans í Reykjavík, sem
nú er vonandi brátt á
enda, hefur stöðnun og
dáðleysi einkennt
stjórnun hans. Fátt hef-
ur R-listinn gert vel á
þessu kjörtímabili en
valdið verulegum skaða
á ýmsum sviðum, skaða
sem ekki hefði orðið
hefði verið fylgt mark-
miðum sem Sjálfstæð-
isflokkurinn setti í
stjórnartíð sinni 1990
'*fil 1994. Einn þessara
málaflokka er málefni
aldraðra.
Uppbygging
sjálfstæðismanna
Miklar framkvæmdir áttu sér stað
í byggingu hjúkrunarheimila og
þjónustuíbúða fyrir aldraða í valdat-
íð Sjálfstæðisflokksins 1982 til
1994. Komið var upp neti þjón-
ustumiðstöðva um borgina. Byggð
voru hjúkrunarheimili til að mæta
þörfum sjúkra eldri borgara. Dæmi
um það eru hjúkrunarheimilin Skjól,
Eir og Seljahlíð, og einnig þjónustu-
íbúðir í Lindarbæ. Þannig tókst að
mæta mismunandi þörfum aldraðra,
'Nenda ekki vanþörf á, því um 150
manns biðu eftir hjúkrunarþjón-
ustu.
Þegar R-listinn tók við stjórnar-
taumum í Reykjavík 1994 höfðu
verið samþykktar áætlanir um bygg-
ingu hjúkrunarrýmis
fyrir 126 manns í Skóg-
arbæ í Suður-Mjódd.
Jafnframt var fyrirhug-
að að byggja hjúkrun-
aríbúðir í tengslum við
Eir. Með þeim fram-
kvæmdum hefði verið
séð fyrir endann á
vandræðum aldraðra í
bili. R-listinn kastaði
þéssum áætlunum hins
vegar á glæ og hefur
aðeins nýlega tekið í
notkun hjúkrunarrými
fyrir þriðjung þeirra
sem til stóð að liðsinna.
Þannig voru aldraðir
sviknir um þjónustu
Það þarf að verða for-
gangsverkefni Sjálf-
stæðisflokksins, segir
Jóna Gróa Sigurðar-
dóttir, að undirbúa
byggingu nýs hjúkrun-
arheimilis fyrir aldraða.
sem R-listinn hafði lofað og um leið
var háum fjárhæðum kastað á glæ,
peningum sem varið hafði verið til
undirbúnings framkvæmdunum. Eg
hygg að aldraðir og aðstandendur
þeirra gleymi ekki hvernig R-listinn
gekk þarna þvert á loforð sín.
Réttum hlut aldraðra
Á næsta kjörtímabili verður það
meðal fyrstu verka Sjálfstæðis-
flokksins að undirbúa byggingu nýs
hjúkrunarheimilis en 220 aldraðir
sjúklingar eru nú í bráðaforgangi.
En það er víðar sem skórinn krepp-
ir í málefnum aldraðra. Bæta þarf
verulega skipulag heimaþjón-
ustunnar, lækka þarf gjöld vegna
tómstundastarfs sem fjölmargir
aldraðir hafa ekki lengur efni á að
taka þátt í og stríðir gjaldtakan þar
gegn tilgangi þjónustunnar, að
rjúfa einangrun aldraðra. Sama er
að segja um ýmsa aðra gjaldtöku
R-listans, svo sem hið illræmda
holræsagjald, sem kemur öldruðum
sérlega illa og sjálfstæðismenn
munu fella niður.
Það er af mörgu að taka þegar
aldraðir eiga í hiut. Upp úr stendur
þó að aldraðir bera nú skarðan hlut
frá borði, hvert sem litið er. Má þar
nefna lækkun ellilífeyris sem hækk-
ar ekki í takt við laun, og ýmsa
jaðarskatta. Hvarvetna blasir
ósanngirni við. Gamalt fólk sem
skilað hefur ævistarfi sínu á bæði
siðferðislegan og lagalegan rétt til
sómasamlegs lífs. Hér er verk að
vinna. Annað sæmir okkur ekki.
Höfundur er borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Jóna Gróa
Sigurðardóttir
UNDAXFARIÐ hef-
' úr töluvert verið byggt
af dagheimilúm í
Reykjavík enda þörftn
og eftirspurnin fyrir
slíka aðstöðu toluverð.
Við gerum okkur öll
grein fyrir að töluvert
ijármagn fer í að byggja
slík heimili. Það er aftur
á móti hitt sem ég er
ekki viss um að allir
geri sér grein fyrir er
hve rekstrarkostnaður
slíkra heimila er hár.
Byggingin sjálf er bara
byggð einu sinni en
rekstrarkostnaðurinn
fylgir skattgreiðendum
»um ókomin ár. Þetta þýðir í raun að
þegar ákvörðun er tekin um bygg-
ingu dagvistarheimila eða annarra
bygginga í opinberri eigu er verið
að ráðstafa fé borgaranna langt fram
í tímann.
Ekki er nóg að byggja falleg dag-
heimili sem eru góðum tækjum búin.
Það þarf einnig að gera
ráð fyrir góðu starfs-
fólki til að sinna börnun-
um. Starfsfólkið þarf að
vera ánægt í vinnu svo
það geti gefið eitthvað
af sér til barnanna.
Börnin eru það glögg
að þau skynja óánægju
og spennu fullorðna
fólksins. Hvaða foreldri
vildi hafa börnin sín í
fallegu húsi þar sem
óánægðir kennarar
væru sífellt kvartandi
undan eigin bágindum?
Nýlega hótuðu leik-
skólakennarar verkfalli
ef þeim yrðu ekki boðin
sómasamleg laun og slík barátta
kemur örugglega niður á einhveiju
einhvers staðar. En til þess að starfs-
fólkið sé ánægt í starfi þurfa að vera
í boði viðunandi laun. Helst viljum
við að börnin okkar séu í vörslu fag-
fólks en fáir eru tilbúnir að sér-
mennta sig í grein sem gefur lágar
Ekki er nóg að byggja
falleg dagheimili sem
eru góðum tækjum
búin, segir Anna F.
Gunnarsdóttir. Það
þarf einnig að gera ráð
fyrir góðu starfsfólki til
að sinna börnunum.
tekjur. Hugsanlega er því skynsam-
legra að fara hægar í sakirnar með
byggingu nýrra dagvistarheimila en
í staðinn hlúa að og efla betur þá
staði sem fyrir eru, m.a. með greiðslu
hærri launa. En til þess að hægt sé
að uppfylla brýnustu þörfina í dag
fyrir dagvistarpláss má í staðinn efla
og styðja við dagmæður á einn eða
annan hátt og þannig nýta betur hús
okkar borgaranna sem standa annars
mannlaus flesta virka daga.
Höfundur starfar sem „Anna og
útlitið“ og er formaður Félags
sjálfstæðismanna í Grafarvogi.
Dagvistarmál
Anna F.
Gunnarsdóttir
V
Kork>oPlast
/ 20 gerðum
Kork O Floor
er ekkert annað en
hið viðurkennda
Kork O Plast, limt f
þéttpressaðar
viðartrefjaplötur,
kantar með nót og gróp.
UNDIRLAGSKOfíK i ÞfíEMUR ÞYKKTUM.
VEGGTÖFLUKORKPLÖTURIÞREMUR ÞYKKTUM.
KORK-PARKETT, VENJULEGTITVEIMUR ÞYKKTUM.
KORK-gólffllsar
með vinyl-plast áferð
Kork.o-Plast:
ÞP
&co
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
ARMULA 29 • PÓSTHOIF 8360 • 128 REYKJAVÍK
S'.Mi 553 3640 568 6100
*
Fjölbreytt æskulýðsstarf byggt
á traustum grunni kristinnar trúar
www.kirkjan.is/KFUM
Olaf í 4. sætið!
AÐ GEFNU tilefni
og vegna mikilla und-
irtekta við greinar
mínar í Morgunblað-
inu í janúar og febrúar
’97 (fólk hafði oft
samband) um málefni
aldraðra og öryrkja
þar sem ég hvatti til
róttækra aðgerða í
okkar málum en ég sé
nú að það er borin von
vegna samstöðuleysis
og roluskapar.
í ijósi þess sé ég
þann kost vænstan og
okkur til góðs að
Ólafur er duglegur
drengskaparmaður,
segir Skúli Einarsson,
og hann styður aldraða
og öryrkja.
tryggja Ólaf F.
Magnússyni lækni 4.
sætið í komandi
kosningum. Þarna er
á ferð mikill og dug-
legur drengskap-
armaður sem hann á
kyn til. Allir sem
einn; Ólaf í 4."sætið
því hann hefur
reynsluna eftir að
hafa setið sem vara-
maður undanfarið
og kynnt sér máiin
rækilega og veit
hvar skórinn kreppir
að.
Komið á Lækjar-
torg, alltaf heitt á könnunni og
ræðið málin milii kl. 14 og 22
daglega (strætisvagnahúsið).
P.S. Vert er að veita athygli
ungri áhugasamri konu - Halldóru
Steingrímsdóttur - hún þorir og
vill - X við hana.
Höfundur er eldri borgari.
Skúli Einarsson
Borgarsljórn
óskast
ÞEGAR kjörnefnd
fór þess á leit við mig
að ég tæki þátt í próf-
kjöri sjálfstæðismanna
í Reykjavík, fannst mér
nánast ómögule_gt að
skorast undan. Astæð-
urnar fyrir því eru
nokkrar, en helsta má
telja þá, að ég er sjáif-
stæðismaður af sann-
færingu og hugsjón og
hef einfaidlega þá
skoðun að áherslur og
grundvallarsjónarmið
sj álfstæðisstefnunn ar
séu haldbetri en henti-
stefnustjórn vinstri
manna. Ég hef einnig
bjargfasta trú á að stjórn, sem legg-
ur áherslu á að gefa einstaklingum
svigrúm og tækifæri til að vinna
sínum málefnum vel, skili mestu.
Breiður framboðslisti
höfðar til breiðs hóps,
segir Svanhildur Hólm
Valsdóttir, og skilar
okkur borginni aftur.
Stjórn R-listans hefur einkennst
af flest.u öðru en framangreindu,
nefnilega skattpíningu og hroka
gagnvart borgarbúum. Lítið hefut'
orðið úr efndum á fögrum kosninga-
loforðum, engar umbyltingar hafa
orðið í dagvistunarmálum eða mál-
efnum aldraðra, að ekki sé talað
um íj'ármál borgarinnar. Þrátt fyrit’
góðæri á kjörtímabilinu og verulega
aukningu skatta hefur R-listanum
tekist að auka skuldir borgarinnar
um þtjá milljarða, sem ekki er í
anda loforðsins sem
gefið var fyrir rúmum
þremur árum. Og
hvetjum eru þessar
ófarir svo að kenna?
Ekki R-listanum, segit'
borgarstjóri, lengi vel
var þetta sök fyrrver-
andi borgarstjórnar, en
upp á síðkastið hefur
skuldinni verið skellt á
opinber stjórnvöld. Það
er merkilegt, hvað .lítil
ábyrgð virðist fylgja
borgarstjórastarfinu í
seinni tíð. R-listinn
hefur heldur ekki nýtt
sér það tækifæri sem
gefist hefur til að hlúa
að grunnskólanum eftir að hann
færðist yfir til sveitarfélaganna.
Kennarar og fleiri bundu miklar
vonit' við flutninginn, sem brugðist
hafa svo um munar, enda verkfall
yfirvofandi. Það er af nógu af taka
þegar „afrekalisti" R-listans er
skoðaður. Reyndar virðist eina
raunverulega afrek hans vera að
hafa lifað sameinaður jafnlengi og
raun ber vitni, en þá málamiðlun-
ai'óstjórn hafa borgarbúar þurft að
greiða dýru verði. I vor gefst færi
á að snúa vörn í sókn og vinna
borgina á ný. Til þess að það niegi
verða, þurfa sem flestir kjósenda
að finna að þeir eigi sér málsvara
á lista Sjálfstæðisflokksins, þar með
talið ungt fólk. Þess vegna er mikil-
vægt að þar verði að finna einstakl-
inga með svipaðan bakgrunn, sem
lifa og hrærast í svipuðu umhverfi
og hafa svipaðar hugmyndir og
þeir sjálfir. Breiður listi höfðar til
breiðs hóps, og það skilar okkur
borginni aftur.
Höfundur er 23 ára háskólanenii.
Svanhildur Hólm
Valsdóttir
Reynsla o g þekk-
ing í fyrirrúmi
VERKEFNI munu í
auknum mæli færast frá
ríki til sveitarfélaga í
framtíðinni. Því skiptir
hugmyndafræði stjórn-
málanna æ meira máli
í sveitarstjórnarpólitík-
inni. Hvaða verkefni
eiga að vera á höndum
hins opinbera og hver
ekki? Eru tilteknir
skattar og álögur rétt-
lætanlegar? Hvernig er
hægt að tryggja velferð
heildarinnar án þess að
ganga á rétt einstakl-
ingsins? Þetta eru meðal
þeirra spurninga sem
kjörnir fulltrúar fólksins verða að
geta svarað. Það skiptir þvi máli að
við veljum til forystu fólk sem hefur
Kjartan Magnússon
hefur mikla reynslu og
þekkingu á málefnum
Reykj avíkurborgar,
segir Elsa B. Valsdótt-
ir, og á hugmyndafræði
Sj álf stæðisflokksins.
mikla reynslu af og þekkingu á bæði
málefnum Reykjavíkurborgar og
hugmyndafræði Sjálfstæðisflokksins.
Kjartan Miagússon
er góður kostur
Kjartan Magnússon er ungur
maður sem uppfyllir bæði þessi skil-
yrði. Hann hefur starfað með Sjálf-
stæðisflokknum um
árabil og hefur á yfir-
standandi kjörtímabili
verið varamaður sjálf-
stæðismanna í borgat'-
stjórn. Við sem þekkj-
um Kjartan úr Heim-
dalli og höfum starfað
bæði með honum og
undir hans stjórn þegar
hann var formaður fé-
lagsins fögnuðum því
fyrir íjórum árum þeg-
at’ honum var boðið að
taka sæti á framboðs-
lista flokksins. Við viss-
um sem var að þar hefði
borgarstjórnarflokkur-
inn fengið ómetanlegan liðsmann.
Hann hefur líka sýnt sig traustsins
verðan í verki. Kjartan situr í stjórn
Strætisvagna Reykjavíkur, í heil-
brigðisnefnd og húsnæðisnefnd og
hann et' eini karlmaðurinn sem á
sæti í jafnréttisnefnd Reykjavíkur.
Lýðræðið í verki
Það voru ungir sjálfstæðismenn í
Reykjavik sem hvað ákafast hvöttu
tii þess að Sjálfstæðisflokkurinn
veldi framboðslista sinn fyrir kom-
andi borgarstjórnarkosningar með
prófkjöri. Við teljum það lýðræðis-
legustu leiðina til að velja á fram-
boðslista. Ég hvet alla sjálfstæðis-
menn sem rétt hafa til að kjósa í
þessu prófkjöri til að gera það og
sýna þannig í verki hvernig Sjálf-
stæðisflokkurinn, stærsti stjórn-
málaflokkur landsins, treystir sínu
fólki tii að móta stefnu og ásýnd
flokksins.
Höfundur er læknir og fyrrum
formaður Heimdallar.
Elsa B. Valsdóttir