Morgunblaðið - 15.10.1997, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
MIIMNIIMGAR
MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1997 3*^
GUÐMUNDUR FREYR
HALLDÓRSSON
+ Guðmundur Freyr
Halldórsson fædd-
ist í Reykjavík 11. júní
1941. Hann lést 1.
október síðastliðinn og
fór útför hans fram frá
Vídalínskirkju í
Garðabæ 9. október.
Guðmundur Freyr Hali-
dórsson er látinn, langt
um aldur fram. Það er ein-
kennilegt að hugsa til þess
að þessi jákvæði lífsglaði
maður sé horfínn af sjón-
arsviðinu. Guðmundur var
þekktur glímumaður og
kynni okkar voru einkum bundin
þeirri íþrótt. Guðmundur Freyr var
keppnismaður og þjálfari glímufé-
lagsins Ármanns um árabil og þar
naut ég handleiðslu hans um tíma
fyrir aldarfjórðungi. I minningunni
er það skemmtijegur tími þegar ég
æfði glímu hjá Ármanni og þar eiga
glaðværð og góð tilsögn Guðmundar
Freys stóran hlut.
Hann var keppnismaður um ára-
bil, sjö sinnum Islandsmeistari og
handhafi Ármannsskjaldarins árið
1977 auk margra annarra titla. Þó
er meira um vert hve Guðmundur
Freyr glímdi áberandi vel. Hann var
ávallt til fyrirmyndar, glímdi drengi-
lega og af þeim vaskleika og fjöri
sem einkenndi alla hans framgöngu.
Guðmundur Freyr sinnti dómgæslu
og fleiri störfum á glímumótum og
var jafnan boðinn og búinn til aðstoð-
ar þegar eftir var leitað. Guðmundur
Freyr starfaði lengi sem sendibíl-
stjóri og þegar mótshaldarar þurftu
á flutningum að halda, flytja dýnur
og því um líkt, kom ekki annar til
greina en Guðmundur Freyr því öll
hans orð stóðu sem stafur á bók og
gott á hann að treysta. Þá er ótalið
að hann var einn af bestu glímusýn-
ingarmönnum landsins og olli því lip-
urð hans og fimleikur og hans mikla
glaðværa útgeislun sem hreif bæði
áhorfendur og félaga hans með sér.
Hann var jafnan tilbúinn að bregða
á leik, sér og öðrum til skemmtunar.
Glímusýningar hans hérlendis og er-
lendis eru óteljandi og hinn síungi
Guðmundur Freyr var með í leiknum
ævilangt. Ungur fór hann í sýningar-
ferð til Frakklands árið 1958 og 30
árum síðar lauk hann sýningarferli
sínum á sömu slóðum í sýningarferð
á vegum Glímusambandsins.
Stjómarmenn þar voru sammála um
að ekki væri völ á betri fulltrúa til
að kynna þjóðaríþrótt okkar þótt
hann væri þá kominn hátt á fimm-
tugsaldur. Allt fram að því höfðu
sýningarferðir erlendis verið fjöl-
mennar en nú var ákveðið að senda
aðeins tvo af okkar bestu mönnum
og var Guðmundur Freyr sjálfkjörinn
í ferðina.
Guðmundur Freyr háði harða
glímu við dauðann undir það síðasta.
Þeirri glímu hljóta allir að tapa en
hann varðist vel og hélt reisn sinni
til hinstu stundar. Fyrir hönd Glímu-
sambands íslands vil ég flytja kveðj-
ur og þakkir fyrir framlag Guðmund-
ar Freys Halldórssonar til glímunnar
sem hann auðgaði margvíslega og
var okkur hinum til fyrirmyndar. Við
félagar hans af glímuvellinum hörm-
um góðan dreng en hans er gott að
minnast. Aðstandendum hans og
ástvinum er vottuð innileg samúð.
Fyrir hönd Glímusambands ís-
lands,
Jón M. ívarsson.
Þú skalt vera stjama mín Drottinn
yfír dimm höf
yfir djúpa dali
og eyðimerkur
ég geng í geisla þínum
og eitt sinn mun geisli þinn verða að gull-
stiga
þar sem ég geng upp fagnandi skrefum
(Ragnhildur Ófeigsdóttir.)
Kæri afí, nú er geislinn, sem Guð
gaf þér orðinn að gullstiga. Og þú
hefur glaður gengið
hann upp til himna-
ríkis því þú varst
orðinn svo mikið
veikur.
Þegar við hitt-
umst voru þín fyrstu
orð alltaf „Hvað seg-
ið þið elskurnar mín-
ar?“ í kjölfar þeirra
kom svo innilegt
faðmlag eða hálofta-
buna. Því þú varst
svo hraustur og
sterkur, að þig mun-
aði nú ekki um að
lyfta upp svona fisi,
öðru eins og þyngra lyftir þú upp
í vinnunni þinni. Það kom fyrir að
fólk héldi að þú værir bróðir hans
pabba, þá varstu nú rogginn með
þig, fórst í Pollýönnuleik og sagðir
„Það er ekki af því að þú virkir
eldri en þú ert, Hlynur minn, það
er bara ég sem er svo unglegur!"
Við förum ekki oftar á jólaböll með
þér, kæri afí. En eftir stendur minn-
ingin um þig, jákvæðan og léttan
í fasi og lund, sannan íþróttamann.
Hún er falleg og hana munum við
varðveita. Guð geymi þig.
Þín
Helga Ósk, Henrik og
Heiðdís Hlynsbörn.
• Fleiri minningargreinar um
Guðmund Frey Halldórsson bíða
birtingar ogmunu birtast í blað-
inu næstu daga.
Föðurbróðir minn,
AÐALSTEINN JÓNSSON
húsasmíðameistari
frá Vestra-Skagnesi
í Mýrdal,
lést þriðjudaginn 14. þessa mánaðar.
Fyrir hönd vandamanna,
Guðný Sigurgísladóttir.
Bróðir okkar,
ÞORSTEINN JÓNSSON,
Hátúni 6,
sem andaðist sunnudaginn 12. október sl.,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstu-
daginn 17. október kl. 10.30.
Sveinn Jónsson,
Margrét Hansen.
+
GUNNLAUGUR STEFÁNSSON,
fyrrv. fulltrúi
frá Ærlækjarseli,
Öxarfirði,
Dalbraut 20, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 16. október kl. 13.30.
Vandamenn.
+
Ástkær frænka okkar,
ÞÓRDÍS DANfELSDÓTTIR,
Hrannarstíg 3,
lést á Droplaugarstöðum að morgni þriðju-
dagsins 14. október.
Gunnar Richter
og aðrir aðstandendur.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
KLARA TRYGGVADÓTTIR,
áður búsett
f Vestmannaeyjum,
verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju í Hafnar-
firði fimmtudaginn 16. október kl. 13.30.
Tryggvi Sigurðsson, Sigríður Ólafsdóttir,
Arndís Birna Sigurðardóttir,
Garðar Sigurðsson, Bergþóra Óskarsdóttir,
Óskar Hallgrímsson, Kolbrún Óskarsdóttir,
Hallgrímur Hallgrímsson, Steinunn Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
FRÍMANN KRISTINN SIGMUNDSSON,
Grenibyggð 11,
Mosfellsbæ,
verður jarðsunginn frá Lágafellskirkju fimmtu-
daginn 16. október kl. 14.00.
Herdís Ragna Þorgeirsdóttir,
Helena Kristinsdóttir, Bjarni Tryggvason,
Alda Kristinsdóttir, Sigurður Helgi Hansson,
Arnór og Brynja Dís.
+
BENÓNÝ MAGNÚSSON
húsgagnasmíðameistari,
Mýrargötu 28,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík föstudaginn 17. október kl. 13.30.
Ragnheiður Guðmundsdóttir,
Sveinn Benónýsson, Svava Lilja Magnúsdóttir,
Ragnheiður Sveinsdóttir,
Hrönn Sveinsdóttir.
+
Útför
TORFHILDAR ÞORKELSDÓTTUR,
áður til heimilis
á Grettisgötu 57B,
verður gerð frá Fossvogskapellu föstudaginn 17. október kl. 10.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Sigurður Kristjánsson.
+
Þökkum auðsýnda samúð við andlát systur
okkar og fóstursystur,
HELGU INGIBJARGAR HELGADÓTTUR,
Fossheiði 48,
Selfossi,
Gylfi Pálsson, Sverrir Pálsson,
Móeiður Helgadóttir, Oddur Helgason
og fjölskyldur.
öllum sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför,
STEINUNNAR GÍSLADÓTTUR,
Garðsá,
sendum við okkar innilegustu þakkir og kveðjur.
Guð blessi ykkur öll.
Óttar Björnsson og börn,
Pálmi Gíslason og fjölskylda.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og
útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar
og bróður,
ÓLAFS JÓHANNSJÓNSSONAR,
Uppsalavegi 19,
Húsavik.
Kristjana Sólveig Sævarsdóttir,
Arnar Már Ólafsson,
Sævar Guðmundur Ólafsson,
Gunnar Jón Ólafsson
og systkini hins látna.
Lokað
"V.
Lokað verður í dag, miðvikudaginn 15. október, frá hádegi vegna
útfarar EBENEZERS Þ. ÁSGEIRSSONAR forstjóra.
Ferðaskrifstofa Atlantik hf., Kringlunni 4,
BÓB endurskoðun hf., Kringlunni 4.