Morgunblaðið - 15.10.1997, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1997 39
Meimtun virðist hafa
bein áhrif á lífslíkur fólks
Á RÁÐSTEFNU læknadeildar,
sem haldin var í vor, kynntu
læknanemar rannsóknarverkefni
sem þeir höfðu unnið undir leið-
sögn kennara. Rannsóknarverk-
efni Maríönnu var „Áhrif mennt-
unar á dánartíðni af völdum krans-
æðasjúkdóma" og vann hún það
undir leiðsögn Þórðar Harðarsonar
prófessors. Verkefnið er hluti af
stórri hóprannsókn Hjartaverndar
sem hefur staðið yfir síðan 1967,
þar sem kannaðir eru orsakaþættir
hjarta- og æðasjúkdóma. Rann-
sóknin er mjög víðtæk og ein
umfangsmesta rannsókn sinnar
tegundar í heiminum að sögn Þórð-
ar Harðarsonar. Þátttakendur í
okkar þætti rannsóknarinnar eru
um 19 þúsund, af báðum kynjum,
fæddir á árunum 1907-1935. Við
upphaf rannsóknarinnar var kann-
að vægi áhættuþátta eins og kól-
esteróls, blóðþrýstings, blóðsykurs
og reykinga, ennfremur heilsufar
og félagslegir þættir eins og
menntun.
Menntun og
kransæðasj úkdómar
Maríanna rannsakaði sérstak-
lega áhrif menntunar. „Við vorum
að kanna,“ sagði hún, „hvort
tengsl væru á miili menntunar og
dánartíðni hér á landi, hvort
menntunin hefði einhver áhrif á
dánartíðnina eða hvort eitthvað
annað hefði þar áhrif á. Þó að
tengsl þjóðfélagsstöðu við sjúk-
dóma og dánartíðni hafi lengi ver-
ið þekkt, hafa tengsl þjóðfélags-
stöðu og menntunar við hjarta- og
æðasjúkdóma ekki verið rannsök-
uð hér á landi fyrr en nú. Á árum
áður voru hjarta- og æðasjúkdóm-
ar mun algengari hjá hinum betur
stæðu í þjóðfélaginu en nú hafa
rannsóknir leitt í ljós að þessir
sjúkdómar eru orðnir algengari hjá
þeim sem verr eru settir. „Menntun
einstaklinganna virðist skipta þar
miklu máli,“ sagði hún.
Maríanna sagði að tölfræðin
væri notuð í rannsókninni, m.a. til
að leiðrétta fyrir áhættuþáttum
sem taldir eru eiga mikinn þátt í
þróun kransæðasjúkdóma, síðan
er reynt að meta áhrif menntunar
þegar tekið hefur verið mið af
áhættuþáttunum. Þátttakendum
var skipt niður í fjóra hópa eftir
menntun: 1) þá sem höfðu háskóla-
menntun eða sambærilega mennt-
un, 2) stúdentsmenntun eða sam-
bærilega, 3) gagnfræðamenntun
eða sambærilega og 4) barnaskóla-
menntun eða minni. Niðurstöður
leiddu í ljós að dánartíðni var 30%
hærri hjá körlum í hópi 4 en í
hópum 2 og 3 samanlögðum, en
dánartíðnin var rúmlega tvöföld
hjá konum. Þegar kannaðar voru
aðrar dánarorsakir reyndust þær
vera 25% hærri hjá körlum í hópi
4 en hópi 1-2 samanlögðum ogum
50% hærri hjá konum.
Fjárhagur áhrifaþáttur
Maríanna og Þórður voru
spurð hvaða skýringar þau teldu
vera á tíðari dauðsföllum hjá þeim
sem höfðu litla menntun en þeim
sem höfðu meiri menntun.
Maríanna sagðist velta fyrir
sér hvort mismunur geti legið í
aðgengi að heilbrigðisþjónustu.
Kanna þurfi hversvegna, hvenær
og hvernig fólk leitar eftir læknis-
þjónustu og hvernig það nýtir sér
þjónustuna og hvort munur er á
þessum þáttum hér á landi og
annars staðar. Hér á landi hefur
verið álitið, að munur á milli þjóð-
félagsstétta sé lítill eða enginn, en
í ljós hefur komið að fjárhagur
virðist hafa áhrif á hvernig fólk
hugsar um heilsu sína. Oft er talað
um að þeir sem hafi meiri menntun
séu sér betur meðvitandi um
áhættuþætti kransæðasjúkdóma
og leiti því fyrr eftir læknisþjón-
ustu ef eitthvað er að.
„í rannsókn sem Kristján Guð-
mundsson læknanemi stóð fyrir,
Kransæðasjúkdómar
eru lang-algengasta or-
sök dauðsfalla hér á
landi. Rannsóknir
benda til að menntun
dragi úr áhættu á
kransæðasjúkdómum.
Maríanna Garðarsdótt-
ir læknanemi kynnti
þessar niðurstöður á
ráðstefnu í Svíþjóð í
sumar. Margrét Þor-
valdsdóttir ræddi við
Maríönnu og Þórð
Harðarson prófessor
um rannsóknina og
áhrif menntunar á
kransæðasjúkdóma.
hverfis og líðan fólks. Þórður sagði
að í nýlegum rannsóknum hefði
komið fram, að þeir einstaklingar
sem eru lægra settir á vinnustað,
eru i starfi sem þeir eru óánægður
með og þurfa að taka við skipunum
frá öðrum virðast búa við meiri
streitu en hinir sem hafa meiri
menntun og eru ánægðir í starfi
sem þeir hafa áhuga á. í sömu
rannsókn var borin saman æða-
kölkun í hálsæðum, þar kom fram
að hjá þeim, sem þurfa að taka
við skipunum í mjög ríkum mæli
og fá litla fjárhagslega umbun fyr-
ir, verður æðakölkunin hraðari en
hjá öðrum.
Þjóðfélagslegt misrétti og
dánarlíkur
Maríanna sagði að í Bretlandi
væri nú mjög til umræðu munur
á sjúkleika pg dánarhorfum eftir
lífskjörum. Á síðustu 10-15 árum
hefði þessi munur á milli ríkra og
fátækra farið vaxandi í Bretlandi
og hefur hann verið gagnrýndur
og talinn vera merki um vaxandi
misrétti þar í landi.
- Er ekki sama staða komin upp
hér í okkar þjóðfélagi?
„Eg geri ekki ráð fyrir að Mar-
íanna sé tilbúin að segja að það
ÞÓRÐUR Harðarson og Marianna Garðarsdóttir.
var sýnt fram á að áhættuþættir
kransæðasjúkdóma fara mjög eftir
menntun," sagði Þórður, „þeir sem
höfðu minni menntun virtust vera
líklegri til þess að reykja, hafa
hátt kólesteról I blóði og hærri
blóðþrýsting en hinir. Þær niður-
stöður komu á vissan hátt á óvart
en svipuð staða er þekkt í öðrum
löndum. Okkar spurning var því
sú, hvort hægt væri að finna sama
mun hér eftir menntun og hvort
hægt væri að skýra hann út frá
þekktum áhættuþáttum, eða hvort
menntunin standi eftir þegar búið
er að leiðrétta fyrir áhættuþáttun-
um. Við áttum von á því að mennt-
un hefði eitthvert vægi eftir leið-
réttinguna, en í Ijós kom að mennt-
un virðist hafa mikið vægi og vera
mjög ráðandi um dauðsföll, bæði
í heildar dánartíðni og dauðsföllum
af völdum kransæðasjúkdóma.
Sama kom í ljós þegar könnuð var
dánartíðni af völdum ýmissa
krabbameina. Dánartíðnin fór tals-
vert eftir menntun, jafnvel þó að
dreginn væri frá þáttur reykinga.
Það er einhver þáttur tengdur
menntun sem hefur veruleg áhrif
á lífshorfur fólks. En við vitum
ekki hver þessi þáttur er.“
Mikilvægir áhættuþættir
- Hveijar gætu verið helstu or-
sakir? - streita?
„Samband kransæðasjúkdóma og
streitu hefur ekki verið vel stað-
fest með rannsóknum né samband
streitu og menntunar, þó að mann
gruni að samband sé fyrir hendi
hefur það ekki verið vel staðfest,“
sagði Þórður.
Ýmsar rannsóknir hafa þó verið
gerðar til að kanna tengsl um-
sé þjóðfélagslegt misrétti sem valdi
þessum mismun hér, svaraði Þórð-
ur. En ég heid að það sé augljóst
mál að þetta gefur tilefni til frek-
ari skoðunar."
Maríanna og Þórður segja að
hér sé verkefni sem heilbrigðisyfir-
völd hljóti að verða taka á. Kanna
þurfi vel aðgengi fólks að heil-
brigðisþjónustunni og vaxandi
greiðsluþátttöku sjúklinga fyrir
læknisþjónustu sem veitt er utan
sjúkrahúsanna. Þó að ekki sé um
háar upphæðir að ræða kveinka
sér margir, sem hafa minna handa
á milli, undan greiðslum fyrir þjón-
ustu sérfræðinga í læknastétt. Á
það einnig við í almennri heilsu-
gæslu, borið hefur á því að fólk
fresti að kaupa nauðsynleg lyf eins
og sýklalyf sem greiða þarf fyrir
fullt verð, vegna kostnaðarins.
„Hér hefur ekki verið talið að að-
gengi að læknisþjónustunni sé orð-
ið stéttbundið en það er kannske
meira en menn grunar".
Víðtækari rannsóknir
nauðsynlegar
Þau benda einnig á að hér sé
verkefni fyrir heilbrigðisstéttirnar,
þær þurfi að kanna hver sé hin
raunverulega ástæða fyrir aukinni
dánartíðni, hvort tekjur hafi áhrif
á aðgengi að læknaþjónustu eða
hvort skortur sé á upplýsingum
um heilbrigðismál til þjóðarinnar,
eða hvort eitthvert annað leynt
misrétti sé til staðar. „Það er
óvænt og áhugavert, segja þau,
„að þjóðfélagsstaða skuli á íslandi
vera einhver sterkasti áhrifavaldur
lífs og heilsu.“
Höfundur er blaðamaður.
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Erlendur Jónsson
og Þórður Björnsson
unnu undankeppnina
DRÆM þátttaka, aðeins 67 pör,
var í undankeppni íslandsmótsins,
sem fram fór um helgina. Erlendur
Jónsson og Þórður Björnsson urðu
efstir með 3.035 stig en spilað var
í þremur lotum. Helmingur paranna
eða 33 pör spila í úrslitunum 1. og
2. nóvember nk.
Eftirtalin pör spila í úrslitunum.
Þau eru í þeirri röð, sem þau end-
uðu í undankeppninni:
Erlendur Jónsson - Þórður Bjömsson
Aðalsteinn Jörgensen - Matthías Þorvaldsson
Hermann Lárusson - Ólafur Lárusson
Jón Hilmarsson - Vignir Hauksson
Ásmundur Pálsson - Sigurður Sverrisson
Anton Haraldsson - Sigurbjörn Haraldsson
Björn Snorrason - Guðjón Einarsson
Jónas P. Erlingsson - Steinar Jónsson
Símon Símonarson - Sverrir F. Kristinsson
Magnús Eiður Magnússon - Þorlákur Jónsson
Helgi Grétar Helgas. - Kristján M; Gunnarss.
Dröfn Guðmundsdóttir - Ásgeir Ásbjömsson
Bragi Hauksson - Sigtryggur Sigurðsson
Kjartan Ásmundsson - Kjartan Aðalbjömsson
Steinberg Rík’arðsson - Sveinn R. Þorvaldsson
Páll Valdimarsson - Ragnar Magnússon
Friðjón Þórhallsson - Sigfús Örn Árnason
Brynjar Valdimarsson - Halldór M. Sverrisson
Anna ívarsdóttir - Guðrún Óskarsdóttir
Eiríkur Hjaltason - Jakob Kristinsson
Birkir Jónsson - Bogi Sigurbjömsson
Hjálmar S. Pálsson - Páll Þór Bergsson
Hrólfur Hjaltason - Oddur Hjaltason
Bemódus Kristinsson - Georg Sverrisson
Hróðmar Sigurbjömsson - Stefán Stefánsson
Helgi Sigurðsson - Sigurður B. Þorsteinsson
Hördís Siguijónsdóttir - Jacqui McGreal
Bjöm Friðriksson - Unnar Atli Guðmundsson
Aron Þorfinnsson - Snorri Karlsson
Guðmundur Halldórss. - Sveinn Aðalgeirss.
Hlynur Tr. Magnússon - Tryggvi Ingason
Hákon Sigmundsson - Kristján Þorsteinsson
Ármann Lárussoan - Jens Jensson
Auk þessara para spila Björn
Eysteinsson og Sverrir Ármanns-
son, en þeir eru núverandi íslands-
og Reykjavíkurmeistarar, Jón Viðar
Jónmundsson og Þórir Leifsson fyr-
ir Vesturland, Halldór Jónbjömsson
og Óskar Elíasson fyrir Vestfírði,
Jón Sigurbjörnsson og Ólafur Jóns-
son fyrir Norðurland vestra, Jónas
Róbertsson og Skúli Skúlason fyrir
Norðurland eystra, Guttormur og
Pálmi Kristmannssynir fyrir Aust-
urland og Ólafur Steinason og Rík-
harður Sverrisson fyrir Suðurland.
Reykjanesmeistararnir Svala Páls-
dóttir og Vignir Sigursveinsson
spila ekki í úrslitunum.
Ifyrstu varapör eru:
Guðjón Siguijónsson og Rúnar Einarsson
ísak Öm Sigurðsson og Jón Þorvarðarson
Pétur Steinþórsson og Úlfar Kristinsson.
Bridsfélag
Breiðfirðinga/Breiðholts
Fimmtudaginn 9. október var spil-
aður eins kvölds Howell-tvímenningur
með þátttöku 10 para og var spilað
um rauðvínsverðlaun. Keppnin var
jöfn og spennandi og skildu aðeins tvö
stig að fyrsta og annað sætið í lokin.
Soffía Daníelsdóttir og Jón Stefánsson
höfðu betur í baráttunni við Guðlaug
Sveinsson og Kristófer Magnússon.
Lokastaða efstu para:
Soffía Danielsdóttir - Jón Stefánsson 141
Guðlaugur Sveinsson - Kristófer Magnússon 139
Þórarinn Ólafsson - Jóhann Guðnason 125
Páll Þór Bergsson - Hjálmar S. Pálsson 120
Sigríður Pálsdóttir - Eyvindur V aldimarsson 114
Meðalskor 108.
Spilaðir verða eins kvölds tvímenn-
ingar alla fimmtudaga í októbermán-
uði og ávallt spilað um rauðvínsverð-
laun. Ef spilaformið er Howell, fær
efsta parið sitthvora rauðvínsflöskuna,
en ef spilaður er Mitchell fá bæði pör-
in í sitthvora áttina rauðvín.
Bridsdeild Barðstrendinga og
Bridsfélag kvenna
Staðan eftir 26 umf. í haustbaró-
meter er eftirfarandi:
Guðlaugur Sveinsson - Lárus
Hermannsson - Hermann Lárusson 240
Jón Steinar Ingólfsson - Jens Jensson 208
ÁmiMagnússon-EyjólfurMagnússon 166
Jón Stefánsson - Torfí Ásgeirsson 162
Vilhjálmur Sigurðss. - Steinberg Ríkharðss. 153
Hæsta skor síðasta spilakvöld:
Jón Steinar Ingólfsson - Jens Jensson 119
Hermann Lárusson - Guðlaugur Sveinsson 106
Bjöm Amórsson - Hannes Sigurðsson 94
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F9 E 17810158% s 9.0.
Helgafell 5997101519 VI 2 Frl.
I.O.O.F. 18 = 17810158 - II. 8V2*
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÓRKINNI6 - SlMI 568-2533
Miðvikudagur 15. okt. kl.
20.30: Myndakvöld í Mörk-
inni 6 — í eydibyggðum milli
Eyjafjarðar og Skjálfanda
Valgarður Egilsson fer með okk-
ur í myndum og frásögn í
skemmtilega og fróðlega göngu-
ferð um kjörlendi sitt, „Austur-
skagann", eins og honum einum
er lagið. Farið er um Látraströnd,
Keflavík, Fjörður, Flateyjardal, út
í Flatey og um Náttfaravíkur.
Ferðafélagið hefur á hverju
sumri, síðustu ár, efnt til mjög
vinsællar ferðar á þessar slóðir
undir fararstjórn Valgarðs'
Sýndar verða myndir úr ferðun-
um. Allir velkomnir á þetta fyrsta
myndakvöld vetrarins i samkomu-
salnum í Mörkinni 6, en mynda-
kvöldið hefst kl. 20.30. Verð 500 kr.
(kaffi og meðlæti innifalið).
Missið ekki af góðri og fróðlegri
kvöldstund.
Kvöldferð á fimmtudags-
kvöldið 16. október kl.
20.00. Létt ganga og tunglvaka
á fullu tungli. Brottför frá BSÍ,
austanmegin og Mörkinn 6.
Afmælisbókin, Konrad Maur-
er íslandsferð 1858, er komin
út. Til að flýta fyrir afgreiðslu
mega áskrifendur gjarnan vitja
bókarinnar á skrifstofunni. Hún
verður seld á skrifstofunni á
félagsverði kr. 4.900.
Ferðafélag fslands.
I.O.O.F. 7 B 17910158V2 = Fl.
□ GLITNIR 5997101519 III 1
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund f kvöld kl. 20.00
Orð Lífsins
Grensásvegi 8
s.568 2777 f.568 2775
Samkoma í kvöld kl. 20. Þú skalt
koma. Guð mætir þörfum þín-
um. Daglegar bænastundir.
Leggðu fram þitt bænarefni.
Allir hjartanlega velkomnir.
(® SAMBAND ÍSLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58.
Samkoma í kvöld kl. 20.30.
Ræðumaður er Friðrik Hilmars-
son.
Allir hjartanlega velkomnir.
REGLA MUSTERISRIDDARA
A RMHekla
/Mk 15-10-VS-FR
HEIMILISDÝR
Siðumúla 15; s. 588 5255
Ftá Hundaræktarfélagi íslands
Augnskoðun hunda verður í nóv-
ember. Tímapantanir á skrifstofu
félagsins í síma 588 5255, opið
14.00-18.00.