Morgunblaðið - 15.10.1997, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1997 43
BRÉF TIL BLAÐSINS
Þjóðkirkjan, sálarrann-
sóknir og framhaldslíf
Frá Selmu Júlíusdóttur:
ÞESSI spurning hljómar í huga
mér eftir að hafa hlustað á Dags-
ljósþáttinn 30. september síðastlið-
inn.
Mér þótti ekki vel takast til, því
þeir sem sátu þar í hásæti voru
menn, bæði frá sértrúarstöfnuði
sem vitað er að ekki hafði víðsýnan
hug til kristni og embættismaður
þjóðkirkjunnar sem auðheyranlega
var með sams konar víðsýni í
kristnum trúmálum.
Ég furða mig mjög á því að vel
menntað fólk sem lifir á tíma sem
er tæplega tvö þúsundum árum
eftir Kristsburð, skuli halda í bók-
staf biblíunnar og lifa eftir þeirri
kenningu sem þeir sjálfir ákvaða
túlkun á.
Nýja testamentið var skrifuð af
misvitrum mönnum löngu eftir að
Jesús Kristur var á meðal þeirra.
Fyrir mér er það mjög gott rit en
ekki heilagt. Aftur á móti eru mér
heilagar þær kenningar Krists að
kærleikur sé ofar öllu og að líkn
og virðing við samferðafólkið sé
öllum til tekna þegar þeir standa
frammi fyrir skapara sínum. Það
sem hefur haidið fyrst og fremst
trúnni á Jesús Krist lifandi og
tærri fram á þennan dag er kær-
leiksboðskapurinn og að hann lifði
af dauða sinn og birtist vinum sín-
um og samferðamönnum með lífs-
boðskap.
Ég tel mig kristna og ólst upp
við Guðsdýrkun. Móðurafi minn
var Guðjón Pálsson, vegaverkstjóri
og sálmaskáld. Hann var með
skyggnigáfu og af út rit sem heit-
ir „Ellefu synir“. Hann var í heima-
trúboðasöfnuði og hafnaði alfarið
spíritisma. Ég sé engan mun á
þessum sýnum hans og á þeim sem
ég hef upplifað. Ég hef aftur á
móti haft meiri tækifæri til að
læra um þessi mál því miklar rann-
sóknir hafa farið fram síðan. Ég
horfi því allt öðru vísi á sams kon-
ar atburði.
Móðuramma mín var einnig
skyggn og eru til, sem betur fer,
heimildarrit um nokkrar af hennar
dulsýnum. Móðurætt mín hefur í
miklum mæli það sem kallað er
sjötta skilningarvitið. Erum við þá
annars flokks kristið fólk? Ég segi
nei.
Fólk sem hefur af heiðarleika
opnað fyrir að reyna að skilja til-
gang lífs og dauða er flest kær-
leiksríkt fólk sem staðnar ekki í
tíma og rúmi en reynir að halda
áfram vitsmunaþróun sinni með
von í hjarta að jarðarheimur haldi
ekki áfram að krossfesta eða líf-
láta á annan hátt boðbera Guðs.
í þættinum 30. september kom
fram að enn eru til menn sem segj-
ast vera boðberar Krists en álíta
sjálfa sig vera þess umkomna að
segja aðra vera á villigötum, því
þeir einir geti túlkað orð Biblíunn-
ar.
Því miður var svona hugsunar-
háttur í hávegum hafður þegar
galdrabrennur viðgengust. Síðasta
brennan var þegar feðgar voru
brenndir á bálkesti. Það var vígður
prestlærður maður sem sá til þess
að þessi atburður átti sér stað.
Hann gaf þeim að sök að hafa
sent veikindi í sinn heilaga líkama.
Kærleiksleysið var svo mikið að
útihús föðurins voru rifin niður til
að hafa sem bálköst við þennan
glæpaverknað að fjölskyldu hans
ásjáandi. Valdsmenn fengu ná-
granna fólksins til að vinna þetta
voðaverk.
Sem betur fer eru ekki þeir tíma
í dag að þröngsýni Guðsmanna
geti framkallað svona glæpaverk
eða stöðvað okkar eigin leiðir á
lestri biblíunnar í leit okkar að
sannleika lífsins og þróunarsögu
þess.
Þeim er frjálst að sjálfsögðu að
túlka biblíuna eftir eigin höfði án
þess að nokkur stöðvi það, en þeir
hafa ekki leyfi til að stöðva aðra
í þeirra leit að kærleika og sann-
leika.
Það er sárt til þess að vita að
kristnir embættismenn þjóðkirkj-
unnar á íslandi lýsi yfir að þeir sem
aðhyllast sálarrannsóknir og spírit-
isma séu ekki taldir rétt kristið
fólk. Ef þetta er boðskapur þjóð-
kirkjunnar er ekki um annað að
ræða en að stjórnvöld geri sér grein
fyrir að milli 60 og 70% þjóðarinn-
ar tilheyra þessum hópi.
Ef þessi hópur segði skilið við
þjóðkirkjuna og vildi fá eigið fyrir-
komulag á að iðka sína trú án
höfnunar og lítillækkunar frá
þröngsýnum forráðamönnum er
auðsýnt að mikið skarð myndaðist.
Mér finnst líka sárt hve þessir
þröngsýnu embættismenn kirkj-
unnar kasta skugga á gáfaða fyrir-
rennara sína eins og t.d. Harald
NíelsSon prófessor.
Að mínu mati á kristin kirkja
að hlúa að kærleika, líkn og
menntaþróun. Það þarf að vinna
að því að innan hennar sé rými
fyrir allar fijálsbornar hugsanir en
þar á ekki að ríkja þröngsýni og
heimska.
Að lokum langar mig til að
gamni að geta þess að í kenningum
þróunarheimspeki er sagt að það
séu herskáar lítt þroskaðar sálir
sem aðhyllast trúarofstæki og
kreddur.
Ég vona að vel menntað, víðsýnt
og kærleiksríkt fólk komist til
valda innan alls stjórnkerfis lands-
ins og ekki síst innan þjóðkirkju
okkar.
í orði er hér trúarfrelsi en á
borði er boðskap Krists stýrt af
þjóðkirkju sem fær fé frá sköttum
okkar og má það ekki vera að þar
ráði menn sem dragi fólk í dilka
eftir eigin grunnhyggni. Þar á að
ríkja kærleikur og virðing fyrir
öllum.
Megi Guð okkar allra blessa
ykkur.
SELMA JÚLÍU SDÓTTIR,
Vesturbergi 73, Rvík.
Sekkja
trillur
Góð vara, -ótrúlegt verð
Aðeins kr. 7.617.- með vsk.
SUNDABORG 1. RVK • SlMI 568 3300 • FAX 568 3305
KRINGLUNNI S: 588 99W
RÆSTIVAGNAR
RÆSTIÁHÖLD
Fossháls 27, Draghálsmegin
Sími 567 7557 • Fax 567 7559
Húsbréf
Innlausnarverð
húsbréfa
Innlausnardagur 15. október 1997.
1. flokkur 1991: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.786.847 kr. 178.685 kr. 17.868 kr.
3. flokkur 1991: Nafnverð: 1.000.000 kr. 500.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.589.949 kr. 794.975 kr. 158.995 kr. 15.899 kr.
1. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 7.829.878 kr. 1.565.976 kr. 156.598 kr. 15.660 kr.
2. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 7.706.999 kr. 1.541.400 kr. 154.140 kr. 15.414 kr.
1. flokkur 1993: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 7.097.746 kr. 1.419.549 kr. 141.955 kr. 14.195 kr.
3. flokkur 1993: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 6.516.191 kr. 1.303.238 kr. 130.324 kr. 13.032 kr.
1. flokkur 1994: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 6.372.272 kr. 1.274.454 kr. 127.445 kr. 12.745 kr.
1. flokkur 1995: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 6.007.834 kr. 1.201.567 kr. 120.157 kr. 12.016 kr.
1. 2. og 3. flokkur 1996: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.128.806 kr. 112.881 kr. 11.288 kr.
Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka (slands
Suðurlandsbraut 24.
Upplýsingar um útdregin húsbréf
liggja frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins,
á Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
cS] HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
' HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SlMI 569 6900