Morgunblaðið - 15.10.1997, Síða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Drykkir í
barnaafmæli
Hver er besti drykkurínn? Kristín
Gestsdóttir er ekki í nokkrum vafa o g
svarar að bragði: VATN.
AF HVERJU drekka íslendingar
ekki meira vatn? Er það af því
að nóg er til af því á íslandi og
það er svo ódýrt. Kannski það séu
auglýsingar á öðrum drykkjum
sem taka hlutverkið, vatn og holl-
usta þess er lítið auglýst. Ég á
við vatn beint úr krananum en
ekki það vatn sem selt er kolsýrt
í flöskum. Ef ungbörn eru látin
fá vatn á pelann, vilja þau það
miklu frekar en ávaxtasafa og
börn sem venjast á að drekka
ískalt vatn með mat, vilja það
helst af öllu. Maturinn bragðast
miklu betur með vatni en gosi eða
ávaxtasafa. Svo eru það barnaaf-
mælin. Hér áður fyrr fengu börn-
in yfirleitt heitt súkkulaði eða
kakó og mætti vel endurvekja
þann sið. En svo kom gosið og
það tók hlutverkið og trónir enn
á toppnum. Hægt er að gera vatn-
ið girnilegt í augum barna með
því að setja klaka út í það eða
búa til fallega klakamola með
alls kyns ávöxtum og setja út í
vatn, kolsýrt vatn og einhvern
hollan ávaxta- eða beijasafa. Er
ekki meira nýnæmi í þeim en
gosinu sem er orðið hversdags-
legt? Margir eiga alls konar beij-
asaft, hana má líka kaupa og
setja má kolsýrt vatn í hana á
afmælum og hátíðum. Ávextina
þarf ekki endilega að frysta í
klakamola heldur má skera þá í
bita eða sneiðar og setja út í
drykkinn sem tekur sig auðvitað
best út í stórri, glærri skál.
Geysimargar tegundir ávaxta-
drykkja eru til, bæði framleiddir
hér á landi og innfluttir og lita-
dýrðin er mikil. Sumum þessara
drykkja má blanda saman og
breyta þannig bragði. Prófið ykk-
ur áfram. Hér koma nokkrar til-
lögur að drykkjum. Fyrstur er
uppáhaldsdrykkurinn minn, sem
ég nota alltaf á hátíðum og tylli-
dögum. Hann er að vísu ekki
„goslaus": í honum eru m.a. mýr-
arber (cranberries) sem ekki fást
alltaf en þau eru flutt inn fyrir
jólin og þau má frysta.
Klakamolar með ávöxtum
og berjum
Nota þarf box sem ætluð eru
fyrir klaka, raða beijum eða
ávaxtabitum í hólfin, hella vatni
yfir og frysta.
Uppáhaldsdrykkurinn minn
1 lítri eplasafi
1 lítri rifsbeijasaft
1 rautt epli
1 appelsína
'/■2 kanilstöng
12 mýrarber (cranberries)
'A dl vatn
1-2 lltrar 7-up eð annað litlaust
gos
klakamolar
1. Sjóðið mýrarberin og kanil-
stöngina í vatninu í 5 mínútur.
Hellið í skál og setjið epla- og
rifssaft út í.
2. Stingið kjarna úr eplinu,
afhýðið ekki. Skerið í litla bita,
afhýðið appelsínuna og skerið
hvert lauf í þrennt. Setjið með í
skálina. Látið standa í 3-4 klst.
3. Setjið klakamolana í plast-
poka og sláið á með kökukefli.
Setjið út í ásamt 7-up og berið
strax fram.
Hollustudrykkur
1 hálfdós ananas í bitum
2 lítrar appelsínusafi
1 lítri ananassafi
'/2 lítri mysa
1 flaska kolsýrt vatn
1 límóna (lime) í örþunnum sneið-
um
1. Skerið ananasbitana í tvennt
og setjið ásamt vatni í klakabox,
sjá hér að ofan. Setjið safann ár
dósinni ásamt appelsínusafa, an-
anassafa og mysu í skál.
2. Setjið klakamolana út I og
bætið kolsýrðu vatni og límónu-
sneiðum í.
Vínberjadrykkur með
ávöxtum
15 græn vínber
10 jarðarber
1-2 kívíaldin
3 lítrar vínbeijasafi
1 lítri eplasafi
1 flaska kolsýrt vatn
klakamolar
1. Skerið vínberin í tvennt
langsum og fjarlægið steina, tak-
ið lauf af jarðarbeijum og skerið
í sneiðar. Afhýðið kívíið, skerið í
sneiðar og sneiðarnar I fernt.
Setjið í skál.
2. Setjið allan safa og kolsýrt
vatn út I ásamt klakamolum og
berið strax fram. Ávextina má
frysta í klakamolum, sjá að fram-
an.
ÍDAG
SKAK
Umsjón Margcir
Pétursson
STAÐAN kom upp í
B-flokki á Haustmóti
Taflfélags Reykja-
víkur sem nú stendur
yfir. Jón H. Björns-
son var með hvítt og
átti leik, en Stefán
Kristjánsson hafði
svart.
20. Bxh6! - gxh6
21. Hxh6 - Hfe8
(21. - e5 22. Dg5
var einnig afar
slæmt) 22. Hxf6 -
Rxf6 23. Dxf6 -
Dd7 24. Hdl! - Kf8
25. Bc2 - Dxdl+ (Gefur
drottninguna, því annars
leikur hvítur Hhl og mát-
ar.) 26. Bxdl og svartur
gafst upp skömmu síðar.
Þeir Jón H. Bjömsson
og Jóhann H. Ragnarsson
eru efstir í B-flokknum með
6'/2 vinning af 8 möguleg-
um, en Davíð Kjartansson
og Halldór Garðarsson
koma næstir með 6 v.
Norræna VISA bikar-
mótið: Sjöunda umferð í
dag á Grand Hótel Reykja-
vík. Taflið hefst kl. 16.
Hlutaveltur
Morgunblaðið/knstján.
VINKONURNAR Telma Sif Sigmundsdóttir, Kristín
Nanna Ármannsdóttir og Sigrún Osk Jóhannsdóttir
héldu fyrir skömmu hlutaveltu á tveimur stöðum á
Akureyri, framan við húsnæði Pósts og síma í göngu-
götunni og í Sunnuhlíð. Alls söfnuðust rúmar 4.300
krónur sym þær stöllur létu renna til Rauða krossins.
Sigrún Osk er flutt til Reykjavíkur og gat því ekki
verið með vinkonum sínum á myndinni.
Með morgunkaffinu
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Góð mynd-
listarsýning
ÉG VAR svo heppinn að
komast á myndlistarsýn-
ingu í Ráðhúsi Reykja-
víkur núna í september-
mánuði, sem bar yfír-
skriftina „Vemdun jarð-
ar“. Myndlistarkonan
sem þar sýndi hét Gyða
og kom utan af landi.
Þarna var á ferðinni
bæði góð myndlist og
gott málefni, sett fram á
jákvæðan og vandaðan
hátt.
Það vekur furðu mína
að ekki skuli hafa verið
fjallað meira um þessa
sýningu í fjölmiðlum en
gert var, því þarna var
sýning sem skilur eitt-
hvað eftir sig í huga og
hjarta sjáandans.
Helgi.
Myndavél týndist
við Gullfoss
SJÁLFVIRK myndavél
með zoom-linsu týndist
síðdegis föstudaginn 10.
október við Gullfoss.
Skilvís fmnandi hafi
samband í síma
896 4033.
Taska týndist
SVÖRT strigataska með
stóru Lanconæ merki
týndist á Hótel íslandi á
Menntaskólaballi eða á
leiðinni frá Seltjarnar-
nesi að Hótel íslandi. í
töskunni er snyrtidót og
fatnaður. Skilvís
fmnandi hafi samband í
síma 561 1885.
Hlaupahjól hvarf
HLAUPAHJÓL, svart
með röndum, týndist frá
Brúnastekk 4. Þeir sem
hafa orðið varir við hjólið
hafi samband í síma
557 4157.
Reiðhjóls saknað
SVART og blátt 24
tommu Magna strákahjól
týndist frá Kaplaskjóls-
vegi 31 helgina 27.-28.
sept. Þess er sárt saknað.
Þeir sem hafa orðið varir
við hjóiið hafi samband
í síma 552 2526. Fundar-
laun.
HÖGNIHREKKVÍSI
Víkveqi skrifar...
ARNI Brynjólfsson ritaði Vík-
verja bréf fyrir réttri viku, í
tilefni af umflöllun Víkveija á mið-
vikudaginn var, um lífeyrissjóðina.
Bréf Arna er svohljóðandi: „Kæri
Víkveiji.
Það er tilefni til að gleðjast yfir
skrifum þínum i dag um almennu
lífeyrissjóðina og málflutning ráða-
manna þeirra varðandi vörslu og
stjórn. Ékki skaði heldur að geta
þess hveijir voru spurðir í þeirri
könnun er þeir sömu menn létu
gera, sem var alveg í takt við þá
stefnu að spyija þá alls ekki sem
eiga verulegra hagsmuna að gæta
0g eru orðnir 67 ára.
xxx
AÐ eru ekki mikil áhrifin sem
hinn almenni sjóðsfélagi getur
haft á stjórn sjóðanna, nýlegar
„umbætur“ voru þær að haldinn
skyldi einn opinn fundur á ári, þar
gætu fundarmenn blásið, en alls
ekki greitt atkvæði eða gert sam-
þykktir. - Nú keyrir um þverbak
þegar lífeyrisrekendurnir hundsa
algjörlega og spyija ekki það fólk
sem á að njóta lífeyrisins, sem er
þó búið að borga lengst í sjóðina
og ætti að vera húsbændur á því
heimili.
xxx
VIÐ sem komin erum á aldur
beinum gjarnan spjótum
okkar að ríkisvaldinu vegna rang-
lætis varðandi almennar eftirla-
una- og bótagreiðslur, en nú er
tilefni til að senda sjóðsstjórunum
nokkrar örvar vegna þess að það
sem frá þeim kemur er fátt ják-
vætt og lítð annað en skerðing lof-
aðra réttinda. Má þar t.d. nefna
skerðingu réttinda ekkna, sem eru
nú orðin þannig að lúsarleg ekkna-
laun eru aðeins greidd í þrjú ár,
þótt loforðin hafi verið til æviloka.
Sú kynslóð sem nú er að kveðja
hélt konunum heima yfir húsverk-
um og börnum, sem varð þess vald-
andi að fæstar komust á vinnu-
markað til að afla sér réttinda í
lífeyrissjóði. - Ekki verður vart við
að lífeyrisgreiðslur séu hækkaðar
þótt sjóðirnir græði á tá og fingri,
enda enginn hagsmunaaðili sem
þar getur sótt á. - Þeir eru ekki
einu sinni spurðir.
xxx
ISTILL Víkveija í dag vakti
mig til umhugsunar um ljósrit
af bréfi frá Tölvunefnd, ds. 1.10.
og er fyrirspurn til Hagstofunnar
varðandi seina afgreiðslu bréfs er
AHA-hópurinn sendi þeirri stofnun
14. ágúst sl., vegna ólögmætra ald-
urstakmarkana í könnunum. -
Verkalýðsfélögin kæra sig ekkert
um að banninu við því að spyija
aldraða sé aflétt og því ætti Hagstof-
an að vera að ganga í berhögg við
þá sem geta farið í verkfall!"