Morgunblaðið - 15.10.1997, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 15.10.1997, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1997 47 ' FÓLK í FRÉTTUM Morgunblaðið/Björn Blöndal RAGNAR Örn Pétursson, formaður íþróttaráðs Reykjanesbæjar, afhendir Jóhannesi Ellertssyni, formanni knattspyrnudeildar Keflavíkur, 150 þúsund króna styi-k úr Afreks- og styrktarsjóði iþróttaráðs Reykjanesbæjar. Nýkrýndir bikarmeistar- ar fengu hlýjar móttökur ►Keflavík- Liðsmenn knatt- spyrnuliðs Keflavíkur fengu hlýj- ar móttökur þegar þeir komu til bæjarins með bikarinn sem þeir hlutu fyrir sigur gegn Eyjamönn- um á dögunum. Meðal annars var leikmönnum og þjálfurum boðið til hófs í húsi leikfélagsins við Vesturgötu þar sem knattspyrnu- deildin fékk m.a. 150 þúsund króna styrk úr Afreks- og styrkt- arsjóði íþróttaráðs Reykjanes- bæjar. Meðal annars kom hinn þekkti tónlistarmaður Rúnar Júl- íusson frarn og söng nokkur lög. Hann var einn af bestu mönnum gullaldarliðs ÍBK á sjöunda ára- tugnum áður en hann tók tónlist- ina fram yfir knattspyrnuna. Pitt klífur í annað sæti „KISS the Girls“ hélt efsta sæti list- ans aðra helgina í röð yfir mest sóttu kvikmyndir vestanhafs. Spennumyndin, sem fjallar um leit lögreglunnar að fjöldanauðgara, er með Morgan Freeman og Ashley Judd í aðalhlutverkum. Kvikmyndin Sjö ár í Tíbet með Brad Pitt kleif beint í annað sæti. Hún er byggð á sannri sögu úr heimsstyrjöldinni síðari og fer Brad Pitt með hlutverki fjallgöngugarps- ins Heinrich Harrer sem vingast við hinn unga Dalai Lama. Nýlegar fréttir frá Þýskalandi herma að Harrer hafi tilheyrt SS-sveitum Hitlers en talsmaður kvikmyndar- innar sagði að það skaðaði ekki gengi hennar. „Hún hefði ekki halað inn 10 milljónir dollara ef hún hafði upp- hafið nasista," sagði John Jacobs, forseti Mandalay Entertainment, sem framleiddi kvikmyndina og dreifði henni í gegnum Ti'iStar Pict- ures. Hún kostaði 62 milljónir doll- ara í framleiðslu. Jacobs sagði að kvikmyndin fjall- aði um iðrun og andlega ástundun. Viðfangsefni sem sjaldan hefðu víða skírskotun til almennings. Út- göngukannanir sýndu engu að síður að 58% áhorfenda hefðu verið 30 ára og eldri og 59% kvenkyns. GUNNAR Oddsson, leikmaður og þjálfari, og Sigurður Björgvinsson, þjálfari Keflavíkur, skera fyrstu sneiðina af girnilegri tertu sem veitt var af við þetta tækifæri. BRAD Pitt tekur við merki með áletruninni „Frelsum Tíbet“ á frum- sýningu myndarinnar Sjö ár í Tíbet í Los Angeles 6. október. Hann er með Khada um hálsinn, sem er eins konar lukkutrefill. r m. * m ATH! Adeins 20 kr. röðin K I N G A rti Til mikils að vinna! 6 511 GJALDFRJÁLST PJÓNUSTUNÚMER Alla miðvikudaga fyrirkL 16.00

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.