Morgunblaðið - 15.10.1997, Síða 50
50 MIÐVIKUDAGUR 15. OKTOBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
SPEGILL
Með Stallone
í göngunum
Halli Melló trúbador
HALLI Melló er tvítugur
strákur af Akranesi sem
hefur spreytt sig sem trú-
bador síðan hann var fimmtán
ára. Halla hefur dreymt um að
gefa út sólóplötu jafnvel enn
lengur og nú hefur ræst úr
því. Eins og sannur trúbador
semur hann alla sína texta og
iög sjálfur og segist taka sér
karla eins og Megas og Bob
Dylan til fyrirmyndar. Hann
heldur útgáfutónleika á Fó-
getanum í kvöld.
Kemst eitthvað annað að en
knattspyma á Skaganum?
„Já, ætli það ekki. Ég hélt til
dæmis útgáfutónleika þar fyrir
skömmu og það mættu tvö hund-
ruð manns."
Ætlarðu að fara um Hvalfjarða-
göngin?
„Ef Sylvester Stallone kemur
með mér.“
Hver er besti James Bondinn?
„Sean Connery. Hann er hrika-
legur töffari."
Syngurðu í baði?
„Alltaf. Það er misjafnt hvað ég
syng. Ég tralla bai-a eitthvað.“
Ætlarðu verslunarferð i haust?
„Nei, en það má vera að maður
skelli sér til Kanari um jdlin."
Hver er besta kjaftasaga sem þú
hefur heyrt um sjálfan þig.
„Á ég að þora að segja það,“
segir hann og hlær. „Að ég væri
homrni."
Hvers myndirðu óska þér fyrir
framan aftökusveitina?
„Biddu nú við... Þetta er erfítt.
Ætli ég myndi ekki syngja Milljón
grænar flöskur. Maður er svo
lengi að því.“
Hvað finnst þér verst í fari ann-
arra?
„Óheiðarleiki."
Hafa öll svör þín verið sannleik-
anum samkvæmt?
„Alveg hundrað prósent."
-inn i
næstu
öld
nHTIMilJI
Vökvadælur
6-340 l/mín
Þrýsfingur upp
í 290 bör
Spilverk
Sími 544-5600 Fax 544-5301
FÓLKÍ FRÉTTUM
Búið að velja leikara
Þorvaldur Davíð Kristjánsson
14 ára/Bugsy Malone
„Ég undirbjó mig ekki neitt. Ég
fór eiginlega í þetta af gamni mínu.
Ég var búinn að vera í Kar-
dimommubænum,“ sagði hinn nýi
Bugsy Malone. „Ég horfði á mynd-
ina fyrir tilviljun í sjónvarpi hjá
frænku minni. Ég sóttist ekki sér-
staklega eftir því að leika Bugsy
Malone heldur bara eftir einhverju
hlutverki. Það er bara skemmtilegt
að vera með í sýningunni." Þorvald-
ur söng lag í áheyrnarprufunni eins
og aðrir og lék í atriðum á móti
Talluluh og Blousey. „Það er mjög
misjafnt hvort það er auðveldara að
leika eða syngja. Maður þarf að
muna meiri texta þegar maður leik-
ur. Ég er ekki kvíðinn
en mér finnst þetta
mjög spennandi. Það
er erfitt að vera í aðal-
hlutverki en það er
líka gaman.“ Þorvald-
ur vandist því að sam-
ræma námið og leik-
listina þegar hann lék
í Kardimommubæn-
um og kvíðir því ekki
álaginu sem er
framundan. Hann hef-
ur einnig talað inn á
teiknimyndir og leikið
í tveimur sjónvarps-
myndum.
Álfrún Örnólfsdóttir 16
ára/Tallulah
„Ég ætti að vera vön
því ég hef verið í
mörgum leikritum í
Þjóðleikhúsinu, leikið í
bíómynd og verið í tal-
setningum og fleiru."
Álfrún söng lag Talluluh
úr myndinni í áheyrn-
arprufunni og var oft búin
að sjá myndina þegar hún
var lítil. „Mig hafði reyndar
dreymt um að leika Talluluh
og þegar ég var lítil var ég
alltaf að vona að bíómyndin
yrði endurgerð eða eitthvað
Söngleikurinn
Bugsy Malone
Leikarar í söngleiknum Bugsy Malone voru
formlega kynntir í Loftkastalanum í gær. Öll
hlutverk eru í höndum barna og unglinga á
aldrinum tíu til sextán ára. Mikil tilhlökkun var
meðal leikaranna ungu sem bíða frumsýningar
með eftirvæntingu.
unni án þess að kunna það utan að
en gekk þó ágætlega. Hann hefur
enga reynslu í leiklist og fannst
fyrsta prufan ekki eifið. Hann við-
urkenndi þó að vera örlítið kvíðinn
en nú hefst undirbúningur og æf-
ingar fyrir alvöru.
Kristín Ósk Hjartardóttir 14 ára
og Klara Ósk Elíasdóttir 12 ára
„Ég hef aldrei leikið áður en ég
var í kór. Það var skrítið og öðruvísi
að fara í áheymarprufuna. Ég var
beðin um að syngja tvö lög,“ sagði
Kristín _sem var taugaóstyrk í
fyrstu. „Ég var beðin um að koma í
dansprufu en það
gekk nú ekkert of vel.
Ég var alltaf einum
takti á eftir en það
bjargaðist allt,“
sagði Kristín.
Klara Ósk leik-
ur hlutverk
Blousey á móti
Kristínu. „Það
er alls ekki
leiðinlegt að
deila hlut-
verkinu. Það
er aðallega
gaman að fá
að taka þátt í sýning-
unni.“ Klara söng Bítlalagið
„Yesterday“ og Maístjörnuna og
gekk mjög vel að eigin sögn. Hún
hefur leikið í skólaleikritum en seg-
ist ekkert kvíðin fyrir því að þreyta
frumraunina í alvöru leikhúsi.
„Áheyrnarprufan
var ekkert erf-
ið því maður sá
ekkert nema
ljósin. Ég horfði
á myndina áður
en það var engin
sérstök sem mig
langaði að leika.“
Davíð Baldurs-
son 14 ára/Fat
Sam
Davíð segist fædd-
ur leikari og hefur
mjög gaman af því að
DAVÍÐ Þór, þýðandi söngleiksins, leikstjórinn Baltasar, framleiðslu-
stjórinn Hjörtur, aðstoðarleikstjórinn María, leikmyndahönnuðurinn
Ámi Páll og danshöfundurinn Sveinbjörg.
komast í sviðljósið.
„Ég á myndbandsvél
heima og er oft að
leika fyrir framan
hana. Ég hef- gert
eina X-Files-mynd
en það gekk ekkert
alltof vel.“ Davíð
söng Gamla Nóa í
áheyrnarprufunni
því hann vissi ekki
fyrirfram að hann
ætti að syngja.
„Ég var látinn
hafa atriði sem ég átti
að leika og skoðaði það tvisvar í
myndinni áður en ég fór aftur í
prufu.“ Davíð á heima í Keflavík en
lætur það ekki aftra sér og ætlar að
keyra á milli í vetur.
Kristinn Evertsson 13
ára/Dandy Dan
„Ég er með fullt af leikreynslu úr
skólanum því ég er svo athyglis-
sjúkur. Ég fór líka með smáhlut-
verk í Gullna hliðinu sem var sýnt
hjá Kópavogsleikhúsinu." Kristinn
var vongóður um að fá eitthvað
hlutverk í söngleiknum og var ekk-
ert taugaóstyrkur í áheyrnarpruf-
unni. Hann segir aldrei að vita
nema hann stefni að frekari frama í
leiklistinni.
LEIKARAR söngleiks-
ins Bugsy Malone sem
verður frumsýndur í
Loftkastalanum í jan-
úar. Platan með lög-
unum kemur út í nóv-
ember næstkomandi.
svo ég fengi að vera
með. Svo hef ég
alltaf haldið upp á
Jodie Foster eftir
þessa mynd.“ Ál-
frún segir það vera
mjög ólíkt að leika á
sviði og í bíómynd. „Þegar
maður er í bíó þá er þetta bara einu
sinni gert og ef það gengur vel þá er
það gaman, en á sviði er líka gaman
að geta bætt úr ef eitthvað fer úr-
skeiðis. Þetta er hvort tveggja mjög
skemmtilegt." Hún segist vera vön
því að skipuleggja tíma sinn vel og
gangi jafnvel betur þegar mikið er
að gera.
Jónmundur Grétarsson 12
ára/Fizzy
„Ég undirbjó mig eiginlega ekki
neitt og ég var ekki búinn að sjá
myndina. Mér hafði verið sagt að ég
væri líkur sóparanum.“ Jónmundur
valdi að syngja lag Elvis Presleys
„Blue Suede Shoes" í áheyrnarpruf-