Morgunblaðið - 15.10.1997, Side 56
'T
Jb
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG RITSTJ@MBL.IS AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdótir
Valt á hringtorgi
Hveragerði. Morgnnblaðið.
ENGIN SLYS urðu á mönnum þeg-
ar vöruflutningabíll valt á hring-
torginu við Hveragerði um fimm-
leytið í gær. Ekki er ljóst um
skemmdir á bflnum sem var full-
hlaðinn timbri á leið austur á Sel-
foss er óhappið varð. Að sögn lög-
reglunnar á Selfossi er talið að bfll-
inn hafi farið inn á hringtorgið á of
■ -■jniklum hraða og af þeim sökum olt-
ið á hliðina. Þó nokkuð hefur verið
um það siðan hringtorg þetta var
lagt að bflstjórar hafi ekið þvert yf-
ir torgið og eins hefur það gerst að
vöruflutningabflar hafi misst þar af
sér farm. I báðum þessum tilvikum
vill lögreglan kenna því um að ekki
er keyrt í samræmi við aðstæður og
hægt nóg á ferð áður en ekið er inn
á hringtorgið.
Verkfallssjóður Kennarasambands Islands er öflugur
Ekki gengið frá er-
lendum fjárstuðningi
EIRÍKUR Jónsson, formaður
Kennarasambandsins, segir að á
fundi norrænna kennara í síðustu
viku hafi kjaradeila grunnskóla-
kennara og sveitarfélaganna hér á
landi m.a. verið rædd, en ekki hafi
verið gengið frá neinum fjárstuðn-
ingi norrænna kennara við starfs-
bræður sína hér á landi. Það kunni
hins vegar að vera að farið verði
fram á slíkan stuðning á næsta
fundi norrænu kennarasamtak-
anna ef kjaradeilan leysist ekki.
Grunnskólakennarar greiða
0,8% af launum sínum í verkfalls-
sjóð. Fyrir verkfaliið 1995 var
þetta hlutfall lækkað niður í 0,2%,
en á þingi sambandsins eftir verk-
fallið var ákveðið að hækka hlut-
fallið aftur. Kennarasambandið á
núna 250-300 milljónir í verkfalls-
sjóði, að sögn Eiríks Jónssonar.
Stjórn KI mun skipa verkfalls-
stjórn á stjómarfundi nk. föstudag
og þar verður einnig fjallað um
undirbúning verkfalls.
í verkfallinu 1995 ákvað verk-
fallsstjóm KÍ að greiða 57 þúsund
krónur á mánuði til kennara í fullu
starfi. Þá greiddu KÍ og HÍK um
220 milljónir á mánuði í verkfahs-
bætur til um 4.200 kennara. Komi
til verkfalls grannskólakennara
fara liðlega 3.200 kennarar í verk-
fall. Það má því ljóst vera að
grannskólakennarar geta verið
nokkuð margar vikur í verkfalli án
erlends fjárstuðnings.
Aflahrun í Smugunni
Verðmæti
veiðanna
600-700
milljónir
HEILDARAFLI íslenskra fiski-
skipa í Smugunni í ár nemur rúm-
um 5.800 tonnum, sem er aðeins
liðlega fjórðungur þess sem gert
hafði verið ráð fyrir í upphafi ver-
tíðar. Reiknað hafði verið með um
20 þúsund tonna afla úr Smugunni
á árinu 1997 að verðmæti 2,3 millj-
arðar króna, skv. meðaltölum í út-
flutningi, en nú er orðið ljóst að
Smuguveiðin gefur ekki af sér
nema 600-700 milljónir króna í út-
flutningstekjur. Þegar Smugan gaf
mest, árið 1995, var heildarafli Is-
lendinga þar hátt í 40 þúsund tonn
>að verðmæti hátt í fjórir milljarðar
króna. I fyrra fengu íslensk skip 23
þúsunda tonna heildarafla úr
Smugunni að verðmæti um 2,7
milljarðar króna.
■ Smugan gaf 5.800 tonn/1 C
- L__,J
Morgunblaðið/Árni Sæberg
GERT er ráð fyrir að ný ávaxtabirgða- og pökkunarstöð Hagkaups við Brúarvog verði tilbúin um næstu áramót.
Hugmynd Breta um hvalveiðar nær aðeins til 12 mflna
Getur ekki náð til ríkis
utan Hvalveiðiráðsins
TALSMAÐUR breska sjávarútvegsráðuneytisins
sagði í gær að yfirlýsing Breta um að þeir hygðust
leggja til að hvalveiðar yrðu leyfðar við Noreg og Jap-
an myndi ekki ná til Islands meðan Islendingar stæðu
utan Alþjóða hvalveiðiráðsins. Þorsteinn Pálsson sjáv-
arútvegsráðherra sagði í gær að þessi yfirlýsing bæri
því vitni að núverandi ríkisstjórn Bretlands hefði opn-
ari viðhorf th hvalveiða en fyrri ríkisstjórn.
Bfll eyðilagðist í eldi
>«íiÍLL gereyðilagðist í
*eldi þegar honum var ek-
ið eftir Eyrarbakkavegi
skammt frá Selfossi um
áttaleytið í gærkvöld.
Okumanninn sakaði ekki.
Að sögn lögreglunnar á
Selfossi var bíllinn kom-
,án nokkuð til ára sinna.
' Eldur blossaði skyndi-
lega upp þegar bflnum
var ekið eftir þjóðvegin-
um milli Eyrarbakka og
Selfoss. Fékk bílstjórinn
ekki við neitt ráðið en
kallað var á slökkvilið.
Kom lið frá Branavörn-
um Árnessýslu á Selfossi
á staðinn og slökkti en
bíllinn er ónýtur.
,AIþjóða hvalveiðiráðið
er stofnun, sem menn
ganga í sjálfviljugir,"
sagði John Webb, tals-
maður breska sjávarút-
vegsráðuneytisins, þegar
hann var spurður í gær
hvort staða íslands
breyttist ef tillagan um
strandveiðar Norðmanna
og Japana næði fram að
ganga. „Ég held að svarið
sé því nei, útilokað er að
ríki, sem er utan Alþjóða
hvalveiðiráðsins gæti fall-
ið undir þetta.“
Samkvæmt upplýsing-
um úr sjávarútvegsráðu-
neytinu breska er átt við
veiðar innan tólf mflna
frá strandlengju lands.
Bretar hyggjast ræða
þetta mál af fullri alvöru
á þingi hvalveiðiráðsins,
sem haldið verður í
Mónakó 20. til 24. októ-
ber. Um leið hafa þeir
lýst yfir stuðningi við til-
lögu Ira um að hvalir eigi
sér griðastað hvar sem er
í heiminum, en þar sem
ólíklegt sé að hún nái
fram að ganga telji þeir
rétt að íhuga ýmsa aðra
kosti.
Kristján Loftsson, for-
stjóri Hvals hf., gefur lítið
út á þessar hugmyndir og
segir að í Alþjóða hval-
veiðiráðinu herðist snaran
að hvalveiðiþjóðum ár frá
ári.
■ Bera vitni/10
Hagkaup
byggir
birgðastöð
FRAMKVÆMDIR eru í fullum
gangi við byggingu nýrrar
ávaxtabirgða- og pökkunarstöðv-
ar Hagkaups við Brúarvog í
Sundahöfn. Að sögn Óskars
Magnússonar, forstjóra Hag-
kaups, ber vöruhúsið heitið Nýtt
og ferskt, og er gert ráð fyrir að
það verði tilbúið öðruhvorumeg-
in við næstu áramót.
Islenskir aðalverktakar sjá um
allar framkvæmdir við bygging-
una, sem er um 2.000 fermetra
stálgrindarhús. Ofar á lóðinni,
uppi við Skútuvog, er Þyrping,
eignarhaldsfélag Baugs, Hag-
kaups og Bónuss, að undirbúa
byggingu 7.000 fermetra birgða-
stöðvar fyrir Bónus og Hagkaup,
sem ráðgert er að verði tilbúin
næsta haust. Þar verða geymdar
allar þurrvörur fyrir Bónus og
Hagkaup og í framtíðinni einnig
allar ferskvörur fyrir utan ávexti
og kjöt.
Aðalvík og
Njarðvík seld-
ar norður
REGINN, eignarhaldsfélag Lands-
bankans, hefur tekið boði Kalda-
fells ehf. í Njarðvík KE og Aðalvík
KE en það var upp á rúmar 1.100
milljónir kr. Kaldafell, sem er
skráð í Njarðvík, er í eigu Utgerð-
arfélags Akureyringa en skipunum
fylgdi 1.514 tonna kvóti.
I tilkynningu frá UA sagði, að
kaupin væru í samræmi við þá
stefnu fyrirtækisins að treysta
rekstrargrundvöll sinn til framtíðar
en ekki væri búið að ákveða hvern-
ig að rekstri skipanna yrði staðið.
Þeim fylgir eins og áður sagði 1.514
tonna kvóti, þar af 1.080 tonn í
þorski og 220 tonn í ýsu.
Alls bárust þrjú tilboð í skipin og
það, sem komst næst tilboði Kalda-
fells, var frá Fiskanesi í Grindavík
og Valbirni í Sandgerði. Var það
einn milljarður og fimmtíu milljónir
króna. Þriðja tilboðið var frá
Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum,
upp á 838 millj. kr.
A Suðurnesjum hefur verið mik-
ill áhugi á því að halda kvótanum á
svæðinu en Sverrir Hermannsson
bankastjóri og stjórnarformaður
Regins sagði i viðtali við Morgun-
blaðið, að tilboð Kaldafells hefði
verið langhagstæðast, einkum
vegna þess, að það bauðst til að
greiða kaupverðið út.
■ Tilboði tekið/3C
----------------
Samherji með
275 milljóna
hagnað
HAGNAÐUR Samherja hf. og dótt-
urfélaga, Fiskimjöls og lýsis hf. og
Friðþjófs hf., nam 275 milljónum
ki'óna á fyrstu átta mánuðum úrsins.
Veltufé frá rekstri nam 835 milljón-
um króna, sem samsvarar 17% af
rekstrartekjum tímabilsins.
I kjölfar birtingar átta mánaða
uppgjörs Samherja lækkaði gengi
hlutabréfa í félaginu á Verðbréfa-
þingi íslands um 11% frá síðustu við-
skiptum með hlutabréf í því.
Ekki er að fullu lokið reiknings-
skilum erlendra dótturfélaga Sam-
herja en unnið er að þeim og er gert
ráð fyrh' að samstæðureikningur
Samherja fyrir fyrstu átta mánuði
ársins liggi fyrir í lok október.
■ Hagnaðurinn/17