Morgunblaðið - 21.10.1997, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1997 7
FRETTIR
Sameiginlegt félagshyggju-
framboð í Kópavogi
Kópavogslist-
inn býður fram
ALÞYÐUBANDALAG mun til-
nefna bæjarstjóra Kópavogs en
Alþýðuflokkur formann bæjarráðs
nái sameiginlegt framboð flokk-
anna og Kvennalista meirihluta í
bæjarstjórn Kópavogs næsta vor.
Fulltrúar Alþýðuflokks, Alþýðu-
bandalags og Kvennalista gerðu á
laugardag samkomulag um sam-
eiginlegt framboð undir merkjum
Kópavogslista. Flokksfélögin í
bænum veittu umboð til slíkra við-
ræðna í vor og þau taka væntan-
lega afstöðu til samkomulagsins í
þessari viku, segir Valþór Hlöð-
versson, oddviti Alþýðubandalags-
ins í Kópavogi.
Samkomulagið gerir ráð fyrir
að stofnað verði Félag um jafn-
aðarstefnu, félagshyggju og kven-
frelsi utan um framboðið.
1., 4., 7. og 12. sæti Kópavogs-
listans er ráðstafað til Alþýðu-
bandalags. 2., 6., 8. og 11. sæti
fær Alþýðuflokkur. 3. og 9. sæti
skipa Kvennalistakonur og stefnt
er að því að óháðir og óflokks-
bundnir fái 5. og 10. sæti. Stefnt
er að því sem næst jafnri kynja-
skiptingu á listanum.
Valþór bæjarstjóraefni?
Valþór Hlöðversson sagði að
væntanlega mundi hver flokkur
stilla upp eigin fulltrúum á þann
hátt sem hann kysi.
Valþór sagði að næsta verkefni
væri að flokksfélögin tækju af-
stöðu til samkomulagsins. Það
verður væntanlega gert í þessari
viku. Síðan er að boða til stofnun-
ar Félags um jafnaðarstefnu, fé-
lagshyggju og kvenfrelsi.
Valþór vildi ekki staðfesta að
hann yrði bæjarstjóraefni Kópa-
vogslistans, né að Guðmundur
Oddsson, oddviti Alþýðuflokks,
yrði formannsefni í bæjarráði.
Um þátt óháðra frambjóðenda
Kópavogslistans sagði Valþór að
engin nöfn hefðu verið nefnd en
rætt hefði verið við fjölmarga.
Greinilegur áhugi væri hjá félags-
hyggjufólki, sem ekki hefði treyst
sér til að tengjast einhveijum
flokkanna, að leggja framboðinu
lið.
19.þing Verka-
mannasambandsins
hefst í dag
Lífeyrismál
stærsta mál
þingsins
NÍTJÁNDA þing Verkamannasam-
bands íslands hefst á Hótel Loftleið-
um í dag með setningarræðu for-
manns sambandsins, Björns Grét-
ars Sveinssonar. Þingið er haldið
undir kjörorðinu „Lífeyrissjóðirnir -
okkar framtíð; samtrygging - sjóð-
söfnun - skylduaðild".
í fréttatilkynningu frá VMSÍ seg-
ir að lífeyrismálin verði eitt af meg-
inmálum þingsins. Rætt verði um
framtíðarhorfur lífeyriskerfisins og
þær tillögur sem lagðar hafi verið
fram um frumvarp að lögum um
starfsemi lífeyrissjóða. Kári Arnór
Kárason, framkvæmdastjóri Lífeyr-
issjóðs Norðurlands, mun hafa
framsögu um lífeyrismál á þinginu.
Þingið stendur fram á föstudag.
Rétt til setu á því hafa 154 fulltrú-
ar. VMSÍ er stærst landssambanda
innan ASÍ með tæplega 28 þúsund
félagsmenn.
11 bæjarfulltrúar eru í Kópa-
vogi. Flokkarnir sem standa að
Kópavogslistanum hafa fimm full-
trúa: Alþýðubandalag tvo, Alþýðu-
flokkur tvo og Kvennalisti einn.
Við síðustu kosningar fengu flokk-
arnir þrír 48% atkvæða.
Skrifstofa stuðningsmanna
Ingu Jónu Þórðardóttur
er að Skólavörðustíg 6.
Skrifstofan er opin virka daga
kl. 16-21 og um helgar kl. 14,-18.
Símar 562 5712 og 562 5725.
Netfang: ingajona@islandia.is
Heimasíða: www.islandia.is/~ingajona
Inga Jóna Þórðardóttir í I. sæti
Stuðningsmenn
Prófkjör sjálfsstæðisflokksins í Reykjavík 24. og 25. okt.