Morgunblaðið - 01.11.1997, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
þann draum rætast, svo ég festi
núna í vikunni kaup á húsnæði í
Brautarholti 20, gamla Þórskaffí,
og þar verður sko dekur. Þangað
geta konur komið og dekrað við
sig, æft og tekið á, farið í nudd og
gufu og böð til að slaka á, fengið
sér léttar veitingar, lesið tímarit -
svona alls herjar heilsulind þar
sem konur geta gleymt amstri
dagsins.
Eftir því sem ég hef lært meira í
þessum rekstri, geri ég mér grein
fyrir því hversu mikilvægt það er
að hafa sérstöðu og vegna þeirrar
miklu samkeppni sem ríkir á þessu
sviði er mjög mikilvægt að veita
góða þjónustu og að staðurinn sé
notalegur. Svo er eitt enn sem hef-
ur alltaf verið mér sjálfri mjög
mikilvægt - og það er að sam-
skiptin séu persónuleg - þannig að
hverri einustu konu líði vel hjá
okkur og fínnist hún skipta máli.
Kannski hefur það tekist, vegna
þess að við erum með mjög stóran
kjarna hjá okkur sem hefur stund-
að Baðhúsið frá upphafi. Það er
mikil hreyfing á milli líkamsrækt-
arstöðva og margar nýjar hafa
sprottið upp á seinustu árum. En
við höfum orðið vör við það að
margar konur sem prófa aðrar
stöðvar koma til okkar aftur. Eg
vona að það sé vegna þess að við
veitum góða þjóhustu. Eg er mjög
stolt af starfsfólkinu mínu. Við er-
um eins og fjölskylda og ég vona að
það skili sér til viðskiptavinanna."
Engar sýningar
Linda játar að hún verði oft vör
við þann misskilning að Baðhúsið
hljóti að vera fyrir ofurskvísur og
fegurðardísir. „Baðhúsið er fyrir
venjulegar konur á öllum aldri og
auðvitað erum við allar venjulegar,
ef því er að skipta. Við þurfum all-
ar að hafa fyrir því að viðhalda lík-
amanum. Flestar okkar þurfa að
takast á við aukakíló og við eld-
umst allar og hrörnum. Það er okk-
ur öllum jafn mikilvægt að hafa í
huga að þetta er eini líkaminn sem
við fáum og okkur er hollara að
næra hann og styrkja til að hann
endist okkur út lífið.
Eftir að ég hóf reksturinn á Bað-
Uppskriftin
Sinnepssmurð
kalkúnabringa
ó hvítlauksrist-
uðu greenmeti
Fyrir f jóra
Hráefni
600 gr kalkúnabringa
4 tsk Dijon sinnep
Salt og pipar
4 msk ólífuolía
1 meðal blaðlaukur
1 stór gulrót
80 gr steinseljurót
80 gr sellerírót
Kecap manis soya (sæt soya)
2 saxaðir hvitlauksgeirar
2 msk söxuð fersk steinselja.
Aðferð: Byrjið á að skera
kalkúnabringuna í ca '/2 cm
þykkar sneiðar, þrjár
sneiðar á mann og banka
þær. Skerið allt grænmetið
í þunnar sneiðar (strimla,
julienne) ca 5 cm langar.
Steikið kalkúnasneiðarnar
rétt brúnar á heitri pönnu
og kryddið með salti og
pipar.
Leggið sneiðarnar á
bakka og smyrjið með
sinnepinu. Og látið þær
klárast inni í 180°c heitum
ofni. A meðan snöggristið
þið grænmetið á pönnu
með olíu, soyunni og bætið
hvítlauknum og steinselj-
unni úti í restina.
Grænmetið er svo
skammtað á diskana miðja,
sneiðunum raðað á græn-
metið og hrísgrjónin sett
til hliðar á diskinn.
„Ráða“ sendir drauma
1. Mig dreymdi að tvö lítil böm,
u.þ.b. þriggja ára, stelpa og strákur,
væru að leika sér saman úti og ég
var einhvers konar vakandi auga allt
um kring, andi sem reyndi að forða
þeim frá aðsteðjandi hættum með
því að gera krossmark með fingrun-
um á móti hættunni. Krossmörkin
voru mörg og áberandi. Svo slettist
eitthvað upp á vinskapinn hjá böm-
unum og stúlkan vildi ekki leyfa
drengnum að faðma sig og sættast.
Þetta virtist vera á bak við Þjóðleik-
húsið. Hún gekk yfir Lindargötuna
sem í draumnum var Skúlabrautin
úti á Seltjamamesi þar sem systir
mín bjó. Eg reyndi að forða því að
hún færi fyrir homið á húsi systur
minnar, því þar á bakvið vai- maður
sem gæti gert henni mein. Ég leit
fyrir homið og sá grænt vel sprottið
gras og tvo blóðdropa sem bára vitni
um sifjaspell. Skyndilega er ég í
þröngum dimmum gangi í kjallara
Þjóðleikhússins og ávíta ódæðis-
manninn sem gengur fyrir framan
mig. Hann vindur sér að mér og tek-
ur um vinstra brjóst mitt.
2. Ég var á skemmtun með vinnu-
félögum mínum. Það var fjölmennt.
Ég stóð við barinn ásamt Bárði
skólabróður mínum úr æsku, sem
átti alls ekki að vera þama. Fleiri
dömur vora við barinn, meðal ann-
arra ein Sigríður. Það var daður í
loftinu enda er Bárður myndarmað-
ur, dökkhærður, hár og grannur.
Hann Iaut niður að mér og kyssti
mig létt á hálsinn. Innra með mér
þráði ég fleiri kossa sem ég fékk
ekki.
Ráðning
Fyrri draumurinn lýsir hluta af
æsku þinni (stelpan og strákurinn)
sem þú virðist hafa farið á mis við
(slettist upp á vinskapinn) þrátt
fyrir fögur fyrirheit (krossmörkin).
Þennan hluta ert þú nú að skoða
(vakandi auga allt um kring) til að
átta þig á samhengi hlutanna og lífi
þínu í dag. Sú skoðun vekur upp
sársauka (tveir blóðdropar) sem þú
hefur áður reynt að hreinsa af þér
(gekk yfir Lindargötuna) og óljós
(systir) hugboð um misferli (sifja-
spell). Þjóðleikhúsið í þessu sam-
hengi bendir til að opin umræða
síðustu missera um misgjörðir
gagnvart börnum hafi sett þitt ferli
á stað. Seinni draumurinn lýsir
löngun þinni til að losna undan oki
fyrri draums og því sem hann lýsir
svo þú megir lifa frjáls og njóta lífs-
ins lystisemda. Nafnið Bárður
táknar meiðsl/sársauka.
>eir lesendur sem vifja fá drau-
ma sína birta og ráðna sendi þá
með fullu nafni, fæðingardegi og
ári ásamt. heimilisfangi og dulnefni
til birtingar til:
Draumstafír
Morgunblaðið
Kringhmni I
103 lleykjavík
húsinu varð ég ennþá ákveðnari í
að það skyldi aldrei verða opið
karlmönnum. Það er bæði nauð-
synlegt og þægilegt að geta nært
sig í friði. Það eru engar sýningar
þarna og það þarf enga sérstaka
galla til að æfa í. Flestar konurnar
æfa í bolum og hjólabuxum sem
þær eiga.“
En þótt Baðhúsið verði aldrei
opið karlmönnum er þó einn slíkur
á staðnum. Það er einkaþjálfarinn
Sævar Pétursson, bróðir Lindu -
en ekki kærasti eins og Gróurnar
vilja vera láta. Linda hristir höfuð-
ið yfir slíkum sögusögnum og seg-
ir: „Þetta er ekki einu sinni fyndið
lengur.“ Annars segist hún reyna
að leiða hjá sér kjaftasögur um
sjálfa sig. Þær séu yfirleitt svo
magnaðar og yfirgengilegar að hún
hafi ekki orku til að heyra þær.
„Sævar er búinn að vera þjálfari
hér í þrjú og hálft ár og það hefur
gengið mjög vel. Hann er óskap-
lega ljúfur og fellur vel inn í hóp-
inn. Ég veit líka að viðskiptavinir
okkar kunna að meta hann.“ Og
það era orð að sönnu. Sævar, sem
er aðeins tuttugu og þriggja ára,
vinnur við að þjálfa, hvetja og
segja konum fyrir verkum sem
margar hverjar gætu verið mömm-
ur hans. Það er ekki vandalaust
verk - og þarf go.tt innsæi til að
það gangi upp. Og það hefur hann.
Hins vegar má til gaman geta þess
að hann kennir núna „spinning“ í
Baðhúsinu og ungar stúlkur hópast
í þá tíma - það skemmir örugg-
lega ekki að skaparinn skildi Sæv-
ar ekki útundan þegar útliti var út-
deilt í fjölskyldunni.
„Það er dálítið merkilegt," segir
Linda, „að síðasta eitt til eitt og
hálft ár hef ég unnið sleitulaust og
lítið verið á ferðinni, en það breytir
engu um það hvað fólk er forvitið
um mig. Starfsfólkið mitt er stans-
laust spurt spjöranum úr um hagi
mína og einkalíf. Þegar það segir
eins og er að ég vinni og vinni og
búi ein með hundinum mínum,
verður fólk gjarnan óánægt og trú-
ir því ekki. Það vill fá eitthvað
krassandi. Ég bara get ekki upp-
fyllt þær væntingar.
Barátta ng súlar-
hrings t/inna
Reksturinn á Baðhúsinu hefur
verið mikil barátta og þetta hefði
aldrei gengið ef ég hefði ekki unnið
þar allan sólarhringinn. Síðasta ár-
ið hefur þetta gengið mun betur.
Ég ákvað að skipta um lífsstíl og
skipuleggja mig betur. Og núna á
fyrirtækið hug minn allan - ásamt
Mána - besta, besta karlhundin-
um af sinni springer spaniel teg-
und.“
Talarðu við hann?
„Já .. .enda heldur hann að hann
sé maður.
Það eru margir sem ekki hafa
kynnst dýrum sem skilja þetta
ekki. En þetta snýst um tilfinning-
ar. Dýr era svo góð til að rækta til-
finningar sínar. Það er ekkert
hægt að rökræða við þau eða rífast.
Svo er Máni alger varðhundur. Það
labbar enginn framhjá húsinu án
þess að hann láti mig vita af því.“
Sérðu einhverjar breytingar á
sjálfsmati kvenna á þeim tíma sem
þú hefur rekið Baðhúsið?
„Já. Það hefur breyst mjög mik-
ið. Konur gefa sér orðið tíma til að
fara vel með sig. Ég sé líka að þeg-
ar konur fara að ná árangri í
heilsurækt, þá fara þær í framhaldi
af því að hugsa betur um útlitið al-
mennt.
En áhuginn er ekki eingöngu hjá
konum. Mér finnst það færast í
aukana að karlmönnum finnist
sjálfsagt að konurnai- þeirra eigi
nokkra klukkutíma í viku fyrir sig.
Það líður varla sá dagur að ekki
komi inn eiginmaður, eða unnusti,
til að kaupa gjafakort handa sinni
og þetta hefur aukist mikið eftir að
ég stofnaði Klárar konur þar sem
alls konar fríðindi, afslættir og
dekur fylgja í pakkanum. Þessi
klúbbur er áskrift að betra lífi og
betri líðan. Konan skuldbindur sig
til að vera í lágmark sex mánuði í
þjálfun sem getur verið sá tími sem
þarf til að koma sér í form, eftir
svo og svo og svo langt þjálfunar-
leysi. Sá árangur sem konurnar ná
á þessum sex mánuðum ýtir síðan
undir þær að hugsa vel um sig og
fara vel með sig.“
Hvaða ráð gefurðu konu sem er
að byrja í þjálfun eftir langan
tíma?
,Að gera ekki óraunhæfar kröf-
ur til sjálfrar sín, heldur byggja á
því sem hún hefur. Þannig næst ár-
angur.“
Hvemig sérðu framtíðina fyrir
þér?
„Núna hef ég mikinn áhuga á að
stækka húsnæði Baðhússins til að
geta bpðið upp á enn betri þjón-
ustu. Ég veit að það mun taka
megnið af tíma mínum næstu árin
enda það sem ég hef mestan áhuga
á og vil gera í lífinu. Svo vona ég
líka, eins og flestar venjulegar kon-
ur, að fyrir mér eigi að liggja að
eignast börn - og gott hjónaband
myndi ekki skemma.“
Og maturinn í Listaskálanum?
Ohætt að mæla með honum.
mum fyrir jóluvörum
og seljum mikið
if poHaplöntum með
; 50% afslnt4vM