Morgunblaðið - 01.11.1997, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 01.11.1997, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ AFMÆLI FRÉTTIR HJALTI PÁLSSON Það var sumarið 1947, þá er ég var við nám og vinnu í Chicago, að síminn hringdi. Á hinum endanum kynnti sig Hjalti Pálsson, sonur Páls Zophoníassonar, búnaðarmálastjóra og alþingismanns. Mér var faðirinn kunnugur sem virkur þáttur í ís- lensku þjóðfélagi, en til sonarins þekkti ég ekki. Hjalti stakk upp á því að við mæltum okkur mót á „Yacht Club“ á Edgewater Beach-hótelinu við strönd Michigan-vatnsins. Var strax auðsætt að Hjalti vissi hvem- ig hann ætti að þreifa fyrir sér í stórborginni. Við mættum á tilskild- um stað og ræddum saman um heima og geima. Var það upphaf vináttu sem hefur haldist og eflst gegnum árin, enda þótt miklar fjar- lægðir skildu okkur oftast að. Frá mínu sjónarhomi var grund- völlurinn sá, að við fyrstu kynni var auðsætt að maðurinn var skarpur og þægilegur í umgengni. Hann kom skoðunum sínum vöflulaust á framfæri, oft með hressandi kímni - og þá það sem líklega skipti mestu máli. Hann vakti strax hjá mér þá tilfinningu að þessum manni væri hægt að treysta. Síðar, þegar kynni okkar urðu nánari, kom það í ljós að Hjalti var stórhuga, áræð- inn og fylginn sér í öllum þeim verkum sem hann tekur sér fyrir hendur. Hann er í eðli sínu leiðtogi - ekki aðeins til að sýna leiðina, heldur til að vera sjálfur í öldurót- inu og traustið sem hann vakti strax hefur reynst bjargfast. Svo rættist úr að Hjalti og ég héldum samtímis til íslands, eftir Ameríkudvöl okk- ar, í árslok 1947. Við hófum þá báðir starf hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga. Hjalti hafði numið landbún- aðarverkfræði við há- skóla í Norður-Dakóta og Iowa. Hann tók við landbúnaðardeild Sam- bandsins og lét strax hendur standa fram úr ermum. Ég minnist þess sérstaklega hversu vel honum tókst að vinna sér traust bænda um land allt - held að hann hafi þekkt hvern ein- asta bónda á landinu persónulega og var lítil hætta á að nöfn brengl- uðust. Þegar losað var um leyfi til innflutnings á dráttarvélum árið 1949 tókst Hjalta að koma Fergu- son dráttarvélum á flesta bóndabæi á landinu þrátt fyrir harða sam- keppni. Hjalti varð þannig þáttur í stærsta stökkinu sem tekið hefur verið í vélvæðingu landbúnaðarins á íslandi. Á starfsferli sínum hjá Sambandinu, sem spannaði yfir flóra áratugi, var Hjalta síðar falið ábyrgðarmikið starf sem fram- kvæmdastjóri innflutningsdeildar Sambandsins. Þar stóð hann fyrir umfangsmiklum framkvæmdum sem hann sinnti með sinni eðlilegu skerpu og dugnaði - ætíð með það fyrir augum að veita landsmönnum hagkvæma og gagngóða þjónustu. Eins og gengur þegar staðið er í stórræðum blæs stundum á móti og Hjalti fór ekki varhluta af því frekar en aðrir. Rakst jafnvel á skugga lögvaldsins á íslandi. En eins og ég FQAM E U ROBATEX* PÍPU- EINANCRUN í sjálflímandi rúllum, piötum og hólkum. Þ. ÞORGRÍMSSON & CO ÁRMÚLA 29 - REYKJAVÍK - SÍMI 38640 i-"i." Alfa Romeo frumsýndur þekki manninn kom það mér nokkuð einkennilega fyrir sjónir. Margir eru þeir vinir og við- skiptakunningjar sem hafa verið gestir á hinu stórglæsilega og þægi- lega heimili sem Hjalti og hin frá- bæra kona hans, Ingigerður Karls- dóttir, hafa byggt sér á Ægisíðu 74 í Reykjavík. Þar hefur ætíð ver- ið gott að koma. Ekki aðeins til að njóta þeirrar gestrisni og rausnar sem hjónin hafa ætíð boðið upp á, heldur jafnvel fremur til að taka þátt í þeirri gleði sem Hjalta og Ingu hefur ætíð tekist að vekja hjá gestunum, hvort sem það er með þægilegri umgengni, samtölum, smáræðum eða samsöng. Hesturinn hefur frá barnæsku verið Hjalta í blóð borinn. Hann hefur ætíð borið sérstaka virðingu fyrir því hlutverki sem þessir fjór- fætlingar hafa sinnt fyrir þjóðina gegnum aldirnar. Frá því Hjalti hóf sinn búskap hefur hann ætíð átt nokkra hesta. Hann hefur að miklu leyti hirt um þá sjálfur - er gætinn í umgengni og fer sérstaklega vel með þá. Hann talar máli sem báðir skilja og það er eins og hesturinn segi honum að það sé allt í lagi með að halda þeirri gömlu venju sem þeir hafa sinnt um aldirnar - að bera fólk á baki um dali, holt og heiðar, og Hjalti hefur tekið þá á orðinu, því hann hefur kannað meginhluta landsins á hestbaki - byggðir sem óbyggðir. Oft er farið í hópferðir og þá hefst ferðin jafnan við hinn vistlega sumarbústað Hjalta og Ingu - Lundarhólm í Lundarreykjadal. í þessum hesta- mannahópferðum eru þátttakendur oftast hestasinnaðir vinir, en einnig á stundum erlendir viðskiptakunn- ingjar, sem með þessu móti hafa kynnst hinu sanna íslandi. Þess ber að geta að Hjalti hefur miðlað þeirri miklu þekkingu sem honum hefur auðnast, með því að gefa út bækur um reiðleiðir. Þetta eru góðir leiðar- vísar fyrir þá sem vilja kanna lítt þekktar leiðir. Hjalti hefur ætíð verið í takt við sjálfan sig. Hann hefur jafnan haft lag á að finna vaðið á straumi lífsins (hestarnir hafa vafalaust hjálpað), og hann hefur ætíð tekið lífinu með alvöru - þó ekki um of, því hann veit, eins og Red Skelton benti á forðum, að lifandi kemst enginn út úr því. Ég og Sigríður kona mín óskum þér til hamingju með afmælið, sem þú og Inga munuð halda upp á í kóngsins Kaupmannahöfn. Bragi Freymóðsson, Santa Barbara við Kyrrahafsströnd. ÍSTRAKTOR frumsýnir um helg- ina nýjan Alfa Romeo 156 í hús- næði fyrirtækisins að Smiðsbúð 2 í Garðabæ frá kl. 10-17 laugar- dag og sunnudag. Þeir bílar sem verða til sýnis eru búnir 2,0 lítra vélum sem Islandsmeistara- keppni í förðun fellur niður AÐ gefnu tilefni vill Félag ís- lenskra snyrtifræðinga vekja at- hygli á því að dagskrá keppninnar Lokkar-Litir-List í Laugardalshöll um helgina hefur breyst. „Af hálfu Félags snyrtifræð- inga keppa eingöngu snyrtifræði- nemar og aðeins verður keppt laugardaginn 1. nóvember, ekki sunnudaginn 2. nóvember. Keppni í dagförðun og keppni um brúði framtíðar hefst kl. 13.15 og keppni í kvöldförðun hefst kl. 15.15. Aðrar keppnisgreinar falla niður, þar með talin íslandsmeist- arakeppni í dag- og kvöldförðun og íslandsmeistarakeppni í um og hugarflugsförðun,“ segir í frétta- tilkynningu. Rætt um stjúp- fjölskylduna STJÚPFJÖLSKYLDAN og stjúp- tengsl eru til umfjöllunar í hjóna- starfi Neskirkju nk. sunnudags- kvöld 2. nóvember. Sigtryggur Jónsson sálfræðingur kemur á fundinn og fjallar um efnið en hann hefur langa reynslu af hver skonar fjölskyldumeðferð. „Það er víst kunnara en frá þurfi að segja að í stórum hluta skila 155 hestöflum og togsviði í sérflokki. Tvær vélastærðir auk 2,0 lítra vélarinnar eru í boði. 1,6 lítra sem skilar 120 hestöfl- um. 2,5 lítra V6 sem skilar 190 hestöflum og er sá bíll beinskipt- ur 6 gíra. fjölskyldna á landinu eru e.k. stjúp- tengsl við lýði. Þannig er talið að meirihluti þeirra sem eru í öðru hjónabandi eða sambúð eigi stjúp- bam. Oft geta fjölskyldumynstur verið býsna óljós þannig að skýr mörk hvar ein fjölskylda endar og önnur tekur við eru vart fyrir hendi. Þá geta tengsl stjúpforeldris og stjúpbams verið flókin og sum- um fínnst óljóst hvar foreldravald- ið liggur,“ segir í fréttatilkynningu frá Neskirkju. Fundurinn um stjúpfjölskylduna hefst kl. 20.30 á sunnudagskvöld í safnaðarheimili kirkjunnar og er öllum opinn. Miðsljórn Grósku fundar OPINN miðstjórnarfundur Grósku verður haldinn í dag. Þar verður lögð fram til endanlegrar umræðu „Hin opna bók Grósku“ sem er afrakstur málefnavinnu á vegum félagsins. Fundurinn fer fram í Þinghóli, Kópavogi, og hefst kl. 10. Fundur- inn er öllum opinn. Mosfells- prestakall BARNASTARF verður í safnaðar- heimilinu kl. 11. Guðsþjónusta í Lágafellskirkju kl. 11. Séra Ön- undur Björnsson messar. R A AUGLÝSINGA ATVINNU- AUGLÝSINGAR Matreiðslumaður óskast Hótel Hafnía, Þórshöfn, Færeyjum óskar eftir duglegum, sjálfstæðum og reynslu miklum kokki sem vill reyna eitthvað spenn- andi sem fyrst. • Laun eftir samkomulagi. • Frí ferð. • Frí íbúð. Upplýsingarfást í síma 00 298 11270. Umsókn og meðmæli sendisttil Guðmundar Guðmundssonar, yfirmatreiðslumanns. Hotel Hafnía, postbox 107,110 Thorshófn, Færeyjar. Sími 00 298 11270, fax 00 298 15250. NAUQUNGARSALA Uppboð á bifreiðum verður haldið í dag, laugardaginn 1. nóvember, á Eldshöfða 4, athafnasvæði Vöku hf., og hefst það kl. 13.30. Sýslumaðurinn í Reykjavík. Uppboð Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Bjarkarhlíð 4, Egilsstöðum, þingl. eig. Gísli Bjarnason, gerðarbeiðend- ur Lífeyrissjóður verslunarmanna og Búnaðarbanki fslands, 6. nóvem- ber 1997 kl. 14.00. Sýslumaðurinn á Seyðisfirði. 31. október 1997. TIL. SÖLU Handverksmarkaður á Eiðistorgi Seltjarnarnesi verður haldin í dag frá kl. 10.00 — 18.00 Handverk frá um 60 aðilum til sýnis og sölu. Kaffiveitingar verða á staðnum. Kvenfélagið Seltjörn. FÉLAGSSTARF Kjördæmisráð sjálfstæðis- félaganna á Vesturlandi Aðalfundur kjördæmisráðs sjálfstæðisfélaganna á Vesturlandi verður haldinn í Dalabúð, Búðardal, laugardaginn 8. nóvember nk. kl. 13.00. Dagskrá fundarins: Venjuleg aðalfundarstörf. Sveitarstjórnarkosningarnar 1998. Gestur fundarins verður Björn Bjarnason, menntamálaráðherra. Einnig verða á fundinum þingmennirnir Sturla Böðvarsson og Guðjón Guðmundsson. Stjórn kjördæmisráðs. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF □ Hamar 5997110116 1 H&V Dagsferð Sunnudaginn 2. nóv. Lamba- fellsgjá. Gengið frá Höskuldar- völlum að Sogaseli og norðuryf- ir Jónsbrennur. Brottför frá BSÍ kl. 10.30. Verð 1.200/1.300. Frá Sálar- rannsóknar- félagi íslands Skúli Lórenz, miðill verður með hlutskyggni og skyggnilýsingar í dag, laugardaginn 1. nóvember, kl. 14.00 í Garða- stræti 8. Húsið opnað kl. 13.30. Miðasala við innganginn og á skrifstofunni Garðastræti 8. Verð kr. 1.000 fyrir félagsmenn og kr. 1.200 fyrir aðra. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. FERDAFÉIAG # ÍSLANDS MORKINNI 6 -_SlMI 568-2533 Sunnudagur 2. nóvember kl. 10.30: Ólafsskarðsvegur, gömul þjóðleið (könnunarferð). Skemmtileg ganga um Ólafs- skarð, austan Bláfjalla niður í Ölfus. Verð 1.400 kr. Brottför frá BSl, austanmegin og Mörkinni 6. Þriðjudagur 4. nóvember kl. 20.00: Hressingar- og afmæl- isganga um Eiliðaárdal frá Mörkinni 6. Frí ferð. Rútuferð aðra leið. Um 1,5 klst. - kjarni málsinsl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.