Morgunblaðið - 01.11.1997, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 01.11.1997, Blaðsíða 51
| MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1997 51 ] i I 1 i I í i I 1 < < < i ( ( < ( ( < ( ( I i ( ( ( BRÉF TIL BLAÐSINS „Eg er bara þroskaþjálfi“ Frá Hönnu Dóru Stefánsdóttur og Guðbjörgu Haraldsdóttur: HVAÐ starfar þú núna? Ég er „bara húsmóðir," ég er „bara skúr- ingakona", ég er „bara ruslakarl" og nú bætist nýtt svar við þessari spumingu sem spurð er á hverjum degi í þjóðfélaginu; ég er „bara þroskaþjálfi". Að heyra fólk nota orðið „bara“ um störf sín ætti að banna, því öll störf í okkar þjóðfé- lagi eru svo mikilvæg að við ættum að bera meiri virðingu fyrir störf- um hver annars. An efa gerir al- menningur það. En þá er það kjarni málsins. Hver er það sem ber ekki virðingu fyrir þeim störfum sem nauðsynlegt er að inna af hendi? Jú, okkar vinnuveitendur, sem í okkar tilfelli eru ríkið og Reykja- víkurborg. Þroskaþjálfar hafa staðið í viðræðum við sína viðsemj- endur í tæpt ár um kjaramál og það hvorki gengur né rekur. Hvers vegna skyldu þessar viðræður taka svona langan tíma? Okkar skil- greining er sú að það sé ekki arð- bært að koma fötluðum einstakl- ingi áfram í lífinu. Hvers vegna? Jú, þeir fötluðu eru baggi á þjóðfé- laginu. Þetta er að okkar mati ástæðan fyrir öllum seinagangi í málefnum fatlaðra hér á landi, Hanna Dóra Guðbjörg Stefánsdóttir Haraldsdóttir hvort heldur er um kjaramál þroskaþjálfa að ræða eða að veita þeim fatlaða mannsæmandi líf. Ef um fatlaðan einstakling er að ræða hefur viðkomandi oft ekki þá færni eða forsendur til að berjast fyrir tilverurétti sínum. Hver tekur upp hanskann fyrir þann fatlaða? Ekki ríkisvaldið, það er víst, ónei, aldeil- is ekki. Það eru foreldrar, aðstand- endur, þroskaþjálfar og hin ýmsu félagasamtök svo sem Þroskahjálp, Styrktarfélag vangefinna o.fl. En hvað gerir ríkisvaldið fyrir þetta fólk, sem er svo illa statt að það er látið líða fyrir fötlun sína? Það neitar fötluðum um rétt sinn og nú það nýjasta, að ganga ekki að kröfum þroskaþjálfa og um leið neyða okkur út í verkfall, sem hefst 3. nóvember næstkomandi, verði ekki samið fyrir þann tíma. Á hverjum bitnar þetta? Ekki ríkis- valdinu, nei, þetta bitnar á þeim er síst skyldi, þ.e. þeim fötluðu og foreldrum þeirra. Nú kann einhver að hugsa, ef þetta er svona mikið hugsjónastarf hjá þroskaþjálfum, því eru þeir þá að boða til verk- falls? Jú, við þurfum að lifa eins og aðrir. Á samningaborðinu í dag bíður ríkið okkur rúmlega 82.000 í byrjunarlaun við undirskrift og tæplega 93.000 í byijunarlaun í lok samningstímabilsins, sem væntan- lega yrði um 3 ár. Lái okkur hver sem vill, þó við förum fram á mannsæmandi laun. Staða okkar þroskaþjálfa í dag er sú, að ef við viljum stunda okkar starf af þeirri ánægju og gleði sem það veitir okkur þurfum við að eiga góða fyrirvinnu. Því segjum við upphátt og þó fyrr hefði verið: íslendingar, látum hina fötluðu ekki líða fyrir fötlun sína, stöndum vörð um rétt þeirra sem minna mega sín. Við ríkisvald- ið segjum við: Ykkar er skömmin, því þið eruð að bregðast skjólstæð- ingum ykkar. HANNA DÓRA STEFÁNSDÓTTIR, GUÐBJÖRG HARALDSDÓTTIR, þroskaþjálfar. Verkfall þroskaþjálfa Frá Guðmundi Ragnarssyni: Á LANDSÞINGI Landssamtak- anna Þroskahjálpar 26. október sl. var samþykkt ályktun þar sem vakin er athygli á yfirvofandi verkfalli þroska- þjálfa þriðja nóvember nk. Verkfallið mun hafa í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir fatlað fólk og fjölskyldur þeirra þar sem útlit er fyrir að dagþjónusta og skammtímavistun leggist niður og ráðgjöf og grein- ingarvinna verði af skornum skammti. Öllum dagvistunarstofn- unum verður lokað og útlit er fyr- ir að skammtímavistheimilum verði einnig lokað. Samningaumleitanir Þroska- þjálfafélags íslands og viðsemj- enda þess hafa staðið yfir undan- farna mánuði án nokkurs sýnilegs árangurs á sama tíma og samið hefur verið við nær alla hópa opin- berra starfsmanna. Staða samn- inganna og yfirvofandi verkfall veldur þungum áhyggjum hjá þeim sem verkfall bitnar mest á en það eru þeir sem síst skyldi, fatlað fólk og fjölskyldur þeirra. Ljóst er að ekkert kemur í stað þeirrar þjón- ustu sem leggst niður í verkfalli þar sem hún er mjög krefjandi, sérhæfð og persónubundin. Neyð- arástand er fyrirsjáanlegt hjá sum- um íjölskyldum þar sem engir möguleikar eru á að taka að sér umönnun og þjálfun fatlaðra í fjöl- skyldunni. Það hefur að sjálfsögðu vakið athygli og áhyggjur fatlaðra og aðstandenda þeirra á undanförnum árum að laun þeirra sem starfa með fötluðum í þjóðfélaginu eru ekki há og virðist sem menntun þeirra og starfsreynsla hafi ekki komið fram í launakjörum. Það dregur úr líkum á því að starfs- menn vinni lengi á sama stað en einmitt það er sérstaklega mikil- vægt í þjónustu við fatlaða þar sem oft skapast persónuleg tengsl sem erfitt getur verið að mynda á ný. Það er einnig umhugsunarefni hvort viðhorf og virðing fyrir fötl- uðum endurspeglist að einhveiju leyti í kjörum þessara stétta og ef svo er þarf að snúa við blaðinu hið fyrsta. Eftir því sem næst verður kom- ist eru kröfur þroskaþjálfa þær að fá sambærileg kjör og leikskóla- kennarar sömdu um í nýgerðum kjarasamningi. Nám þessara stétta er jafnlangt og inntökuskilyrði í Þroskaþjálfaskólann og Fóstur- skólann eru svipuð og auk þess bendir allt til þess að þær útskrif- ist úr sama háskóla jafnvel á næsta ári. I ljósi þess virðist meginkrafa þroskaþjálfa sanngjörn og er skor- að á samninganefnd ríkisins og Reykjavíkurborgar að leysa deil- una áður en til verkfalls kemur. GUÐMUNDUR RAGNARSSON, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar. Yfirvofandi verk- fall þroskaþjálfa Frá þroskaþjálfum á Lyngási: VIÐ Safamýri 5 í Reykjavík er stað- sett þjálfunar- og meðferðarheimilið Lyngás. Það er rekið af Styrktarfé- lagi vangefinna en ríkið greiðir laun starfsfólks. Markmið Lyngáss er m.a. að fylgja eftir lögum um mál- efni fatlaðra og lögum Styrktarfé- lags vangefinna. Á Lyngási er 44 alvarlega fötluð- um börnum og unglingum veitt þjón- usta alla virka daga ársins og alltaf eru börn á biðlista. Vegna þessarar sérhæfðu þjónustu á Lyngási er al- gengt að fagfólk komi víðsvegar að til að kynna sér það starf sem þar fer fram. Á Lyngási eru starfandi 16 þroskaþjálfar auk forstöðukonu. Þroskaþjálfar bera ábyrgð á ailri þroskaþjálfun og því starfi sem þar fer fram. Markmið þroskaþjálfa er að koma þeim börnum og unglingum sem þeir annast til aukins alhliða þroska með einstaklingsmiðuðum þjálfun- aráætlunum. Til þess að ná þessu markmiði þarf þroskaþjálfí að til- einka sér þekkingu á mismunandi hugmyndafræði og velja þær aðferð- ir sem hann telur henta hveiju sinni í samstarfi við foreldra/aðstandend- ur og fagfólk á þeim stofnunum sem veita börnunum/unglingunum þjón- ustu. • Þorskaþjáifi hefur umsjón með samningu umsagna, sem gerðar eru um börnin/unglingana 1-2 sinnum á ári. • Þroskaþjálfi sér um faglega handleiðslu meðferðarfulltrúum til handa. • Þroskaþjálfi sér um aðlögun barnanna/unglinganna að samfélag- inu og leitar eftir tómsturidatilboðum sem henta hvetju sinni. • Þroskaþjálfi fylgist með nýjung- um í málefnum fatlaðra og tileinkar sér þær í starfi. Þjálfun barnanna/unglinganna grundvallast í meginatriðum af eft- irfarandi þáttum: - Atferli dagslegs lífs (ADL) til þess að hæfa fatlaða að viðurkennd- um háttum hins daglega lífs og stuðla að auknu sjálfstæði og þroska. - Hreyfiþjálfun, sem byggist á lík- amsþjálfun. Þar vinna þroskaþjálfar í samráði við sjúkraþjálfa. Þjálfunin tekur til einstakra hluta líkamans og samspils í hreyfingu og skynjun. - Skynþjálfun, sem miðar að því að skynja umhverfi sitt og þekkja líkama sinn. - Málörvun, sem miðar að því að örva tjáskipti með málörvandi sam- skiptum, ásamt umhverfís- og at- hafnatengingu orða. - Hugsanamiðlun, sem felur í sér kerfisbundna þjálfun til undirbún- ings leiks og starfs. Lögð er áhersla á að skapa hvetjandi uppeldisum- hverfi miðað við þarfír hvers ein- staklings. Vegna þess hve mörg barnanna eru alvarlega fötluð er umönnun stór hluti af starfinu. Umönnunin felst í því að hlúa að líkamlegri og and- legri velferð og vellíðan barn- anna/unglinganna. Umönnunin fel- ur m.a. í sér: - Daglega umhirðu og fæðugjöf. - Eftirlit með daglegu og almennu heilsufari. - Aðhlynningu. - Eftirlit með hegðunarvandkvæð- um af geðrænum orsökum og með- ferð í samvinnu við lækna og/eða sálfræðinga. - Lyfjagjafir og eftirlit með verkun lyíja skv. fyrirmælum lækna. Nú hafa samningar þroskaþjálfa verið lausir síðan um síðustu áramót og hafa samningaviðræður við samninganefnd ríkisins og Reykja- víkurborgar staðið yfír í um 11 mánuði og ekkert gerst. Félagsmenn í Þroskaþjálfafélagi íslands greiddu því atkvæði um boð- un verkfalls sem á að hefjast hinn 3. nóvember. Allir sem greiddu at- kvæði voru hlynntir verkfalli, og það segir sína sögu um stöðu þroska- þjálfa í dag, því verkfall er alltaf neyðarúrræði. Stór hluti stéttarinnar hefur ekki verkfallsrétt, þeir sem vinna á heimilum, t.d. sambýlum, mega ekki fara í verkfall. Þroska- þjálfar hafa dregist langt aftur úr í launum síðustu árin miðað við sam- bærilegar stéttir og fara þeir fram á leiðréttingu. í dag eru byijunar- laun þroskaþjálfa 74.770 kr. og er það óneitanlega lág laun fyrir fólk sem hefur lokið 3 ára framhaldsnámi á háskólastigi. Þar af leiðandi hefur verið talsverður flótti úr stéttinni og fólk farið utan til að vinna og fleiri eru á leiðinni til staða þar sem upp- eldisstéttir eru betur metnar. Það er skammarlegt þegar fólk hefur menntað sig til sérhæfðra og ábyrgðarmikilla starfa og er ánægt en getur ekki lifað af laununum sín- um. Ef til verkfalls kemur getur það reynst mörgum fjölskyldum mjög erfitt og það vitum við, þess vegna vonum við að til þess komi ekkki. En því miður eiga þroskaþjálfar á Lyngási ekki annarra kosta völ og eru tilbúnir í slaginn. Fyrir hönd þroskaþjálfa á Lyngási, ÁSTA BJÓRNSDOTTIR. STEINAR WAAGE____________ SKÓVERSLUN 'N Langur laugardagur opiö 10-16 1 Tilboð á barnainniskóm Verð 695,- áður frájí^ó,- til 14^5,- Gífurlegt úrval af inniskóm og heilsuskóm á alla fjölskylduna PÓSTSENDUM SAMDÆGURS STEINAR WAAGE # -------------- SKÓVERSLUN SlMI 551 8519 r r-^opptilboð Herraskór - ítalskir Verð áður J^S,- Verð nú: 1.995,- Tegund: 316 Litur: Svartir Stærðir: 40-46 Póstsendum samdægurs Langur laugardagur Opið 10-16 V Ioppskórinn Veltusundi v/ Ingólfstorg, sími 552 1212 Rcropriimt. STIMPILKLUKKUR Sala og þjónusta Otto B. Arnar ehf. ÁRMÚtA 29 • 108 REYKJAVÍK SÍMI 588 4699 • FAX 588 4696
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.