Morgunblaðið - 01.11.1997, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 01.11.1997, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ MIIMIMINGAR + Ástkær eiginkona mín, HANNA SIGRÍÐUR JÓHANNSDÓTTIR, Ásfelli, lést á Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn 29. október. Ágúst Hjálmarsson. t Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar, SIGURÐUR INGI JÓNSSON prentari frá Múla, Vestmannaeyjum, til heimilis í Fannborg 1, Kópavogi, er látinn. Jarðarförin verður auglýst síðar. Heiður Aðalsteinsdóttir, Ólafía Kristín Sigurðardóttir, Vilborg Sigurðardóttir, Kjartan Leifur Sigurðsson, Ólafur Kristinn Sigurðsson, Hlöðver Sigurðsson, Valdimar Sigurðsson, Sigríður Sigurðardóttir, Jón Snorri Sigurðsson. t Móðir okkar, MARÍA SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR frá Þverfelli, Dalasýslu, síðast til heimilis á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, lést mánudaginn 20. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug. Sérstakar þakkir til starfsfólks elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar. HALLVARÐUR GUÐNI KRISTJÁNSSON + Hallvarður Kristjánsson fæddist á Þingvöllum í Helgafellssveit 18. september 1928. Hann lést á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi 14. október síð- astliðinn og fór útför hans fram frá Stykkishólmskirkju 21. október. Þegar slétturnar anga af nýslegnu heyi í lopkvöldsins friði að liðnum degi, þá er þöpin djásnið og dýrasta gjöfin og svæfir sorgina í höfin. Og hið daglanga sumar er dulmálum þrungið, þó ekkert sé talað og ekkert sungið. - Engin orð eru töluð, sem töfrunum grandi, þar sem vinimir mætast í vorsins landi. (Guðm. Böðvarsson) Með þessum orðum viljum við kveðja kæran vin og samferða- mann. Elsku Silla, við vottum þér og fjölskyldu þinni okkar dýpstu samúð. Sigrún, Hafsteinn og Hafrún Brá. ELÍN KARÍTAS THORARENSEN + Elín Karítas Thorarensen fæddist í Reykjavík hinn 27. júní 1934. Hún lést á Land- spítalanum 30. september 1994 og fór útför hennar fram frá Fossvogs- kirkju 12. október 1994. Ég man þig elsku frænka mín hvað yndisleg þú varst og umvafðir mig kærleiksríku geði. Er sorgin nísti hjarta mitt, þú byrðar með mér barst, og breyttir minni hjartasorg í gleði. Og daglega þú reyndir að draga úr minni sorg og dvaldir sem klettur mér við hlið. Þú leiddir mig sem vinur um lífsins fögru borg og lést finna traust hjá þér og frið. Ég lofa Guð af hjarta fyrir ljúf- an tíma þann sem lifðum báðar hér í þessum heimi. Svo fel þig honum sem helga og launa kann í himni sínum blessi þig og geymi. (K.J.) Jakobína Thorarensen. Heiðar Gumundsson, Selma Guðmundsdóttir, Guðbjörg Guðmundsdóttir, Sigurður Guðmundsson og fjölskyldur. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför föður okkar, tengda- föður, afa og bróður, ANDRÉSAR SIGURÐAR SIGURJÓNSSONAR, Aðalstræti 19, Þingeyri. Kristrún Klara Andrésdóttir, Völundur Þorbjörnsson, Guðrún Björg Andrésdóttir, Páll Sævar Sveinsson, Ásta Kristín Andrésdóttir, Guðmundur Páll Andrésson, Sigrún Berglind Andrésdóttir, Sigurjón Hákon Andrésson, Sólveig Sigurjónsdóttir, Ólafía Sigurjónsdóttir, Eifnborg G. Sigurjónsdóttir og fjölskyldur. + Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, INGIBJÖRG HELGADÓTTIR, Fornhaga 11, Reykjavík, verður jarðsungin frá Neskirkju mánudaginn 3. nóvember kl. 13.30. Jóhann Sæmundsson, Elisabet Jóhannsdóttir, Sigtryggur Bragason, Sigrún Jóhannsdóttir, Sigurður Stefánsson, Sæmundur Jóhannsson, Halldóra Jóhannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug viö andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐRÚNAR SIGRÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Brautarholti 1, Ólafsvík. + Innilegar þakkir sendum við öllum er sýndu okkur hlýhug við fráfall eiginmanns míns, föður okkar, afa, sonar, bróður og tengdasonar, SKAPTA GÍSLASONAR, Stekkjakinn 17, Hafnarfirði. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. G. Kolbrún Sigurðardóttir, Erla María Skaptadóttir, Sólrún Linda Skaptadóttir, Koibrún Karen Sigurðardóttir, Sigríður Vilhjálmsdóttir, systkini og tengdaforeldrar. Sigurdór Steinar Eggertsson, Guðmundur Ágúst Sigurdórsson, Sigurlaug Jensey Skúladóttir, Arngrfmur Ómar Sigurdórsson, Unnur Högnadóttir og barnabörn. + Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hluttekningu við andlát og útför bróður okkar, ÞORSTEINS JÓNSSONAR Hátúni 6. Fyrir hönd allra skyldmenna. Sveinn Jónsson Margrét Hansen. Kær frændi og vinur, Hallvarður G. Kristjánsson, er látinn eftir langa og erfiða baráttu við krabba- mein, og því skilja leiðir um sinn. Á tímamótum sem þessum renna minningamar í gegnum huga okk- ar bræðra. Margar ljúfar samveru- stundir í leik og starfi með þér. Það var alltaf gott að vera með þér hvort heldur var í daglegu starfi við bústörfin eða í leik eins og þú vildir kalla það, þegar farið var fram í eyjar í lunda eða að leggja haukalóð fyrir lúðu framan við tangana. Hvoru tveggja var þetta uppbyggjandi fyrir okkur þá unga drengi, því engan hefðum við fengið með okkur lagtækari eða ljúfari til að sýna okkur hvernig bera átti sig til við verkin. Sama má segja um bústörfin, þar sem við fengum báðir mjög ungir að vera með þér í því brauðstriti, aldr- ei hnaut frá þér ónotaorð sama hvert axarskaftið við gerðum, heldur sýnt hvernig betur mætti fara. Þessar stundir munum við geyma hvað best með minningunni um þig. Þetta þökkum við af heil- um hug. Hallvarður Guðni eða Halli á Þingvöllum, eins og flestir þekktu hann bjó á Þingvöllum í Helgafells- sveit lengst af sinni ævi, með við- komu í Grundarfirði fyrstu búskap- arárin, en þar bjó hann um tíma með konu sinni Sigurlínu Gunnars- dóttur frá Eyði í Eyrarsveit. í Grundarfirði stundaði hann sjó- mennsku og önnur störf, t.d. á vetrarvertíðum og síldveiðum, en um síldveiðarnar átti hann skemmtilegar minningar en þær heilluðu hann mjög. Hallvarður og Sigurlín flytjast að Þingvöllum vorið 1958 og hefja búskap þar á móti foreldrum hans, Kristjáni og Maríu, en síðar tóku þau við bús- forráðum. Á Þingvöllum héldu þau áfram þeim myndarlega búskap sem fyrir var og byggðu áfram upp. Allt var þetta með þeim mynd- arbrag að eftir var tekið, t.d. fékk Þingvallabúið viðurkenningu bændasamtakanna fyrir snyrti- mennsku. Það hefur alltaf verið ljúft að koma í heimsókn að Þing- völlum og alltaf mjög gestkvæmt, þar hefur ekki hvað síst átt stóran þátt hlutur Sigurlínar. Hallvarði voru falin ýmis skyldustörf fyrir sína sveit, svo sem sýslunefndar- störf og mörg fleiri trúnaðarstörf enda maðurinn hreinskiptinn og orðheldinn. Það var ekki háttur Hallvarðs að vera að láta skreyta sig rósum en stutt og fátækleg orð að kveðjulokum eru síst um of. Við frændfólkið í Grundarfirði kveðjum kæran frænda, mág og bróður, og biðjum góðan Guð að gefa fjölskyldu hans styrk, og vott- um aðstandendum hans dýpstu samúð. Runólfur og Unnsteinn. Frágangur afmælis- og minning- argreina Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentun- inni. Það eykur öryggi í texta- meðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (5691115) og í tölvu- pósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Auðveldust er móttaka svo- kallaðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru rit- vinnslukerfin Word og Word- Perfect einnig nokkuð auð- veld úrvinnslu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.