Morgunblaðið - 01.11.1997, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ
/52 LAUGARDAGUR L NÓVEMBER 1997
NORÐMENN unnu bronsverðlaun á heimsmeistaramótinu í Tún-
is. Frá vinstri eru Glen Grötheim, Erik Sælensminde, Tor
i Helness, Einar Brenne fyrirliði, Terje Aa, Boye
Brogeland og Geir Helgemo.
jFrakkarnir hafa
tekið forustuna
j BRIDS
Hammamct, Túnis
BERMÚDASKÁLIN OG
FENEYJABIKARINN
1' Heimsmeistaramótið í brids er haldið
í Túnis dagana 18. október til 1.
nóvember.
*| FRAKKAR höfðu náð 38 stiga
* forustu í úrslitaleiknum um
í Bermúdaskálina þegar 96 spil voru
í búin af 16. Staðan var þá 192-154
j fyrir Frakka sem höfðu unnið tvær
síðustu lotumar. Fram að því var
leikurinn jafn og enn eru úrslit hvergi
nærri ráðin; maður hefur það á til-
fínningunni að þessi lið séu það jöfn
að tilviljun ein muni ráða hvort þeirra
hampar Bermúdaskálinni í kvöld.
I keppninni um Feneyjabikarinn í
kvennaflokki virtust Bandaríkin á
góðri leið með að vinna Kína og höfðu
forystu, 180-132, eftir 96 spil af
128, en þeim leik lauk í gærkvöldi.
Norðmenn fengu bronsverðlaun í
opna flokknum þegar þeir unnu A-
i sveit Bandaríkjanna í 32 spila úr-
j slitaleik á fimmtudagskvöldið,
! 97-37. Þá unnu Bandaríkin brons-
j verðlaun í kvennaflokki.
Ólíkur sagnstíll
í
I úrslitaleiknum um Bermúdaská-
; lina skoruðu Frakkar 42 impa gegn
j 33 í þriðju lotunni. Þetta spil sýnir
vel mismunandi sagnstíl liðanna:
Austur gefur, NS á hættu
Norður
♦ 1096
» VÁD62
♦ 976
♦ 862
Vestur
♦ 74
♦ 10543
♦ KD43
♦ D76
Suður
i ♦ ÁDG8532
*G
♦ 10
♦ K953
Við annað borðið sátu Nick Nick-
ell og Richard Freeman NS og Alain
Levy og Christian Mari AV.
Vestur Norður Austur Suður
AL NN CM RF
1 tígull 1 spaði
dobl 2 spaðar 4 hjörtu 4 spaðar
pass pass dobl pass
5 tíglar//
Sjálfsagt hefðu sagnir gengið
svipað við mörg borð á íslenskum
bridsmótum en Nickell í norður hefði
átt að dobla 5 tígla með öruggan
varnarslag. 5 tíglar fóru svo tvo nið-
ur og Bandaríkin fengu 100.
Við hitt borðið sátu Michel Perron
og Paul Chemla NS og Bob Ham-
man og Bobby Wolff AV:
Vestur' Norður Austur Suður
BH MP BW PC
^ 1 hjarta 1 spaði
2 hjörtu pass pass 3 spaðar
pass 4 spaðar/
Hamman og Wolff spila útgáfu
af Bláa laufinu og því opnaði Wolff
á 1 hjarta á fjórlitinn. Á Islandi dytti
engum í hug að passa yfír 2 hjörtum
með norðurspilin, allir segðu a.m.k.
2 spaða. Perron vill hins vegar eiga
‘ vel fyrir sínum sögnum en hann fann
þó hækkun í geim þegar Chemla
stökk í 3 spaða. Nú átti Wolff ekki
fyrir úttektardobli svo Chemla fékk
að spila 4 spaða sem unnust þegar
spaðakóngurinn og laufaásinn lágu
rétt. 620 til Frakka og 11 impar.
Hammanreglan brást ekki
Frakkar skoruðu 59 impa í
fímmtu lotunni í gærmorgun en það
var enginn sérstakur meistarabrag-
ur á þeim í þessu spili:
Vestur gefur, NS á hættu.
Norður
♦ Á982
¥974
♦ 10873
♦ K9
Vestur Austur
♦ D76 ♦ 103
¥ ÁD862 ¥ 105
♦ 4 ♦ KG52
♦ Á763 ♦ 109852
Suður
♦ KG53
¥ KG3
♦ ÁD96
♦ DG
Við annað borðið sátu Franc Mul-
ton og Herve Mouiel AV og Ham-
man og Wolff NS. Wolff beitti Ham-
manreglunni svonefndu: ef nokkrar
sagnir koma til greina og 3 grönd
er ein þeirra þá á að velja hana.
Vestur Norður Austur Suður
FM BH HM BW
1 hjarta pass pass dobl
pass 1 spaði pass 2 spaðar
pass 3 spaðar pass 3 grönd//
Það má vinna 4 spaða með því að
hringsvína spaðanum og bijóta slag
á hjarta þegar tían kemur önnur frá
austri. En Wolff stakk upp á 3 grönd-
um og Hamman passaði auðvitað.
Multon spilaði út hjarta sem Wolff
fékk á gosann. Hann spilaði spaða
á ás og renndi tígulsjöunni yfír, og
þegar hún hélt slag gat Wolff svínað
aftur tígli og spiiað spaðakóng og
meiri spaða og fékk 9 slagi á endan-
um.
Við hitt borðið sátu Jeff Meck-
stroth og Eric Rodwell AV og Mari
og Levy NS:
Vestur Norður Austur Suður
ER AL JM CM
1 hjarta pass 1 spaði! 1 grand
dobl pass 2 lauf pass
3 lauf///
Meckstroth brá sér í „fúlið“ eins
og sagt er og dobl Rodwells lofaði
3-lit í spaða. Levy í norður var und-
arlega þögull og lofaði AV að spila
3 lauf.
Mari spilaði út laufadrottningu
sem Meckstroth drap með ás og spil-
aði tígli á gosa. Suður fékk á drottn-
ingu og spilaði laufi á kóng Levys,
sem spilaði tígli. Meckstroth varð að
trompa í blindum og spila spaða frá
drottningunni. Mari fékk á gosann
og spilaði meiri spaða á ás Levys.
Nú var nóg að spila tígli og neyða
Meckstroth til að trompa í blindum
með síðasta trompinu og hann yrði
þá að gefa vöminni fímmta slaginn
á tígul í lokin. En Levy spilaði þriðja
spaðanum og nú gat Meckstroth
trompað heima, fríað hjartað með
svíningu og trompun og átti svo inn-
komu í blindan á tromp til að taka
fríslagina á hjarta. 110 til Bandaríkj-
anna og 12 impar.
Guðm. Sv. Hermannsson
Austur
♦ K
¥ K987
♦ ÁG852
♦ ÁG10
I DAG
SKAK
Umsjón Marfieir
Pctursson
STAÐAN kom upp á al-
þjóðlega Hellismótinu sem
lýkur í dag. Bragi
Halldórsson
(2.270) var með
hvítt, en Þjóðveij-
inn Christian Wil-
helmi (2.405)
hafði svart og átti
leik. Sá þýski var
að detta í lukku-
pottinn, því Bragi
hafði átt unnið tafl
og lék síðast 48.
Hh7—b7?? sem var
hræðileg yfirsjón.
48. — Dxh2+! og
það var ekki um
annað að ræða fyr-
ir Braga en að gef-
ast upp, því 49.
Kxh2 — Hh4+ er mát.
Fram að þessu hafði
Bragi staðið sig frábærlega
vel á mótinu, unnið þýska
stórmeistarann Hickl og
sænska alþjóðameistarann
Tiger Hillarp—Persson.
Níunda og síðasta um-
ferðin á Hellismótinu fer
fram í dag í félagsheimili
SVARTUR mátar í öðrum leik.
Hellis, Þönglabakka 1, i
Mjódd. Taflið hefst kl. 13.
Með morgunkaffinu
Áster...
... að annast aldraða
ættingja.
TM Reg U.S. P«t. Off. — all ngnt« reservod
(c) 1997 Loa Angelos Times Syndicate
SLEPPTU perlufestinni
þá bara.
HOGNIHREKKVISI
SmekJdmirkans eru Drén'ir /njöqsljénir"
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Fagnar
hækkun á
símakostnaði
SIGURVEIG hringdi og
fagnaði samræmingu
gjaldskrár Póst og síma
og taldi þetta mjög þarft,
sérstaklega fyrir lands-
byggðina.
Sigurveig telur að nef-
skattur ætti að vera á
afnotagjöldum Ríkisút-
varpsins.
Gæludýr
Tappi er týndur
ÞESSI köttur, sem gegn-
ir kallinu Tappi, er týnd-
ur og hans er sárt sakn-
að. Tappi er nýfluttur úr
Kópavogi í Tangahverfi
í Mosfellsbæ. Hann er
ómerktur, þriggja ára,
gulbröndóttur, geldur og
gæfur fress. Oska ég
þess innilega að ef ein-
hver veit um hann Tappa
minn hafí hann samband
við mig í síma 566-8004
eða 898-8022.
Tapað/fundið
Slæða tapaðist
EINLIT ijómalit silki-
slæða (með ofnu
mynstri) merkt Nina
Ricci tapaðist fyrir u.þ.b.
mánuði síðan. Hafi ein-
hver rekist á slæðuna er
hann vinsamlega beðinn
að hafa samband í síma
568-1724.
AF hverju heldurðu að VELKOMINN, félagi.
ég sé árásargjarn? Kanntu ekki tveggja
manna vist?
COSPER
AF hveiju kvartarðu ekki við þjóninn um að maturinn
hafi ekki verið nógu heitur?
Yíkveiji skrifar...
BARNAVÖRUVERZLUN hér í
borg selur vörur frá ítalska
fyrirtækinu Brevi og afhendir við-
skiptavinum sínum bækling frá fyr-
irtækinu, þar sem vörurnar og nota-
gildi þeirra er kynnt. Víkveiji blað-
aði í bæklingnum og hefur frómt
frá sagt sjaldan séð annað eins
samansafn af forneskjulegum for-
dómum um hlutverk kynjanna á
heimilinu og við umönnun barna,
að minnsta kosti ekki í prentuðu
máli frá þessum áratug.
I innganginum er rætt um næm-
an skilning fyrirtækisins á því að
„móðirin þarf að hafa allt við hönd-
ina svo að hún geti annazt barn
sitt á auðveldan og skilvirkan hátt.“
Næst kemur kynning á barnastól-
um, þar sem tekið er fram að nú
sé „kominn tími til að fara úr örm-
um mömmu og í háa stólinn." Brevi,
„sem alltaf hefur boðið mæðrum
upp á öruggar vörur með mikið
notagildi" framleiðir líka burðar-
poka, sem er „tilvalinn bæði fyrir
móður og barn.“ Og á fyrstu dögum
lítils barns „deila móðir og barn
töfrastund, sem síðan breytist í hið
daglega bað.“ Eins og allir vita
hefur „móðirin alltaf áhyggjur af
því að baða barnið, en með IDEA
[baðborðinu] verður þetta allt auð-
veldara og öruggara." Og „með
IDEA getur móðirin baðað barnið
auðveldlega og án nokkurrar hjálp-
ar.“
xxx
EN HVAÐA hlutverk skyldi
aumingja pabba nú vera ætlað
í þessum bæklingi? Eina skiptið,
sem faðirinn er nefndur í tengslum
við umönnun afkvæmisins, er í kafl-
anum um ferðarúm frá Brevi: „WE-
EK-END TOP er þægilegt og nota-
dijúgt fyrir alla fjölskylduna: fyrir
föðurinn þegar hann þarf að setja
það í bílskottið, fyrir móðurina þeg-
ar hún þarf að þvo það...“(!!!)
Og á sextíu og fjórum litprentuð-
um síðum með myndum af brosandi
börnum og vel greiddum mömmum
á háum hælum er ein mynd af
pabba. Hann er að vinna í garðin-
um, áhyggjulaus vegna þess að
BABY MONITOR-tækið frá Brevi
fylgist með hljóðum barnsins. Hvað
er mamma að gera á meðan? Hún
er að „gera húsverkin sín“ innan-
dyra. Víkveiji gæti æpt.
xxx
EITT augnablik datt Víkveija í
hug að hann hefði fengið í
hendur gamlan bækling, til dæmis
frá því á sjötta áratugnum, en það
verður ekki um villzt: á forsíðunni
stendur ártalið 1997 stórum stöf-
um. Getur ekki verzlunin, sem býð-
ur foreldrum upp á þetta forneskju-
taut, fengið nýjan bækling, sem er
saminn fyrir annað og nútímalegra
ástand jafnréttismála en það, sem
virðist æskilegt samkvæmt hugar-
heimi auglýsingamanna Brevi-fyr-
irtækisins, sem virðast vera ítalskar
karlrembur af verstu sort?