Morgunblaðið - 25.11.1997, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Hvalaskoðun
Nýr mark-
hdpur sem
annars
kæmi ekki
ALLS tóku 20.540 manns þátt í
hvalaskoðunarferðum hér við land á
liðnu sumri. Árið áður fóru um 9.700
manns í hvalaskoðun og 1995 um
2.200 manns. Nú bjóða þrettán aðil-
ar á landinu öllu upp á hvalaskoðun-
arferðir en fyrsta árið voru þeir að-
eins þrír. Þetta kom fram á blaða-
mannafundi Hvalamiðstöðvarinnar
á Húsavík í gær, en þar var kynnt
skýrsla Ásbjörns Björgvinssonar,
framkvæmdastjóra miðstöðvarinn-
ar, um hvalaskoðun á íslandi 1997
og úttekt Bjarnheiðar Hallsdóttur
ferðamálafræðings á efnahagslegu
gildi hvalaskoðunar á Islandi.
Fram kom að með hvalaskoðun-
arferðunum væri kominn nýr mark-
hópur ferðamanna, sem annars
myndu ekki koma hingað til lands,
þ.e. þeir sem gagngert koma til ís-
lands til þess að skoða hvali.
Ásbjöm sagði að taka þyrfti efna-
hagslega og pólitískt á spurning-
unni um hvort hefja ætti hvalveiðar
að nýju. „Það gengur aldrei upp að
sýna hval á stjórnborða og skjóta
hann á bakborða," sagði hann.
------»4------
Hlýtt fram
yfir helgi
SPÁÐ er áframhaldandi hlýindum
fram að næstu helgi og jafnvel fram
yfir hana, að sögn Eyjólfs Þor-
bjömssonar, veðurfræðings. Mikil
og stór lægð suður af landinu beini
hlýju lofti til landsins, en norðan af
landinu, milli Jan Mayen og Sval-
barða, er háþrýstisvæði sem kemur
í veg fyrir að lægðir gangi yfir land-
ið.
„Þetta er þriðja vikan sem þetta
er svona. Á meðan þetta ástand rík-
ir emm við hérna í mildu lofti. Þetta
kemur alltaf upp öðm hverju, en af
því að nú er vetur og ætti kannski
frekar að vera kalt og snjór tekur
maður eftir þessu,“ sagði Eyjólfur.
Aðspurður hvort nóvember færi á
spjöld sögunnar vegna hlýinda
sagði Eyjólfur það ekki útilokað.
FRÉTTIR
Viðskipta- og iðnaðarráðherra
Skagafjörður
ákjósanlegur fyrir
olíuhreinsunarstöð
Ganga um
tuttugu
km á dag
FERÐ Suðurskautsfaranna Ólafs
Arnar Haraldssonar, Haraldar
Arnar Ólafssonar og Ingþórs
Bjarnasonar hefur gengið vel, að
því er fram kom þegar þeir töluðu
heim í talstöð í gegnum farsíma í
Patriot Hills á
Suðurskautslandinu aðfaranótt
sunnudags. Þeir gengu af stað 12.
þessa mánaðar. A
laugardagskvöld höfðu þeir lagt
180 km að baki og ganga nú um
20 km á dag. Aðstæður hafa verið
erfiðar, frost 20-25 stig, stöðugur
mótvindur allt að 8 vindstig og
miklir skaflar. Heilsa
þremenninganna og líðan er hins
vegar mjög góð og allur búnaður
í lagi. Á meðfylgjandi mynd, sem
tekin var á Suðurskautslandinu
fyrir helgina, eru þeir að huga að
búnaði sínum í upphafi ferðar.
Þeir Ólafur Örn, Haraldur Örn og
Ingþór báðu í samtalinu fyrir
bestu kveðjur heim.
FINNUR Ingólfsson viðskipta- og
iðnaðarráðherra segist telja að
Skagafjörður sé besti staðurinn fyrir
olíuhreinsunarstöð hér á landi, en
bandarísk-rússneska fyrirtækið
M.D. Seis hefur lýst áhuga á að reisa
slíka stöð hér. Verið er að vinna að
forhagkvæmisathugun og verður
hún tilbúin í janúar nk.
Iðnaðarráðherra sagði eðlilegt að
olíuhreinsunarstöðinni yrði gert að
uppfylla stöngustu mengunarvamar-
kröfur sem Evrópusambandið gerir
til slíkra stöðva.
Finnur sagði að ástæðan fyrir
áhuga á að staðsetja olíuhreinsunar-
stöð á Islandi stafaði af því að til
landsins væri stutt og greið leið frá
nýjum olíulindum í Barentshafi.
Lega Islands skapaði markað fyrir
dísilolíu í Evrópu og markaði fyrir
bensín í Bandaríkjunum. Á íslandi
væru góð hafnarskilyrði fyrir stór
tankskip og möguleiki á hagstæðum
orkukaupasamningi. Olíuhreinsunar-
stöð væri hins vegar ekki orkufrekt
fyrirtæki. Stöð sem ynni úr einn
milljón tonna á ári þyrfti 44 GWst.
Finnur sagði á aðalfundi mið-
stjómar Framsóknarflokksins um
helgina að forsvarsmenn M.D. Seis
væru jákvæðir fyrir því að staðsetja
olíuhreinsunarstöðina á landsbyggð-
inni. Hann sagði að í sínum huga
væri Skagafjörður langákjósanleg-
asti staðurinn ef áform um byggingu
olíuhreinsunarstöðvar hér á landi
gengju eftir. Þar væru góðar iðnað-
arlóðir til staðar og möguleiki á
góðri og sérstaklega djúpri höfn.
Helmingur
telur starf
erlendis
líklegt
HELMINGUR stúdenta við
Háskólann telur líklegt að eftir
nám taki við starf erlendis,
samkvæmt könnun sem Stúd-
entaráð lét gera.
Þegar þeir, sem töldu ólík-
legt að þeir myndu starfa er-
lendis, vom spurðir hvort sú af-
staða mundi breytast byðust
hærri laun kvaðst helmingur
þeirra telja líklegt að vinnunni
erlendis yrði tekið.
Greint er frá könnuninni í
Stúdentablaðinu sem kemur út
í þessari viku. Þar er hún túlk-
uð þannig að rúmlega 70% há-
skólastúdenta telji líklegt að
þeir muni starfa erlendis að há-
skólanámi loknu og að land-
flótti ungs fólks sé því yfirvof-
andi.
Deilur enn uppi vegna umsóknar um atvinnuleyfí fyrir Rúmena
Ráðuneytið boðar hags-
munaaðila til fundar í dag
ÁGREININGUR er enn uppi milli
Norðuráls og eins undirverktaka
þess við álversframkvæmdimar á
Gmndartanga, annars vegar og
Samtaka iðnaðarins og iðnaðar-
mannafélaga hins vegar um mann-
aflaþörf við byggingu álversins á
Grundartanga. Félagsmálaráðu-
neytið hafnaði fyrir nokkm beiðni
Norðuráls um dvalar- og atvinnu-
leyfi fyrir um 60 málmiðnaðar-
menn frá Rúmeníu, sem áttu að
reisa hreinsivirki við álverið.
Beiðnin hefur verið endumýjuð og
er nú sótt um atvinnu- og dvalar-
leyfi fyrir 25 rúmenska starfs-
menn, sem em sérhæfðir í upp-
setningu reykhreinsibúnaðar, sem
undirverktakinn ABB hefur selt
Norðuráli.
í umsókninni er einnig sótt um
leyfi til að flytja inn fleiri starfs-
menn síðar, þannig að samanlagður
fjöldi þeirra geti verið um 50 þegar
framkvæmdir standa sem hæst.
Félagsmálaráðuneytið hefur
boðað fulltrúa Samtaka iðnaðarins,
iðnaðarmannafélaga og Norðuráls
til fundar í ráðuneytinu í dag vegna
þessa máls.
Óttast að tafir verði á
gangsetningu álversins
Þórður S. Óskarsson, starfs-
mannastjóri Norðuráls, segir
stjómendur fyrirtækisins hafa
áhyggjur af því að skortur á sér-
hæfðum mannskap leiði til þess að
tafir verði á framkvæmdum í vetur
sem leitt geti til þess að álverið
verði ekki gangsett á tilsettum
tíma. Gengið hefur verið út frá að
starfsemi í álverinu geti hafist í
júní á næsta ári.
Þórður segir því aðeins sex mán-
uði til stefnu og framkvæmdir
verði að ganga af miklum hraða.
Þörf sé á miklum mannafla við
verk sem úthlutað sé til verktaka
og því talsverð óvissa uppi um
hvort takist að útvega þann mann-
skap sem til þurfi. Vinna við upp-
setningu á hreinsivirkinu við álver-
ið á að hefjast í næsta mánuði og er
ráðgert að verkinu ljúki í vor.
Aðeins verið leitað til
eins íslensks fyrirtækis
„Aðalatriði málsins er að það
bendir ekkert til annars en að ís-
lensk fyrirtæki geti tekið þetta að
sér,“ segir Ingólfur Sverrisson,
deildarstjóri hjá Samtökum iðnað-
arins. Ingólfur segir málið ekki
snúast um hvort skortur sé á ís-
lenskum starfsmönnum til að
byggja hreinsivirkið heldur sé
aðalatriðið það hvort íslensk fyrir-
tækjum er treyst til að standa við
verksamninga og ábyrgðir sem
þeim fylgir. Umrætt verk hefur
ekki verið boðið út hér innanlands.
„Mér er aðeins kunnugt um að
leitað hafi verið til eins íslensks
fyrirtækis vegna þessa verkefnis
og veit ekki til þess að öðrum hafi
verið kynnt þetta verk,“ segir
Ingólfur.
Hann segir að íslensk fyrirtæki,
sem séu reiðubúin að gera verk-
samninga, geri það á eigin ábyrgð
og þau útvegi þann mannafla sem
til þurfi til að vinna þessi verk. Þau
standi og falli með þeim verkum
sem þau taka að sér. Hvort sem
fyrirtækin geti ráðið við þetta ein
og sér eða þurfi að leita í aðra
landshluta eða jafnvel út fyrir
landsteinana til að útvega starfs-
menn, þá sé það þeirra höfuðverk-
ur. „Það fer mest í taugarnar á
okkur að okkur finnst skína í gegn
vantraust á íslenskum fyrirtækjum
og að þau geti ekki axlað þá ábyrgð
sem fylgir því að manna verkefni
sem þau taka að sér,“ segir hann.
Leyfi til hunda-
halds hækkar
NÝ gjaldskrá fyrir hundahald í
Reykjavík tekur gildi um næstu
áramót og felur hún í sér 16-17%
hækkun frá núverandi gjaldskrá.
Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur sam-
þykkti hækkunina á fundi sínum
síðastliðinn fóstudag.
BÆKUR, sérblað Morgunblaðsins
um bækur og bókmenntir, fylgir
blaðinu í dag. Meðal efnis er grein
um hugmyndir Alfreðs Nóbels um
æskilega Nóbelsverðlaunahafa,
kynningarviðtöl við rithöfunda og
umsagnir um nýjustu bækurnar.