Morgunblaðið - 25.11.1997, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
r»ll
"I
Hvað kostar að sam-
eina spítalana?
NÝLEGA var birt
skýrsla innlendra og
erlendra ráðgjafa þar
sem lagt er til að stóru
sjúkrahúsin í Reykja-
vík verði sameinuð í
einn háskólaspítala í
þeim tilgangi að bæta
þjónustu og spara
fjármuni. í skýrslunni
er sjúkrahúsunum,
Landsspítala (LSP)
og Sjúkrahúsi
Reykjavíkur (SHR)
hrósað og talið að þau
veiti sambærilega
þjónustu fyrir lægra Steinn
verð en viðmiðunar- Jónsson
sjúkrahús á Norður-
löndum. Því mætti spyija hvort
þörf sé á svo róttækum breyting-
um sem lagðar eru til í skýrslunni.
Að lokinni sameiningu Landa-
kots og Borgarspítala í SHR má
fullyrða að þrátt fyrir ýmsa erfið-
leika hafi markmið þeirrar sam-
einingar gengið eftir. Bráðaþjón-
usta og sérhæfð starfsemi var
flutt í eitt hús í Fossvogi og við
það sameinað vaktakerfi og sér-
Sameining af þessu
tagi, segir Steinn Jóns-
son, útheimtir mun
stærra húsnæði en hvor
þessara spítala hefur nú
yfir að ráða.
fræðiþekking þessara spítala með
tilheyrandi hagræðingu. Rekstr-
arkostnaður SHR er tæplega 40%
af rekstarkostnaði stóru sjúkra-
húsanna og sparnaður af samein-
ingunni hefur orðið um 400 millj-
ónir króna á ársgrundvelli sam-
kvæmt nýjum útreikningum Þjóð-
hagsstofnunar. Miðað við sam-
bærilegan fjárhagslegan ávinning
ætti stóra sameiningin að skila
rekstrarsparnaði af stærðargráð-
unni 800-1000 milljónir á árs-
grundvelli.
Mikilvægasta skilyrði fyrir að
slík áform náist fram er að stærst-
ur hluti bráðaþjónustu og sér-
hæfðrar starfsemi yrði sameinað-
ur á einum stað rétt eins og við
fyrri sameiningu. Það blasir þó
við að sameining af þessu tagi
útheimtir mun stærra húsnæði en
hvor þessara spítala hefur nú yfir
að ráða. Skemmst er að minnast
viðbragða við tillögum um flutn-
ing lungnadeildar Vífilsstaða á
Landsspítala, en sú tilfærsla var
talin ómöguleg vegna húsnæðis-
þrenginga þar. Þá er húsnæði
SHR í Fossvogi þegar fullnýtt eft-
ir að bráðaþjónusta Landakots
fluttist þangað og daglega liggja
sjúklingar á göngum.
Til þess að ná fram þeim ávinn-
ingi sem sameining gæti haft í för
með sér er nauðsynlegt að leggja
verulega fjármuni í uppbyggingu
á húsnæði annaðhvort á
Landsspítalalóð eða við SHR í
Fossvogi. Líklegt er að kostnaður
við uppbyggingu yrði 7-10 millj-
arðar króna en sparnaður í rekstri
mundi skila þeirri fjárfestingu á
10 árum.
Ef uppbygging á
Landsspítalalóð yrði
fyrir valinu, þyrfti að
byija á að færa Hring-
braut með talsverðum
tilkostnaði en stað-
setning spítalans yrði
eftir sem áður óhentug
langt frá miðju höfuð-
borgarsvæðisins og
vegna umferðar-
þrengsla. Á lóð SHR
er hins vegar landrými
til að koma nauðsyn-
legum byggingum fyr-
ir og skipulags- og
umferðarsjónarmið
mæla með staðsetn-
ingu slysa-og bráða-
þjónustu þar. Ef síðamefnd leið
yrði valin væri bygging Barnaspít-
ala Hringsins á Landsspítalalóð
meiri háttar mistök sem myndu
torvelda allt framhald málsins.
Heilbrigðisráðuneyti ætti því að
fresta þeirri framkvæmd meðan
stefnumótandi umræðum er ólokið.
Þá er ljóst áð sameining með
bráðaþjónustu áfram á tveim stöð-
um mundi ekki skila þeirri hag:
kvæmni sem að ofan greinir. I
skýrslu VSÓ er ekki gert ráð fyr-
ir að sameina bráðaþjónustu á ein-
um stað enda eru flestir sem til
þekkja vantrúaðir á fullyrðingar
um sparnað í þeirri skýrslu.
Nauðsynlegt er að svo mikil-
vægt mál sem þetta fái vandaða
umfjöllun áður en ákvarðarnir
verða teknar. Sameining sem
þessi mundi skerða möguleika á
faglegri og rekstrarlegri sam-
keppni um alla framtíð. Það er
oft sagt að ísland sé of lítið land
til að hafa tvo öfluga spítala en
flest rök mæla með að það sé
æskilegt til að varðveita fjöi-
breytni og valfrelsi í þessari mikil-
vægu þjónustugrein. íslendingar
hafa færri valmöguleika en fjöl-
mennari þjóðir og leita ekki eftir
heilbrigðisþjónustu út fyrir land-
steinana. Áðilar málsins hafa lýst
sig reiðubúna til að vanda til verka
og skoða málið ofan í kjölinn og
væntanlega er umræðan rétt að
byija.
Höfundur er dósent í
lyflækningum við Sjúkrahús
Reykjavíkur.
TILBOÐí
mánaðarins
nóvember: I
Skrautlistar* *
20% afsl.
*Gildir um fjórar algengustu
tegundir lista: A2, D, E og F.
Metraverð á listum:
A2, áður 1 30 kr. Nú 104 kr.
D, áður 1 20 kr. Nú 96 kr.
E, áður 60 kr. Nú 48 kr.
F, áður 90 kr. Nú 72 kr.
M
METRO- AÁÁLARINN
1 SKEIFUNNI 8 • S: 581 3500 • 568 7171
VEGGFOÐRARINN
Útsölustaðir um land allt:
Dropinn, Keflavík ■ Húsasmiðjan, Keflavík • Húsasmiðjan, Hafnarfirði ■ Kvistur, Hverageröi • V.C. Búöin, Selfossi • S.C. BúÖin,
Selfossi • S.C. BúÖin, Hvolsvelli • ReynisstaÖur, Vestmannaeyjum • Kiakkur, Vík ■ KASK, Höfn • KASK, Djúpavogi ■ Hermann
Nielsson, Egilsstööum ■ Nýung, EskifirÖi • K.F. Héraösbúa, Reyöarfiröi • Byggt & Flutt, Neskaupstaö * Verslunin Vík, Neskaupstaö
■ Ingólfur Arason, VopnafirÖi • K.Þ. SmiÖjan, Húsavík • Utaland, Akureyri • KEA, Akureyri • K.F. Skagfiröinga, SauÖárkróki •
K.F. Húnvetninga, Blönduósi • K.F. V-Húnvetninga, Hvammstanga ■ Metró, ísafiröi ■ Byggir, PatreksfirÖi ■ Skipavík, Stykkishólmi
• Hamrar, Grundarfiröi ■ UtabúÖin, Ólafsvík ■ Metró, Borgarnesi ■ Metró, Akranesi • TrésmiÖjan Akur, Akranesi
• •
Landflutningar
J SÁMSKÍP
og vegum
um land allt
Innan sólarhrings til allra
helstu þéttbýlisstaða
landsms.
Hvort sem þú þarft að senda afmælisgjöf,
þvottavél eða hálft tonn af kjöti. Við keyrum
til allra helstu þéttbýlisstaða landsins alla
I
t
t