Morgunblaðið - 25.11.1997, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 25.11.1997, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1997 27 TÓNLIST Gcrdubcrgi EINSÖNGSTÓNLEIKAR Fljtjendur, Ingveldur Ýr Jónsdóttir, mezzosópran og Gerrit Schuil, píanó. Verkefni eftir Granados, Atla Heimi, Bernstein, Ives, Copland, Samuel Barber, Menotti og Kurt Weiil. Sunnudagur 23. nóvember kl. 17. Á LAUGARDAGSKVÖLD upp- lifði undirritaður Ingveldi í hlut- verki Dorabellu í „Cosi“ í íslensku óperunni, þar sem hún túlkaði hlut- verkið með ágætum og undirstrik- aði enn einu sinni ágæta leikhæfi- leika sína. í dag, sunnudag, hélt hún áfram á nótum leikhússins og flutti söngskrá sem að stórum hluta var sótt í leikhústónlist. Fyrsti hluti efnisskrárinnar gat þó tæplega tal- ist til leikhústónlistar, en fyrstu sjö lögin voru úr lagasafninu Tonadillas eftir Enrique Granados, þar sem hann leggur grunninn að sinni þjóð- legu spænsku tónsköpun. Eins og áður er nefnt eru Ingveldi gefnar góðar leiklistargáfur, einnig ágætar tónlistargáfur og lætur því vel að tjá innviði þeirra verkefna sem hún velur sér og slík var því reyndin í þessum spænsku lögum, hvort sem hún túlkaði stúlkuna sem svarar sumum spurningunum syngjandi og lætur ekki setja sig út af laginu eða hún syngur um strákinn sem kemur á gluggann en hleypur niður götuna þegar hann kemur auga á stúlkuna innan við gluggann eða hún syngur um stúlkuna hverrar augnaráð var Tímarit • ALMANAK Hins íslenska þjóð- vinafélags er komið út í 124. sinn, en það kom fyrst út í Kaupmanna- höfn árið 1874. Alla tíð síðan hef- ur almanakið komið út á vegum Þjóðvinafélagsins og nú um langa hríð í samvinnu við Háskóla ís- Jóhannes lands. Auk al- Halidórsson manaksins sjálfs hefur árbók íslands alltaf verið fast- ur liður í ritinu og má finna i alma- nökunum samfellt yfirlit um sögu síðustu 120 ára og ríflega það. Fjallað er um ár- ferði, helstu at- vinnuvegi, stjórn- mál, íþróttir, mannalát og margt fleira. Forseti Hins íslenska þjóðvin- afélags og um- sjónarmaður al- manaksins er Jóhannes Halldórsson cand. mag. Almanak Þjóðvinafélagsins fyrir árið 1998 er 200 bls. Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur hef- ur reiknað og búið almanakið sjálft til prentunar, en árbókina fyrirárið 1996 ritar Heimir Þorleifsson menntaskólakennari. Prentsmiðjan Oddi prentaði ritið, Sögufélag, Fisc- hersundi 3, sér um dreifingu. AI- manakið fæst í bókaverslunum um allt land ogkostar 1.254 kr. Unnt er aðgerast áskrifandi hjá Sögufé- laginu. Heimir Þorleifsson LISTIR Sterkar lýsingar í tónum og fasi svo djúpt að hún varð að líta undan til að fela reiði sína eða þegar efn- ið er þessi klassíska ást, í öllum sínum tilbrigðum, öllu þessu lýsir Ingveldur sterkt í tónum og fasi. Píanóleikur Gerrit Schuil var frá- bær og þó svo að hann fylgdi hverri hreyfingu söngvarans varð manni á að fara að hlusta á píanóleikinn og lenti þá söngvarinn til hliðar. Stemmningu vantaði ekki í flutning laganna, en stemmning þarf ekki alltaf að vera sú rétta og til þess að kunna að dæma um það þarf maður að þekkja uppruna og upp- runalega flutningahefð þessarar tónlistar, sem byggð er á ströngum ryþma og hömdum tilfinningum sem aldrei sleppa lausum taumn- um. Kannske var einmitt það sem mér fannst helst á vanta að syngja aldrei alveg út og sleppa aldrei taumhaldi af þessum innri (spænska) ryþma. En Ingveldur er listakona sem söngvari og þar kemur vafalaust, að hún finnur að listin er voldugust þegar áheyrand- inn skynjar víddir sem aldrei. voru sagðar. Atli Heimir átti „Tíu smálög fyr- ir börn“, lög sem undirritaður heyrði fyrst nú. Atli hefur löngu sýnt ágæti sitt í sönglögum og þekkir tónmálið bæði í gáska og aivöru og voru þessi smálög ein sönnun þess, þótt hvorki væru þau fyrir börn að syngja né að spila og nú sem fyrr leggur hann margar gildrur fyrir hljóðfæraleikarann. Lögin voru mjög skemmtilega flutt af þeim Ingveldi og Gerrit, þó var á mörkunum að píanóið væri ekki of sterkt þegar sterkt var spilað. í leikhúslögum Kurt Weill sakn- aði ég einmitt þessa innri ryþma, sem ég minntist á áðan, án hans er Kurt Weill ekki Kurt Weill, þar er einnig lögmálið að gefa í skyn, en gefa ekki allt í botn, þó var mjög falleg stemmning yfir „Kveðjubréfinu" og „Hve lengi“ var fallega uppbyggt og víst var „Youk- ali“ fallegur endir á söngskránni. Best flutt voru þó kannske arían eftir Barber úr óp. Vanessa og fal- lega vöggu- ljóðið úr óp. The Cons- ul eftir Menotti, þar sem Ingveldur sýndi mjög fallegt neðra svið radd- arinnar. Fáir söngvarar - ef nokkr- ir - voru til að hlýða á þessa ágætu tónleika og spyr maður sig, af hveiju? Á sama hátt hefðu þeir sem taka að sér píanóundirleik með söngvurum, e.t.v. getað lært nokk- uð af meðleik Gerrit Schuil, en heimurinn er nú víst einu sinni svona. Ragnar Björnsson Ertu búinn að skipta um bremsuklossa? Komdu í s TOYOTA Nýbýlavegi 4-8 in.rnnn S. 563 4400 Íslensku almanökin 1998 Ásamt landkynnmgarbókinni Islcind Töfrandi land 11801 íslenska almanakið 11802 Breiða náttúrualmanakið 11803 íslenska náttúrualmanakið 11804 Stóra náttúrualmanakið 11805 jslenska hestaalmanakið 11806 íslenskir fossar (borðalmanak) Island Töfrandi land, vönduð gjafabók með 80 Ijósmyndum frá helstu perlum landsins. Bókin er á 5 tungumálum. ölustaðir: skaverslanir Klippið út og notið við innkaupin. Vandaðar gjafir frá íslandi kaupfélög minjagripaverslanir. lil vina og viðskiptamanna í útlöndum. tengir þig töfrum landsins! Höfðabakki 3 - sími 567 3350 - fax 567 6671 — lAILEOU luglýtingastofa i.BACKMAN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.