Morgunblaðið - 25.11.1997, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1997 4íf
Þrjú fróðleg nt um
fiskveiðar
ÞÓTT íslenskir
fjölmiðlar með Morg-
unblaðið í fararbroddi
segi frá því með stríðs-
fyrirsagnaletri, þegar
útlendingar opna
munninn til stuðnings
veiðigjaldi, þegja
fjölmiðlar vandlega um
það, að íslenska kvóta-
kerfíð er almennt talið
eitthvert hagkvæm-
asta skipulag fisk-
veiða, sem nú stendur.
Þetta kemur skýrt
fram í þremur nýjum,
erlendum ritum, sem
ekki hafa verið kynnt
á íslandi mér vitan-
lega.
Taking Ownership. Property
Rights and Fishery Management
on the Atlantic Coast kom út hjá
Atlantic Institute for Market Studi-
es í Halifax í Nova Scotia 1996.
Sem kunnugt er, hafa fiskveiðar frá
íslenska kvótakerfið,
segir Hannes Hólm-
steinn Gissurarson, er
almennt talið eitthvert
hagkvæmasta skipulag
fiskveiða, sem nú
stendur.
austurströnd Kanada brugðist. Sjó-
menn Iifa á atvinnuleysisbótum
þúsundum saman, og þorskurinn
er horfinn. Höfundar ritsins telja
framtíðarlausnina liggja í kerfi
framseljanlegra aflakvóta. Einn
frumkvöðull fískihagfræðinnar,
Anthony Scott, á þar grein um kosti
eignarréttinda á auðlindum. Ragnar
Árnason, prófessor í fískihagfræði,
lýsir reynslu sex þjóða af ólíku
skipulagi fískveiða. Umhverfís-
vemdarsinninn Elizabeth Brubaker
bendir á, að meginástæðan til
ískyggilegrar mengunar hafsins er
sú, að enginn á tilkall til gæða
hafsins, þar á meðal fískistofna.
Um leið og einhver hins vegar öðl-
ast tilkall til þeirra, mun hann reyna
að minnka mengunina. Þá á hann
beinna hagsmuna að gæta ólíkt rík-
inu og almenningi.
Fish or Cut Bait!
kom út hjá Fraser Inst-
itute í Vancouver í
Bresku Kólumbíu
1997. Fiskveiðar frá
vesturströnd Kanada
eru í mikilli hættu.
Hinu opinbera hefur
með öllu mistekist að
stjórna þeim. Höfundar
þessa rits spyija, hvað
Iæra megi af reynslu
annarra þjóða. Svarið
er: Kvótakerfí er eina
ráðið, sem dugar. Þá
taka veiðimenn að ein-
beita sér að því að taka
afla sinn með sem
minnstum tilkostaði í
stað þess að taka sem mestan afla
á sem skemmstum tíma. Birgir Þór
Runólfsson hagfræðilektor er einn
höfunda, og bendir hann á, að
kvótakerfíð íslenska hefur ekki haft
í för með sér flutning kvóta á suð-
vesturhornið, eins og margir óttuð-
ust. Öðru nær: Það hefur eflt at-
vinnulíf úti á landi. Tom McClurg,
framkvæmdastjóri fískifélags Nýja-
Sjálands, lýsir tíu ára reynslu
Nýsjálendinga af kvótakerfí, sem
er í meginatriðum góð, en þeir
hættu við að innheimta auðlinda-
skatt af útgerðarmönnum árið
1994.
Deep Water: Fisheries Policy for
the Future kom út hjá David Hume
Institute og Edinburg University
Press í Edinborg í Skotlandi 1997.
Þar gagnrýnir Neil McKellar, aðal-
hagfræðingur skosku fiskistofunn-
ar, fískveiðistefnu Evrópusam-
bandsins. Hún er að setja árlegan
heildarkvóta á hvern fískistofn án
þess að úthluta einstökum útgerð-
armönnum framseljanlegri hlut-
deild. Þetta leiðir til þess, að þeir,
sem fá að veiða, reyna að veiða sem
mest á sem skemmstum tíma án
tillits til kostnaðar. Það er því ekki
að furða, að fískveiðar njóta mikilla
ríkisstyrkja víðast í Evrópu. McKell-
ar og aðrir höfundar ritsins telja,
að kerfí framseljanlegra aflakvóta
sé langheppilegast til þess að
tryggja hagkvæma nýtingu físki-
stofna. í því sambandi bendir
McKellar sérstaklega á góða
reynslu íslendinga og Nýsjálend-
inga af slíku kerfí.
Höfundur er prófessor í
stjórnmálnfræði í Háskóla íslands.
Hannes Hólmsteinn
Gissurarson
Frábær fyrirtæki
1. Fiskvinnslufyrirtæki. Til sölu einstök aðstaða. Eigið húsnæði rétt
við hliðina á fiskmarkaði. Tæki og áhöld fylgja. Gott verð, laust
strax.
2. Lítill bar með mikið af spilakössum sem gefa góðan pening. Mjög
lítið verð. Staðsetning í miðborginni. Góð bjórsala.
3. Gjafavöruverslun og blómabúð. Glæsileg og falleg verslun á
mjög góðum stað. Laus strax, mikil ferðamannavelta á sumrin.
4. Mjög fullkomin myndbandaleiga til sölu, sælgætissala. Öll nýjustu
myndböndin, nýjar innréttingar og tölvur og hugbúnaður. Glæsi-
legur staður enda nýr með öllu því nýjasta. Ótrúlega hagstætt
verð ef samið er strax. Einnig selt til flutnings ef vill.
5. Virðulegur og vinsæll kínverskur veitingastaður með austurlensku
yfirbragði. Sæti fyrir 40-50 manns. Gott eldhús með öllum tækjum.
Mjög hagstætt verð. Góð staðsetning.
6. Lítill skyndibitastaður á Laugaveginum sem er opinn eins og
verslanir. Lokaður á sunnudögum. Selur einnig mexíkóskan mat.
7. Mjög glæsileg blómaverslun til sölu í stórri verslunarmiðstöð
á fjölmennum stað, miðsvæðis. Leggur mikla áherslu á afskorin
blóm, blómaskreytingar og gjafavörur. Þekkt verslun á góðum
stað. Laus strax. Góð verslunarsambönd fylgja með.
8. Þekkt gjafavöruverslun á Laugaveginum til sölu strax. Mikið
af nýjum vörum.
Höfum fjársterka kaupendur að góðum heildverslunum.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
miTTTT7iTri7?pyiTvrnn
SUÐURVE R I
SfMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
ÉG VIL þakka Frið-
riki Erlingssyni góða
grein í Morgunblaðinu
hinn 23. okt. sem vakti
mig til umhugusunar
um unglingana, „skríl-
inn“, sem ræður ríkjum
í miðborginni um helg-
ar eins og Friðrik tók
réttilega til orða, er
verndaður með þögn-
inni og aðgerðaleysinu.
Þessir vesalings ungl-
ingar eru sjálfum sér
og öðrum stórhættu-
legir og agaleysi þeirra
þjóð okkar stórlega til
skammar. En hví þessi
þögn og hví þetta að-
gerðaleysi? Vissulega bendir Friðrik
réttilega á, að það þarf að rýma
svona hættusvæði og auka löggæsl-
una til muna. En að mínu mati er
lausnin engan veginn fundin í slík-
um aðgerðum og tel ég að engin
lög né gæsla geti stemmt stigu við
þeirri miklu útbreiðslu vímuefna,
slagsmála og jafnvel glæpa sem
eiga sér stað í þessari fögru borg.
Okkar eigin endurspeglun
Hegðun unglinganna þarfnast
óhjákvæmilega vandaðrar skoðunar
með tilliti til þess að fínna orsökina
fyrir þessu vandamáli. En „skríll-
inn“ á torginu er að sjálfsögðu ekk-
ert annað en börnin okkar sjálfra
sem sköpum þetta þjóðfélag. Eplið
fellur sjaldan langt frá eikinni og
eru þau okkar eigin endurspeglun
og hleypa óhjákvæmilega öllum
okkar eigin misgjörðum upp á yfír-
borðið og endurspegla okkar innri
líðan og hegðun.
Hvar í heiminum má
t.d. fínna önnur eins
helgarfyllirí á fullorðnu
fólki, eins og tíðkast
hér á landi? Og annan
eins aragrúa af
skemmtistöðum sem
allir eru troðfullir af
haugdrukknu fólki sem
virðist þurfa að sleppa
fram af sér beislinu
langt fram undir næsta
morgun? Fullorðna
fólkið virðist ekki
kunna aðrar leiðir til
að fá útrás fyrir sitt
bælda eðli og lokuðu
tilfínningar en að leita
á náðir þessarar fölsku
gleði. Hvemig getum við ætlast til
þess, að óheflaður unglingur, sem
er uppfullur af innri vanlíðan, sitji
heima með góða bók og tónlist um
Unglingar sem ánetjast
vímuefnum, segir Bima
Smith, eruþjáðirvegna
skorts á andlegri nær-
ingu.
helgar? Óttinn við hegningu lag-
anna breytir engu í sambandi við
hegðunarmynstur ungs fólks í dag,
það cr þess innri líðan sem flýtur
upp á yfírborðið og þarfnast útrás-
ar.
Sjálfsímynd þeirra í molum
Unglingar sem ánetjast vímuefn-
um eiga við mikla innri vanlíðan
að stríða og þeir eru þjáðir vegna
„Skrílliim“
á Torginu
Birna Smith
skorts á andlegri næringu, sjálfsí-
mynd þeirra er í molum, þeir era
stöðugt mataðir á neikvæðum frétt-
um utan úr heimi og heimi stjórr^
málanna, framtíðarmöguleik^®'
þeirra svertir, foreldrar þeirra fylla
þá af sektarkennd og lífíð virðist
tilgangslaust. Hafa foreldrar þess-
ara bama gefið þeim tíma og verið
til staðar fyrir þau félagslega og
tilfínningalega og hafa þeir hlustað
á þarfír þeirra? Hvemig eiga þeir
að geta það ef þeir hlusta ekki á
sínar eigin þarfir og tilfinningar,
heldur era stöðugt á flótta frá þeim
sjálfir?
Á meðan þjóðfélagið mætir ungl-
ingunum ekki á annan hátt en með
opnu gæslulausu svæði, þar sem—
mörg þúsund unglingar hópast
saman um helgar og allt flýtur í
áfengi og dópi, er ekki skrítið þó
að upp úr sjóði annað slagið með
óhugnanlegum afleiðingum. Þetta
er eiginlega gildra fyrir hinn særða
ungling. Vínmenning landsins þarf
að breytast og umfram allt þarf
maðurinn að læra að hlú að sjálfum
sér á allt annan hátt en með helgar-
fylliríi og hvað hinn særða ungling
snertir, þarf hann á sálfræðiaðstoð
að halda og tel ég að mörgu slysinu
mætti afstýra ef bömin okkar
fengju betri sálfræðiaðstoð strax á
unga aldri, því betra er að byrgja
branninn áður en bamið er dottið
ofan í.
Megi Guð blessa æsku þessa
lands.
Höfundur er leikskólakennari og
meðferðaraðili.
Blað allra landsmanna!
-kjarni málsins!