Morgunblaðið - 25.11.1997, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1997 51
ATVINNUAUGLÝSINGAR
■n
ADAIBÓKARI
Jökull hf útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki á
Raufarhöfn óskar eftir að ráða aðalbókara til starfa.
Starfssvið
• Umsjón með bókhaldi, afstemmingum,
uppgjöri o.fl. verkefnum.
Hæfniskröfur
• Leitað er að hæfum, töluglöggum einstaklingi
sem getur unnið undir álagi.
• Yfirgripsmikil reynsla og þekking á bókhaldi
skilyrði.
• Hafa metnað í starfi og kunnáttu til að nýta
bókhaldið sem stjórntæki í rekstri.
• Góð tölvukunnátta, sjálfstæð og skipulögð
vinnubrögð.
Nánari upplýsingar veitir Auður Bjarnadóttir hjá
Ráðgarði hf. frá kl. 9 -12 í síma 533 1800.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs fyrir 30. nóvember n.k. merktar:
„Aðalbókari".
RÁÐGARÐUR hf
STJÓRNUNAR- OG REKSTRARRÁÐGJÖF
Furugerði5 108Reykjavík Sími 5331800
Fax: 5331808 Netfang: rgmidlun@radgard.is
Heimasíða: http//www.radgard.is
Frá Menntaskólanum í Reykjavík
Námsráðgjafi
Menntaskólinn í Reykjavík óskar eftir aö ráöa
námsrádgjafa. Um er að ræða heila stöðu
eða tvær hálfar. Æskilegt er að námsráðgjafi
geti hafið störf um áramót.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf berist rektor fyrir 10. desember nk.
Laun eru skv. kjarasamningum starfsmanna rík-
isins. Frekari upplýsingarfást hjá rektor og kon-
rektor í síma 551 4177.
Rektor.
SPARISJÓPUR
REYKJAVIKUR OG NAGRENNIS
Staða útibússtjóra
við útibú Sparisjóðs Reykjavíkur og ná-
grennis í Skeifunni 11, er laustil umsóknar.
Hlutverk útibússtjórans er að hafa yfirumsjón með
rekstri útibúsins, markaðssókn þess, arðsemi,
áhættustjórn og öðru sem snertir rekstur þess.
Umsækjendur þurfa að hafa viðskiptamenntun
eða aðra sambærilega menntun. Stjórnunarr-
eynsla úr atvinnulífinu er æskileg. Leitað er að
aðila sem hefur áhuga á markaðsmálum, hefur
frumkvæði, skipulagshæfileika og góðtöká mann-
legum samskiptum.
Laun samkvæmt kjarasamningum S.Í.B og bank-
anna.
Umsóknum skal skilað til Starfsmannahalds
SPRON, Skólavörðustíg 11,
Reykjavík fyrir 5. desember 1997.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Haraldsson, að-
stoðarsparisjóðsstjóri.
Barn og heimili
Barnagæsla og heimilishjálp óskast á gott
heimili í vesturbæ Reykjavíkur. Starfið felst
í því að gæta 1 árs stúlku og húsverkum.
Vinnutími er frá kl. 8.00—16.00 virka daga.
Við leitum að barngóðri, umhyggjusamri,
snyrtilegri, reglusamri, reyklausri og
ábyrgðarfullri manneskju í þetta starf.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir fyrir
1. des. til afgreiðslu Mbl., merktar: „Umhyggja".
Eldhússtarf
— aðhlynningarstöf
á hjúkrunarheimili Stokkseyri
Óskum eftir að ráða starfskraft til aðstoðar í
eldhús. Um er að ræða 100% starf. Óskum eftir
að ráða starfsfólk í aðhlynningu svo og til af-
leysingar. Þarf að geta starfað sjálfstætt.
Herbergi á staðnum, reyklaus vinnustaður.
Upplýsingar í síma 483 1310 og 483 1213.
Grunnskólinn í Ólafsvík
Grunnskólakennara
og sérkennara
vantar í eftirtalin störf:
7. bekkur: Vegna barnsburðarleyfis: Bekkjar-
umsjón og kennsla bóklegra greina í 7. bekk,
stuðningskennsla.
Heil staða ráðningartími frá og með 1. jan. 1998.
Sérdeild: Heil staða sérkennara í sérdeild
ásamtfagstjórn í stuðnings- og sérkennslu
við skólann, ennfremur stjórnun og leiðsögn
stuðningsfulltrúa.
Ráðningartími frá og með 1. desember nk.
Skólinn greiðir götu nýrra kennara með útveg-
un húsnæðis, leikskólapláss fyrir barnafólk
og niðurgreiðir auk þess húsnæðiskostnað.
Skólinn er einsetinn, þar ríkir góður starfsandi
og vinnuaðstaða kennara er góð.
Leitað er eftir áhugasömu og metnaðarfullu fólki til starfa í framsaekn-
um skóla í öflugri og fallegri sjávarbyggð undir Jökli, þar sem fyrir
starfa hressir og dugmiklir kennarar og starfsfólk, kröftug skólanefnd
og öflugt foreldrafélag sem öll taka vel á móti nýjum liðsauka til
að vinna að markmiðsverkefnum skólans, sem eru m.a.:
■Góður námsárangur, endurskoðun skólanámskrár í kjölfar útgáfu
nýrrar Aðalnámskrár; fagstjórnarvinna við lok þessa skólaárs (júní/júlí
1998); teymisvinna kennara við sjálfsmat skólans næstu 2—3 árin;
og hafa sem endranær áhrif á mótun farsæls samfélags barna og
fullorðinna með þátttöku og framlagi skólans til menningarríks um-
hverfis fólksins í byggðarlaginu.
Þá eru á döfinni önnur spennandi verkefni sem stuðla munu að mark-
vissara og árangursrikara skólastarfi þar sem áhugasamir kennarar
geta m.a. tekið þátt i úrvinnslu og frekari markmiðssetningu, s.s. "C'
vegna fyrirhugaðrar úttektar Rannsóknarstofnunar uppeldis- og
kennslumála á skipan skólamála í Snæfellsbæ, í faglegu-, hagrænu-
og skipulagslegu tilliti, en alls eru reknir 3 grunnskólar í Snæfellsbæ;
bygging nýs íþróttahúss á lóð skólans; framþróun námsumfangs
Fjöibrautaskóla Vesturlands í Snæfellsbæ.
Frekari uplýsingar um störf þessi og starfs-
umhverfi veita: Gunnar Hjartarson, skstj., s.
436 1150/436 1293 og Sveinn Þór Elinbergs-
son, aðstoðarskstj., s. 436 1150/436 1251.
NÓATXJN
Nóatún - Hamraborg
Okkurvantar vanan starfsmann til kjötaf-
greiðslu á kvöldin (kl. 17—19), einnig um helg-
ar, ekki yngri en 25 ára.
Upplýsingar á staðnum í dag, þriðjudaginn
25. nóv., og á morgun, miðvikudaginn 26. nóv.,
milli kl. 17 og 19 (Lárus/Harpa).
R EYKJAN ESBÆR
SlMI 42 I 8700
Kennarar óskast
Við grunnskóla Reykjanesbæjar eru lausar
kennarastöður frá og með 1. janúar nk.
Um er að ræða almenna bekkjarkennslu og
fagkennslu á unglingastigi.
Upplýsingar veitirskólamálastjóri í síma
421 6700.
Starfsmannastjóri.
Rafiðnaðarmenn
Óskum eftir rafiðnaðarmönnum og rafvirkja-
nemumtil starfa við nýbyggingu Norðuráls
á Grundartanga. Um er að ræða fjölbreytt og
krefjandi starf. Möguleiki á góðum launum
fyrir rétta menn.
Lysthafendur leggi inn umsóknir á afgreiðslu
Mbl., merktar: „R — 444", fyrir 28. nóvember.
Elpro sf.
ÝMISLEGT
Hesthús til leigu
Þrjú hesthús við Bústaðaveg eru laustil afnota
í vetur. Hesthúsin rúma 28 hesta hvert og
henta vel fyrir aðila sem vilja slá sér saman
og hirða hesta sína sjálfir.
Allir frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
félagsins í síma 567 2166 eftir kl. 15 eða í síma
899 8230.
Hestamannafélagið Fákur.
Dansherra óskast
Kristín María Tómasdóttir, fædd 1983,155 cm
há, óskareftirdansherra í samkvæmisdönsum.
Kristín María hefur æft samkvæmisdansa frá
fimm ára aldri og keppt í flokki með frjálsri að-
ferðfrá 12 ára aldri. Hún hefur mikinn áhuga
á að æfa vel bæði „standard"- og „latin"-dansa.
Frekari upplýsingar fást í síma 554 5127.
TIL.KVIMIMIIMGAR
Mosfellsbær
Deiliskipulag
Deiliskipulag á landi 9000
-3220 við Krókatjörn.
Tillaga að deiliskipulagi verðurtil sýnis á
Bæjarskrifstofu Mosfellsbæjarfrá 25. nóv. til
16. des. nk.
Deiliskipulag á lóðinni
Áshamrar í Mosfellsbæ.
Tillaga að deiliskipulagi verðurtil sýnis á
Bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar frá 25. nóv. til
16. des. nk.
Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu berast
skriflegartil Skipulagsnefndar Mosfellsbæjar,
Hlégarði, 270 Mosfellsbæ, innan framan-
greinda sýningartíma.
Bæjarverkfræðingur Mosfellsbæjar.
Húsafriðunarsjóður
Húsafriðunarnefnd ríkisins auglýsir eftir um-
sóknumtil Húsafriðunarsjóðs, sbr. ákvæði
þjóðminjalaga nr. 88/1989 sbr. lög nr. 43/1991
og 98/1994 og reglugerð um Húsafriðunarsjóð
nr. 479/1993.
Veittir eru styrkir til að greiða hluta kostnaðar
vegna:
— undirbúningsframkvæmda, áætlanagerðar
og tæknilegrar ráðgjafar og til framkvæmda
vegna viðhalds og endurbóta á friðuðum
húsum og húsum sem hafa menningarsögu-
legt og listrænt gildi
— byggingarsögulegra rannsókna og útgáfu
þeirra.
Að gefnu tilefni er hlutaðeigendum bent á að
leita eftir áliti Húsafriðunarnefndar ríkisins og
sækja um styrk áður en framkvæmdir hefjast.
Umsóknir skulu berast eigi síðar en 1. febrúar
1998 til Húsafriðunarnefndar ríkisins, Þjóðminja-
safni íslands, Suðurgötu 41,101 Reykjavík,
á umsóknareyðublöðum sem þar fást.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 562 2475
milli kl. 10.30 og 12.00 virka daga.
Húsafriðunarnefnd ríkisins.