Morgunblaðið - 25.11.1997, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1997 55
►
►
)
)
I
)
í
>
%
h
I
I
»
ifi
I
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
Staðreyndavillur
Frá Baldri Frey Gústafssyni:
ÞAÐ þarf mikið til, að ég taki mér
penna í hönd til að gefa andsvar í
fjölmiðlum við staðreyndavillum,
einsog þeim sem birtust í bréfi Þor-
steins Guðjónssonar til blaðsins
(fös. 21.) í grein titlaðri „í fijóa
jörð..en þegar ég las það sem
greinarhöfundur setti þar fram
blygðunarlaust, gat ég ekki lengur
á mér setið.
Ekki veit ég hvaðan Þorsteinn
sækir kenningar sínar né vil ég vita
hvernig heimsmynd hann hefur
búið sér til, en augljóst þykir að
hann hefur ekki fylgst með þróun
stjörnufræði eða kosmólógíu síðast-
liðna áratugi og vel það.
Það er dapurlegt að sjá mannleg-
an hroka taka á sig þá mynd sem
dregin var upp í grein Þorsteins
með þessari samtengingu að sið-
ferðisbrestir og trúartilhneigingar
lífvera, sem búa á hnöttóttum leif-
um þess efnis er sólkerfið var mynd-
að úr, geti skipt sköpum í endalok-
um sólstjarna (supernovu-spreng-
ingum) sem eru hrikalegustu nátt-
úruhamfarir í alheiminum.
Hann heldur rökleysunni áfram
og segir Sólirnar (stjörnurnar) ekki
komast yfir þennan „þröskuld"
þartil maðurinn bæti ráð sitt og
taki upp betri breytni í einu og öllu.
Ég vil nota þetta tækifæri til að
tjá Þorsteini, að slíkar sól-spreng-
ingar eiga sér eingöngu stað meðal
massamikilla stjarna (ca. 11-100
sól-massa) sem einnig eru það ung-
ar (ca.10-15 milljón ára) og óstöð-
ugar að í slíkum kerfum gæti líf
ómögulega kviknað, hvað þá heldur
þróast upp í vitsmunalíf. Til saman-
burðar er okkar sólkerfi u.þ.b. 5
milljarða ára gamalt og hefur lífið
hér haft að minnsta kosti 3,5 millj-
arða ára til að þróast til sjálfsmeð-
vitundar.
í raun gat greinarhöf. ekki haft
meira rangt fyrir sér með því að
tengja sprengistjörnur við tor-
tímingu lífs því staðreyndin er sú
að öll þungu frumefnin sem líf
byggir tilvist sína á, urðu einmitt
til í iðrum þessara sömu sprengi-
stjarna. Kalkið í beinunum, járnið
í blóðinu, allt kolefnið og jafnvel
gullið í tannviðgerðunum á tilurð
sína sprengistjörnum að þakka. Án
þeirra værum við ekki hér.
Því má einnig bæta við, lesendum
til huggunar, að sólin okkar er langt
frá því að vera nógu massamikil til
að enda sem sprengistjarna, burtséð
frá því hvernig við mennirnir högum
eða munum haga okkur í framtíð-
inni.
Ég gat varla varist brosi þegar
Þorsteinn skrifaði um „kúluþyrp-
ingar stjarna" (Globular Clusters)
og hvernig hann sagðist aldrei hafa
rekist á nein skrif um sprengistjörn-
ur í þeim. Hann ályktar sem svo
að þar hljóti möguleikar hins illa
að hafa verið gersigraðir og hið
góða væntanlega borið sigur. Stað-
reyndin er sú að „globular clusters"
samanstanda af elstu stjörnum al-
heimsins sem lifa þar annars rólegu
lífi en í fyrndinni voru þar sprengi-
stjörnur einsog annars staðar. Þær
eru aftur á móti löngu horfnar af
sjónarsviðinu úr þeim þyrpingum,
sökum aldursmunar.
Það var þó ekki eingöngu yfir-
gengileg fáfræðin á geimvísindum
sem stakk í augun við lestur grein-
arinnar, heldur hrikalega lélegt álit
greinarhöf. á gáfnafari lesenda.
Þegar svona staðreyndavillur
birtast í íjölmiðlum, þá er best að
leiðrétta þær sem fyrst. Það er
óljúft að hugsa til þess að menn
skuli ennþá halda svona fast í frá-
leitar og hrokafullar kenningar í lok
annars árþúsunds eftir upphaf
tímatals okkar, mörgum öldum eft-
ir að öll rök þeim til stuðnings hafa
verið hrakin, umfram allan efa.
Við búum á lítilli plánetu sem er
á sporbaug kringum ósköp venju-
lega litla gula sól, sem er aðeins
ein af 3-400.000 milljón öðrum sól-
um sem snúast kringum kjama
Vetrarbrautarinnar, sem er aðeins
ein af mörg þúsund milljón slíkum
í Alheiminum.
Við erum merkileg ... en ekki
svo merkileg.
BALDUR FREYR GÚSTAFSSON,
Bakkaseli 6, Reykjavík.
Er til barnabjór,
pabbi?
Frá Guðrúnu G. Bergmann:
ÉG HEF, eins og sennilega margir
aðrir, fylgst dálítið með umljöllun
dagblaðanna og þó einkum Morg-
unblaðsins um áfengis- og vímu-
efnaneyslu unglinga, um drukkna
unglinga í miðbæ
Reykjavíkur, sölu
vímuefna við
skóla á Sel-
tjarnarnesi, um-
fjöllun um nýaf-
staðna ráðstefnu
SÁÁ og forvarn-
aráðstefnu for-
eldra.
Mikið hefur
verið lagt fram
af upplýsingum,
rætt um ýmis boð og bönn, rætt
um að ryðja miðbæinn af drukknum
unglingum og annað i þá veru. Hjá
mér kemur upp sú spurning hvort
við séum enn einu sinni að leggja
okkur fram um að lækna afleiðing-
arnar í stað þess að leita orsakanna.
I tilefni af því rifjaðist upp fyrir
mér samtal sem ég átti við kunn-
ingja minn í haust. Við vorum að
ræða um það hversu dulin áfengis-
neysla væri eftir að sala á bjór var
leyfð í landinu. Alltof margir líta á
bjór „sem bara bjór“ og gleyma
áfengismagni hans. Hann er talinn
„sakleysislegri“ en sterkt áfengi,
þó enginn neiti því að áhrifin eru
þau sömu. Hvorutveggja veldur ölv-
un.
Ég tók sem dæmi nokkrar fjöl-
skyldur sem ég þekkti til og færu
stundum i sumarútilegur með börn-
in sín. Við fyrsta stopp fyrir utan
Reykjavík væri gjarnan tekinn upp
bjór. Þegar komið er á tjaldstæði
eða í bústað, er drukkinn bjór á
meðan grillað er. Með matnum er
síðan rauðvín og á eftir írskt kaffi
eða aðrir áfengir drykkir. Miðað við
þessa neyslu mætti ætla að börnin
fengju litla sem enga athygli og
þegar komið væri fram á kvöldið
væru foreldrarnir í raun óhæfír til
að sinna þeim. Kunningi minn brosti
við og sagði að sjö ára sonur hans
hefði spurt sig að því í sumar þeg-
ar þeir voru í útilegu, hvort ekki
væri til barnabjór. Eg missti málið
augnablik og gat svo ekkert annað
sagt en: „Vá! Sjáðu hversu sterk
fyrirmyndin er.“ Hann vildi svo
mikið verða eins og pabbi að hann
vantaði barnabjór til að verða full-
komin eftirmynd. Og þegar vinur
minn hafði sagt þetta brá honum
líka, því hann hafði ekki gert sér
grein fyrir þessari hlið málsins fyrr.
Við sem foreldrar erum fyrir-
myndir, hvort sem við erum góðar
eða slæmar fyrirmyndir og því verð-
um við að gæta að eigin neyslu,
áður en við getum ætlast til að
börnin geri betur en við. Ég held
nefnilega að ef ryðja á miðbæinn
af ölvuðu fólki um helgar, þá verði
í þeim hópi ekki bara unglingar,
heldur myndi allnokkur fjöldi af
fullorðnu fólki slæðast með. Ef við
beinum sjónum okkar að orsökinni
hlýtur meðferð og neysla áfengis
hjá foreldrum að þurfa að dragast
stórlega saman til að unglingar
breyti neyslu sinni.
GUÐRÚN G. BERGMANN,
leiðbeinandi, rithöfundur og áhuga-
maður um bætt og betra mannlíf á
íslandi.
BÓKHALDSHUGBÚNAÐUR
fyrir WINDOWS
Yfir 1.200
notendur
gH KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 - Sími 568 8055
www.treknet.is/throun
Guðrún G.
Bergmann
Hvers eiga heilbrigð
börn að gjalda?
Frá Þóru Emilsdóttur:
SONUR minn er fæddur í mars
’94. Hann hefur verið á biðlista
eftir heilsdags plássi á leikskóla í
rúm þrjú ár hjá Dagvist barna í
Reykjavík. Hann er ekki for-
gangsbarn, hann er heilbrigður
og á heilbrigða foreldra sem eru
í hjónabandi, sakir þess má hann
sitja á hakanum. Við foreldrarnir
gætum sett á svið skilnað að
hætti margra, sem þá leið kjósa
til að stytta sér leið, en við kærum
okkur ekki um það. Hann hefur
verið á góðum einkareknumm
leikskóla síðan hann var eins árs.
Þar eru börnin flest á aldrinum
eins til tveggja ára og á hann því
tæpast samleið með þeim. Það er
erfitt fyrir fóstrurnar að sinna
þörfum barns sem er á öðru
þroskastigi þegar allur dagurinn
fer í að sinna ungbörnum. Ég
spyr því hvort rétt sé gagnvart
honum að hann verði kominn vel
á fimmta árið þegar hann fær leik-
skólapláss hjá Reykjavíkurborg?
Er það ekki yfirlýst stefna að öll
börn geti komist á leikskóla
þriggja ára?
ÞÓRA EMILSDÓTTIR,
Veghúsum 1, Reykjavík.
TILBOÐ
Nýja myndastofan
Laugavegi 18,
sími 551 5125
Eiga sérhagsmunir að
einoka almenning?
Frá Páli V. Daníelssyni:
ÞAÐ VAR lærdómsríkt að hlusta á
umræðuna í sjónvarpinu um að flýta
klukkunni um klukkutíma yfir sum-
artímann til viðbótar því sem nú
er. Merkilegast var að þeir sem
vildu flýta klukkunni vísuðu nær
eingöngu til þröngra sérhagsmuna
máli sínu til stuðnings. Það var
ekki hlustað á þau rök að tíminn
er innbyggður í lífið umhverfis okk-
ur. Þess vegna gæti það haft heilla-
vænlegri áhrif að seinka klukkunni
heldur en að flýta henni.
Margt er rannsakað nú til dags
og mætti skoða hvaða áhrif það
hefur á heilbrigði og velferð fólks
þegar það þarf að fara eftir klukku
sem er langt frá því sem hnattstað-
an segir til um. E.t.v. finnum við
ekki slíkan mun á meðan heilsa og
þrek er í lagi. En hvað um þá sem
viðkvæmir eru eins og t.d. börn,
aldrað fólk og lasburða, sjúkt fólk
og þá ekki síst þá sem geðsjúkir
eru eða búa við viðkvæmt tauga-
kerfi? Þurfum við ekki að fara með
gát í því að heimta breytingar sem
okkur henta ef það kemur þeim illa
sem búa við margs konar þjáningar?
Fyrir nokkrum áratugum var
sólmyrkvi hér á landi. Ég fór þá
austur í Dyrhólaey en þar var al-
myrkvi. Það var mjög lærdómsríkt.
Ekki aðeins að sjá almyrkvann,
heldur að upplifa áhrif hans á um-
hverfið. Kindur, sem voru á beit,
lögðust, fuglarnir þögnuðu og við
fundum fyrir því hvað kólnaði og
dimmdi. Náttúran lagðist í dvala.
Þannig kom skýrt fram hve mikil
áhrif sólin og sólargangurinn hefur
á lífið á jörðinni. Og þegar sól-
myrkvinn leið hjá var eins og lífið
kviknaði að nýju jafn skjótt og á
því hafði slokknað áður. Þetta
kenndi mér að við ráðum ekki við
náttúruöflin. Og hnattstöðu og sól-
argangi verður ekki breytt með
lagasetningu.
Fram kom í þættinum að breyting
á klukkunni bætti um fyrir ferða-
mönnum. Hvaða ferðamönnum? Er ^
hægt að stunda ferðalög og ferða-
mennsku þannig að ekki þurfí að
taka tillit til hnattstöðunnar? Og
geta eldhressir golfmenn ekki haft
sveigjanlegan vinnutíma þannig að
þeir byiji klukkan 7 að morgni og
hætti klukkutímanum fyrr til að iðka
íþrótt sína? Getur fólk með sérþarfír
ekki hagrætt tíma sínum í samræmi
við birtuna þótt ekki séu sett sérstök
lög er þvinga allan almenning til að
lúta sérþarfahópum? Og varla er
eðlilegt að stilla klukkuna eftir hæð
fjalla á einum stað. Siglfírðingar
ættu t.d. að geta hagað vinnutíma
sínum í samræmi við hæð fjallanna
sé það þeim til hagsbóta. Varla halda
menn að hægt sé að hafa einn og ^
sama tíma um allan heim þótt sam-
staða næðist um löggjöf í því efni?
Og ég hélt nú að hinn ágæti þing-
maður vildi sem mest frelsi einstakl-
ingsins og þvinga hann ekki lengra
frá uppruna sinum og umhverfí en
orðið er til að þóknast fámennum
sérhagsmunahópum.
PÁLLV. DANÍELSSON,
viðskiptafræðingur.
TI1J30Ð
JZjóómyiulaatafu
(fiuuuvta Jtujittuutó a muvt
Suðurveri, sími 553 4852
VINKLAR A TRÉ
HVERGI LÆGRI VERÐ
ÞÝZKIR GÆÐAVINKLAR
OG KAMBSAUMUR
ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI
£8 Þ.ÞORGRIMSSON & CO
Ármúla 29 - Reykjavík - sími 553 8640
€
t
\
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Verð frá kr. 7.495 • Stœrðir 36-41 • Litur Svartur
5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR • PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
í
V
STEINAR WAAGE ^
SKÓVERSLUN
SÍMI 551 8519 ^
STEINAR WAAGE
SKÓVERSIUN ^
SÍMI 568 9212 ^