Morgunblaðið - 25.11.1997, Page 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
k ■>
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sóiíiS kt. 20.00:
FIÐLARINN Á ÞAKINU - Bock/Stein/Hamick
Fös. 28/11 uppselt — lau. 6/12 nokkur sætl laus.
GRANDAVEGUR 7 - Vigdís Grímsdóttir
Leikgerð: Kjartan Ragnarsson og Sigríður M. Guðmundsdóttir.
8. sýn. fim. 27/11 uppselt — 9. sýn. lau. 29/11 uppselt — 10. sýn. sun. 30/10 örfá sæti
laus — 11. sýn. fim. 4/12 nokkur sæti laus — 12. sýn. fös. 5/12 örfá sæti laus — sun.
7/12.
SmiiaVerkstœiii kt. 20.00:
KRABBASVALIRNAR — Marianne Goldman
Lau. 29/11 — lau. 6/12. Síðustu sýningar. Ath. sýningin er ekki við hæfi bama.
Sýnt i Loftkastalanum kt. 20.00:
LISTAVERKIÐ - Yasmina Reza
Fös. 28/11 -fös. 5/12.
Miðasalan eropin mán.-þri. 13—18, mið.-sun. 13—20.
Símapantanir frá ki. 10 virka daga.
fös. 28/11 kl. 20.00 örfá sæti laus
laugardaginn 29/11 kl. 23.15.
föstudagur 5/12 kl. 20
föstudagur 12/12 kl. 20
Síðustu sýningar fyrir jól
[ „Snilldarlegir kómískir taktar leikaranna.
j>au voru satt að segja morðfyndin."(SA.DV)J
Ósóttar pantanir seldar daglega.
[ýÍAfr j
ALLTAF FYRIR OG EFTIR LEIKHÚS KRINGLUKRÁIN
í MAT EÐA DRYKK - á góðri stund
LIFANDI TÓNLIST ÖLL KVÖLD
ISLKNSKA OI'I IÍW
iiiii
sími 551 1475
COSl FAN TUTTE
,,Svona eru þær allar“
eftir W.A. Mozart
Fös. 28. nóv.
Allra síðasta sýning.
Sýning hefst kl. 20.00.
Nýtt kortatímabil.
„Hvílík skemmtun — hvílíkur gáski
— hvílíkt fjör — og síðast en ekki
síst, hvílík fegurð! DV 13. okt.
Dagsljós: * * *
Miðasalan er opin alla daga nema
mánudag frá kl. 15—19
og sýningardaga kl. 15—20.
Sími 551 1475, bréfs. 552 7384.
Nýjung: Hóptilbod íslensku óperunnar
og Sólon íslandus i Sölvasal.
SÍMSVARI í SKEMMTIHÚSINU
LISTAVERKIÐ
Sýning Þjóðleikhússins
fös. 28. nóv. kl. 20
fös. 5. des. kl. 20
VEÐMÁLIÐ
Næstu sýningar milli jóla
og nýárs.
ÁFRAM LATIBÆR
lau. 29. nóv. kl. 14 örfá sæti laus
sun. 30. nóv. kl. 14 uppselt
kl. 16 uppselt — síðasta sýning
Á SAMA TÍMA AÐ ÁRI
lau. 29. nóv. kl. 20 örfá sæti laus
sun. 7. des. kl. 20
Ath. aðeins örfáar sýningar.
Miðasala s. 552 3000, fax 562 6775
Miðasala opin 10 — 18, helgar 13—18
Ath. Ekki er hleypt inn i sal eftir að sýning
er hafin.
Ástarsaga
27/11 kl. 20.00.
Síðasta sýning í nóvember.
Miðasala í Herrafataverslun Kormáks
og Skjaldar, Skólavörðustig 15,
sími 552 4600,
SKEMMTIHUSIÐ
LAUFÁSVEGI 22 S:552 2075
LEIKSTJÓRINN Jeane-Pierre Jeunet, Sigourney Weaver, Win-
ona Ryder og Michael Wincott.
Geimveruupprisa frumsýnd
KVIKMYNDIN „Alien Resurrecti-
on“ var frumsýnd í Los Angeles
nú á dögunum. Sem fyrr er það
Sigourney Weaver sem leikur her-
manninn Ripley sem á í eilífðar-
baráttu við geimverur.
Önnur aðalhlutverk leika Win-
ona Ryder, Ron Perlman og Mich-
ael Wincott en það er Frakkinn
Jeane-Pierre Jeunet sem leikstýrir.
Þetta er fjórða geimverumyndin
um Ripley en hinar þrjár hafa
notið mikilla vinsælda um allan
heim. Stjörnur myndarinnar
mættu að sjálfsögðu á frumsýn-
inguna, ánægðar með heildarút-
komuna.
WINONA Ryder ásamt vin-
konu sinni Claire Danes á
frumsýningunni.
FÓLK í FRÉTTUM
Síðustu orð Díönu þjáningarfull
ANDLÁTSORÐ Dí-
önu prinsessu voru
þjáningarfull, að sögn
Frederick Mailliez,
fransks læknis sem
var fyrstur á slysstað
í París. Hann greinir
frá þessu í viðtaii sem
birtist síðastliðinn
laugardag í dagblað-
inu The Times.
Mailliez segist hafa
komið að fallegri
ungri konu með hnén
kiemmd föst milli
fram- og aftursæta
Mercedes-bif reiðar.
Hann hefði ekki gert
sér ljóst að hún væri
prinsessa fyrr en síð-
ar. Hins vegar hefði
hann greint að hún
væri ensk á örvænt-
ingarfullum þjáning-
arorðum hennar.
„Eg reyndi eins vel
og ég gat að róa hana
og spyrja hvar sárs-
aukinn væri,“ segir
hann. „Ég sagði að
sjúkrabifreiðin kæmi
fljótlega á vettvang
og að allt færi vel, -
allt sem maður segir
við þann sem á um sárt að binda.
Hún hélt áfram að tala um
hversu mjög hún þjáðist á með-
an ég setti endurlífgunargrímu
yfir munninn á henni.“
Mailliez segir ennfremur: „Ef
hún sagði einhver önnur orð
meðan á þessu stóð man ég þau
ekki og myndi hvort eð er ekki
ljóstra þeim upp. Það ríkir trún-
aður á milli læknis og sjúkl-
ings.“ Að síðustu segir hann:
„Eg vona að henni hafi liðið
betur og að hún hafi heyrt hvað
ég sagði. Ég veit ekki hvort svo
var en að minnsta kosti gerði
ég mitt besta.“ Mailliez segir að
hún hafi misst meðvitund
skömmu síðar og aldrei komist
aftur til meðvitundar. Hún dó
síðar á spítala úr miklum inn-
vortis meiðslum.
Miklar deilur hafa stað-
ið um andlátsorð Díönu.
Fyrstu fregnir hermdu að
hún hefði verið meðvit-
undarlaus alveg frá því
hún lenti í árekstrinum,
en franskt dagblað
greindi frá því að hún
hefði hrópað: „Guð minn
góður, látið þið mig í
friði, látið þið mig í friði!“
Talsmaður Mohamed
A1 Fayed, föður elskhuga
Díönu, Dodi A1 Fayed
sem lést í árekstrinum,
sagði á blaðamannafundi
skömmu eftir slysið að
Díana hefði borið fram
síðustu óskir á slysstaðn-
um. Fjölskylda hennar
neitaði að trúa þeim yfir-
lýsingum.
Mailliez segist hafa
orðið var við fólk sem var
að sniglast í kringum bíl-
inn með langar linsnr, en
það hefði ekki gert til-
raun til að skerast í leik-
inn. „Það var þarna en
ekki uppáþrengjandi eða
til vandræða. Allar sögur
um annað eru uppspuni."
Hann sagðist hafa ver-
ið hundeltur af blaða-
mönnum eftir slysið sem hefðu
boðið háar upphæðir fyrir sögu
hans af síðustu augnablikum í
lífi Díönu. „Mér byrjaði að líða
örlítið eins og henni hlýtur að
hafa liðið.
Ég gat hvergi farið án þess
að blaðamenn gerðu mér lífið
leitt og hefðu í hótunum. Maður
verður óneitanlega mjög tauga-
veiklaður."
BÍÓIIM í BORGIIMIMI
Sæbjöm Valdimarsson / Amaldur Indriðason / Anna Sveinbjamardóttir
BÍÓBORGIIM
Marvin’s Room ★ ★★
Meryl Streep og Diane Keaton í fínu
formi í tilfinningadrama um flöl-
skyldutengsl, ábyrgð og ást.
Hefðarfrúin og umrenningurinn
★ ★ ★
Hugljúf teiknimynd frá Disney um
rómantískt hundalíf. Prýðileg af-
þreying fyrir alla ijölskylduna og ber
aldurinn vel, var frumsýnd árið
1955.
Contact ★ ★ ★ 'A
Zemeckis, Sagan og annað einvalalið
skapar forvitnilega, spennandi og
íhugula afþreyingu sem kemur með
sitt svar við eilífðarspurningunni
erum við ein? Foster, Zemeckis og
Silvestri í toppformi og leikhópurinn
pottþéttur. Hollywood í viðhafnar-
gallanum og í Óskarsverðlaunastell-
ingum.
SAMBÍÓIIM, ÁLFABAKKA
Walking and Talking ★ ★ ★
Mynd um mannleg samskipti sem
ristir ekki djúpt en er fyndin og hitt-
ir oft naglann á höfuðið.
Pabbadagur ★★
Tveir afburða gamanleikarar hafa
úr litiu að moða í veikburða sögu í
meðalgamanmynd um táning í til-
vistarkreppu og hugsanlega feður
hans þijá.
Air Force One ★ ★ ★
Topp hasarspennumynd með Harri-
son Ford í hlutverki Bandarikjafor-
seta sem tekst á við hryðjuverka-
menn í forsetaflugvélinni. Fyrirtaks
skemmtun.
Conspiracy Theory ★ ★ 'A
Laglegasti samsæristryllir. Mei Gib-
son er fyndinn og aumkunarverður
sem ruglaður leigubílstjóri og Julia
Roberts er góð sem hjálpsamur lög-
fræðingur.
Perlur og svín ★ ★ 'A
Óskar Jónasson og leikarahópurinn
skapa skemmtilegar persónur en
töluvert vantar uppá að söguþráður-
inn virki sem skyldi.
Volcano ★★
Allra sæmilegasta hamfaramynd, á
köflum fyndin og flott en sjaldan
sérlega ógnvekjandi eða skelfileg.
Hefðarfrúin og umrenningurinn
★ ★★ Sjá Bíóborgina.
Batman & Robin ★
Leðurblökumaðurinn flýgur lágt í
fjórða innlegginu um ævintýri hans.
Eini leikarinn sem virkilega nýtur sín
er Uma Thurman sem náttúru-
vemdarsinni. George Clooney er
hreint út sagt vonlaus í aðalhlutverk-
inu.
HÁSKÓLABÍÓ
Event Horizon ★ ★ 14
Spennandi og oft vel gerður
geimtryllir sem tapar nokkuð fluginu
í lokin.
The Peacemaker ★★14
The Peacemakerer gölluð en virðing-
arverð tilraun til að gera metnaðar-
fulla hasarmynd um kjarnorkuógnina
og stríðshijáða menn.
Austin Powers ★ ★
Gamanmynd Mike Myers er lagleg-
asta skemmtun þó erfiðlega gangi
að gera grín að James Bond myndun-
um og myndin líði fyrir ofuráherslu
á neðanbeltisbrandara.
Perlur og svín ★ ★ 14
Sjá Sambíóin, Álfabakka.
KRIIMGLUBÍÓ
L.A. Confidential ★ ★ ★ 14
Frambærilegri sakamálamynd en
maður á að venjast frá Hollywood
þessa dagana. Smart útlit, laglegur
leikur og ívið flóknari söguþráður en
gerist og gengur.
Air Force One ★ ★ ★
Sjá Bíóborgina.
Brúðkaup besta vinar mins
★ ★★ Sjá Stjörnubíó.
Hefðarfrúin og umrenningurinn
★ ★★ Sjá Bíóborgina.
LAUGARÁSBÍÓ
Most Wanted ★ ★
Samsærismynd þar sem söguhetjan
á í höggi við bandarísku þjóðina,
mínus einn. Hröð en heilalaus.
Wilde ★★★
Að sumu leyti vönduð mynd um
ástir og raunir breska skáldsins
Osears Wilde setur samkynhneigð
hans á ómarkvissan oddinn en orð-
snilldin nýtur sín á milli. Afburða
vel leikin af Stephen Fry og flestum
öðrum.
The Peacemaker ★ ★ 14
Sjá Háskólabió.
Money Talks ★ ★
Fislétt formúlumynd um tvo ólíka
náunga - annar hvítur hinn svartur
- sem koma sér í margvíslegan
vanda. Léttmeti af gamarispennu-
ættum sem fær mann að vísu sjald-
an til að hlæja af öllu hjarta en aldr-
ei beint leiðinleg.
REGIMBOGIIMIM
Með fullri reisn ★ ★ ★
Einkar skemmtileg og fyndin bresk
verkalýðssaga um menn sem bjarga
sér í atvinnuleysi.
Allir segja að ég elski þig ★ ★ ★
Bráðskemmtileg mynd frá Woody
Allen þar sem ólíklegustu leikarar
hefja upp raust sína.
María ★ ★ ★
Lítil og ánægjuleg mynd sem tekst
í aðalatriðum að segja hálfgleymda
örlagasögu þýsku flóttakvennanna
sem komu til landsins eftir seinna
stríð.
STJÖRNUBÍÓ
Auðveld bráð ★ ★ ★
Kraftmikil gamanmynd um tvo nú-
tíma Hróa hetti. Þeir stela að sjálf-
sögðu frá ríkum en styrkja eingöngu
sjálfa sig enda atvinnulausir.
Ráðabruggið ★!4
Undarleg mannránssaga og lítt
áhugavekjandi nema Benetio Del
Toro er ágætur.
Brúðkaup besta vinar míns
★ ★ ★
Ástralinn J.P. Hogan heidur áfram
að hugleiða gildi giftinga í lífi nú-
tímakvenna. Þægileg grínmynd sem
leyfir Juliu Roberts að skína í hlut-
verki óskammfeilins og eigingjarns
matargagnrýnanda.