Morgunblaðið - 07.02.1998, Page 2
2 LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sjö ára fangelsi fyrir tilraun
til manndráps og líkamsárás
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær 41 árs gamlan mann,
Tryggva Sigfússon, í sjö ára fang-
elsi fyrir tilraun til manndráps og
líkamsárás í Hafnarstræti í Reykja-
vík aðfaranótt sunnudagsins 21.
september síðastliðins. Maðurinn
stakk tvær stúlkur með hnífi og
hlaut önnur þeirra lífshættulega
blæðingu af.
Auk fangelsisvistarinnar var
maðurinn dæmdur til að greiða
annarri stúlkunni 236 þúsund krón-
ur fyrir miska, fatatjón og lögfræði-
kostnað, en bótakröfu hinnar
stúlkunnar var vísað frá dómi á
þeirri forsendu að svo skammt sé
liðið frá árásinni að ekki séu tök á
að meta varanlegt líkamstjón henn-
ar eða varanlegan miska. Þá þyki
ekki fram komnar í málinu nægjan-
legar upplýsingar til að dæma
miskabætur.
Ákærði og félagi hans, sem báðir
voru drukknir, lentu í ýfingum við
ungt par fyrir utan kaffihúsið Café
au Lait í Hafnarstræti, og otaði
maðurinn skyndilega hnífi að
stúlkunni, sem er 17 ára, og stakk
hann hana í kviðinn. Eftir árásina
hljóp hann í burtu og skömmu síðar
varð á vegi hans annað par og stakk
hann stúlkuna, sem er tvítug,
þannig að hnífsblaðið gekk inn í
hjarta hennar. Var stúlkan við
dauðans dyr þegar hún komst undir
læknishendur, en parið komst að
miðborgarstöð lögreglunnar í Toll-
húsinu og elti maðurinn þau þangað
með hnífinn á lofti. Lögreglumenn
komu parinu undan og yfirbuguðu
árásarmanninn.
I gögnum héraðsdóms kemur
ekki annað fram en að stúlkan sem
maðurinn stakk fyrst hafi náð full-
um líkamlegum bata eftir árásina að
undanskildu öri eftir hnífstunguna,
en óljóst sé hverjar langtimaafleið-
ingar áverka á hjarta hinnar
stúlkunnar kunni að verða.
Sannað þykir að ákærði hafi veist
að fyrri stúlkunni og stungið hana
tilefnislaust og af ráðnum hug með
hnífi í brjóstið, en hins vegar verði
að teljast ósannað að með honum
hafi búið ásetningur til þess að ráða
stúlkunni bana. Með árásinni á
seinni stúlkuna þykir sannað að
maðurinn hafí stungið hana tilefnis-
laust og af ráðnum hug í brjóstið
þannig að hnífurinn gekk inn í
hjartað svo stúlkan hlaut næstum
bana af. Hafi maðurinn með þessu
orðið sekur um tilraun til mann-
dráps.
Samverkandi áhrif áfengis
og hræðsluviðbragða
Fram kemur að ákærði hafi ekki
hlotið refsingu áður. Hann sætti
geðrannsókn og taldist vera sak-
hæfur, en læknir telur líklegt að
orsaka fyrir verknaði hans sé helst
að leita í samverkandi áhrifum
áfengis og hræðsluviðbragða við
aðstæður sem hann hafi ekki ráðið
fram úr. Telur læknirinn manninn
hafa verið andlega miður sín þegar
atburðimir gerðust og hann ekki
fyllilega gert sér grein fyrir at-
burðarásinni.
í dómi héraðsdóms segir að ekki
sé vitað hvað ákærða gekk til með
atlögunum sem hafi verið alveg til-
efnislausar og refsing hans þyki
hæfilega ákveðin fangelsi í sjö ár,
en til frádráttar kemur gæsluvarð-
haldsvist frá 22. september síðast-
liðnum. Auk þess að greiða annarri
stúlkunni miskabætur, fatatjón og
lögfræðikostnað, samtals 236 þús-
und krónur, var maðurinn dæmdur
til að greiða allan sakarkostnað, þar
með talin saksóknaralaun í ríkis-
sjóð, 75 þúsund krónur, og 250 þús-
und krónur í réttargæslu- og
málsvarnarlaun til verjanda síns.
Sem fyrr segir var bótakröfu ann-
arrar stúlkunnar vísað frá dómi.
Dóminn kvað upp Pétur Guð-
geirsson héraðsdómari ásamt með-
dómendunum Helga I. Jónssyni og
Sigurði T. Magnússyni héraðsdóm-
urum.
Mikið tjón í þrumu-
veðri í Oræfum
Sjö raf-
magnsstaur-
ar í spón
SJÖ 12-14 metra háir rafmagns-
staurar í Öræfum fóru í spón af völd-
um eldinga í miklu þrumuveðri sem
þar gekk yfir í fyrrakvöld og fram
eftir nóttu. Að sögn Freysteins
Þórðarsonar, vélstjóra hjá Raf-
magnsveitum ríkisins á Höfn,
eyðilögðust auk þess m.a. þrír
spennar í Öræfum, tveir við þjón-
ustumiðstöðina í Skaftafelli og einn á
Einholti á Mýrum. Viðgerð var ólok-
ið í Öræfum í gærkvöldi, en viðgerð
annars staðar lauk í gærmorgun.
I Skaftafelli er sjónvarpsendur-
varpsstöð fyrir öll Öræfin og stóð til
að reyna að koma straumi á hana í
gærkvöldi. Freysteinn sagði að
skemmdir hefðu orðið á búnaði í
millitengingu fyrir símstöð í Freys-
nesi og hefði m.a. farsímakerfið orðið
óvirkt af þeim sökum.
„Þramuveðrið var alveg gífurlegt.
Það glamraði hér leirtau i skápum og
það var bjart sem á degi með köfl-
um,“ sagði Freysteinn.
Skurðgrafa
inni í húsi
EIGENDUR þessa gamla húss við
Njálsgötu gripu til róttækra
aðgerða við endurbætur á húsinu.
Heilli gröfu var komið fyrir inni í
húsinu og mokaði hún upp úr
grunninum. Til að koma henni inn
í húsið þurfti að opna hliðina á því
og eins og nærri má geta vakti það
athygli vegfarenda. Stefnt er að
því að auka nýtingu á húsinu með
því að dýpka grunninn og koma
þar fyrir heilli hæð.
Óformlegar viðræður
um Schengen
Spánverjar
hindra
samninga
Á FUNDI æðstu embættismanna-
nefndar ráðherraráðs Evrópusam-
bandsins í Brussel í fyrradag hindr-
aði fulltrúi Spánar að ákvörðun yrði
tekin um það hvenær formlegar
samningaviðræður um endurskoðun
samstarfssamnings íslands og Nor-
egs við Schengen-ríkin hæfust, en
slík endurskoðun varð nauðsynleg
eftir að ákveðið var á leiðtogafundi
ESB í Amsterdam í júní í fyrra að
sameina Schengen-samninginn
stofnsáttmála ESB.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins sagði spænski fulltrúinn
ástæðuna vera þá, að ísland og
Noregur viðurkenni skilríki sem
gefin eru út í brezku nýlendunni
Gíbraltar sem vegabréf. Spánn, sem
hefur lengi átt í deilum við Bretland
vegna nýlendunnar, neitar hins veg-
ar að viðurkenna slík skilríki sem
vegabréf.
Ljóst þykir að hefði Spánn ekki
hindrað viðræðumar nú hefði niður-
staðan orðið sú að ákveðið hefði ver-
ið hvenær formlegar samningavið-
ræður við ísland og Noreg hæfust
um Schengen-málið.
Misskilningur
Gunnar Snorri Gunnarsson, aðal-
samningamaður Islands í Brussel,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
þessi afstaða spænska fulltrúans
væri byggð á misskilningi. Þótt
ferðaskflríki Gíbraltarbúa væru tek-
in gild sem slík þá jafngiltu þau ekki
vegabréfum.
„Við vonumst til að geta skýrt
þetta nægilega út fyrir honum til að
geta haldið áætlun,“ sagði Gunnar
Snorri Gunnarsson.
Formaður Alþýðubandalagsins um samfylkingu félagshyggjufólks
Nauðsynlegt að kanna
málið án fordóma
Morgunblaðið/Þorkell
MARGRÉT Frímannsdóttir,
formaður Alþýðubandalagsins,
setti miðstjórnarfund flokksins
í gærkvöld með ræðu.
FORMAÐUR Alþýðubandalags-
ins, Margrét Frímannsdóttir,
sagðist við upphaf miðstjómar-
fundar flokksins í gærkvöld aldrei
hafa fundið fyrir eins miklum
áhuga innan flokksins og nú fyrir
því að kanna til hlítar hvort taka
eigi upp samstarf eða sameiginlegt
framboð félagshyggjufólks fyrir
kosningar til Alþingis 1999.
Margrét sagði nauðsynlegt að
kanna málið án fordóma og fyrir-
íram gefinnar niðurstöðu en með
hag vinstri hreyfingarinnar að
leiðarljósi og að menn mættu ekki
láta tilfinningar bera sig ofurliði.
Sagði formaðurinn að samfylking,
hvemig sem hún kynni að verða,
yrði ekki keypt hvaða verði sem
væri. „Sá formaður sem hér stend-
ur er ekki ljóst og leynt að stefna
að því að kljúfa flokkinn. Ég fylgi
samþykktum sem gerðar hafa ver-
ið. Eg held fram stefnu Alþýðu-
bandalagsins sem er mér afar mik-
ils virði, stefnu sem ég hef trú á,
stefnu sem á skilið meira fylgi en
hún hefur. Við eigum að leita leiða
tfl þess að þessi stefna verði það
afl sem til þarf til að breyta þvi
þjóðfélagi sem við búum nú við,“
sagði Margrét undir lok ræðu
sinnar.
Formaðurinn sagði forystumenn
Alþýðubandalagsins hafa átt
nokkra fundi með forystufólki Al-
þýðuflokks og Kvennalista vegna
samstarfsmálanna og lýsti eftir því
hjá miðstjórnarmönnum að þeir
tjáðu sig um þau mál sem þeir
helst vildu sjá í samstarfi þessara
flokka.
Margrét sagði afar sérkenni-
lega mynd hafa verið dregna upp
af fjölmiðlafólki, fulltrúum ann-
arra flokka og jafnvel innan Al-
þýðubandalagsins af viðræðum
um samfylkingu félagshyggjufólks
og um tillögur Alþýðubandalags-
manna um auðlindir í sameign
þjóðarinnar og gjaldtöku vegna
nýtingar þeirra. Sagði hún auð-
lindatillögurnar ekki gefa tilefni
til að lýsa því að hugmyndin væri
að leggja á milljarða skattlagn-
ingu á sjávarútveginn eða lands-
byggðina.
I
l
I
t
I
I
\
i
I
I
I
í
«
i
l
1
I
I
1
I
f