Morgunblaðið - 07.02.1998, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998 55
MINNINGAR
ERNA
SIGURJÓNSDÓTTIR
+ Erna Signrjónsdóttir fæddist
í Leifshúsum á Svalbarðs-
strönd 8. mars 1928. Hún lést á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur 22. jan-
úar síðastiiðinn og fór útför
hennar fram í Hruna 31. janúar,
í kyrrþey að hennar ósk.
Æskuvinkona mín Erna Sigur-
jónsdóttir andaðist á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 22. janúar sl. eftir
langvarandi veikindi. Hún var
kvödd hinstu kveðju af fjölskyldu
og nánum vinum laugardagin 31.
janúar sl. frá Hrunakirkju. Hún
hafði dvalið 45 ár ævi sinnar í
Hrunamannahreppi og þessi
kveðjudagur var einn af fegurstu
dögum vetrarins, sólin stafaði
geislum sínum yfir þessa fallegu
sveit rétt eins og í þakklætisskyni
fyrir líf og starf Ernu þar.
Leiðir okkar lágu fyrst saman í
héraðsskólanum á Laugarvatni vet-
urinn 1945-46. Þar deildum við
saman herbergi fjórar ungmeyjar
og tókst góð vinátta með okkur öll-
um, þótt endurfundir væru strjálir
eftir því sem árin liðu. Eg átti því
láni að fagna að búa hjá Emu á
Akureyri tveimur árum seinna er
ég hóf nám í MA haustið 1947 en þá
hafði hún stofnað heimili þar. Þetta
var góður vetur í skjóli hennar.
Hún hafði svo marga góða kosti til
að bera að öllum leið vel í návist
hennar. Hún var hlý og nærgætin
og alltaf fús að rétta hjálparhönd
þeim er þess þurftu. Sérstaklega
var hún góð við sjúka og minni
máttar. Erna var vel greind kona
og las töluvert. Hún var einnig
mjög lagin í höndum og vandvirk
svo af bar. Er mér einkar minnis-
stætt þegar hún var að kenna mér
frágang við saumaskap en hún
hafði verið í Húsmæðraskóla Akur-
eyrar veturinn áður og lært þar
margt til hugar og handa.
Foreldrar hennar, Aðalheiður og
Sigurjón, voru sæmdarhjón sem
bjuggu góðu búi í Leifshúsum. Þau
voru gestrisin og rausnarleg og var
gott að sækja þau heim og dvelja
hjá þeim í skólafríum þegar ekki
viðraði til ferðalaga suður á land.
Erna og systkini hennar tvö, Ásta
og Arni, fengu í arf frá foreldrum
sínum marga góða kosti, s.s. góða
greind og verklagni og bera heimili
þeirra vott um það.
Ema eignaðist tvo drengi, tví-
bura, árið 1950 með Garðari Lofts-
syni, skrifstofumanni á Akureyri.
Þeir eru Baldur, líffræðingur og
menntaskólakennaii í Reykjavík, og
Skírnir, prestur í Þrándheimi í Nor-
egi. Árið 1952 fluttist Ema suður í
Hrunamannahrepp og gerðist ráðs-
kona hjá Jóni Sigurðssyni bónda í
Skoliagróf. Gengu þau síðar í hjóna-
band og eignuðust þrjú mannvæn-
leg böm. Þau em Siguijón skrif-
stofumaður á Selfossi, Áðalheiður
húsmóðir á Flúðum og Sigurður
bóndi í SkoUagróf. Þau hafa reynst
móður sinni vel í veikindum hennar
sem oft bar brátt að og þurfti hún
þá iðulega að dvelja á sjúkrastofn-
unum í lengri eða skemmri tíma. En
Erna hélt sínu jafnaðargeði og
æðruleysi aUt fram tU hinstu stund-
ar. Hún átti ávaUt tU glettni í til-
svöram og hlýtt bros tU samferða-
manna sinna. Hennar er nú sárt
saknað af íjölskyldu og vinum.
Blessuð sé minning góðrar konu.
Ólöf Pálsdóttir.
BRIPS
úmsjón: Arnór G.
Kagnarsson
Islensk bridssveit
spilar á sterku
móti sem hefst í
Japan í dag
ÍSLENSK bridssveit hefur keppni
í Japan í dag. Um er að ræða árlegt
mót sem haldið er á mismunandi
stöðum í Japan, að þessu sinni í
Yokohama og því var íslendingum
boðið til að minnast frækilegrar
framgöngu þeirra á sama stað fyrir
rúmum sex áram.
Mótið er kennt við tölvufyrirtæk-
ið NEC. I dag og á morgun er opin
sveitakeppni en á mánudag hefst
aðalmótið þar sem keppa 12 valdar
sveitir.
Islenska sveitin er skipuð Birni
Eysteinssyni, Karli Sigurhjartar-
syni, Sævari Þorbjörnssyni og Þor-
láki Jónssyni. Tvær sveitir eru frá
Bandaríkjunum en önnur þeiiTa er
m.a. skipuð Pólverjunum Piotr
Gawrys og Marcin Lesniewski. Þá
keppir indónesíska landsliðið á
mótinu, það sama og keppti hér á
Bridshátíð á síðasta ári. Einnig era
lið frá Kína, Tæwan og Japan auk
bresku feðganna Pauls, Justins og
Jasons Hacketts sem mynda sveit
með breska landsliðsmanninum
John Armstrong.
Tíu tíma munur er á klukkunni í
Japan og á Islandi og flugferðin
þangað er löng og ströng. íslenska
liðið lagði af stað til Japans í gær-
morgun og átti að lenda þar í morg-
un að japönskum tíma, þannig að í
raun mætir það beint í spila-
mennskuna. Björn og Þorlákur
ættu þó að geta nýtt sér reynslu
sína af því að aðlagast tímamismun-
inum, en þeir voru í heimsmeistara-
liði Islands í Japan árið 1991.
Bridsféiag Húsavíkur
AÐ LOKNUM 4 umferðum í
Landsbankamótinu á Húsavík hefur
dregið saman á toppnum eftir að
sveit Bergþóru Bjarnadóttur vann
sveit Björgvins Leifssonar 19-11 og
sveitin Frissi vann sveit Sveins Að-
algeirssonar með nákvæmlega
sama mun. Sveinn og Björgvin eru
því enn efstir og jafnir á toppnum
með 83 stig hvor en næstar koma
sveit Þóris Aðalsteinssonar með 76
stig, Frissi með 75 stig og sveit Þór-
ólfs Jónssonar með 66 stig.
Það skal tekið fram til að forðast
misskilning að „Frissi“ heitir eftir
Friðrik Jónassyni, a.m.k. tímabund-
ið brottfluttum Húsvíkingi, og er
hans sárt saknað af gömlum sveit-
arfélögum og makkerum. Reyndar
vildi sveitarforinginn, Pétur Skarp-
héðinsson, láta sveitina heita
„Frissi heitinn" en það þótti full-
djúpt í árinni tekið.
I mótinu er reiknaður út fjöl-
sveitasamanburður á milli para.
Þrjú efstu pörin að loknum átta 12
spila hálfleikjum era:
Torfi Aðalsteinsson og Pétur Skarphéðinsson,
Frissa: 18,44
Þóra Sigurmundsdóttir og Magnús Andrésson,
sveit Björgvins Leifssonar: 18,06
Guðmundur Halldórsson og Sveinn Aðalgeirsson,
sveit Sveins: 17,92
Þess má loks geta að formaðurinn
vill nota tækifærið og þakka sveit
Bergþóra fyrir sparkið. Það var
vont en það venst.
Fimmtudaginn 29. janúar spiluðu
aðeins 13 pör. Mætum betur í Stiga-
mótið.
Þórólfur Meyvantsson - Eyjólfur Halldórsson 186
Lárus Hermannsson - Rafti Kristjánsson 186
SæmundurBjömsson-MagnúsHalldórsson 184
Þorsteinn Erlingsson - Níels Friðbjamarson 162
Meðalskor 156
Bridsfélag SÁÁ
SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 1. febrú-
ar 1998 var spilaður eins kvölds
Mitchell tvímenningur. 10 pör spil-
uðu 5 umferðir, 5 spil á milli para.
Röð efstu para í N/S varð þessi:
Óskar Kristinsson - Kristinn Óskarsson 112
Leifur Aðalsteinsson - Þórhallur Tryggvason 112
JónEyvindur-Jóhann Jóhannsson 104
A/V
Valdimar Sveinsson - Þorsteinn Berg 129
Unnar A Guðmundsson - Elías Ingimarsson 116
Þórður Ingólfsson - Stefán Garðarsson 98
Meðalskor 100
Haldið verður áfram með eins
kvölds tvímenningskeppni. Keppt
er um verðlaunagripi sem fást af-
hentir að lokinni spilamennsku.
Næst verður spilað sunnudags-
kvöldið 8. febrúar hjá Bridsfélagi
SÁÁ.
Félagið vill hvetja sem flesta til
að mæta, spilað er í Ármúla 40,
bakatil. Spilamennska hefst klukk-
an 19.30.
Dagskrá Bridshátíðar 1998
Dagskrá Bridshátíðar hefir verið
ákveðin og tímasett en mótið fer
fram um aðra helgi.
Félag eldri borgara Föstud. 13. febr. Tvímenningur
Mánudaginn 26. janúar 1998 spil- Kl. 19.00 Mótið sett
aði 21 par Mitchell-tvímenmng, úr- Kl. 19.15-00.30 1.-10. umferð
slit urðu þessi: Laugard. 14. febr. Tvímenningur
N.S.: Kl. 11.00 -13.10 11.-14. umferð
Jón Magnússon - Júlíus Guðmundsson 271 Kl. 13.10 -14.00 Matarhlé
Þórólfur Meyvantsson - Eyjólfur Halldórsson 236 Kl. 14.00 -19.30 15.-23. umferð
Sæmundur Bjömsson - Magnús Halldórsson 225 Sunnd. 15. febr. Sveitakeppni
A.V.: Kl. 13.00 -19.00 1.-4. umferð
Einar Einarsson - Hörður Davíðsson 251 Kl. 19.00 - 20.30 Matarhlé
Sigurður Pálsson - Þórhildur Magnúsd. 244 KI. 20.30 - 23.15 5.-6. umferð
Sigurleifur Guðjónsson - Óliver Kristófersson 244 Mánud. 16. febr. Sveitakeppni
Láms Hermannsson - Eysteinn Einarsson 239 Kl. 13.00 -19.15 7.-10. umferð
Meðalskor 216 KI. 19.30 Verðlaunaafh.
Við skorum á kjósendur í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi
að veita Gunnari I. Birgissyni
atkvæði sitt í 1. sæti
framboðslistans og viðhalda
þannig þeirri jákvæðu þróun sem
hefiir átt sér stað í Kópavogi síðan
Gunnar tók við forystuhlutverki
í bæjarfélaginu.
■■
Askorun til