Morgunblaðið - 07.02.1998, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
AUMINGJA sýsli, hann á ekkert varnar-uniform ...
Nægilegt hráefni hjá
Jökli á Raufarhöfn út
næstu viku
Ahyggj-
ur af verk-
fallinu
UM 50 manns starfa við land-
vinnslu hjá Jökli á Raufarhöfn og
segir Jóhann M. Olafsson íram-
kvæmdastjóri að hráefnið dugi út
næstu viku. Aðallega er verið að
vinna Rússaþorsk. Þeir sem komnir
eru með kauptryggingu myndu síð-
ar fara á atvinnuleysisbætur komi
til stöðvunar vegna verkfallsins en
aðrir ekki.
„Annars hef ég miklu meiri
áhyggjur af því stóra máli sem
verkfallið er og hvort einhver
loðnuvinnsla verður á vertíðinni eða
ekki. Það er minna mál hvort hér
og í öðrum húsum verður næg
vinna fyrir útlenda sem innlenda
starfsmenn, við skulum ekki
gleyma Islendingunum. Það munar
miklu fyrir þetta starfsfólk að fá
töm þær fjórar til sex vikur sem
loðnan gefst og við höfum öll
áhyggjur af því,“ sagði Jóhann.
Einu almennilegu tekj-
urnar í land vinnslunni
Hjá fyrirtækinu starfa 17 Pól-
verjar og var hugmyndin að bæta
við einum átta á næstunni en Jó-
hann segist ætla að bíða með það.
„Starfsmenn okkar hafa nóg að
gera í fískvinnslunni, Pólverjarnir
sem aðrir, og meðan hráefnið end-
ist höfum við ekki áhyggjur. Við
reyndum hins vegar að halda hrá-
efnisbirgðum í lágmarki þar sem
við vildum hafa nægt frystirými
íyrir loðnuna þegar hún kæmi,“
sagði Jóhann ennfremur.
„Við erum að taka inn einu al-
mennilegu tekjumar í landvinnsl-
unni á þessum tíma og það væri
slæmt að missa af þeim. En ég vona
nú að verkfallið leysist fljótlega."
Jóhann segir að Pólverjarnir hafí
sumir hverjir búið á Raufarhöfn
nokkuð á þriðja ár en síðan komi
alltaf einhverjir nýir á hverju ári.
Morgunblaðið/Arni Sæberg
SIGURÐUR Ólafsson, Kristinn Pálsson og Bragi Guðmundsson ræða
beiðni um afgreiðsluundanþágu á skrifstofu verkfallsvörslu sjómanna.
Verkfallsvarsla sjómanna
Undanþágur afgreiddar á ný
AFGREIÐSLA á undanþágum hjá
verkfallsvörslu sjómanna var stöðv-
uð á miðvikudag vegna veiðiferðar
togbátsins Smáeyjar VE, en hófst
að nýju í fyrradag eftir að útgerð
Vestmannaeyjabátsins hafði kallað
hann til hafnar.
Verkfallsverðir hafa ekki þurft að
láta tii sín taka það sem af er verk-
falli, enda bræla á miðum. í gær var
verið að afgreiða óskir um undan-
þágu i höfuðstöðvum verkfallsvörsl-
unnar í Borgartúni. Þaðan er verk-
fallsvörslu stjórnað um allt land.
„Við veitum undanþágur þegar
verið er að færa skip á milli hafna,
koma sldpum í slipp og vegna ör-
yggisgæslu og eftirlits vélstjóra
með skipum,“ sagði Sigurður Ólafs-
son sjómaður, sem var á vakt í verk-
fallsvörslunni á fimmtudag.
Er og ætlar
Starfsemi landsfundanefndar er hafin
Tengsl við Is-
lendingafélög
vestra mikilvæg
Einar Benediktsson
DAVÍÐ Oddsson forsæt-
isráðherra skipaði í síð-
astliðnum mánuði landa-
fundanefnd sem ætlað er að
gera tillögur til ríkisstjórn-
arinnar um það hvernig
fagna skuli landafundi Leifs
Eiríkssonar í Bandaríkjun-
um og Kanada árið 2000.
Einar Benediktsson sendi-
herra er framkvæmdastjóri
nefndarinnar.
í henni eiga sæti Sigurður
Helgason, forstjóri og for-
maður hennar, Steindór
Guðmundsson verkfræðing-
ur, Anna Soffía Hauksdóttir
prófessor, Atli Ásmundsson
blaðafulltrúi og Komelíus
Sigmundsson forsetaritari.
- Hvernig munu störf
nefndarinnar ganga fyrir
sig?
„Meðal fyrstu starfa nefndar-
innar er að taka á móti hug-
myndum sem auglýst hefur verið
eftir um verkefni og atburði sem
líklegir eru til þess að auka hróð-
ur íslands í Vesturheimi og
halda á lofti sögu landafundanna.
Skilafrestur er 1. mars.
Ætlunin er að nefndin gangi
frá tillögum til ríkisstjómarinnar
vegna fjárlagagerðar ársins um
viðburði og verkefni til þess að
styðja þar vestra aldamótaárið.
Síðan mun landafundanefnd
fylgja málinu eftir í framkvæmd
og verður það einkum fyrir at-
beina sendiráðsins í Washington
og ræðismanna íslands í Banda-
ríkjunum og Kanada.
Þá er ekki síður þýðingarmik-
ið að eiga góða samvinnu við ís-
lendingafélögin í Bandaríkjunum
og Þjóðræknisfélagið í Kanada
en samstarf við einstaklinga og
félög þeirra þarf að halda áfram
á næstu öld.“
- Hvernig mun nefndin kynna
starfsemi sína?
„Upplýsingamiðlun, til dæmis
um netið, er mjög þýðingarmikil
og verið er að koma upp heima-
síðu fyrir landafundanefnd um
þessar mundir. Þar verður að
finna helstu upplýsingar um
nefndina. Hún er til húsa sem
stendur að Hallveigarstöðum við
Túngötu 14 í síma 563-7020 og
faxnúmer er 563-7025. Einnig
höfum við tölvupóstfangið mill-
ennium@for.stjr.is
Þá má geta þess að sðstoðar-
maður minn sem framkvæmda-
stjóra er Kristín Sif Sigurðar-
dóttir."
- Að hvaða gagni telur þú að
heimasíða komi í starfí sem
þessu?
„Ég myndi fyrst vilja vísa til
nýfenginnar reynslu okkar af
notkun heimasíðu í
sendiráðinu í Was-
hington. Sú síða hefur
verið rekin í rösklega
3 ár með mjög góðum
árangri. Reyndar var
sendiráðið einna fyrst inn á
þennan vettvang, sem reyndist
hið mesta heillaspor. Þegar ég
fór að vestan voru heimsóknir á
síðuna orðnar um 100.000 á mán-
uði en þar er mjög fjölbreytilegt
efni til kynningar á landi og þjóð.
Mergurinn málsins er sá að vilj-
um við ná til fólks vestanhafs,
ekki síst yngri kynslóðarinnar,
verðum við að nýta okkur þá
tækni sem nú er allsráðandi.
► Einar Benediktsson fæddist
30. apríl 1931. Hann varð stúd-
ent frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1950, lauk BA-prófi í
hagfræði og MA-prófí í alþjóða-
stjórnmálafræði vestanhafs árin
1953 og 1954 og var síðan við
framhaldsnám í Bretlandi og á
Itahu. Hann vann um skeið í
hagdeild Framkvæmdabanka
íslands en var síðan við störf í
alþjóðastofnuninni OECD í
París 1956-1960. Þá vann hann
á vegum viðskiptaráðuneytisins
til 1964 og var þá skipaður
sendiráðunautur í utanríkis-
þjónustunni þar sem hann hefur
gegnt starfí síðan. Einar var
fyrsti fastafulltrúi íslands hjá
EFTA og vann að undirbúningi
þeirrar aðildar í Reykjavík. Eft-
ir sendiherrastörf í Genf 1970-
76 var hann sendiherra í París
1976-82, London 1982-86 og í
Brussel, bæði gagnvart Evrópu-
sambandinu og NATO, 1986-
1991. Þá var hann sendiherra í
Ósló til 1993 og síðan sendi-
herra í Washington 1993-1997.
Einar Benediktsson kom til
starfa í utanríkisráðuneytinu
um áramótin eftir að hafa
gegnt embætti sendiherra ytra
næstum samfleytt í 28 ár.
Þama verður meðal annars
sögulegur fróðleikur um ísland
handa ungu fólki og vettvangur
fyrir börn sem vilja gerast
pennavinir á netinu."
- Er eitthvað fíeira á döfínni
þessu tengt?
„Ég er nýkjörinn formaður ís-
lensk-ameríska félagsins og
hyggst félagið efna til mannfagn-
aðar á Valentínusardegi, hinn 14.
febrúar. Bandaríski sendiherr-
ann, Day Olin Mount,
og framkvæmdastjóri
landafundanefndar
munu gera grein fyrir
átaki beggja landa í
tengslum við afmæli
landafundanna í síðbúnum morg-
unverði, eða svokölluðum
brunch, frá 11-14 í Perlunni.“
Að lokum segir sendiherrann
að hátíðahöldin skapi einstakt
tækifæri til þess að treysta vina-
bönd íslendinga og þjóðanna í
Vesturheimi. „Ég fagna þessari
ákvörðun ríkisstjómarinnar og
er vissulega ánægður með að fá
að leggja mitt af mörkum í þessu
sambandi."
Landafunda-
nefnd verður
með heimasíðu
k