Morgunblaðið - 07.02.1998, Qupperneq 6
MORGUNBLAÐIÐ
& LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998
FRÉTTIR
*
Aætlaður heildarkostnaður við uppbyggingu Breiðvarps 4 millj.
20 sjonvarpsrasir
sendar út í fyrstu
LANDSSIMINN hóf formlegar út-
Morgunblaðið/Þorkell
GUÐMUNDUR Björnsson forsljóri Landssfmans, Friðrik Friðriksson
forstöðumaður breiðbandssviðs fyrirtækisins og Jón Þóroddur Jóns-
son framkvæmdasljóri þjónustusviðs Qarskiptadeildar.
sendingar á sjónvarps- og útvarps-
efni í gær á svo kölluðu breiðbandi,
en tilraunaútsendingar hafa staðið
yfir síðan I lok nóvember. Ákveðið
hefur verið að þjónustan nefnist
Breiðvarpið og verður í fyrstu boðið
upp á um 20 erlendar og innlendar
sjónvarpsrásir ásamt tíu erlendum
útvarpsrásum.
AIls geta 23 þúsund heimili á land-
inu notfært sér þjónustu Breiðvarps-
ins um ljósleiðaratengingu, eða um
fjórðungur, þar af um 20 þúsund á
höfuðborgarsvæðinu eða um 40%
heimila, þar á meðal í nýjustu hverf-
um í Grafarvogi, hluta Breiðholts og
hluta Vesturbæjar.
Ekki sjónvarpsstöð
Guðmundur Björnsson forstjóri
Landssímans segir að heildarfjár-
festing í kerfinu nemi um 600 millj-
ónum kr. til þessa en áætlaður
kostnaður við að ná til 80-90% heim-
ila á landinu öllu nemi um 4 milljörð-
um kr., ásamt endurnýjun eldra
kerfis. Áætlanir gera ráð fyrir já-
kvæðri arðsemi af rekstrinum en
Guðmundur segir ekki gefið upp
hversu marga áskrifendur þurfi til
að ná hagnaði. Miðað er við að rugla
útsendingar og innheimta áskriftar-
gjöld frá og með næsta mánuði. „Við
h'tum svo á að við önnumst sjón-
varpsþjónustu en séum ekki sjón-
varpsstöð í sama skilningi og RÚV
eða Stöð 2,“ segir hann.
Gert er ráð fyrir að eftir um hálf-
an annan mánuð hefji göngu sína ný
sjónvarpsstöð, Bamarásin, sem
sendi eingöngu út barnaefni í um á
fjórða tug stunda á viku.
„Með breiðbandinu skapst svig-
rúm fyrir nýja aðila til að fara inn á
sjónvarpsmarkaðinn, bæði sérhæfð-
ar stöðvar og almennar. Þótt svo að
slíkir aðilar greiði Landssímanum
fyrir þjónustu er það miklu ódýrara
en að byggja upp eigið dreifingar-
kerfi. Landssíminn annast útsend-
ingu dagskrárefnis og viðkomandi
sjónvarpsstöð fengi aðgang að
myndlyklakerfí hans, auk þess sem
Landssíminn myndi jafnframt ann-
ast innheimtu," segir Guðmundur.
Bamarás og erlent efni
í fyrstu verður boðið upp á 15 til
17 erlendar rásir ásamt myndlykli
fyrir 1.595 krónur á mánuði. Þar á
meðal má nefna útsendingar frétta-
stöðvanna CNN, Sky News, CNBC
Europe og Eurosport, fræðslustöðv-
arnar Discovery, Animai Planet og
The Computer Channel og breskar
og bandarískar afþreyingarstöðvar á
borð við TNT, MTV, Cartoon
Network, VH 1 og BBC Prime,
ásamt frönsku sjónvarpsstöðinni M6,
þýsku stöðvunum Pro Sieben og
ARD og ítölsku stöðinni RaiUno. Að-
gangur að íslensku barnarásinni
verður seldur á 1.150 krónur á mán-
uði, en í sameiningu munu erlendu
rásimar og bamarásin kosta 2.470
krónur á mánuði.
Friðrik Friðriksson forstöðumað-
ur breiðbandssviðs Landssímans
segir að unnið sé að samningum um
fleiri rásir og sé einkum miðað við
kvikmynda- og íþróttastöðvar í því
sambandi auk norrænna sjónvarps-
stöðva. Þá er útsendingum Ríkis-
sjónvarpsins dreift ókeypis sam-
kvæmt skilyrðum Útvarsréttar-
nefndar ásamt útsendingum frá Al-
þingi, upplýsingarás sem fjallar um
hvaða efni stendur til boða á Breið-
varpinu og einnig verður ein rás
helguð sjónvarpsstöðvum sem fyrir-
hugað er að bjóða eða verið er að
meta til útsendingar. Tilraunir með
hraðvirkan flutning Alnetsins munu
jafnframt hefjast innan skamms.
Friðrik segir að stækkun útsend-
ingarsvæðisins miðist við að 2 til 5
staðir bætist við á þessu ári og sé
horft til Akureyrar, ísafjarðar og
Egilsstaða í því sambandi. „Hug-
myndin er að dreifikerfið nái til alls
landsins að endingu, þótt að óvíst sé
að það verði alfarið í gegnum ljós-
leiðara. Bandið gæti flutt hundrað
sjónvarpsrásir væri það alfarið nýtt
til slíkra útsendinga, en við sjáum
fyrir okkur að nýtingin nemi 30 til
50 rásum og síðan komi til stafræna
tæknin, þar sem stafræn rás nýtir
tíðnibandið átta sinnum betur en
hefðbundin rás,“ segir hann.
Ríkisstjórnin samþykkir að taka Evr-
óputilskipun upp í EES-samninginn
Foreldraorlof í
þijá mánuði
verður lögfest
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á
fundi sínum í gær, að tillögu Páls
Péturssonar félagsmálaráðherra, að
tilskipun Evrópusambandsins verði
hluti samningsins um Evrópska
efnahagssvæðið. Tilskipunin kveður
á um að veita körlum og konum rétt
til töku launalauss foreldraorlofs til
að annast barn sitt í að minnsta
kosti þrjá mánuði við fæðingu eða
ættleiðingu bams, fram að átta ára
aldri barns.
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að það væri óljóst
hvernig staðið verður að staðfest-
ingu tilskipunarinnar hér á landi. Til
greina komi að það verði gert í
tengslum við heildarendurskoðun
laga um fæðingarorlof.
Páll Pétursson segir að sam-
kvæmt tilskipuninni eigi hvoi-t for-
eldranna rétt á orlofi í þrjá mánuði
og geti þau ekki verslað með það
þannig að annað fái leyfi í sex mán-
uði en hitt afsali sér réttinum.
„Þetta er til viðbótar við og alveg
óháð mæðraorlofinu," sagði Páll Pét-
ursson. Hann sagði að starfsaldur til
þess að öðlast réttinn yrði að vera að
minnsta kosti eitt ár. Ekki væri skylt
að taka allt leyfið í einu lagi en
vinnuveitandi mætti fresta því af
sérstökum ástæðum sem snerta
rekstur fyrirtækisins. „En þetta á
semsagt ekki að vera brottrekstrar-
sök. Viðkomandi getur farið og
geymt starfið sitt í þrjá mánuði á
grundvelli þess arna,“ sagði Páll Pét-
ursson.
Fæðingaorlof í
deiglunni
Ráðherrann sagði að öll mál sem
snerta fæðingarorlof væru nú í
deiglunni. „Ekki minnkaði óvissan
við dóm Hæstaréttar [um feðraorlof
á fimmtudag] og þau mál eru til
skoðunar og umhugsunar." Hann
sagðist búast við að foreldraorlofið
yrði skoðað heildstætt með öðru
fæðingarorlofi. „Það verður um að
ræða einhverjar breytingar á lögun-
um um fæðingarorlof og ein leiðin
væri sú að taka þetta inn í heildar-
löggjöf," sagði Páll. Hann kvaðst
telja það aðgengilegri kost að hafa
reglurnar á einum stað heldur en að
leggja fram sérstakt frumvarp um
foreldraorlofið. íslensk stjómvöld
hafa ársfrest til að ganga frá lög-
festingu þessarar Evróputilskipun-
ar.
Eins og fyrr sagði er um launa-
laust orlof að ræða. „Þetta truflar
ekki kjarasamninga að því leyti að
launagreiðandi sé skyldur til að
greiða þetta en það er hægt að
hugsa sér að þetta endi inni í trygg-
ingunum. En þetta skref er bara til
að tryggja réttinn til töku oflofsins
og að viðkomandi eigi afturkvæmt í
sitt starf,“ sagði Páll Pétursson.
• • #
Onnur sknða
úr Reynisfjalli
SKRIÐA féll í fyrrakvöld neð-
an úr bergfyllunni sem eftir
varð í brún Reynisfjalls þegar
mikil grjótskriða féll þar sl.
fóstudag. í Vík hafa menn beð-
ið eftir að viðri til þess að
sprengja, þar sem fyrirsjáan-
legt þótti að meira kæmi niður.
Sigurður Gunnarsson, sýslu-
maður í Vík, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að þar
myndu menn bíða átekta enn
um sinn með að sprengja það
sem eftir væri, þar kyngdi nið-
ur snjó og útlitið væri svipað
næstu daga.
Formaður yfírfasteignamatsnefndar um tilmæli um leiðréttingu á framreikningi fasteignamats
70-110 fermetra
íbuðir fulllágt metnar
Þeim tilmælum hefur verið beint til fjármálaráðherra að
■ ________________ ______
framreikninffur fasteignamats verði leiðréttur. I umfjöllun
Hjálmars Jónssonar kemur fram að formaður yfirfasteignamats-
nefndar telur ekki ástæðu til leiðréttingar.
SAMSTARFSNEFND ASÍ, BSRB
og Neytendasamtakanna hefur farið
fram á það við fjármálaráðherra að
hann beiti sér fyrir því að fram-
reikningur fasteignamats verði leið-
réttur fyrir fasteignir af stærðinni
70-110 fermetrar í samræmi við
raunverulegar breytingar á mark-
aðsverði þessara íbúða. Hér sé um
að ræða skattahækkanir fyrir þann
hóp sem búi í algengustu stærð
íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæð-
inu og líkur séu einmitt á því að
þessi hópur eigi erfitt með að rísa
undir hækkuninni, en fasteignamat
myndar grunn fasteignagjalda sem
er annar tveggja aðaltekjustofna
sveitarfélaga. Formaður yfirfast-
eignamatsnefndar segir að ekki sé
að sínu áliti ástæða til leiðréttingar
og að eignir af stærðinni 70-110 fer-
metrar séu enn fulllágt metnar,
þrátt fyrir 3-4% hækkun mats 1.
desember síðastliðinn.
í bréfi nefndarinnar til fjármála-
ráðherra kemur fram að yfirfast-
eignamatsnefnd skuli í nóvember ár
hvert ákveða framreikningsstuðla
fyrir matsverð fasteigna með hlið-
sjón af breytingu verðlags við kaup
og sölu. Nýjustu upplýsingar sem
Fasteignamat ríkisins hafi þegar
framreiknistuðullinn sé ákveðinn séu
kaupsamningar frá septembermán-
uði og fyrrihluta októbermánaðar.
Yfírfasteignamatsnefnd þurfi því að
spá fyrir um fasteignamatsverð einn
og hálfan mánuð fram í tímann. Nú
liggi fyrir upplýsingar um raunveru-
lega þróun fasteignaverðs frá nóv-
ember 1996 til jafnlengdar 1997 á
70-110 fermetra húsnæði á höfuð-
borgarsvæðinu og sé hækkunin 0,9%
en ekki 4,5% eins og stuðullinn hafí
verið hækkaður um.
Samkvæmt ákvörðun yfirfast-
eignamatsnefndar hækkaði mats-
verð íbúðarhúsa, íbúðarlóða, og bú-
jarða ásamt íbúðarhúsum og útihús-
um almennt um 4,5% 1. desember
síðastliðinn, Þó hækkaði matsverðið
um 9% á Akranesi, Hellissandi, Rifi,
Ólafsvík, Grundarfii’ði, Sauðárkróki,
Siglufirði, Húsavík, Þórshöfn, Fella-
bæ, Egilsstöðum, Neskaupstað,
Hellu, Eyrarbakka og Borgarnesi,
nema hvað húsnæði í fjölbýli þar
hækkaði um 12%. íbúða- og lóðaverð
hækkar einnig um 12% í Stykkis-
hólmi, Hólmavík, Vopnafirði og
Djúpavogi. Þá er óbreytt matsverð á
fbúðum og lóðum á Patreksfirði,
Bíldudal, Bolungarvík og Seyðisfirði.
íbúðarhúsnæði síðan afskrifað um
1% eða rúmlega það á ári og því
hækkar matið minna en framan-
greindar tölur bera með sér eða á
bilinu 3-4% á höfuðborgarsvæðinu
svo dæmi sé tekið.
Pétur Stefánsson, formaður yfir-
fasteignamatsnefndar, segir að eng-
in ástæða sé til að leiðrétta fram-
reikning nefndarinnar. 17. grein laga
um skráningu og mat fasteigna sé
mjög afgerandi, en þar segi að skráð
matsverð fasteigna skuli vera gang-
verð umreiknað til staðgreiðslu sem
ætla má að eignin hefði í kaupum og
sölu í nóvembemánuði næst á und-
an matsgerð. Á þessari lagagrein
byggist starf fasteignamatsins.
Framreikningur matsins milli ára sé
að sönnu almenn verðbreyting,
þannig að finna megi dæmi um mis-
munandi hækkanir einstakra flokka
fasteigna, en þess sé ævinlega gætt
eins vel og nokkur kostur sé að eng-
inn flokkur fasteigna verði of hár í
mati. Þess sé gætt að skattþegninn,
ef litið sé á fasteignamatið sem
skattstofn, njóti óvissunnar.
Pétur sagði að hvað varðaði þann
stærðarflokk fasteigna sem vísað sé
til, þ.e.a.s. íbúðir í fjölbýlishúsum á
höfuðborgarsvæðinu af stærðinni
70-110 fermetrar, þá hafi sá flokkur
íbúða verið mjög sterkur í sölu síð-
ustu 2-3 árin. Verð á þessum stærð-
um íbúða hafi tekið kipp upp á við í
lok síðasta árs, þannig að segja megi
að þessar eignir hafi verið fulllágt
metnar í því fasteignamati sem
ákveðið var 1. desember 1996 eða
fyrir rúmu ári. Framreikningurinn
nú sé því að hluta til leiðrétting
vegna hækkunar á þessum flokki
íbúða sem hafi orðið á árinu 1996 en
hafi ekki komið fram í hækkun fast-
eignaraats á því ári.
„Þrátt fyrir þessa 4,5% hækkun
fasteignamatsins er mat eigna í
þessum tiltekna flokki ennþá full-
lágt. Af þessari ástæðu tel ég í raun-
inni engin rök til þess að taka þessa
ákvörðun til endurskoðunar, enda
var hún að mínu mati vel ígrunduð,"
sagði Pétur. Hann bætti því við að
yfirfasteignamatsnefnd hefði and-
vara á sér varðandi skammtíma-
sveiflur á verði húsnæðis og tæki
verðbreytingar ekki inn í matið fyrr
en ljóst væri hvort þær yrðu varan-
legar eða ekki. Þannig sköpuðust
stundum tilefni sem taka þyrfti tillit
til síðar og hækkun á verði íbúða í
þessum flokki væri einmitt dæmi um
þessi varfærnu vinnubrögð yfirfast-
eignamatsnefndar í þessum eftium,
Lögin samin við
verðbólguskilyrði
Lögin um skráningu og mat fast>
eigna eru frá árinu 1976. Aðspurður
hvort ástæða væri til að breyta lögun-
um í ljósi breyttra aðstæðna sagði
Pétur að þau væru samin við verð-
bólguskilyrði og legðu nokkuð strang-
ar kvaðir á yfirfasteignamatsnefnd
miðað við það að verðlag hefði verið
stöðugt undanfarin ár. Lögin gerðu
kröfur til þess að gefið væri út leið-
rétt mat miðað við þann mánuð sem
matið væri framkvæmt í. Hins vegar
væru þær markaðsrannsóknimar,
sem stuðst væri við við gerð matsins,
eðli málsins samkvæmt alltaf tveimur
til þremur mánuðum á eftir vegna úr-
vinnslu gagna. Þess vegna væru nokk-
uð veikar forsendur fyrir matinu síð-
ustu tvo mánuðina áður en það væri
gert. Það væri ekkert leyndarmál, en
nefndin hefði brugðist við þessu með
því að hafa varúðarsjónarmið í fyrir-
rúmi. Að öðru leyti væru lögin að hans
mati mjög vönduð og hefðu staðist
ótrúlega vel tímans tönn. Þannig væri
réttur hagsmunaaðila alveg sérstak-
lega vel tryggður í lögunum.