Morgunblaðið - 07.02.1998, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998 13
FRÉTTIR
Krabbameinssjúk
börn hjóla kring-
um Island
Frönsku samtökin til stuðnings krabbameins-
sjúkum börnum Au-dela kynntu í sl. viku áætlun
*
um Islandsferð í júlí í sumar með tylft krabba-
meinssjúkra barna. Elín Pálmadóttir komst að
raun um að ætlunin er að láta draum þeirra ræt-
ast um að hjóla norður undir heimskautsbaug á
*
hringveginum um Island með samvinnu við
franska og íslenska aðila.
Morgunblaðið/Epá
A KYNNINGARFUNDI í Gravelines í Frakklandi í september sl. Dr.
Dominique Vanbelle, forseti samtakanna til stuðnings krabbameins-
sjúkum börnum, kynnir áformin um Islandsferð. Til hægri sitja full-
trúar heilbrigðisstofnunar og til vinstri Léon Panier, borgarstjóri í
Gravelines, Sverrir Haukur Gunnlaugsson, sendiherra íslands, og
Steinþór Pétursson, bæjarstjóri á Fáskrúðsfirði.
FORSETI samtaka til stuðn-
ings krabbameinssjúkum
börnum og bæjarstjórinn í
franska bænum Gravelines
á norðurströnd Frakklands, Léon
Panier, hleyptu átaki um ferð með
krabbameinssjúk böm til Islands af
stokkunum með blaðamannafundi
30. janúar sl. eftir nokkurn aðdrag-
anda.
I september sl. kynnti forseti sam-
takanna, dr. Monique Vaubert,
áformin á fundi á Islandshátíð í Gra-
velines, sem hafði ákveðið stuðning
við málið vegna fyrri tengsla á svæð-
inu við Island gegnum frönsku fiski-
mennina og vinabæjatengsl við Fá-
skrúðsfjörð, að viðstöddum bæjar-
fulltrúum beggja bæjanna, fulltrúa
CAES de l’INSERM úr heilbrigðis-
geiranum í Frakklandi og sendi-
herra íslands, Sverri Hauki Gunn-
laugssyni. Skrifuðu allir aðilar undir
viljayftrlýsingu um að vinna að mál-
inu.
HALLDÓR Blöndal samgönguráð-
herra segir að undirbúningur vega-
framkvæmda í Grafarvogi sé í
höndum samstarfsnefndar á veg-
um Vegagerðarinnar og borgar-
verkfræðings undir stjóm borgar-
verkfræðings.
„Eg mun beita mér fyrir því að
hægt verði að bjóða verkið út á
þessu ári. En ég get ekki tekið um-
mæli borgarstjóra um hálfs mánað-
ar frest alvarlega þar sem útboðs-
gögnin liggja ekki einu sinni fyrir,“
sagði samgönguráðherra í samtali
við Morgunblaðið.
Nafnið á samtökunum, sem mætti
þýða sem handan krabbasjúkdóms-
ins, gefur til kynna eitt aðalviðfangs-
efni þeirra, að líf sé handan sjúk-
dómsins. Leggja þau töluverða
áherslu á sport í því sambandi, auk
þess sem unnið er að því að vekja
áhuga á rannsóknum og fyrirbyggj-
andi aðgerðum í skólum og í félög-
um.
Þau hafa m.a. stuðlað að því að
rjúfa einangrun þessara sjúku barna
gagnvart dauðanum og að því að
þeirra villtustu draumar megi rætast
burtséð frá sjúkdóminum. Fóru m.a.
með slíka krabbameinssjúka ung-
linga 1993 á Mont Blanc, 1994 á
Kilimanjaro, 1995 á fjallið Copa í
6.121 m hæð og Piseo í Perú, 1996 á
P-iton des Neige og Piton de la Fo-
urnaise og loks í fyrra á Grand Para-
dis í 4.061 m hæð á Ítalíu. í hverri
ferð voru félagar í samtökunum
ásamt nokkrum veikum einstakling-
um. Nú höfðu tveir sjúklingar þráð
Halldór segir að framkvæmdir
við Gullinbrú hafi ekki borið á
góma í viðræðum hans við borgar-
stjóra nokkuð lengi.
Fyn’ í þessari viku hafi honum
hins vegar borist ályktun borgar-
ráðs þar sem fram kemur að leitað
mest að komast norður undir heim-
skautsbaug. Önnur ástæða fyrir val-
inu í ár er hve framarlega íslending-
ar standa í krabbameinsrannsókn-
urn.
Áhugi Gravelines-bæjar á stuðn-
ingi við framkvæmdina byggist m.a.
á að íbúafjöldi á Dunkerque-svæðinu
er álíka mikill og á íslandi og á hefð-
bundnum vináttutengslum við Is-
land.
íslandshringurinn
Ferðin verður dagana 18. júlí til 2.
ágúst. Aformað er, eins og kynnt var
á blaðamannafundinum í Frakklandi,
ferðalag um hringveginn, 1.416 km
leið, í tveimur hópum sjúkra og
fylgdarmanna þeirra og eru áfang-
arnir 8. Munu krabbameinsveiku
unglingarnir hjóla spotta og spotta
eftir getu. Farið verður að Gullfossi
og Geysi og að Hellu, þaðan að
Kirkjubæjarklaustri og Höfn og
dvalið um helgi á Fáskrúðsfirði.
verði heimildar Vegagerðarinnar
til að bjóða út hið fyrsta breikkun
Gullinbrúar.
„Fyrir rúmu ári varð það að
samkomulagi ríkis og borgar að
ljúka framkvæmdum við Artúns-
brekku, enda yrði ekki ráðist í
Þá verður farið til Egilsstaða og
Mývatns og til Akureyrar. Þaðan er
vonast til þess að geta komist norður
yfir heimskautsbauginn í Grímsey.
Loks liggur leiðin um Hvamms-
tanga, Borgarnes og til Reykjavíkur.
Vonast er til að geta heimsótt hlið-
stæð samtök og heilbrigðisstofnanir
á íslandi. Og til að geta á leiðinni hitt
íslenska krabbameinssjúka. Þetta
viðfangsefni hefur hlotið heitið La
boucle Islandaise eða íslandshring-
urinn.
Unnið er að fjármögnun á ferðinni
á Dunkerque-svæðinu. Aform eru
um sölu á kílómetrum til styrktarað-
ila. Þá efnir Gravelines-bær, sem á
gott körfuboltalið, til keppni þar í
maí-júní, blaðamenn frá Radío Delta
FM munu fylgja hópnum og miðla
fréttum til annarra, kynningarher-
ferð er hafin í blöðum og við heim-
komuna verður efnt til samkomu
með kynningu á ævintýrinu og því
sem hópurinn hefur orðið vísari.
frekari vegaframkvæmdir í höfuð-
borginni á síðasta ári. Gullinbrú
bar ekki á góma í því samkomulagi.
Eins og málin standa nú er hönnun
Gullinbrúar ekki lokið og borgin
stefnir að því að brúin verði tekin í
notkun á næsta ári. Hins vegar er
undirbúningur útboðs á breyting-
um á gatnamótum við hringtorgið í
Grafarvogi og breikkun götunnar
við Gullinbrú á lokastigi. Því verð-
ur jafnvel hægt að bjóða verkin út í
þessum mánuði eða þeim næsta,“
sagði Halldór Blöndal samgöngu-
ráðherra.
SUS efnir til
ritgerðasam-
keppni fyrir
ungt fólk
SAMBAND ungra sjálfstæðis-
manna efnir til ritgerðasamkeppni
um frelsið. „Markmið keppninnar
er að vekja ungt fólk til umhugsun-
ar um mikilvægi frelsisins fyrir ein-
staklinga og samfélög. Með ritgerð-
samkeppninni „Frelsispenninn" vill
SUS stuðla að frekari umræðu með-
al ungs fólks um frelsið og að það
velti fyrir sér hvernig unnt er að
nota frelsið sem tæki til að bæta
þjóðfélagið og styrkja einstakling-
ana.
Öllu ungu fólki á aldrinum 16-20
ára er heimiluð þátttaka í
Frelsispennanum. Þátttakendur
geta sent inn ljóð, smásögur eða rit-
gerðir sem lýsa mikilvægi frelsisins
fjrrir einstaklinginn og'eða þjóðfé-
lagið. Hámarkslengd efnis er 7 bls.
Höfundur besta efnisins hlýtur
frelsispennann til eignar og 60.000
kr. Önnur verðlaun eru 30.000 kr.
og fyrir þriðja sætið eru veittar
15.000 kr. Verðlaunin verða afhent í
boði sem öllum þátttakendum verð-
ur boðið til,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá SUS.
Dómnefnd Frelsispennans skipa
5 einstaklingar. Formaður dóm-
nefndar er Matthías Johannessen,
skáld og ritstjóri. Aðrir í dómnefnd
eru Ásdís Halla Bragadóttir, for-
maður SUS, Súsanna Svavarsdóttir,
blaðamaður og rithöfundur, Tómas
Ingi Olrich alþingismaður og dr.
Þór Whitehead prófessor.
Allar nánari upplýsingar er að
finna á heimasíðu Frelsispennans:
http:/Avww.xd.is/frelsi. Þar ei-u m.a.
upplýsingar um gagnlegar bækur,
fróðleg vefföng, hugmyndir að rit-
gerðarefnum, tilvísanir og spak-
mæli. SUS áskilur sér allan rétt til
birtingar á efni því sem berst í
keppnina.
Frestur til að skila efni rennur út
mánudaginn 2. mars. Þátttakendur
eiga að skila efninu undir dulnefni
en nafn og heimilisfang á að fylgja
með í lokuðu umslagi. Póstfangið
er: Frelsispenninn, Háaleitisbraut
1,105 Reykjavík.
Styrktaraðili keppninnar er ís-
landsbanki hf.
Blað allra landsmanna!
- kjarni málsins!
Halldór Blöndal samgönguráðherra um vegaframkvæmdir í Grafarvogi
Beiti mér fyrir
útboði á þessu ári
12 mánuðir
fyrir hús-
brot
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt 39 ára Reykvíking í 12
mánaða fangelsi fyrir líkamsárás,
árás á lögreglumenn og fyrir að
hafa tvívegis ruðst inn í hús Pósts
og síma við Kirkjustræti, ógnað
varðmanni með hnífi og skemmt
húsmuni og tæki, auk þess að ráðast
þar gegn lögreglumönnum og kasta
að þeim lauslegum munum.
Maðurinn sló annan mann með
trélista fyrir utan skemmtistað í
borginni í júní sl. og meiddist sá á
gagnauga. Þegar fjórir lögreglu-
menn hugðust handtaka hann beitti
hann listanum á þá og sparkaði í þá.
I dómi Héraðsdóms kemur fram
að við geðrannsókn hafi ekki komið
fram einkenni hjá ákærða um geð-
veiki eða annað samsvarandi
ástand, en að hann hafi misnotað
áfengi og lyf og verið félagsfælinn
frá unga aldri.
Af tólf mánaða refsingu mannsins
eru níu mánuðir skilorðsbundnir til
þriggja ára. Gæsluvarðhald manns-
ins frá 28. október sl. kemur til frá-
dráttar refsingu og hefur hann því
þegar setið af sér óskilorðsbundinn
hluta dómsins.
FRAM-VALUR
i l^níVio'w
íeblAa1 VI-16'3°'
M«rí