Morgunblaðið - 07.02.1998, Page 16

Morgunblaðið - 07.02.1998, Page 16
] 16 LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998 i I MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Félagsmiðstöð fyrir eldri en 16 ára Laufin og spaðarn- ir komin til að vera Grindavík - Ný félagsmiðstöð fyrir ungt fólk í Grindavík ber hið undarlega nafn „Laufin og spaðarnir". Þetta húsnæði er í gömlu frystihúsi sem hætt hefur vinnslu, Hraðfrystihúsi Grinda- víkur. Hrafnhildur Björgvinsdóttir átti frumkvæði að þessum félags- skap en hún fór að velta fyrir sér hvað væri fyrir þennan aldurs- hóp að gera og í hvaða hús hann hefði að venda eftir sjálfsvíg son- ar hennar, Hafliða Ottóssonar, sem féll frá í desember 1996, þá aðeins 18 ára að aldri. Var virki- lega ekkert nema „pöbbinn" eða göturnar sem þessi hópur gat valið um. „Hafiiði hafði átt í erfiðleikum með áfengi. Ein af ástæðunum fyrir áfengisnotkun krakkanna var þetta aðstöðuleysi og því langaði mig til þess að gera eitt- hvað fyrir þennan aldurshóp,“ sagði Hrafnhildur. Forvamastarf fyrir gleymda hópinn Hrafnhildur vonast til þess að forvarnastarfið sem fari fram í „Laufunum og spöðunum“ verði öðram hvatning til að sinna þess- um aldurshóp félagslega. „Mér finnst eins og að þessi hópur hafí gleymst alfarið hvað varðar fé- lagsstarf án áfengis, en mark- miðið með þessari starfsemi er einmitt að halda uppi félagsstarfi fyrir 16 ára og eldri án áfengis," sagði Hrafnhildur. Hrafnhildur fékk í lið með sér Sr. Jónu Kristínu Þorvaldsdóttur og Hilmar Knútsson. Það var svo fljótlega sem þetta húsnæði fékkst endurgjaldslaust frá Fiski- mjöl og Lýsi hf. Þau þijú eru eins konar bakland félagsins en unglingarnir sitja í stjórninni. Til þess að koma þessu húsnæði í nothæft ástand var ljóst að miklu þurfti að breyta og mikið að bæta. Akveðið var að standa fyr- ir maraþonvinnu og reyna að opna með einhverjum hætti. Miklar efasemdir voru í gangi um að þetta tækist á tilsettum tíma þ.e. frá fímmtudegi til sunnudags. Otrúleg breyting á stuttum tíma Fjöllistamaðurinn Örn Ingi frá Akureyri var fenginn til að stjórna þessu maraþoni. Eftir miklar breytingar og þrotlausa vinnu var húsnæðið tekið í notk- un sunnudaginn 14. desember síðastliðinn og reyndar var það þannig að unnið var nánast allan sólarhringinn dagana fyrir opn- unarhátiðina. Þegar Hilmar Knútsson var truflaður við vinnu sína í þessu húsnæði þar sem hann var að gera snyrtinguna klára fyrir kaffihúsakvöld og spurður um þetta undarlega nafn sagði hann: „Nafnið er tilkomið vegna frasa sem notaður var í gömlu ára- mótaskaupi sem Hafliði Ottósson og félagar héldu mikið uppá: „Þegar laufin sofa liggja spað- arnir andvaka“.“ Þegar Hilmar var spurður um hvernig það hefði verið að stand- setja þetta húsnæði sagði hann: „Það var ótrúlegt að sjá breyt- inguna sem varð á svona stuttum tíma,“ og vildi koma á framfæri þakklæti til allra sem lögðu mál- efninu lið, bæði fyrirtækjum í bænum, eins og Rafborg sem gaf öll Ijósin, Kvenfélaginu, einstak- lingum og nánast öllum fyrir- tækjunum í bænum. Þá lagði Grindavíkurbær málinu Iið með góðu fjárframlagi. „Við erum búin að vera í vand- ræðum með miðstöðina en nú er búið að ráða bót á vandræðunum með hitann, en það ásamt því að ekki var búið að ráða starfsmann hefur haldið aftur af starfsem- inni til þessa. Nýráðinn starfs- maður heitir Ómar Enoksson," sagði Hilmar og benti á manninn fyrir framan sig, sneri sér siðan aftur að því að gera snyrtinguna klára. Það lá því beinast við að spyrja Ómar um starfsemina og sagði Ómar að einhverjir klúbbar væru komnir á laggirnar m.a. Ieiklist- ar-, blaða-, billjard-, ljóða-, video-, borðtennis-, píluklúbbur o.fl. „Þá verða ýmsar uppákom- ur, eins og t.d. kaffihúsakvöld á boðstólum, allt eftir áhuga krakkanna sjálfra. Síðast þegar kaffihúsakvöld var hér voru um 100 krakkar, það voru lesin ljóð, gripið í gítar og ekki má gleyma frábæru uppistandi," sagði Óm- ar. „Þá fékk Hilmar Knútsson forláta gulllitaðan hamar að gjöf | sem viðurkenningu fyrir vel unn- j in störf í þágu félagsmiðstöðvar- ' innar en umrædd viðurkenning var einmitt aflient á fyrsta kaffi- húsakvöldinu 28. janúar síðastlið- inn. Það verður opið alla virka daga frá 20-24 og um helgar frá 20-3 en hve lengi er opið verður þó að þróast eftir þörf. Ég held að þetta sé fyrsta félagsmiðstöð- , in fyrir þennan aldurshóp í land- ' inu,“ sagði Ómar og vonaðist til að þessi starfsemi yrði öðrum hvatning til að fara af stað. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir STARFSMENN Netag-eröarinnar gæddu sér á góðum veitingum. Utibú Netagerðarinnar Ingélfs á Þérshöfn Stærsta verkefninu fagnað Þdrshöfn. ^ HÚS Netagerðarinnar og athafnasvæði. Það var glatt á hjalla hjá Netagerð- inni Ingólfi á Þórshöfn á dögunum en þá gerðu starfsmenn sér daga- mun með kaffi og kræsingum og gestir voru viðstaddir. Tilefnið var að Netagerðin afgreiddi nýja nót til nótaskipsins Neptúnusar sem er í eigu Skála ehf. á Þórshöfn. Þetta er fyrsta nótin sem Netagerðin setur upp frá grunni og stærsta verkefni hennar á Þórshöfn til þessa. Hraðfrystistöð Þórshafnar hf. er stærsti viðskiptavinur Netagerðar- innar og eru nótaskipin Júpíter og Neptúnus bæði þjónustuð þar. For- svarsmönnum Hraðfiystistöðvar Þórshafnar hf. var boðið að þiggja veitingar í Netagerðinni af þessu tilefni og sagði Jóhann A. Jónsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystistöðv- arinnar, að það væri mikill styrkur fyrir byggðarlagið að Netagerðin hefði stofnsett verkstæði hér á staðnum. Netagerðin Ingólfur á Þórshöfn er útibú frá Vestmannaeyjum og útibússtjóri er Ingi Freyr Ágústs- son. Alls starfa 7 menn hjá Neta- gerðinni sem er í tæplega 600 fer- metra húsnæði og hýsir starfsemina ágætlega, að sögn Inga Freys. Nýr útibússtjóri tekur við Netagerðinni á Þórshöfn fljótlega og er það Osk- ar Pétur Friðriksson sem flytur hingað með fjölskyldu sína. Ingi Freyr hefur veitt útibúinu á Þórs- höfn forstöðu frá því að starfsemin hófst í júlí síðastliðnum en hyggst færa sig um set til Namibíu og vinna þar hjá fyrirtækinu Seaflower sem er að 20% í eigu íslenskra sjáv- arafurða og 80% í eigu namibískra stjórnvalda. Þar er þjónusta við togara og troll en Ingi Freyr tekur við af íslendingi sem er að flytja heim. Næg verkefni hafa verið í Neta- gerðinni á Þórshöfn og full þörf á þessari þjónustu, „þó fyrr hefði ver- Isafjarðarbær Friðrik íþrétta- maður ársins I Isafirði - Körfuknatt- leiksmaðurinn snjalli hjá KFÍ, Friðrik E. Stefánsson, var á þriðjudagskvöld út- nefndur Iþróttamaður Isafjarðarbæjar fyrir árið 1997. Útnefning hans var kunngerð í hófi sem bæjarstjórn Isafjarðarbæjar, fræðslunefnd bæjarins, ásamt Iþróttabandalagi Isfirðinga og HVI efndu til í félagsheimil- inu á Þingeyri. Fá- mennt var á hófinu enda tímasetningin ekki eins og best verður á kosið. Auk Friðriks, sem ekki gat verið viðstaddur út- nefninguna vegna æfinga, fengu átta aðrir íþróttamenn viðurkenn- ingu fyrir árangur sinn og ástund- un. Iþróttamaður ísafjarðabæjar fyrir árið 1997, Friðrik E. Stefáns- Átak til Flateyri - Helgina 16.-18. janúar gekkst fræðslusambandið Símennt fyrir tveggja daga námskeiði í Holti í Önundarfirði. Að fræðslusamband- inu Símennt standa Bændasamtök íslands, Kvenfélagasamband ís- lands og Ungmennafélag Islands. Námskeiðið sóttu í kringum 20 manns. Fyrirlesarar á þessu nám- skeiði voru Ingibjörg Stefánsdóttir frá Iðntæknistofnun Islands, Hall- dóra Gunnarsdóttir frá Ungmenna- félagi Islands; Halldór Halldórsson, framkvæmdastjóri Fjórðungssam- bands Vestfjarða, Guðmundur Ein- arsson, forstöðumaður Farskóla son, spilar með KFÍ. Hann hefur náð frá- bærum árangri með liðinu og er ein helsta ástæða iyrir velgengni félagsins á liðnum ár- um og þá kannski sér; staklega á síðasta ári. I lokahófi Körfuknatt- L leikssambands íslands 1 sem haldið var í maí á síðasta ári var hann kjörinn efnilegasti körfuknattleiksmaður landsins og undirstrik- aði sú útnefning hversu miklum framförum Friðrik tók á keppnistímabilinu. Friðrik er fyrsti leikmaðurinn frá Isafjarðarbæ sem valinn hefur ver- ið í A-landslið í körfuknattleik og . hefur hann verið bæjarfélaginu til í mikils sóma. Friðrik, sem er aðeins | 21 árs, er frábær íþróttamaður og býr yfir miklu keppnisskapi auk þess sem hann er góður félagi. athafna Vestfjarða, og Dorothee Lubecki, ferðamálafulltrúi Vestfjarða. Markmið námskeiðsins er að auð- velda fólki að koma auga á nýja at- vinnumöguleika í nánasta umhverfi sínu, efla sjálfstraust þess og gera það færara um að skapa sér betri framtíðarmöguleika í síbreytilegu starfsumhverfi. Sérstök áhersla er lögð á mikilvægi símenntunar og fullorðinsfræðslu. Miklar og fjörug- ar umræður sköpuðust á námskeið- inu og var víða komið við hvað varð- ar stöðu Vestfjarða í atvinnumögu- leikum hvað varðar lífræna ræktun | og umhverfisvænni ferðaþjónustu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.