Morgunblaðið - 07.02.1998, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Hagnaður Kreditkorts hf. 74 milljónir króna í fyrra
Möguleiki á er-
lendri eignaraðild
KREDITKORT hf., sem gefur út
Eurocard greiðslukortin, skilaði um
74 milljóna króna hagnaði á síðast-
liðnu ári, samanborið við 100 milljón-
ir árið 1996. Arðsemi eigin fjár nam
11,2%. Á aðalfundi félagsins, sem
haldinn var í gær, kom fram að til
greina kemur að fá erlenda aðila til
liðs við fyrirtækið.
Rekstrartekjur fyrirtækisins juk-
ust um 4,7% milli ára og námu 511
milljónum í fyrra. Rekstrargjöld juk-
ust um 14,4% milli ára og námu 460
milljónum.
Á fundinum kom fram að minnk-
andi hagnaður ætti rót sína að rekja
til hækkunar á gjaldaliðum vegna
aukinna umsvifa og fjárfestinga í
framtíðarkorthöfum. Ragnar Önund-
arson stjómarformaður sagði að fé-
lagið skilaði nú svipuðum hagnaði og
verið hefði að jafnaði um árabil og
arðsemin væri góð.
Hann sagði að til um-
ræðu væri að fá erlenda
aðild að félaginu þvi það
myndi aðgreina það vel
frá kej>pinauti þess,
Visa Islandi. „Þetta
kann að skipta máli
gagnvart samkeppnisyf-
irvöldum og víkja grun-
semdum um einokun og
samráð til hliðar. En
e.t.v. er kjarni málsins
varðandi erlend tengsl
sá, að það mun reynast
mikilvægt á næstu árum
að eiga trausta banda-
menn í hinni öru tækni-
þróun sem er að verða í kortavið-
skiptum. Okkar litla félag, með fímm
starfsmenn í tölvumálum, gæti stað-
ið höllum fæti á næstu árum án slíks.
Ragnar Önundarson
Ríkiskaup bjóða
út 72 bfla
Samið við
Heklu um
kaup á 30
bhum
HEKLA hf. var hlutskarpasta fyrir-
tækið í árlegu bflaútboði Rfldskaupa
á samtals 72 bflum fyrir rfldsstofnan-
ir nýverið. Atti Hekla lægsta tilboðið
í kaup rfldsins á 30 bflum, en þar á
eftir komu Ingvar Helgason með 22
bíla, Brimborg með 10 bfla, Suzuki
bflar voru með 9 bfla og Bflheimar 1.
Áætlaður heildarspamaður rfldsins
vegna útboðsins er um 17,7 milljónir
króna ef miðað er við listaverð um-
boðanna.
Ríkiskaup efhdu til forvals fyrir út-
boðið, þar sem bflaumboðin sendu
inn upplýsingar um þá bfla sem þau
hugðust bjóða. Bflunum var síðan
raðað í ákveðna flokka eftir stærð og
eiginleikum og að því búnu send út
forvalsgögn. Tekið var lægsta tilboði
í hverjum flokki.
Samkvæmt upplýsingum Rflds-
kaupa voru dæmi um allt að 340 þús-
und króna afslátt af einstökum teg-
undum, en ekki fengust upplýsingar
um hvaða umboð átti þar í hlut. Sjö
bflaumboð tóku þátt í útboðinu, en
tvö þeirra, P. Samúelsson hf. og
Ræsir hf., seldu engan bfl til ríkisins
að þessu sinni.
Korthafarnir borga fyrir sig
Ragnar sagði að nokkrir aðilar í
verslun og þjónustu virtust stundum
fá ofbirtu í augun vegna góðrar af-
komu félagsins. í því sambandi væri
rétt að benda á að rúmlega 2/3 af af-
komu félagsins ættu uppruna sinn í
öðru en greiðslukortaviðskiptum,
þ.e. lánastarfsemi. „Og þriðjungur-
inn tæpi sem eftir er, 24 mflljónir, er
ekki tekinn allur af verslunar- og
þjónustuaðilum, það er mikill mis-
skilningur, korthafarnir borga líka
fyrir sig, svipaðar fjárhæðir, með ár-
gjöldum og þjónustugjöldum. ... Töl-
ur í skýrslu Samkeppnisstofnunar
styðja þá ályktun mína að ekki sé um
oftöku álagningar að
ræða hjá greiðslukorta-
félögunum. Þær sýna
einmitt að hérlendis
hefur kostnaði við
greiðslumiðlun verið
haldið í skefjum."
Ragnar fjallaði um þá
skilmála sem lengi hafa
verið í samningum
greiðslukortafélaga við
verslanir og þjónustu-
aðila sem kveða á um að
seljanda vöru sé óheim-
ilt að hækka verð vöru
sé korti framvísað við
kaupin. Ragnar sagði
að þetta gamla ákvæði
væri barn síns tíma og hefðin hefði
haldið því lifandi. „Slíkt ákvæði, sem
víða hefur tíðkast, myndu menn ekki
taka upp nú, en hefðin hefur haldið
því lifandi. Ég tel ekki eftirsjá að
þessu ákvæði, því virk samkeppni á
markaði gæti leyst það af hólmi.“
Ragnar sagði að víst væri að sá
kostnaður, sem verslanir og þjón-
ustuaðilar hefðu tekið á sig með
þessu gjaldi, væri fyrir löngu kominn
út í verðlagið og því greiddi neytand-
inn kostnaðinn en ekki kaupmaður-
inn. „Afleiðing bannsins ætti að
verða sú að kaupmenn veiti við-
skiptavinum sínum staðgreiðsluaf-
slátt, sé greitt með peningum.
Ósanngjamt væri að hækka verðið,
sé greitt með korti, þar sem þóknun
kortafélaganna er nú þegar inni í
verðinu. Þetta hygg ég að samkeppn-
in hljóti að tryggja þegar frá líður.
BENJAMIN Guðmundsson, framkvæmdastjóri Víkuráss, fer hér hönd-
um um fyrstu borðin af íslenska spónaparketinu, Scandic Parket.
Islenskt spónaparket
aftur á markaðinn
TRESMIÐJAN Víkurás í Reykja-
nesbæ hefur á ný hafið framleiðslu
á íslenska spónaparketinu, Scandic
Parket, en framleiðsla þess hefur
legið niðri frá því fyrirtækið brann
fyrir um einu og hálfu ári, að því
er segir í frétt frá fyrirtækinu.
Scandic Parket er ætlað jafnt
fyrir vinnustaði og heimili. Það
kom fyrst á markaðinn hér á landi
árið 1994 og náði strax umtals-
verðri markaðshlutdeild. spónap-
arketið er unnið úr OSB plötum
sem fluttar eru inn frá Skotlandi.
Verulegur virðisauki fæst af því að
vinna spónaparket hér á landi og
þessi framleiðsla er jafnframt mik-
ilvægur þáttur í starfsemi Vík-
uráss.
Landsvirkjun býður út 1.250
milljóna kr. skuldabréf
LANDSVIRKJUN hyggst efna til
skuldabréfaútboðs að fjárhæð 1.250
milljónir króna til að nýta sér þá
vaxtalækkun sem orðið hefur að
undanfómu í skuldabréfum til langs
tíma. Áformað er að sala bréfanna
hefjist í næstu viku.
@texti: Skuldabréfin bætast við
bréf sem fyrir eru í opnum flokki
Landsvirkjunar á Verðbréfaþingi ís-
lands en Islandsbanki sér um virka
viðskiptavakt þessara bréfa. Flokk-
urinn var stofnaður í tengslum við
skuldabréfaútgáfu fyrirtækisins sem
nam einum milljarði króna og var
gerð fyrir milligöngu íslandsbanka í
september síðastliðnum. Sölutímabil
verður einn mánuður og skal tilboðs-
gjafí sölutryggja útgáfuna. Þá er
gert ráð fyrir því að 625 milljónir
króna greiðist til Landsvirkjunar
eigi síðar en tveimur vikum frá út-
gáfudegi og hinn hluti tilboðsfjár-
hæðarinnar í síðasta lagi fjómm vik-
um eftir útgáfudag.
Tilboðið skal miðast við ávöxtun-
arkröfu húsbréfa á sölutímabilinu
en hún skal skilgreind sem hag-
stæðasta kaupkrafa húsbréfa í
flokki 96/2 þó að lágmarki 10 millj-
ónir króna, á Verðbréfaþingi ís-
lands á söludegi.
Stefán Pétursson, deildarstjóri
fjármáladeildar Landsvirkjunar,
Nýtt frumvarp um vexti og verðtryggingu kynnt í ríkistjórn
Dráttarvextir gefnir frjálsir
LAGT er til að dráttarvextir verði gefnir frjálsir í
nýju lagafrumvarpi um vexti, dráttarvexti og
verðtryggingu sem kynnt hefur verið í rílds-
stjóm. Gert er ráð fyrir að aðilar að samningi
ákveði dráttarvexti sem álag ofan á samnings-
vexti, þó þannig að dráttarvextir verði aldrei
hærri en 10 prósentustig ofan á samningsvexti.
Ekki þykir þó ástæða til að búast við að álagið
verði almennt nálægt hámarki við núverandi
vaxtastig, samkvæmt upplýsingum viðskipta-
ráðuneytisins.
Þessi breyting byggist á því sjónarmiði að eðli-
legt verði að teljast að samningsbundið refsiálag
bætist ofan á samningsvexti ef greiðslufall verð-
ur hjá greiðanda. Dráttarvöxtum sé einmitt ætl-
að að hafa vamaðaráhrif, þ.e. að hvetja skuldara
til réttra efnda á skuldbindingum sínum. Það sé
best gert með samningsbundnu álagi ofan á
samningsvexti. í núgildandi kerfí geti samnings-
bundnir vextir til ótraustra skuldara hins vegar
verið hærri en dráttarvextir ákveðnir af Seðla-
banka.
Þá er lagt til að í þeim tilvikum, þar sem ekki
er samið sérstaklega um dráttarvexti, verði farið
eftir álagi ofan á samningsvexti sem Seðlabank-
inn ákveður og birtir opinberlega. Er búist við að
samningsaðilar muni líta mjög til viðmiðunará-
lags Seðlabankans við ákvörðun dráttarvaxtaá-
lags. Ef hvorki er samið um vexti né dráttarvexti,
en áskilið er engu að síður að krafan beri vexti,
eru dráttarvextir ákveðnir sem samtala viðmið-
unarvaxta sem Seðlabankinn ákveður með hlið-
sjón af lægstu vöxtum á markaði og viðmiðunar-
álags Seðlabankans.
Hvati til að semja um vexti
í vaxtalagafrumvarpinu felst hvati fyrir aðila
um að semja um ákveðna vexti sín á milli, en
nota ekki í blindni almenna viðmiðun við vexti á
markaðnum eins og nú tíðkast t.d. meðalvexti á
nýjum almennum útlánum banka og sparisjóða
eða hæstu vexti í bankakerfinu. Það hefur orðið
æ erfiðara fyrir Seðlabankann að velja vogir til
að reikna þessa vexti eftir því sem kjörvaxta-
kerfi banka og sparisjóða hefur vaxið fiskur um
hrygg. I öðru lagi hefur vægi lána í bankakerf-
Samhliða endurreisn Víkuráss
eftir brunann hefur timinn verið
notaður til vöruþróunar. Hið nýja
Scandic Parket er nokkuð frá-
brugðið því gamla í útliti, en upp-
bygging, rakaþol og styrkleiki eru
hin sömu og fyrr. Þá er ekki leng-
ur nauðsynlegt að lakka yfír
spónaparketið að lagningu lokinni
þar sem það er nú lakkað með svo-
nefndu UV-lakki sem flestir
stærsti parketframleiðendur í Evr-
ópu nota.
Húsasmiðjan hf. annast dreif-
ingu á Scandic Parket hér á landi
og fæst það í flestum bygginga-
vöruverslunum um land allt. Jafn-
framt er unnið að markaðssetn-
ingu á Scandic Parket í Evrópu.
segir að með útboðinu stefni fyrir-
tækið að því að njóta góðs af þeirri
vaxtalækkun sem orðin er á lang-
tímabréfum á markaðnum. „Þá er
útboðið einnig liður í þeirri stefnu að
hækka hlut krónunnar í skuldasam-
setningu fyrirtækisins en það dregur
úr gengisáhættu til lengri tíma litið.
Vaxtaumhverfið nú er Landsvirkjun
afar hagstætt og við eigum von á
góðum viðtökum fjárfesta, ekki síst í
ljósi þess að fyrirtækið hefur láns-
hæfiseinkunnina AA+ vegna skuld-
bindinga í íslenskum krónum frá
matsfyrirtækinu Standard og Poor’s
en það er sama einkunn og ríkið hef-
ur í dag,“ segir Stefán.
inu minnkað mjög frá því að vaxtalögin voru
sett fyrir rúmum áratug og því þykir óeðlilegt
að í vaxtalögum sé eingöngu miðað við vexti í
bankakerfinu. í þriðja lagi eru við útreikning á
meðalvöxtum notaðir allir vextir af skuldabréfa-
lánum banka og sparisjóða, þ.e. lánum á lágum
vöxtum til traustra aðila með góðar tryggingar
og lánum á háum vöxtum til aðila með lakari
tryggingar og allir vextir þar á milli. Þessir
meðalvextir eru síðan notaðir í ríkum mæli í
samningum manna á milli utan bankakerfisins
án þess að tillit sé tekið til mismunandi að-
stæðna lántakenda.
í stað þess að birta meðalvexti og hæstu vexti í
bankakerfinu er lagt til að Seðlabankinn birti
lægstu vexti sem bankinn ákveður með hliðsjón
af lægstu vöxtum á útlánum hjá viðskiptabönk-
um, sparisjóðum og öðrum lánastofnunum. Aðil-
ar geta síðan notað þessa viðmiðun ef þeim sýnist
svo og samið um álag ofan á lægstu vexti. Einnig
er lagt til að þegar samningsaðilum láist að til-
greina vexti verði miðað við þá vexti sem Seðla-
bankinn birtir.
RARIK sel-
ur verk-
stæði sitt
RAFMAGNSVEITUR ríkis-
ins (RARIK) hafa ákveðið að
selja rafmagnsverkstæði fyr-
irtækisins til einkaaðila. Tæki
og búnaður verkstæðisins
voru nýlega auglýst til sölu á
vegum Ríkiskaupa, en um leið
var óskað eftir tilboðum frá
bjóðendum í tiltekna þjónustu
við RARIK.
Sex tilboð bárust í útboðinu
og er nú unnið að því að yfir-
fara þau hjá Ríkiskaupum. Að
sögn Steinars Friðgeirssonar,
framkvæmdastjóra tæknisviðs
RARIK, er gert ráð fyrir að
fyrirtækið kaupi þjónustu af
nýjum rekstraraðila sem nem-
ur um helmingi af starfsemi
verkstæðisins undanfarin ár.
Samningurinn verður til
þriggja og hálfs árs, en gert er
ráð fyrir að nýr aðili ráði til
sín núverandi starfsmenn
verkstæðisins sem voru 15
talsins um síðustu áramót.
Hlutafjárút-
boði Þor-
björns lokið
HLUTAFJÁRÚTBOÐI Þor-
bjöms hf. í Grindavík lauk í
síðustu viku og er búist við að
félagið hljóti skráningu á
Verðbréfaþingi á næstunni.
Félagið bauð út samtals 30
milljónir króna að nafnvirði
og seldust um 17% útboðsins
til forkaupsréttarhafa, 30%
bréfanna seldust á almennu
sölutímabili, en 53% voru seld
til tilboðsgjafa. Gengi bréf-
anna í upphafi útboðsins var
7,57.
í
i