Morgunblaðið - 07.02.1998, Page 24
24 LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
I _
Vill opna
milli N- og
S-Kóreu
SON Song Pil, sendiherra
Norður-Kóreu í Moskvu, skýrði
frá því í viðtali við Tass-frétta-
stofuna, að N-Kóreustjóm hefði
hug á að opna víggirðinguna,
sem skilur að Kóreuríkin, á
nokkrum stöðum og koma þar
fyrir hliðum eins og var með
Berlínarmúrinn á sínum tíma.
Sagði hann, að það gæti orðið
upphafíð að því að fjarlægja
hana alveg. Hann bjóst þó við,
að þetta gæti tekið sinn tíma.
N-kóreskur sendimaðm-, sem
starfaði við Matvælastofnun Sa-
meinuu þjóðanna í Róm en er
nú kominn til Seoul í S-Kóreu,
sagði í gær, að hungursneyðin í
N-Kóreu væri meiri en nokkru
sinni áður og bömin stráféllu.
Sagði hann, að til dæmis mætti
sjá lík bama, sem soltið hefðu í
hel, við aðaljámbrautarstöðina í
Pyongyang.
Jeltsín á
páfafund
BORÍS Jeltsín, forseti Rúss-
lands, mun ganga á fund páfa og
undirrita mikilvæga viðskipta-
samninga í þriggja daga heim-
sókn sinni á
Italíu í næstu
viku. Verður
það fyrsta ut-
anlandsferð
hans frá því í
desember er
hann lét ýmis
skringileg orð
falla í Svíþjóð
og lagðist síðan inn á heilsuhæli
með flensu. Ekki er búist við, að
Jeltsín bjóði páfa til Rússlands
vegna andstöðu rússnesku rétt-
trúnaðarkirkjunnar.
„Karlinn“
verður kona
ÞÆR Melanie Rees og Susan
Moore, liðsforingjar í breska
sjóhernum, verða fyrstu kon-
umar í 300 ára sögu sjóhersins
til að gegna yfirmannsstöðu og
þar með skipsstjóm. Eiga þær
að taka við gæsluskipum á veg-
um sjóhersins í næsta mánuði
og gangast nú undir þjálfun í
því skyni. Em þær báðar 26
ára gamlar.
Flensan skæð
öldruðum
FRÁ því í desember hefur in-
flúensa orðið 29 manns að bana
á hjúkrunarheimili í Ziirich í
Sviss. Er nýrri inflúensuveiru,
sem gengur víða um heim,
kennt um en læknar telja ekki
ástæðu til að óttast, að ungu og
hraustu fólki sé hætt. Segja
þeir, að flensan sé raunar frek-
ar væg en eins og áður mjög
erfíð öldmðu fólki og sjúku.
Fær að skoða
gögn
ASIF Ali Zardari, eiginmaður
Benazir Bhutto, fyrrverandi
forsætisráðherra Pakistans,
vann nokkum sigur fyrir bresk-
um dómstóli í gær þegar úr-
skurðað var, að hann mætti
skoða bréf frá Pakistanstjórn
þar sem hann er sakaður um
eiturlyfjaverslun. Zardari er í
fangelsi í heimalandi sínu, m.a.
vegna gmns um morð á mági
sínu og spillingu, en hann segir,
að ásakanirnar séu af pólitísk-
um rótum mnnar.
STUTT
Saksóknari setur Lewinsky úrslitakosti
Clinton kveðst
aldrei íhuga afsögn
Washington. Reuters.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
sagði að hann myndi aldrei íhuga
afsögn vegna hneykslismálsins, sem
þyrlað var upp vegna meints ástar-
sambands hans og lærlingsins Mon-
icu Lewinsky. Komst hann svo að
orði á blaðamannafundi í Hvíta hús-
inu í gær. Þar neitaði hann því jafn-
framt að hafa reynt að hafa áhrif á
hvað ritari hans, Betty Currie,
myndi af samskiptum sínum við
Lewinsky, eins og blöðin Was-
hington Post og New York Times
héldu fram í gær. Talsmaður forset-
ans sagði fréttir blaðanna „hauga-
lygi“ og „leka“ sem rætur ætti að
rekja til Kenneths Starr saksókn-
ara.
Paul Begala, ráðgjafi Clintons,
krafðist þess í gær, að rannsókn
yrði hafin á „glæpsamlegum leka úr
rannsóknardómnum" því „einhverj-
ir vilja forsetanum það illt að þeir
ljúga og leka á degi hverjum.“ Að
sögn New York Timesá Currie að
hafa sagt við vitnaleiðslur hjá rann-
sóknardómnum, að forsetinn hefði
aldrei verið einn með Lewinsky í
Hvíta húsinu og „ekki látið kynferð-
islegar umleitanir hennar freista
sín.“
Stark vildi fá svör um það frá
Lewinsky í síðasta lagi í gær hvort
hún væri tilbúin að svara beinum
spurningum varðandi samband
þeirra Clintons. Setti hann henni
úrslitakosti þess efnis í fyrrakvöld
þar sem hann sagðist ekki geta tek-
ið afstöðu til þess hvort hún fengi
friðhelgi fyrir ákæru um meinsæri
nema hún féllist á að sitja fyrir
svörum hjá rannsóknardómnum og
jafnvel gangast undir lygamælis-
próf.
William Ginsburg, lögmaður
Monicu Lewinsky, hefur neitað því
að hann sé að reyna að semja við
Kenneth Starr saksóknara um að
Lewinsky verði veitt friðhelgi fyrir
ákæru um meinsæri gegn því að
hún beri vitni um samband sitt við
Bill Clinton forseta. The Was-
hington Post hafði skýrt frá því að
Starr hefði hafnað skriflegri beiðni
Lewinskys um friðhelgi.
„Við erum ekki að semja um neitt
á þessu stigi,“ sagði Ginsburg þegar
hann var spurður um frétt The
Washington Post.
Heimildarmenn Reuters í Was-
hington sögðu að aðstoðarmenn
Starrs hefðu tilkynnt Ginsburg að
saksóknarinn gæti ekki fallist á
skriflegt tilboð Lewinskys um að
hún bæri vitni gegn því að verða
ekki sótt til saka fyrir meinsæri.
Þeir sögðu þá ákvörðun Starrs að
hafna tilboðinu vera „dæmigerða" í
slíkum samningaviðræðum og lögðu
áherslu á að þær gætu hafist á ný.
Vijja yfirheyra Lewinsky
The Washington Post skýrði frá
því í gær að Lewinsky hefði viður-
kennt í skriflegu tilboði sínu að hafa
átt í kynferðislegu sambandi við
Clinton. Svör hennar við því hvort
Clinton og lögfræðingur hans hefðu
hvatt hana til að bera ljúgvitni um
sambandið hefðu hins vegar verið
óskýr.
Blaðið hafði eftir ónafngreindum
heimildarmönnum að saksóknar-
arnir hefðu einnig sagt Ginsburg að
þeir vildu yfirheyra Lewinsky í
næstu viku þar sem skriflega yfir-
lýsingin væri ófullnægjandi.
The Washington Post sagði að
Ginsburg hefði rætt við Starr og að-
stoðarmenn hans fyrr í vikunni til
að freista þess að fá þá til að veita
Lewinsky friðhelgi fyrir ákæru.
Hann hefði þá veitt þeim ýtarlegri
upplýsingar en Lewinsky gerði í
skriflegri yfírlýsingu sinni. Blaðið
bætti við að greinargerð Ginsburgs
virtist í mótsögn við yfirlýsingu
Lewinsky í nokkrum atriðum.
Kenneth Stan- hefur stefnt sjón-
varpsstöðinni WPEC á Flórída og
gert henni skylt að afhenda mynd-
bandsupptökur af dvöl Clintons á
búgarði ástralska golfleikarans
Gregs Normans í Flórída í mars í
fyrra. Starr grunar að Lewinsky
hafi verið þar samtímis en Norman
brást reiður við ásökunum þess efn-
is, sagði einungis fjórar konur hafa
verið á landareigninni. „Kona mín,
dóttir og tvær leyniþjónustukonur,"
sagði Norman og kvað það fárán-
legan hugarburð að Lewinsky hefði
verið þar.
Vill ströng
lög um
friðhelgi
London. The Daily Telegraph.
STRÖNG lög um friðhelgi
einkalífsins hefðu átt að geta
komið í veg fyrir að fjölmiðlar
greindu frá sambandi Robins
Cooks, utanríkisráðherra
Bretlands, og Gaynor Regan,
að mati Irvines lávarðar, for-
seta lávarðadeildar breska
þingsins.
Irvine leggur nú að eftir-
litsráði fjölmiðla að það grípi
til „forgangsbanns" þegar
fjölmiðlar vilji rjúfa friðhelgi
án þess að slíkt sé réttlætan-
legt á þeim forsendum að al-
menningur eigi rétt á upplýs-
ingunum. Hertar reglur í
þessum efnum myndu vera í
samræmi við væntanlegt
frumvarp ríkisstjórnarinnar
til laga um mannréttindi, en í
því eru ákvæði um friðhelgi.
Fjölmiðlar æfir
Breskir fjölmiðlar brugðust
ókvæða við tilmælum lávarð-
arins, og aðstoðarmenn Tonys
Blairs, forsætisráðherra, tóku
fram að ekki væri um að ræða
stefnu stjórnarinnar.
Lávarðurinn sagði mál
Cooks og Regans gott dæmi
um það sem hann ætti við.
„Hvernig getur verið að al-
mannahagur hafi verið í húfi í
því máli?“ sagði hann. Það
væri óviðunandi hvemig
einkalíf utanríkisráðherrans
hefði lent í brennidepli fjöl-
miðla.
Síðasta þingsetning Mandela
Japanir bregðast við gagnrýni
vegna kreppunnar í Asíu
Sérstök sendinefnd
til Indónesíu
Djakarta, Tókýó. Reuters.
NELSON Mandela, forseti Suður-
Afríku, setti í gær þingið í
Höfðaborg en það verður það
síðasta fyrir almennar þingkosn-
ingar á næsta ári. Þá ætlar hann
sjálfur að setjast í helgan stein
FLEST bendir til, að sett verði ný
lög í Bretlandi um leyfilegt áfengis-
magn í blóði ökumanna og hámarkið
lækkað verulega. Nú má það vera 80
milligrömm á hverja 100 millilítra en
lagt er til, að það verði 50. Það svar-
ar oft til þess, að drukkinn hafi verið
hálfur lítri af bjór. Jafnframt verður
lögreglunni heimilað að stunda um-
fangsmiklar öndunar- eða áfengis-
mælingar fyrir utan krár og veit-
ingastaði.
Samkvæmt nýju lögunum fær lög-
en hann verður áttræður í júlí. í
ræðu sinni í gær lagði Mandela
mikla áherslu á, að áfram yrði að
sýna ábyrgð f fjármálum ríkisins
og hrapa ekki að neinu í þeim
efnum.
reglan jafn mikið vald til að leita að
drukknum ökumönnum og hún hefur
nú við leit að vopnum og nýja áfeng-
ishámarkið svarar eins og áður segir
til þess, að drukkinn hafi verið hálfur
bjórlítri eða tvö glös af léttu víni.
Áhyggjur í derifbýlinu
Ljóst er, að ekki munu allir verða
jafn ánægðir með nýju reglurnar og
sem dæmi má nefna, að sumir hafa
áhyggjur af því, að þær muni kippa
fótunum undan rekstri margra kráa
JAPONSK stjórnvöld greindu frá
því í gær að sérstök sendinefnd rík-
isstjórnarinnar færi til Indónesíu
síðar í þessum mánuði í því skyni að
finna út úr því hvernig Japan geti
aðstoðað frekar við endurreisn
efnahagslífsins þar í landi. Með
þessu eru Japanir, sterkasta efna-
hagsveldi Asíu, að svara harðri
gagnrýni sem beint hefur verið
gegn þeim úr ýmsum áttum þess
efnis að þeir gerðu ekki nóg til að
bregðast við efnahagskreppunni í
álfunni.
„Þar sem leiðtogafundur sjö
helztu iðnríkja heims er í nánd mun
þessi sendinefnd geta veitt fjár-
málaráðherranum og forsætisráð-
herranum mikilvæga ráðgjöf um
það í hverju aðstoð Japans gæti
helzt falizt,“ sagði háttsettur emb-
ættismaður í japanska fjármála-
ráðuneytinu í gær.
Búizt er við að kreppan í Asíu
sums staðar á landsbyggðinni og
jafnvel félagslífinu þar meira eða
minna.
John Prescott aðstoðarforsætisráð-
herra sagði í fyrradag, að verið væri
að skoða tveggja þrepa kerfi þar sem
minna brotið varðaði sektum en það
meira sviptingu ökuleyfis. Hins vegar
er einnig til athugunar að hækka
sektir, lengja sviptingartíma og
þyngja fangelsisdóma. Er það stefna
stjómarinnar, að Bretar taki forystu í
baráttunni gegn ölvunarakstri.
verði mjög ofarlega á baugi við-
ræðna leiðtoga G7-hópsins svokall-
aða, sem Japan, Bandaríkin, Bret-
land, Þýzkaland, Frakkland, Ítalía
og Kanada eiga aðild að, en þeir
koma saman í Lundúnum 21. febrú-
ar næstkomandi.
Japanskir bankar og fjármála-
stofnanir eiga stærstan hluta
ógreiddra lána Indónesa. Af þeim
58,7 milljörðum bandaríkjadala sem
bankar eiga útistandandi í
Indónesíu er hlutur japanskra
banka 23 milljarðar, eða 39%.
Heildarskuldir Indónesa eru sam-
kvæmt nýjustu tölum 137,4 millj-
arðar dala, en þar af eru skuldir
einkaaðila í landinu 74 milljarðar.
En Japanir hafa orðið fyrir
þungri gagnrýni margra Asíuþjóða
og ekki síður Bandaríkjamanna fyr-
ir að halda sig of mikið til hlés í að-
gerðum til að bregðast við asísku
efnahagskreppunni, einkum falli
gjaldmiðla svæðisins.
Ný gjaldþrotalög
Athyglin beinist nú mjög að vand-
ræðum Indónesa, en í gær tilkynntu
stjómvöld þar að þau væm að und-
irbúa setningu nýrra gjaldþrota-
laga, en með því myndi Indónesíu-
stjóm standa við eina meginskuld-
bindinguna sem hún gekkst undir
með samningum við Alþjóðagjald-
eyrissjóðinn nýlega. Með þessum
samningi var Indónesum tryggð al-
þjóðleg fjárhagsaðstoð að upphæð
43 milljarðar dala.
Ríkisstjórnin greindi einnig frá
því í gær að eins og horfur væru í
efnahagslífinu liti út fyrir að tíundi
hver hinna 90 milljóna vinnufærra
manna í landinu yrði atvinnulaus
fyrir árslok.
Bretar herða baráttu gegn ölvunarakstri
Hámarkið hálfur bjórlítri
London. The Daily Telegraph.
i
i
i
i
l
I
i
!
i
L