Morgunblaðið - 07.02.1998, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
í ÞÁ GÖHLU GOÐU DA.GA
Porra-
matur í
trogum
Tími þorrablóta
stendur nú sem
hæst en sú var tíðin
að þorramatur var
torfenginn, nema
fyrir þá sem voru
félagar í einhverju
átthagafélagi.
viðkomandi héruð, svo að ýmsir
hafa ekki átt þess neinn kost að
snæða það góðmeti, sem hér um
ræðir.
Hinn hugkvæmi veitingamaður í
Nausti við Vesturgötu, Halldór
Gröndal, hefur nú gert ráðstafanir
til að hér verði bót á ráðin. Frá og
með deginum í dag geta menn
fengið þar í veitingahúsinu sér-
staklega tilreidda íslenska máltíð,
en þar sem allmikið þarf fyrir öll-
um undirbúningi að hafa verður
ekki unnt að selja matfong þessi
nema keypt sé máltíð handa 3
saman hið fæsta.
Maturinn verður reiddur fram í
trogum. Hafa þau verið smíðuð
sérstaklega fyrir veitingahúsið eft-
ir trogi í Þjóðminjasafninu. í þeim
verður margvíslegur matur og fær
hver maður óskammtað. Ekki
verður þess kostur að fá aska til að
snæða úr.“
VINÞJONAR,
sem á frönsku
bera hið virðulega
heiti sommeliers,
eru áberandi á
bestu veitingastöð-
um heims. Þeir sjá
um val á vínum
staðanna og aðstoða
viðskiptavini við val
á vínum með mál-
tíðinni. Sinna þeir
yfirleitt ekki öðrum störfum sam-
hliða þessu. Vínþjónastarfið er
enda mikil kúnst ef rétt á að vera.
Þeir verða að þekkja öll þau vín og
alla þá rétti, sem boðið er upp á, og
geta ráðlagt gestum í samræmi við
tilefni, matarval, efnahag og annað,
sem kann að hafa áhrif á vínval.
5flmTöK
ipp
vínpjóflft
Thc Aisodalion of Icdandie Soramclier's
Sælkerinn
Aðild að al-
þjóðasamtökunum
segir Haraldur
veita keppnisrétt í
heimsmeistara-
keppni á þriggja
ára fresti auk þess
að ómetanlegt sé að
tengjast hinu al-
þjóðlega upplýs-
ingastreymi á þessu
sviði.
Það sem helst vakir fyrir okk-
ur með stofnun samtakanna er að
auka þekkingu þjóna á vínum, efla
áhugann á vínþjónustu og bæta
þjónustu við viðskiptavini. Félagar
í samtökunum munu bera merki
þeirra og ætlun okkar er að al-
menningur eigi að geta treyst því
FYRIR réttum fjörutíu
árum birtist frétt í
Morgunblaðinu þess efnis
að Halldór Gröndal, þáver-
andi veitingamaður í
Naustinu, hefði ráðist í þá
nýbreytni að gefa við-
skiptavinum sínum kost á
þorrablóti með íslenskum
mat að gömlum hætti. Mælt-
ist þessi nýjung vel fyrir og
síðan hafa fleiri veitingahús
tekið upp þennan sið á þess-
um árstíma.
I frétt Morgunblaðsins frá
6. febrúar 1958 segir meðal
annars:
„Nú á síðasta aldarfjórðungi
hafa ýmis átthagafélög tekið
upp þann sið að hafa þorrablót
og láta bera þar á borð íslensk-
an mat, verkaðan að fornum
hætti: reyktan, súrsaðan og mork-
inn. Matur sá, sem þama hefur
verið á borðum, hefur verið tor-
fenginn ella, og hefur það verið
sælkerum bæjarins nokkurt
áhyggjuefni. Má reyndar telja full-
víst, að átthagafélag Stranda-
manna og önnur slík samtök séu
góður félagsskapur, en ekki er til
þess ætlast, að þar komi aðrir en
þeir, sem geta rakið ættir sínar í
*,rr«W«* '>“«9
vaknað^aitur 9
farinn aí) eta -
Vínþjónar
Vínþjónar hafa til þessa ekki verið
-----y--------------
til á Islandi. Steingrímur Sigur-
geirsson komst að því að það gæti
verið að breytast.
Súrsuð svið- súrt slátur- súrs-
aðir hrútspungar- hangikjöt-
bringukoilar- hákarl- flatkök-
ur- rúgbrauð- hveitibrauð-
smjör- Óski menn eftir vín-
föngum er mælt með ákavíti
eða íslensku brennivíni og
Egils-pilsner.
Verð fyrir manninn: kr. 60.
Meðal íslenskra þjóna
hefur gætt aukins áhuga á
því að efla vínþekkingu
innan stéttarinnar og í
fyrra var í fyrsta skipti
haldin keppni um „vín-
þjón ársins“. Þeir þrír
efstu fóru síðan út til
Svíþjóðar í norræna
Elsass-keppni og
komust allir íslensku
þátttakendanna í úrslit.
í lok nóvember á síð-
asta ári voru svo stofn-
uð sérstök vínþjóna-
samtök. Haraldur
Halldórsson, sem sigr-
aði í keppninni um vínþjón ársins
og unnið hefur að undirbúningi vín-
þjónasamtakanna, segir að í kjölfar
keppninnar í Svíþjóð hafi menn séð
að Islendingar ættu fullt erindi í al-
þjóðlegt samstarf á þessu sviði.
Haft var samband við Alþjóðasam-
band vínþjóna og fór islensk sendi-
nefnd á fund í Lyon í Frakklandi í
desember. Umsókn íslensku sam-
takanna um aðild að þeim samtök-
um verður tekin fyrir á ársfundi í
Vínarborg í júní.
að merkið sé trygging fyrir fag-
legri og góðri ráðgjöf. Samtök af
þessu tagi eru mjög virk á Norður-
löndunum og höfum við sniðið okk-
ar reglur að reglum norrænu sam-
takanna. Félagai' í samtökunum
munu skiptast í tvennt. Annars
vegar fullgildir félagar, sem í öllum
tilvikum eru starfandi þjónar, og
hins vegar „vinir" sem hafa tillögu-
rétt innan félagsins en ekki at-
kvæðis- og keppnisrétt."
Haraldur segir að stefnt verði
að því að reyna að nýta erlenda
gesti sem koma til landsins tii að
flytja fyrirlestra og halda nám-
skeið. Þegar sé búið að skipuleggja
slíkan fyrirlestur í marsmánuði
auk þess sem þá verði haldið undir-
búningsnámskeið vegna Elsass-
forkeppni. Þá verður í febrúar
haldin forkeppni vegna heims-
meistarakeppninnar í Vínarborg í
júní. Þá stefnum við að því að taka
þátt í Evrópumeistarkeppninni í
Frakklandi í haust.
Haraldur segir að þetta frum-
kvæði hafi hlotið öflugan stuðning
úr mörgum áttum. Hótel- og mat-
vælaskólin hafi veitt ómetanlega
aðstoð og aðstöðu auk þess sem
innflutningsfyrirtæki og erlendir
framleiðendur hafi sýnt stofhun
samtakanna áhuga og boðið að
veita þeim liðsinni.
Nú þegar eru félagar í sam-
tökunum um fimmtíu, þar af þrjá-
tíu staifandi þjónar. Haraldur seg-
ir aðspurður um skilyrðin fyrir að-
ild að menn hafi komist að þeirri
niðurstöðu að í upphafi væri rétt að
setja ekki strangari skorður en það
að félagar væru starfandi þjónar.
„Þetta var talið nauðsynlegt á með-
an samtökin væru að þróast. Hins
vegar sé ég fyrir mér að í framtíð-
inni verði gerðar kröfur um
ákveðna þekkingu og reynslu hjá
umsækjendum. Við vonum að þetta
verði vítamínsprauta fyrir þjóna.
Þróunin í vínmálum hefur verið gíf-
urlega ör og þetta er tilraun til að
beina viðbrögðum okkar fram;
reiðslumanna inn á rétta braut. I
framtíðinni gæti þetta leitt til að
sérhæfðir vínþjónar störfuðu á ís-
lenskum veitingastöðum og að tek-
ið verði upp sérstakt vínþjóna-
nám.“
Hvenær er kvíði sjúklegur?
GYLFI ÁSMUNDSSON SÁLFRÆDINGUR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning: Allir eru kvíðnir ein-
hvem tíma. En hvenær verður
kvíðinn svo mikill að hann teljist
sjúklegur og á hvem hátt er
reynt að lækna hann?
Svar: Það er rétt að flestir upplifa
kvíða. Það er merki um heilbrigt
tilfinningalíf að finna til kviða
þegar ástæður gefa tilefni til. Að
finna aldrei til kvíða bendir til til-
finningasljóleika, sem er í sjálfu
sér afbrigðilegra en að vera kvíð-
inn undir vissum kringumstæð-
um.
Kvíði getur hins vegar vaxið
manni yfir höfuð. Oft fara vamar-
hættimir þá í gang. Afneitun og
bæling em þeir algengustu og
geta haft í för með sér að kvíði
leiti út í spennu og líkamlegum
einkennum eða tilfinningasveifl-
um. Aðrir vamarhættir geta leitt
til áráttu og þráhyggju eða ann-
ars konar hugsýkiseinkenna.
Kvíðinn getur þó oft leikið lausum
hala og hann er fylgifiskur
margra geðsjúkdóma, án þess að
vera megineinkenni. Þannig fylgir
mikill kvíði oft þunglyndi, meiri
háttar geðveiki og vímuefnafíkn.
Ein sér og án tengsla við aðra
geðsjúkdóma er kvíðahugsýkin
samt einn algengasti geðsjúkdóm-
urinn. Almenn kvíðahugsýki, eða
kvíðaröskun eins og farið er að
nefna þetta ástand, er greind þeg-
ar eftirfarandi skilmerki hjá sjúk-
lingnum em fyrir hendi.
I fyrsta lagi mikill kvíði og
áhyggjur sem hafa þjáð hann
flesta daga undanfama sex mán-
uði og tengist öllu mögulegu í
daglegu lífí, svo sem vinnunni eða
skólanum, og hann á erfitt með að
hafa stjóm á kvíðanum.
í öðm lagi hefur kvíðinn í fór
með sér a.m.k. þijú af eftirfarandi
sex einkennum: 1) eirðarleysi, eða
honum finnst hann vera eins og
hengdur upp á þráð; 2) þreyta; 3)
einbeitingarerfiðleikar og hugs-
anastíflur; 4) pirringur; 5) vöðva-
spenna; 6) svefntruflanir.
í þriðja lagi valda kvíðinn,
áhyggjurnar og einkennin sem
þeim fylgja vemlegri vanlíðan og
skertri hæfni til vinnu og félags-
lífs eða til að njóta sín almennt í
daglegu lífi.
Einkenni kvíðaröskunar eru að
sjálfsögðu misjafnlega sterk og
hafa staðið í mislangan tíma.
Stundum er hægt að ráða bót á
þeim á skömmum tíma, en hjá
öðram geta þau orðið mjög þrá-
lát. Margar aðferðir eru notaðar
til þess að ráða bót á kvíða, bæði
af sálfræðingum og geðlæknum.
Sumar þeirra tilheyra fremur sál-
fræðilegri meðferð en aðrar nota
eingöngu geðlæknar. Hér verða
taldar nokkrar aðferðir við lækn-
ingu á kvíða.
1) Samtalsmeðferð gefur oft
góða raun, einkum hjá vel
greindu fólki sem hefur gott inn-
sæi í eigið sálarlíf. Eitt út af fyrir
sig bætir það oftast líðanina að
geta talað um vandamál sín og
fundið fyrir samúð og skilningi.
Samtalsmeðferð beinist þó eink-
um að því hjálpa sjúklingnum til
að öðlast skilning á orsökum og
undirrót kvíðans, sem gerir hann
færari um að takast á við hann.
2) Hugræn meðferð hefur
reynst vel við bæði þunglyndi og
kvíða. Þá er sjúklingnum hjálpað
til að skoða tilfinningar sínar og
hugsanir í raunsæju ljósi og máta
þær við vemleikann. Kvíði af
þessu tagi er í eðli sínu óraunsær
og með því að draga hann fram í
dagsljósið og mynda ný hugsana-
tengsl er hægt að aftengja hann
ef svo má að orði komast.
3) Kvíðastjómun. Sálfræðingar
hafa haldið námskeið fyrir fólk
sem vill læra aðferðir til þess að
ná tökum á kvíða sínum og hafa
þau gefið góðan árangur fyrir
marga. Námskeiðin felast bæði í
fræðslu um kvíða, orsök hans og
eðli, og aðferðum til þess að
minnka hann, svo sem spennu-
slökun og hagnýt ráð til þess að
bregðast við kvíðanum þegar
hann vaknar.
4) Róandi lyf em líklega al-
gengasta aðferðin til að takast á
við kvíða. Hún er oft fljótvirk og
árangursrík og getur rofið þann
vítahring sem sjúklingurinn er í,
þannig að hann nái varanlegum
tökum á kvíða sínum og þurfi ekki
lyfjameðferð nema um skamman
tíma. Stundum nægir það þó ekki
og sjúklingurinn þarf lengri með-
ferð. Þá er æskilegt að beita sam-
hliða öðram aðferðum eins og
þeim sem lýst var hér á undan.
Heilaskurður (lobotomia) er að-
gerð sem stundum var beitt á ár-
um áður við alvarlegum geðsjúk-
dómum, ekki síst þegar um mjög
mikinn og þrálátan kvíða var að
ræða, sem gerði sjúklinginn
óstarfhæfan til lengri tíma og
aðrar aðferðir dugðu ekki við. Þá
var gerð skurðaðgerð sem rauf
tengslin á milli undirstúkunnar
og framheilans. Þessi tengsl era
forsenda þess að menn upplifi
geðshræringar. Þegar þau em
rofin er kvíðinn í raun tekinn
burt. Sá böggull fylgir þó
skammrifi, að þar með er sjúk-
lingurinn að miklu leyti sviptur
þeim þætti mannlegs sálarlífs
sem kvíði og aðrar geðshræring-
ar eru hverjum heilbrigðum
manni. Þótt nýjar og betri að-
ferðir við heilaskurð hafi dregið
verulega úr þessum afleiðingum,
er aðgerðin þó afar sjaldgæf í
dag.
Meðferð við kvíða þarf að velja
með tilliti til sjúklingsins og
hvers eðlis og hversu mikill kvíði
hans er, og mismunandi aðferðir
geta átt við eftir því hver á í hlut.
0Lesendur Morgunblaðsins geta
spurt sálfræðinginn um það sem þeim
liggur á hjurta. Tekið er á möti
spurningum á virkum dögum milli
klukkan 10 og 17 í síma 569 1100 og
bréfum eða sfmbréfum merkt: Viku-
lok, Fax: 569 1222. Ennfremur
símbréf merkt: Gylfi Ásmundsson,
Fax: 5601720.