Morgunblaðið - 07.02.1998, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998 37
Atvinna og umhverfí
þungamiðjan
Svipmynd frá Stokkhólmi. Fremst er bygging sænska þingsins.
Morgunblaðið/Kristinn
jóri fjármála- og þróunarsviðs Is-
Itefánsson, forstjóri fyrirtækisins.
hagur fyrirtækisins er nátengdur
þeirra hag. Þetta er grundvallar-
þáttur í eðli og starfsemi fyrirtækja
af þessari gerð um allan heim og frá
upphafi hefur verið lögð áhersla á
þetta. Við stofnun fyrirtækisins var
eignarhluti lagður til hliðar, svo
hægt væri að nota hann til að
tengja hagsmuni starfsmanna og
fyrii-tækisins með þessum hætti.“
Launakerfið hjá íslenskri erfða-
greiningu hefur verið byggt upp
með það fyrir augum að tengslin
milli launa og árangurs séu augljós.
„Það hefur ekki verið auðvelt. Fólk
er mótað af gamla verkalýðssamn-
ingakerfinu, sex vikur í sumarfrí,
vinna frá 9-17 daglega og eftir-
vinnugi-eiðslur ef unnið er lengur.
Hér fá menn árslaun, greidd út
mánaðarlega og þeir eiga að vinna
eins og verkefni krefjast hverju
sinni. Ef vel tekst til þá er þeim
umbunað sérstaklega. Þetta er
þeirra íyrirtæki.“
Fulltrúar verkalýðsfélaga hafa
kannað launasamninga hjá Is-
lenskri erfðagreiningu og sumir
verið undrandi á nýjum vinnu-
brögðum. „Þeir hafa hins vegar átt-
að sig á að samningarnir eru starfs-
fólkinu í hag og það fer ekki á milli
mála að þetta fyrirtæki hefur
hækkað laun starfsfólks í líffræði."
Skólakerfinu
hefur hnignað
Starfsfólkið er vel menntað. Kári
orðar það svo, að Islend-
ingar séu svo gott fólk að
meira að segja lélegt
skólakerfið geti ekki
skemmt það. „Skólakerf-
inu hér á landi hnignaði
mjög mikið á þeim tveimur áratug-
um sem ég bjó í útlöndum," segir
hann. „Það er beinlínis lélegt og Is-
lendingar eru að svíkja sjálfa sig og
komandi kynslóðir með því að
svelta það. Það verður á brattan að
sækja að byggja upp hátækniiðnað
á íslandi, hver svo sem sá iðnaður
er, ef ekki verður fjárfest meira í ís-
lensku skólakerfi. Hérna hjá Is-
lenskri erfðagreiningu erum við
með fimagott fólk, sem lærh- hratt.
Það byggir kannski á gömlum
merg, því hér var skólakerfið gott á
árum áður. Þegar litið er á barna-
skólana núna, þá fær maður áfall.
Ég á sjálfur börn, sem farið hafa í
gegnum skólakerfið í Bandaríkjun-
um og það er ekki sambærilegt.“
Hann segir að fslensk erfða-
greining leggi mikla áherslu á að
þjálfa starfsfólk sitt. „Við erum með
fyrirlestra og ýmiss konar nám-
skeið. Þetta er ekki eingöngu fyrir-
tæki sem býr til verðmæti, heldur
einnig menntastofnun. Ég óttast
ekki samanburð við nokkra aðra
menntastofnun hér á landi.“
Hannes segir að rannsóknarstofa
fyrirtækisins sé ekki hólfuð niður í
vinnustofur, heldur vinni allir sam-
an í opnu rými. „Hingað koma
starfsmenn með sérmfnntun frá er-
lendum háskólum og vinna við hlið
fólks sem hefur sótt menntun sína
hér á landi. Þetta verður einn suðu-
pottur þekkingar.“
íslensk erfðagreining rekur sjö
manna ættfræðideild innan fyrir-
tækisins, en þríi- verða ráðnir til
viðbótar á næstunni. Þessi hópur
gerir ekkert annað en að grúska í
íslenskum ættum, en skýrar upp-
lýsingar um ættartengsl eru grund-
völlur sérstöðu íslenskrar erfða-
greiningar.
Starf íslenskrar erfðagreiningar
er komið á góðan rekspöl, en Kári
segir ekkert vera pottþétt. „Ef
menn halda að eitthvað sé pottþétt
og ætla að hafa það náðugt er það
vísasta leiðin til að klúðra öllu sam-
an. Við verðum að nýta sköpunar-
gleðina á hverjum degi.“
íslensk erfðagreining hefur átt
við sína byrjunarörðugleika að etja,
sem þeir félagar segja ekkert óeðli-
legt. Skýrt hefur verið fi'á sam-
skiptum fyrirtækisins og Tölvu-
nefndar, því menn voru ekki á eitt
sáttir um hvort persónuupplýsing-
um væri stefnt í hættu með rann-
sóknaraðferðum fyrirtækisins.
„Þetta er allt að baki. A síðustu vik-
um hefur þróast gott samstarf
Tölvunefndar og Islenskrar erfða-
greiningar og öllum misskilningi
hefur verið eytt. Tölvunefnd vill að
sjálfsögðu ekki bregða fæti fyrir
okkur og við styðjum þá afstöðu
nefndarinnar að vernda persónu-
upplýsingar."
A fyrsta starfsári íslenskrar
erfðagreiningar var greint frá nið-
urstöðum rannsókna sem hafa leitt í
ljós staðsetningu erfðavísisins, sem
veldur fjölskyldulægum skjálfta eða
handskjálfta. .1 afnframt var skýrt
frá því að fyrirtækið ætti skammt í
land með að einangra eitt þeirra
gena sem valda MS-hrömunarsjúk-
dómnum. Vísindamenn Islenskrar
erfðagreiningar vinna ótrauðir
áfram að þessum rannsóknum og
öðrum, en það er ómögulegt að
áætla hvenær þeim verður lokið.
„Það er eins og að spyrja ljóðskáld
hvenær hann ætli að semja gott
ljóð,“ segir Kári. „Skáldið sjálft get-
ur verið sannfært um að ljóðið verði
samið, en aldrei fullvisst um
hvenær."
Njóta
velvildar
Islensk erfðagreining nýtur vel-
vildar almennings, sem hefur
brugðist mjög vel við auglýsingum
fyrirtækisins um samstarf. „Fólk
kemur um langan veg til læknis og
vill fá að vita nákvæmlega hvað á að
rannsaka og hvers vegna. Ef það
fær góðar upplýsingar er
það alltaf reiðubúið að
leggja sitt af mörkum.
Þetta var til dæmis raun-
in með rannsóknir á fjöl-
skyldulægum skjálfta.
Samstarf okkar við lækna og heil-
biágðisstarfsfólk um land allt hefur
líka verið mjög gott.“
Þeir verða ekki lengi tveir í yfir-
stjórn íslenskrar erfðagreiningar,
Kári og Hannes, því þeir eru að
svipast um eftir góðu fólki til
stjómunarstarfa, annarra en á
rannsóknarstofu, sem er í góðum
höndum Jeff Gulcher, dr. C.
Augustin Kong og Hákonar Guð-
bjartssonar. „Vonandi verður ráðn-
ingu inn í yfirstjórn fyrirtækisins
lokið á þessu ári. Við leitum eftir Is-
lendingum, hér á landi sem erlend-
is.“
Norðurlönd eiga að
vinna sameiginlega að
auknum atvinnutæki-
færum, segir Leif
Pagrotsky, og gera
svæðið að vistvænum
hluta Evrópu.
ARIÐ 1998 hefur Svíþjóð
formennsku í samvinnu
ríkisstjórna Norðurlanda.
Það er verkefni sem ég og
öll sænska ríkisstjórnin hlökkum til
að fást við.
Til eru þeir, ekki síst í Svíþjóð,
sem draga í efa samvinnu Norður-
landa með þeim rökum að hún sé
ekki lengur jafn áríðandi nú þegar
samvinna innan ESB hefur aukist
til muna. Sjálfur er ég þeirrar skoð-
unar að það sé rangt að ætla að
Norðurlandasamstarfið hafi skilað
hlutverki sínu í hinni nýju Evrópu,
þvert á móti finnst mér vera enn
frekari ástæða til samstarfs.
Þróunin eftir kalda stríðið hefur
gert okkur kleift að efla samvinnu
okkar á sviði stjórnmála um leið og
við getum aukið samstarf okkar
þannig að það nái einnig til nær-
liggjandi lýðræðisríkja. Hin já-
kvæða þróun hjá nágrönnum okkar
hefur verið áskorun til okkar og
hefur sögulegt gildi.
Það er einnig ástæða til að nefna
að Norðurlandasamstarfið hefur
vakið athygli annars staðar í heim-
inum. Þar má nefna hinn svæðis-
bundna sjálfsákvörðunarrétt og eru
Álandseyjar oft nefndar á alþjóð-
legum vettvangi. Það er einnig at-
hyglisvert að samstarf Norður-
landaráðs hefur nýlega orðið inn-
blástur til nýs samvinnuforms á
Norður-írlandi, einmitt þess þáttar
samstarfsins sem sumir stjórnmála-
menn hafa viljað afnema. Norður-
landaþjóðirnar eru með í ýmsum
samtökum sem stöðugt kalla á upp-
lýsingar, umræður og stundum á
samræmingu meðal norrænu þjóð-
anna. Það á ekki síst við um SÞ,
ESB og á sviði öryggismála.
Verkefnin eru mörg. Á komandi
ári er það meðal annars á okkar
ábyrgð að standa vörð um norræna
vegabréfasamstarfið þegar
Schengen samningurinn mun falla
undir reglugerð ESB. Samkvæmt
Amsterdamsáttmála er búið að
tryggja að hagsmunir Noregs og
íslands verði virtir og mun það
verða sett í lög á þessu ári. Það mun
krefjast mikillar samvinnu.
Að þrjú lönd af fimm eru meðlim-
ir í ESB hefur ýtt undir þörfina á
samræðum milli Norðurlandaþjóð-
anna á sviði stjórnmála, enda sátu
utanríkisráðherrar landanna sam-
tals 20 fundi á síðasta ári. Norður-
lönd geta og eiga að láta tO sín taka
á alþjóðlegum vettvangi, á heims-
vísu og í Evrópu.
Samhliða samstarfinu í utanríkis-
málum er alltaf þörf á samvinnu
innan Norðurlandanna, ekki síst
hvað varðar viðskipti og verslun.
Samstarf Norðurlanda á sviði við-
skipta er áberandi sönnun þess
hversu öflug norræn þróun er. Hér
fylgja nokkur dæmi: - Merita bank-
inn í Finnlandi og Nordbanken í
Svíþjóð hafa sameinast. - Norska
fjölmiðlasamsteypan Schibstedt á
stóran hlut í Aftonbladet í Svíþjóð.
- Danska Royal Copenhagen hefur
tekið við rekstri Onæfors. - ís-
lenska fyrirtækið Rammi hf. hefur
keypt hlut í Frysvarugruppen í
Stokkhólmi.
Árið 1996 voru 77.000 Svíar ráðn-
ir hjá meira en 1.000 norrænum fyr-
irtækjum og var ekkert þeirra
sænskt. Það nemur rúmlega fjórð-
ungi starfsmanna erlendra fyrir-
tækja. Og 1995-1996 jókst fjöldi
norrænna fyrirtækja í Svíþjóð um
næstum fjórtán af hundraði.
Verslun innan Norðurlanda er
einnig talsverð og þýðingarmikil
fyrir sameiginlega þróun okkar í
fjármálum. Verslunin innbyrðis
nemur einum fimmta af sameigin-
legum viðskiptum okkar.
Atvinnulíf á Norðurlöndum er
blómlegt um þessar mundir
Sem viðskiptaráðherra og ráð-
herra Norðurlandasamstarfs, og
einnig sem formaður samstarfsráð-
herra Norðurlanda,
fagna ég þessari þróun.
Ég tel mikilvægt að
N or ðurlandasamstarfið
haldi áfram að þróast
þannig að það stuðli að
auknum viðskiptum milli
landanna.
Allar Norðurlanda-
þjóðimar eru opin
svæði, háðar verslun og
standa vel að vígi í sam-
keppni á heimsmarkaði.
Með aðild Noregs og ís-
lands að EES-samn-
ingnum eiga öll Norður-
löndin einnig aðild að
innri markaði ESB, en
samt sem áður eru
hindranir á Norðurlöndum og það
verður að vera forgangsatriði að
ryðja þeim síðustu úr vegi. Ég er á
þeirri skoðun að Norðurlöndin þurfi
alls ekki að bíða þangað til innri
markaður ESB verður að veruleika.
Við höfum komið á opnum og sam-
eiginlegum vinnumarkaði á undan
öðrum í Evrópu, og sömuleiðis get-
um við verið í fararbroddi við að
koma á innri markaði.
Þess vegna er verið að rannsaka í
Svíþjóð hvaða viðskiptahindranir
eru ennþá milli landanna.
Samstarfsráðherrar Norðurlanda
hafa að frumkvæði Svíþjóðar lagt
fram þá tillögu að utamákisráðherr-
ar landanna hvetji til noiræns sam-
starfs á sviði rafrænna viðskipta.
Það mætti líta á það sem viðbót við
það samstarf sem á sér þegar stað á
sviði fjarskipta og miðar að því að
leysa vandann varðandi rafrænar
undirskriftir.
Norðurlönd hafa ásamt Banda-
ríkjunum forystu í heiminum í fjar-
skiptamálum og þess vegna er eðli-
legt að við nýtum stöðu okkar til að
stuðla að auknum viðskiptum.
Reynslan af farsímanotkuninni
hvetur einnig til nýrra framlaga.
Ég er sannfærður um að sú stað-
reynd að Norðurlönd ákváðu mjög
snemma sameiginlegan net-staðal,
NMT, sé ein af ástæðunum fyrir því
að Norðurlönd eiga nú tvo af
fremstu framleiðendum á því sviði.
Með notkun NMT vöndust Norður-
landabúar snemma farsímum.
Ericsson og Nokia eru þess vegna
einnig vel samkeppnishæf á GSM-
markaðnum.
Nú þegar Svíþjóð hefur tekið við
formennsku í Norðurlandasam-
starfi á sviði stjómmála langar okk-
ur að sameina fornar hefðir nýjung-
um. Við munum fylgja eftir frum-
kvæði Norðmanna frá 1997 sem
m.a. varðar fjarskiptamál um leið
og við munum fylgja gömlum sið og
viðhalda samskiptum á sviði menn-
ingar og lista og auka tungumála-
skilning.
I sænsku dagskránni
mun þungamiðjan í
N orðurlandasamstarfi
1998 vera atvinna og
umhverfi. Norðurlöndin
eiga að vinna sameigin-
lega að auknum at-
vinnutækifærum og því
að Norðurlöndin verði
vistvænn hluti Evrópu.
Þá finnst mér rétt að
undirstrika mikilvægi
þess að til þess að leysa
orkuþörfina í framtíð-
inni þurfi sameiginlega
lausn í kringum Eystra-
salt.
Norðurlöndin geta
haft sameiginlega stefnu sem sam-
einar vistkerfí, fjármál og atvinnu.
Við verðum, með þekkingu og
tækni, í krafti stjórnmála og með
viljastyrk að stuðla að því að þessi
þróun verði efld.
Landfræðileg lega okkar styrkir
okkur einnig í baráttunni fyrir at-
vinnu og umhverfi, þar sem Norð-
urlöndin eru á einu mest vaxandi
svæði Evrópu. Með nærliggjandi
löndum í kringum Eystrasalt, við
Barentshaf og norðurheimskaut
hafa Norðurlönd einstaka þróunar-
möguleika. Þar fer saman vaxandi
lýðræði og uppbygging markaðs-
hagkerfis svo sem í Póllandi,
Eystrasaltslöndum og í Norðvest-
ur-Rússlandi, samhliða þróuðum
velferðarsamfélögum á Norður-
löndum. I stað neikvæðra áhrifa
sem kalda stríðið hafði á okkar
hluta Evrópu hefur nú tekist sam-
vinna sem lofar góðu. Engin kyn-
slóð í samtímanum hefur haft sömu
möguleika á að skapa framtíð sem
einkennist af hagvexti, öryggi og
vænlegu umhverfi. Við eigum að
standa saman og nota þetta tæki-
færi!
Höfundur er norrænn samstarfs-
ráðherra.
Tengsl launa
og árangurs
fyrirtækisins
Leif
Pagrotsky