Morgunblaðið - 07.02.1998, Page 45

Morgunblaðið - 07.02.1998, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998 45 SKOÐUN að þeirra ráðum. Hafrannsókna- stofnun er í mjög sérstakri aðstöðu tO að úrskurða sjálf um sínar eigin gerðir og ágæti þeirra. Úr sögunni eru ótal dæmi þess, að þekkingu dagar uppi og reynist röng. Ábyrgð Hafrannsóknastofnunar er því mikil að blása á sjónarmið fræðimanna, sem benda á, að hlutimir gætu hæg- lega verið öðruvísi. Eftir því sem best er vitað vogar enginn fískilræð- ingur hjá Hafró sér að hafa slíkar skoðanir. Slík eindrægni í stórum hópi vísindamanna er svo fáheyrð, að það kallar á skýringu. Svo hlaupið sé aftur í söguna, þá er ekki alveg víst, að jörðin sé flöt. Kaldhæðnin í stöð- unni er fjarstæðukennd. Hafró, stjómmálamenn og forysta LIÚ trúa, að stækkun þorskstofnsins sé vegna friðunar, en utangarðsmenn telja friðun ekki ráðandi í því efni. Að þeirra mati hrakar stofninum nema hann verði veiddur meira, og raunar hvort sem er, eftir náttúra- fari. Verði hann hins vegar veiddur meira og honum hrakar telja Hafró- menn það gerast vegna ofveiði. Við þessar aðstæður er erfitt að sjá til botns í málinu. Hvað gæti þetta kostað? Hafi Hafró og allt fiskifræðinga- umhverfið, sem stjórnað hefur stofn- stærðarmati og fiskveiðiráðgjöf við Norður-Atlantshaf undanfama ára- tugi, rangt fyrir sér um þetta grand- vallaratriði blasa við bæði skelfilegir og gleðilegir hlutir: Islendingar hefðu undanfarin ár farið á mis við tugmilljarða króna verðmæti af þorski upp úr sjó, stækkun þorsk- stofnsins hefði hreint ekkert eða sáralítið með kvótasetningu og aflasamdrátt að gera, þorskstofhinn við ísland væri stórlega vanmetinn og það skynsamlegasta, sem við gerðum, væri að leyfa óheftar þorsk- veiðar, að minnsta kosti í 1-2 ár, til að freista þess að veiða sem mest af honum áður en hann færi að horast og drepast og draga þannig úr næstu niðursveiflu. Það mundi að vísu gufa upp talsvert af eignum úr efnahags- reikningum ýmissa útgerðarfyrir- tækja, sem harðast hafa fram gengið í kvótakaupum. Verðmæti skipa mundi hins vegar aukast, sem og tekjur af fiskveiðum, jafnframt þvf sem dragast mundu saman tekjur hjá þeim, sem mest hafa hagnast á kvótabraski, en þjóðarbúið mundi væntanlega hagnast mikið. Tímann, sem þannig fengist, mætti nýta til að móta viðunandi og skilvirkt fiskveiði- stjómunarkerfi. Sýn hins óháða leikmanns í þessum löngu skrifum hefur skrifarinn sem óháður leikmaður reynt að draga saman ýmis mikils- verð atriði, sem tengjast vandamál- um fiskveiðistjómunar. Réttlæti og ranglæti við úthlutun stórfellds einkaleyfishagnaðar skipa þar stór- an sess, sem og sóun í fiskveiðunum, byggðaröskun og efasemdir um, að hin opinbera hagkvæmnismarkmið séu að nást. Loks var varpað fram spurningunni um, hvort undirstaðan undir allri saman aðferðafræðinni sé nægilega traust. Það hljómar óneit- anlega annarlega fyrir okkur, heila- þvegna friðunarsinna, að við gerum best með að veiða miklu meiri þorsk en við geram og hætta þessu ragli að friða smáfisk. Skv. kenningum utan- garðsmannanna ver það stofninn best í niðursveiflunni að veiða hann sem mest, enda á í hlut fiskur, sem hefur ekki nóg að éta. Utangarðs- mennimir benda á, að þetta var einmitt gert um áratuga skeið fyrr á öldinni með harðvítugri sókn, sem sannarlega skilaði miklu meiri þorskafla af íslandsmiðum en von telst í eftir langvarandi friðun eftir reiknilíkönunum. Lengst af þessum tíma veiddu Bretar aðallega smáfisk undan norður- og austursfröndinni í miklu magni, þar sem núna er skv. mínum upplýsingum sáralítið veitt. Hverju á maður að trúa með alger- lega andstæð rök í huga sér? Klípa stjórnmálamannanna er skelfileg. Hún kann að snúast um tugi eða jafnvel hundrað milljarða króna verðmæti til þjóðarbúsins, sem hefur í góðri trú verið fórnað fyrir ekkert, búið til viðbótarhvata til byggðaröskunar og óréttlæti kvóta- brasksins, sem klofið hefur þjóðina. Þeir vai-pa sinni ábyrgð á bak fiski- fræðinganna með því að setja reglur, sem binda aflamark með prósentu- reikningi við niðurstöður þeirra. Eins og þetta mál horfir við mér er það rangt að meðhöndla það eins og það sé fiskifræði, heldur er það stjórnmál. Og stjómmálaleg við- fangsefni era til að ræða þau og ráða þeim opinskátt til lykta. Það gengur ekki, að stjómmálamenn reyni að skýla sér bak við fískifræðinga í svo mikilsverðum málum. Er að undra, þótt manni, eins og skrifara þessarar greinar, verði eilít- ið ómótt, þegar öflugustu fjölmiðlar og helstu framámenn í forystu þjóð- félagsins láta eins og spurningin um afrakstur og afgjald af auðlindinni, auðlindarleiguna, sem ég hef nefnt svo í fyrri skrifum, sé einungis spuming um eitthvert lítilræði af veiðileyfagjaldi, já eða nei? Höfundur er fyrrverandi fram- kvæmdastjóri og einn af hvata- mönnum til stofnunar Samtaka um þjóðareign. Kosningaskrifstofa Hamraborg 7 (2.h.) Kóp. Opiö frá 12 - 22 Heitt á könnunni Prófkjör S j á I f s t æ ð i s f I o k k s i rt s i Kópavogi 1998 Halla Halldórsdóttir forseti bæjarstjórnar Kópavogs Kjósum reynda J konu íQsætió Stuöningsfólk Blað allra landsmanna! kjarni málsins! SIÐASTI DAGUR Traustar og vandaðar vörur á sanngjörnu verði...sem þolir allan samanburð. Við vekjum athygli hestamanna á vaxandi vöruúrvali í reiðtygjum, skeifum, verkfærum og fatnaði. Hnakkar Fluguhnakkur........ 52.600,- Hnakkur með öllu nema ístöðum........ 17.000,- Stallmúlar frá........ 300,- Stangir..............2.800,- Gjarðir 14 strengja... 900,- Gjarðir 7 strengja.... 500,- ístaðsólar frá....... 1.200,- Reiðarfrá............ 1.200,- Fléttaðir leðurtaumar..... 1.100,- Hnakktöskur, úr leðri.... 4.800,- Tökumúll..............1.400,- Teymingagjarðir.......2.200,- Pískar frá............. 500,- Sérstakt tilboð Höfuðleður með öllu, (Beisli, nasamúll, mél og fléttaður taumur).............. 3.000,- FODUR VTTAMÍN & XSTEINEFNI^É > Racing Mineral“ 20 kg Saltsteinar.2 kg Saltsteinar..10 kg Bíótín...... 1 ltr Bíótín.... 5 ltr Fóðurlýsi. 5 ltr Graskögglar.33,3 kg Tttboð —'-‘SáSfA Fatnaðui Úlpurfrá. 4.600,- Reiðbuxur frá. 3.500,- JSkórfrá.. 4.100,- ^ÍKBFUR Pottaðar með sköflum..... 900,- Ópottaðar með sköflum... 800,- Hófraspur................800, Stýringar í miklu úrvali vVjT? Hjólbörur Ws Einstakt tilboð 85 ltr frá..4.800,- bæði plast og stál 90 ltr.....6.300,- stálbörur 100 ltr...5.800,- plastbörur R búðin*Laugavegi 164 Sími 551 1125 • 552 4355 • Fax 552 4339 Básamottur ísoxioosm... 4.500,- Lengdur afgreiðslutími Fimmtudagur 5. kl. 8:00-19:00 Föstudagur 6. kl. 8:00-19:00 Laugardagur 7. kl. 9:00-17:00 Kaffí og kex frá Frón bíða ykkar. Næg bílastæði fyrir framan húsið og inni í vöruafgreiðslu vestan megin hússins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.