Morgunblaðið - 07.02.1998, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998 51
1
i
1
I
;
í
;
I
l
I
J
i
1
i
j
j
i
4
Í
i
i
i
VILBORG
ÓLAFSDÓTTIR
_|_YiIborg Ólafs-
| dóttir var fædd í
Holtahólum á Mýrum
í Hornafirði 24. mars
1911. Hún lést í
Skjólgarði á Höfn 26.
janúar síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin í Holta-
hólum, Anna Páls-
dóttir, f. 16.3. 1888,
d. 14.11. 1974, og
Ólafur Einarsson, f.
26.2. 1885, d. 25.3.
1952. Vilborg var elst
átta systkina. Hin
voru: Páll, f. 22.3.
1912, d. 1982; Guðrún, f. 8.1.
1914, Einar, f. 17.1.1915, d. 1952;
Rósa, f. 31.3. 1917, d. 1995; Ásta,
f. 30.5. 1921, d. 1995, Anna, f.
29.3. 1925, d. 1989; Sigríður, f.
13.12. 1928.
Eiginmaður Vilborgar var
Steingrímur Sigurðsson, kaup-
Vilborg Ólafsdóttir var fædd og
uppalin á Mýram, á bænum Holta-
hólum i miðri sveit. Fjallahringur-
inn er víður frá því sjónarhomi,
svipuð fjarlægð virðist til fjallanna í
þremur áttum og skaparinn hefur
gætt þess að þau væru af marg-
breytilegri lögun og litrófinu til skila
haldið, jöklamir gefa hvíta litinn. í
suðri er opið haf þaðan sem löngum
heyrist „öldufalla eimur“.
Sveitimar þarna eystra vom af-
skekktar þangað til samgöngur nú-
tímans bættu úr á miðri þessari öld.
Sýslan öll var í greipum erfiðustu
vatnsfalla landsins, Vatnajökull að
baki en nærri hafnlaus strönd fram
undan. Fólkið vandist því að þurfa að
búa að sínu, vera gætið og hógvært í
umgengni sinni við náttúruöflin en
líka íhugult og ráðagott.
Vilborg var af Homfirðingum
komin í báðar ættir. Hún bar nafn
maður á Höfn, f.
16.1. 1903, d. 26.4.
1995. Hann var son-
ur hjónanna í Árna-
nesi í Nesjum, Sig-
urðar Péturssonar
landpósts og Sigríð-
ar Steingrímsdóttur.
Vilborg og Stein-
grímur giftust 1933
og bjuggu um árabil
í Árnanesi í Nesjum
en fluttu á Höfn 1945
þar sem Steingrímur
setti á fót verslun
sem hann rak nærri
til æviloka. Þau eign-
uðust eina dóttur, Sigríði. Maður
hennar er Snorri Bjarnason frá
Viðborðsseli á Mýrum og eiga
þau tvo syni, Steingrím og
Bjarna.
Útför Vilborgar fór fram frá
Hafnarkirkju laugardaginn 31.
janúar.
ömmu sinnar, Vilborgar Hálfdanar-
dóttur frá Odda á Mýrum, sem varð
ung ekkja en bjó samt góðu búi í
Holtum á Mýmm á sinni tíð.
Margt í fari Vilborgar, Boggu eins
og kunnugir nefndu hana alltaf, kom
ágætlega heim við það sem sumir
hafa talið einkenna ýmsa Skaftfell-
inga. Ljúfmennska hennar til orðs
og æðis fór ekki milli mála. Spaug-
semi hennar var græskulaus og féll
vel að gamansemi Steingríms bónda
hennar, en hann lagði sig eftir að
góma fleygar setningar og skringi-
leg atvik og sagði vel frá. Bogga var
skynsöm og kunni á ýmsu skil, var
t.d. fróð um ættir. Hún hafði gaman
af hestum, enda var hún alin upp við
hestamennsku, því Ólafur í Holtahól-
um átti góða hesta og ekki þarf að
taka fram að nóg var af gæðingum í
Ámanesi þegar hún var orðin hús-
freyja á þeim stað sem þekktur er
iyrir hestakyn, enda átti hún sjálf
þekktan gæðing, Heming.
Snyrtimennska og smekkvísi
Boggu naut sín vel á heimilinu þar
sem öllu var vel skipað án íburðar.
Nú eru margir fagrir garðar heima
við húsin á Höfn en um miðja öldina
munaði um brautryðjenduma. Garð-
ur Boggu var ekki stór en hann
gladdi augað því að blóm og trjá-
gróður þreifst hið besta í umsjá
hennar.
Eitt höfuðeinkenni sem margir
hljóta að minnast hjá Boggu er hve
hún var góð heim að sækja, veitul og
gestrisin. Margir komu á heimili
hennar þegar hún var kaupmanns-
frú á Höfn. Frændur og vinir sem
komu í kaupstað áttu þar vísan
griðastað og ýmsir sem komu í búð-
ina litu við á efri hæðinni til að
heimsækja húsmóðurina. í minn-
ingu minni sem þetta rita og dvaldi
oft sem bam hjá þeim hjónum að
bíða eftir flugi suður var endalaus
gestagangur hjá Boggu og öllum
var tekið með blíðu. Stundum vildi
teygjast úr dvölinni hjá gestum og
gangandi, einkum fyrr á árum með-
an flugið var stopulla en núna. Þá
var allt gert til að stytta gestunum
stundirnar og bæði voru hjónin vís
til að dekra böm meira en víst er að
krakkar hafi gott af! Einum ungum
frænda líkaði svo vel vistin hjá
Boggu og Steina að hann kaus að
láta þau ala sig upp að miklu leyti
og ánægjan af þeim samvistum var
jöfn frá báðum hliðum. Á tímum
hringvegar og brúa fóm margir um
hlaðið en höfðu líklega nokkuð hrað-
ara á hæli en forðum. En verra þótti
Boggu ef skyldmenni á ferð gátu
ekki þegið gistingu hjá henni.
Á yngri áram var Vilborg glæsi-
leg kona og hélt reisn og virðuleik
fram á elliár. Allra seinustu árin var
ellin henni þungbær en þá dvaldist
hún á Skjólgarði þar sem þau hjón-
in létust með fárra ára millibili.
Hér skal að lokum þakka vináttu
og velgjörning Boggu og Stein-
gríms við mig og mitt fólk fyrr og
síðai’. Dóttur þeirra og fjölskyldu
hennar sendi ég samúðarkveðjur.
Bjarni Ólafsson.
+Óskar Árnason
var fæddur 23.
september 1923.
Hann lést 1. febrúar
síðastliðinn. Foreld-
ar hans voru þau
Árni Magnússon út-
vegsbóndi, Landa-
koti, Sandgerði, f.
1886, d. 1966, og Sig-
ríður Júlíana Magn-
úsdóttir, f. 1887, d.
1961. Árni Magnús-
son var ættaður úr
Mýrdal undir Eyja-
Ijölliun, af kunnri
ætt sbr. bók eftir
Eyjólf Guðmundsson frá Hvoli,
„Áfi og Amma“. Foreldrar hans
voru þau Vilborg Berentsdóttir
og Magnús Eyjólfsson. Þau fluttu
til Sangerðis arið 1886. Sigríður
var fædd á Örlygshöfn við Pat-
reksfjörð. Foreldrar hennar voru
þau Bergljót Gunnlaugsdóttir og
Magnús Einarsson af svokallaðri
Kollsvíkurætt. Hálfsystkinin eru
Sveinbjörg, sem er elst, býr í
Reykjavík, móðir hennar var
Halla Pálsdóttir, þá Magnea Vil-
borg, lést 1933, Sigurbjörn, lést
1987, og Arnar Eyjólfur, drukkn-
aði 1940. Móðir þeirra var Arn-
dís, hún lést 1918 úr Spönsku
veikinni. Alsystkinin eru
Bergljót, lést á fyrsta ári. Ásta,
búsett í Kefiavík. Einar, lést árið
Kallið var komið. Það vissi ég
ekki þegar ég vaknaði snemma að
morgni 1. febrúar sl. og fór í vinn-
una. Það var ekki fyrr en mamma
hringdi í mig og sagði: „Kolla mín,
hann pabbi þinn er dáinn.“ Hann
pabbi, þessi stóri góði pabbi minn
dáinn. Minningarnar flugu um hug-
ann. Mér varð hugsað til bemskuár-
1996, Sigríður, lést
1989. Yngstur var
Árni sem lést árið
1993.
Maki Óskars er
Anna Þorkelína Sig-
urðardóttir frá Sauð-
árkróki. Börn þeirra
eru: 1) Hjördís Ósk,
f. 15.6. 1954, maki
Per Beck, búsett í
Noregi. 2) Sigurlína,
f. 21.7. 1955, maki
Þórólfur Ágústsson,
búsett í Hafnafirði.
3) Anna Sigríður, f.
3.3. 1958, maki
Sveinn Þorkelsson, búsett í Sand-
gerði, og 4) Árni Arnar, f. 14.9.
1959, búsettur í Reykjarík.
Fóstudóttir Óskars og dóttir
Önnu er Kolbrún Leifsdóttir, f.
17.9. 1949, maki Erlingur Björns-
son, búsett í Sandgerði.
Óskar vann við eigin útgerð á
árunum 1948 til 1966. Hann
starfaði við bifreiðastjórn á Búr-
felli á árunum 1967-1969 og var
vélstjóri á Gísla Áma frá árinu
1970 til 1973 er hann lagði grunn
að eigin fiskvinnslufyrirtæki,
Rækjuvinnslu Óskar Árnasonar
sem hann rak fram til ársins
1990.
Útför Óskars fer frain frá
Ilvalsneskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
anna, en þriggja ára kom ég fyrst
með mömmu í Landakot í Sand-
gerði, þar sem hún gerðist ráðs-
kona. Þar kynntist hún Óskari og
þau giftu sig í maí 1958. Hann gekk
mér í föður stað og alla tíð hefur
hann verið minn yndislegi pabbi, og
alltaf viljað allt fyrir mig gera. Við
bjuggum í Landakoti fyrstu árin, en
þá bjuggu þar einnig afi og amma
og Ámi, bróðir pabba og hans fjöl-
skylda. Eg eignaðist mín góðu
systkini og barnahópurinn í Landa-
koti stækkaði. Oft var þröng á
þingi, en þessi ár era í minningunni
yndislegur og ógleymanlegur tími.
Árið 1966 fluttum við í nýtt hús að
Norðurgötu 11, þar sem mamma og
pabbi hafa búið síðan.
Elsku pabbi minn, ég kveð þig
núna, en ég veit að við eigum eftir
að hittast aftur og þá klárar þú að
segja mér frá gömlu góðu dögunum,
þeim skemmtilegu atburðum sem
gerðust endur fyrir löngu. Ég bið
góðan Guð að geyma þig og þakka
þér öll góðu árin sem við áttum
saman. Elsku mamma, Guð gefi þér
styrk í sorg þinni. Ég veit að trú þín
er sterk og það hjálpar þér á kom-
andi áram.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
(V. Briem.)
Kolbrún.
Formáli
minningar-
greina
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá, sem
fjallað er um, er fæddur, hvar og
hvenær dáinn, um foreldra hans,
systkini, maka og börn, skóla-
göngu og störf og loks hvaðan út-
för hans fer fram. Ætlast er til
að þessar upplýsingar komi að-
eins fram í formálanum, sem er
feitletraður, en ekki í greinunum
sjálfum.
OSKAR
ÁRNASON
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
iangamma,
HALLDÓRA BJARNADÓTTIR,
Sogavegi 150,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn
28. janúar.
Útförin hetur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Elísabet Lárusdóttir,
Eyjólfur Lárusson, Hildur Ólafsdóttir,
Bára Lárusdóttir, Helgi Steinar Karlsson,
Lára Lárusdóttir, Fred Dunham,
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir minn,
VALGEIR ÞORVALDSSON,
lést á Hrafnistu í Reykjavík fimmtudaginn
26. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Fyrir hönd vina og vandamanna,
Rafn Valgeirsson.
+
Elskulegur bróðir okkar,
HAUKUR GUÐJÓN STEINDÓRSSON,
lést í Kaliforníu sunnudaginn 25. janúar 1998.
Óskar Steindórsson,
Kristrún J. Steindórsdóttir,
Ingi Steindórsson.
+
GUÐMUNDUR EINARSSON
frá Klettsbúð,
Hellissandi,
lést að morgni föstudagsins 6. febrúar.
Vinir og vandamenn.
+
JÓHANNES EINARSSON
frá Skarðshömrum,
andaðist á Sjúkrahúsi Akraness fimmtudaginn 22. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Aðstandendur.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
EMMU KRISTÍNAR GUÐNADÓTTUR,
Löngumýri,
Skeiðum.
Ágúst Eirfksson,
Albert Ágústsson, Jóhanna Guðmundsdóttir,
Guðni Þór Ágústsson, Jóna Sigurðardóttir,
Ragnheiður Ágústsdóttir, Friðrik Friðriksson,
Eiríkur Ágústsson, Erla Gunnarsdóttir,
Magnús Ágústsson, Rannveig Árnadóttir,
Kristín Ágústsdóttir, Stefán Muggur Jónsson,
Móeiður Ágústsdóttir, Eggert Guðlaugsson,
Kjartan Ágústsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Við þökkum innilega alla aðstoð og alúð sýnda okkur við fráfall föður
okkar,
INGA SIGURÐSSONAR.
Inger Smith, Dagný Burke
og fjölskyldur.