Morgunblaðið - 07.02.1998, Qupperneq 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 7. FEBRUAR 1998
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
Flugleiðir hætta eign-
arþátttöku í Fríkortinu
EINAR Sigurðsson, aðstoðarmaður
forstjóra Flugleiða, segir að félagið
hafí ákveðið að draga sig út úr eign-
arhaldi og stjórnunarþátttöku á
Fríkortinu. Ætlar félagið að ein-
beita sér að eigin kortakerfi sem
starfrækt er af Vildarklúbbi Flug-
leiða.
Páll Þór Armann, framkvæmda-
stjóri Fríkortsins, segir þessa
ákvörðun Flugleiða engu breyta
gagnvart korthöfum og engin áhrif
hafa á punktasöfunun þeirra. „Við-
skipti á milli Fríkortsins og Flug-
leiða og þar af leiðandi korthafanna
eru byggð á viðskiptasamningum og
Jfcþessi ákvörðun Flugleiða hefur eng-
in áhrif þar á. Menn munu halda
sínum punktum og geta eftir sem
áður safnað punktum eða innléyst
Hefur engin áhrif
á punktasöfnun
korthafa
þá hjá Flugleiðum," segir hann.
Páll Þór segir að í næstu viku
verði kynntir nýir innlausnarmögu-
leikar sem auki valmöguleika kort-
hafa sem nýta megi í ferðalög.
„Flugleiðir eru í samstarfi við fjöl-
mörg fyrirtæki í gegnum sitt korta-
kerfi, samstarf Flugleiða og
Fríkortsins er einnig byggt á við-
skiptasamningum og þetta hefur
engin áhrif þar á,“ segir Páll Þór.
Flugleiðir voru meðal fimm stofn-
aðila Fríkortsins, en þeir voru auk
Flugleiða Hagkaup, Skeljungur,
Húsasmiðjan og íslandsbanki. Hafa
síðar fleiri fyrirtæki bæst við. Við
notkun kortsins í viðskiptum hjá
þessum aðilum ávinnur fólk sér
punkta, sem hafa m.a. getað nýst til
flugferða á vegum Flugleiða.
Skörun á milli kortakerfanna
„Meginástæðan fyrir þessu er sú
að við erum með okkar eigið vildar-
kerfi, sem við höfum tengt öðrum
vildarkerfum á borð við Fríkortið,
og teljum að betra sé að við ein-
beitum okkur að því, þar sem
ákveðin skörun er á milli kerfanna.
Við teljum skynsamlegra, svo ekki
sé um hagsmunaárekstra að ræða,
að við séum ekki eignaraðilar að
báðum kerfunum,“ segir Einar Sig-
urðsson.
A batavegi
með plast-
kraga
BRUARSMIÐIR við Gígjukvísl á
Skeiðarársandi hafa tryggan fé-
Iagsskap af dalmatíuhundi sem
fylgist gaumgæfilega með því
að verkið gangi hratt og örugg-
lega. Fyrir skömmu lenti hvutti
í lítilsháttar útistöðum við hund
í sveitinni með þeim afleiðing-
um að hann fékk sár á eyra.
Hvutti kunni illa við sárið og
leyfði því ekki að gróa í friði.
Brúarsmiðir óttuðust að ígerð
gæti hlaupið í skeinuna og sniðu
því plastfötu utan um háls
hvutta til að hann kæmist ekki
að sárinu. Hann lætur sér krag-
ann vel líka, skokkar á batavegi
um nágrenni Gígjukvi'slar og er
ekki laust við að hann sé prest-
legur til augnanna með nýja
hálstauið.
Kjaradeila sjómanna
Fundi frestað
til morguns
SÁTTAFUNDI í sjómannadeilunni
lauk hjá ríkissáttasemjara kl. 19.30 í
gærkvöldi og hefur næsti fundur
verið boðaður kl. 13 á morgun,
sunnudag.
Samkvæmt upplýsingum frá rík-
issáttasemjara var á fundinum í
gær gerð grein fyrir umfangsmikilli
gagnasöfnun um ráðstöfun og verð-
myndun sjávarafla sem Ásmundur
Stefánsson hefur unnið að í sam-
vinnu við sáttasemjara og deiluaðila
og velt upp hugmyndum til íhugun-
ar sem leitt gætu til samkomulags.
----------------
Út af í
* Kollafirði
FÓLKSBÍLL fór út af Vesturlands-
veginum nokkru austan við Nausta-
nes í Kollafirði laust eftir klukkan 9 í
gærkvöld. Ökumaður var einn á ferð
og flutti lögregla hann á slysadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Meiðsli mannsins voru minni
háttar á höfði og fæti. Skemmdir á
bílnum voru ekki verulegar. Lítið
var um umferðaróhöpp á höfuð-
borgarsvæðinu í gærkvöld en
nokkrir árekstrar urðu á Suður-
nesjum enda gengu dimm él yfir og
hálka var þar á vegum og götum.
Tvöfalt hlé á
frumsýningu
HLÉ á frumsýningu Ástar-
drykksins eftir Donizetti í
Islensku óperunni í gær-
kvöld varð óvenjulangt þar
sem einhver slæmska hljóp í
hálsinn á italska tenórnum
Roberto Iuliano, sem fer
með eitt aðalhlutverkanna í
sýningunni.
Húsfyllir var og tóku óp-
erugestir öllu með ró en
sýningin hófst á ný eftir
nærri klukkustundarhlé,
sem hafði þá verið fram-
lengt um hálftíma. Læknar
huguðu að hálsi tenórsins
en gáfu síðan grænt ljós og
Ástardrykkurinn rann Ijúf-
lega sína leið.
Morgunblaðið/Rax
Hættu við
að sam-
einast
Borgey hf.
HÆTT hefur verið við samruna
fimm útgerðarfélaga á Höfn í
Homafirði við Borgey hf. en hlut-
hafar þeirra náðu ekki að selja
þriðja aðila hluta þess hlutafjár í
Borgey sem þeir hefðu eignast við
sameininguna.
Stjórnir útgerðarfélaganna
Fiskhóls ehf., Garðeyjar ehf.,
Mars ehf., Melavíkur ehf. og Perú
ehf. sömdu 7. janúar sl. um sam-
runa við Borgey hf. Við samrun-
ann áttu hluthafar útgerðarfyrir-
tækjanna að fá hlutabréf í Borgey
og ætluðu þeir að eiga áfram um
fjórðung þess hlutafjár sem þeir
þannig eignuðust.
Fyrirvari var í samningnum
þess efnis að þeir hefðu innan til-
skilins tímafrests tryggt sér sölu
til þriðja aðila á eftirstöðvum
hlutafjárins. Hafði hluthöfum út-
gerðarfélaganna fímm ekki tekist
að tryggja sölu á þeim hlut sem
þeir ætluðu sér og var því hætt við
samrunann.
-------♦-♦-♦----
Banaslys við
Olfusárbrú
Selfoss. Morgunblaðið.
BANASLYS varð laust fyrir há-
degi í gær við Olfusárbrú á Sel-
fossi. Tveir bílar skullu saman með
þessum hörmulegu afleiðingum.
Farþegi annars bílsins lét lífið á
Sjúkrahúsi Suðurlands skömmu
eftir slysið. Tveir farþegar voru í
hvorum bfl, tveir fullorðnir og tvö
börn. Meiðsli annarra farþega era
ekki talin alvarleg.
Að sögn Þorgríms Óla Sigurðs-
sonar hjá lögreglunni á Selfossi er
talið að annar bfllinn hafi rannið til
í hálkunni með þeim afleiðingum að
hann kastaðist á öfugan vegar-
helming þar sem hann skall framan
á hinum bflnum.
Vala Flosadóttir setti heimsmet í stangarstökki innanhúss, 4,42 m
Gleðistraumur fór um mig
þegar ég lenti á dýnunni
VALA Flosadóttir úr
ÍR setti heimsmet inn-
anhúss í stangarstökki
er hún stökk 4,42 metra
á frjálsíþróttamóti í Bi-
elefeld í Þýskalandi í
gær. Hún bætti þar með
tveggja daga gamalt
heimsmet Danielu Bar-
tovu frá Tékklandi um
einn sentimetra.
Vala setti metið í
fyrstu tilraun og sagði
líðanina að stökkinu
loknu ólýsanlega. „Þetta
var yndislegt,“ sagði
hún við Morgunblaðið.
Vala sagði metstökkið
hafa verið einstaklega vel heppnað.
„Það má segja að það hafi komið
sjálfkrafa." Hún hafi farið vel yfir
Vala Flosadóttir
stökk 16,70
rána og gleðistraumur
farið um sig er hún lenti
á dýnunni.
Vala er fyrsti íslenski
frj álsíþróttamaðurinn
sem setur heimsmet í
viðurkenndri keppnis-
grein á Ólympíuleikum,
en fyrst verður keppt í
stangarstökki kvenna á
Ólympíuleikunum í
Sydney árið 2000. Næst
viðlíka áfanga komst
Vilhjálmur Einarsson,
ÍR, er hann jafnaði gild-
andi heimsmet í
þrístökki á Laugardals-
velli 7. ágúst 1960 og
metra.
I Vala/Bl