Morgunblaðið - 28.02.1998, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 1998
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
FRÁ fjölmennum fundi nýs framboðs í Garðinum.
Bæjarstjórnarkosningarnar 23. mai nk.
Þrír flokkar í fram-
boði í Garðinum
Garði - Nú virðist einsýnt að þrír
flokkar verði í framboði í bæjar-
stjórnarkosningunum í vor. Fjórir af
fímm núverandi hreppsnefndar-
mönnum hafa ákveðið að bjóða sig
fram undir öðrum merkjum en í síð-
ustu kosningum. Þetta kom fram á
opnum fundi, sem haldinn var í
Samkomuhúsinu sl. miðvikudags-
kvöld en á sjöunda tug manna sótti
fundinn.
Það var núverandi oddviti Gerða-
hrepps, Sigurður Ingvarsson, sem
setti fundinn og bauð fundarmenn
velkomna. Hann rakti síðan þá at-
burðarás sem liðin var þar sem fram
kom að fundarboðendur hefðu verið
ósáttir við að halda prófkjör.
Þá kom það einnig fram hjá a.m.k.
tveimur hreppsnefndarmanna að
þeir ætluðu að draga sig í hlé en at-
burðarásin hefði breytt skoðun
þeirra. Þeir töldu sig vera að vinna
að mörgum góðum málum sem þeir
vildu fylgja eftir áfram.
Núverandi sveitarstjóri, Sigurður
Jónsson, stýrði fundi og lýsti stuðn-
ingi við hópinn. Hann sagði að oft
hefði hvesst í hreppsnefnd en ætíð
hefði náðst góð lending þar sem
heiðarleiki hefði ráðið samskiptum
manna í milli.
Nokkrir bæjarbúa stóðu upp og
lýstu ánægju sinni með væntanlegt
framboð og töldu að þar færi traust-
ur hópur með reynslu í bæjarmálum.
Staða þeirra fjórmenninga, Sig-
urðai- Ingvarssonar, Ingimundar
Guðnasonar, Jóns Hjálmarssonar og
Olafs Kjartanssonar verður að telj-
ast nokkuð snúin þessa dagana. Þeir
sitja í meirihluta hreppsnefndar til
vors ásamt Maríu Önnu Eiríksdóttur
sem er í prófkjöri H-Iistans um helg-
ina. Þá stýra þeir hinu óformlega fé-
lagi, sem er í kringum H-Iistann.
Þá er rétt og skylt að geta þess að
andstæðingur H-Iistans í gegnum ár-
in, I-listinn, heitir listi óháðra borg-
ara en ekki framsóknar- og vinstri-
manna eins og sagt var í Morgun-
blaðinu sl. miðvikudag.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Spiluðu og sungu fyrir
rangæska grunnskólanema
LÁRA, Signý og Sóley, nemendur í Laugalandsskóla.
Hvolsvelli - Nemendur Tónlistarskóla
Rangæinga gerðu víðreist í vikunni í
tilefni af degi tónlistarskólanna. Fóru
þau í 3 grunnskóla og léku á hljóðfæri
og sungu fyrir alla grunnakólanem-
endur í Rangái-vallasýslu. Voru
áheyrendumir hátt á sjötta hundraðið
en tónleikamir vom alls sjö.
í Tónlistarskóla Rangæinga em
nú 230 nemendur á aldrinum frá 8
ára tú 55 ára og starfa alls 10 kenn-
arar við skólann. Kennt er á flest
hljóðfæri og einnig er starfrækt
söngdeild og lúðrasveit við skólann.
Margir nemendur læra á fleiri en
eitt hljóðfræri. Að sögn Agnesar
Löve skólastjóra hefur starfsemin í
vetur gengið vel og er helsta ný-
breytnin áframhaldandi tilraun með
forskóladeild við Hvolsskóla.
í forskóladeildinni era allir nem-
endur i 1.-4. bekk. Þetta er nemend-
unum algerlega að kostnaðarlausu.
Nemendur í 4. bekk fá að læra á eitt
hljóðfæri og í vetur er í fyrsta skipti
kennt á fíðlu og eru 6 nemendur að
læra á fíðlu en einnig er kennt á gít-
ar og ýmis blásturshljóðfæri.
Að sögn Agnesar væri óskastaðan
sú að öll böm í 1,—4. bekk fengju not-
ið forskólakennslu því að með þeim
hætti fá börn sem að öðrum kosti
færu ekki í tónlistarnám tækifæri til
að reyna sig og mörg hver halda síð-
an áfram námi. „Þegar upp er staðið
verður þetta hagkvæmari kostur því
skipluagning er auðveldari og kenn-
ararnir nýtast betur. Þetta er tví-
mælalaust framtíðin í starfi tónlisL
arskólanna," sagði Agnes.
Á næstunni kemur út námsská
fyrir skólann og hefur verið tilrauna-
kennt efth’ henni sl. tvö ár. Með til-
komu hennar sagði Agnes að allt
starf skólans yrði markvissara og
myndi þá um leið skila meh-i og betri
árangri.
„tta*.
•
i ■ iii' -%í
í h'i ;
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
FJÖLMÖRG ungmenni fengu viðurkenningar fyrir góðan árangur í íþróttum á sl. ári hjá umf. Heklu á Hellu.
Nokkur þeirra eru hér ásamt Bergrúnu Björnsdóttur, íþróttamanni ársins, sem er önnur frá hægri, og Irenu
S. Steindórsdóttur sem er þriðja frá hægri.
Iþróttamaður ársins valinn
Hellu - Á aðalfundi Ungmennafé-
lagins Heklu sem haldinn var fyrir
stuttu var þeirra tímamóta minnst
að 90 ár eru síðan félagið var stofn-
að en starfssvæði þess er í Rangár-
vallahreppi og nágrenni. Einnig
vora afhentar viðurkenningar til
ungmenna sem skarað hafa fram úr
í íþróttum fyrir hönd félagsins á
hinum ýmsu mótum.
Besta afrekið í frjálsum íþróttum
átti Irena Sólveig Steindórsdóttir
sem keppti á síðasta ári í flokki
11-12 ára. Hún fékk bikar fyrir að
stökkva 2,20 metra án atrennu á
Rangæingamóti 1997.
Bergrún Björnsdóttir var út-
nefnd íþróttamaður ársins 1997 fyr-
ir langan og góðan feril í frjálsum
íþróttum. Hún hefur æft og keppt
fyrir félagið í mörg ár ásamt því að
keppa fyrir Héraðssambandið
Skarphéðin á meistaramótum í sín-
um aldursflokki, sem er núna 15-16
ára, með góðum árangri.
Á vegum Ungmennafélagsins
Heklu keppa fimm ungmenni á
Meistaramóti íslands í frjálsum
íþróttum 12, 13 og 14 ára sem fram
fer á Akureyri um helgina.
Folaldið
Píla fætt í
lok þorra
Fagradal - Sá atburður átti sér
stað í lok þorra að hryssan
Mjöll sem er á fóðrum á Giljum
í Mýrdal kastaði folaldi ölium
að óvörum.
Hér sést mærin Mjöll ásamt
folaldinu Pflu viðra sig í góða
veðrinu á túninu á Giljum á síð-
asta degi Þorra. Hryssan var
ásamt öðrum hrossum á mýrar-
haglendi skammt frá bænum
og að sögn Ólafs Þ. Gunnars-
sonar var hann að fara að gefa
hestunum þegar hann sá að
bæst hafði í stóðið en hann
hafði enga von átt á þessu fol-
aldi úr þessari meri. Folaldið
var hið sprækasta og hlaut það
nafnið Pfla vegna þess að Ólaf-
ur mátti hafa sig allan við að
fylgja mæðgunum eftir þegar
hann rak þær heim í hesthús.
Mjög óvenjulegt er að merar
kasti á þessum tíma ársins.
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins komi
inn í rekstur Hótels Stykkishólms
Stykkishólmi - Miklar breytingar
verða á rekstri Hótels Stykkis-
hólms á þessu ári ef eftir gengur
samkomulag milli Stykkishólms-
bæjar og Nýsköpunarsjóðs at-
vinnulífsins sem undirritaður var
nú nýlega.
Markmiðið með samkomulaginu
er að athuga hvort raunhæft sé og
hagkvæmt kunni að vera að byggja
upp afþreyingarmiðstöð í Stykkis-
hólmi og nota til þess núverandi
húsnæði hótelsins. Gerð verður við-
skiptaáætlun og mun Olafur
Sveinsson, rekstrarráðgjafí í Borg-
arnesi, gera þá áætlun með aðstoð
arkiteka og verkfræðinga eftir því
sem til þarf. Áætlunin á að sýna
hagkvæmni og rekstragrundvöll.
Þrjár meginástæður liggja fyrir
þessu samkomualgi. í fyrsta lagi er
væntanleg stofnun hitaveitu í
Stykkishólmi. Svo er að með jarð-
göngum undir Hvalfjörð styttist
vegalengdin frá höfuðborgarsvæð-
inu og alþjóðlegum flugvelli og síð-
an ferðaþjónustan sem fyrir er á
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
HÖTELSTJÓRINN Sigurður Skúli Bárðarson og Heiðrún Loftsdóttir
horfa fram á breytta og betri tíma í rekstri hótelsins ef Nýsköpunar-
sjóður atvinnulífsins kemur inn í rekstur hótelsins og mun við allar að-
stæður gjörbreytast við það.
Snæfellsnesi og miklir vaxtamögu-
leikar hennar á næstu áram.
Niðurstöður úr könnun Olafs
Sveinssonar eiga að liggja fyrir eftir
2 til 3 mánuði. Ef útkoman verður
jákvæð, sem samkomulagsaðilar
eru mjög bjartsýnir á, þá er hér um
að ræða mikið hagsmunamál fyrir
Stykkishólm og ferðaþjónusta á
Snæfellsnesi. Rekstur hótelsins
mun í kjölfarið verða endurskoðað-
ur og aukið fjármagn koma inn í fy-
irtækið til endurbóta og reiknað er
með að hótelið verði stækkað til að
auka gistirými og búa betur að
gestum.
Ólafur Hilmar Sverrisson bæjar-
stjóri er mjög ánægður með að hafa
fengið þennan nýja sjóð til sam-
starfs og þetta samkomulag sýnir
að Nýsköpunarsjóður hefur mikla
trú á uppbyggingu ferðaþjónustu á
þessu svæði. Hann hefur mikla trú
á að þessar breytingar verði að
veruleika og að Nýsköpunarsjóður
komi inn með hlutafé og aðrir aðilar
sem leitað verður eftir.