Morgunblaðið - 28.02.1998, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
MARGMIÐLUN
LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 1998 31
fjölgandi eftir því sem fleiri tengj-
ast netinu. Þannig hafa íslensk fyr-
irtæki komið sér fyrir á netinu og
síðan sent af stað til allra netfanga
sem þau komast yfir auglýsingu
eða tilkynningu. Þætti ekki tiltöku-
mál ef venjulegur póstur ætti í
hlut, en tölvupóstur er þess eðlis að
notendumir, eða fyrirtæki sem
þeir starfa hjá, greiða fyrir póstinn
og þarf að borga fyrir hverja þá
mínútu sem fer í að sækja póst.
Aftur á móti kostar það sendand-
ann lítið sem ekkert að senta hund-
ruðum eða þúsundum tölvupóst.
Það er einnig auðvelt að verða
sér út um netföng, víða er hægt að
komast yfir slíka lista þó óheimilt
sé að notfæra sér þá og til eru fyr-
irtæki sem byggja rekstur sinn á
að selja netfangaskrár. Einnig eru
þess dæmi hér á landi að menn hafi
komist yfir netfangaskrár á netinu
og síðan hagnýtt sé þó í seinni tíð
hafi þeir sem halda slíkar skrár yf-
irleitt gripið til ráðstafana til að
koma í veg fyrir slíkt.
Harkaleg andspyma
Þegar netið var að slíta bams-
skónum komst lögfræðistofa upp á
lagið með að senda öllum notend-
um póstlista raslpóst. Þegar fyrir-
tækið var ávítt fyrir slíkt athæfi
var forsvarsmaður þess kokhraust-
ur og sagðist mundu endurtaka
þennan leik, þetta væri bráðgott
fyrir viðskiptin. Netnotendur
kunnu alls ekki að meta þetta og
brast á með flóði tölvupósts til við-
komandi forsvarsmanns, þangað
streymdu tugþúsund tölvubréfa,
mörg gríðarlega stór, og fór svo að
netþjónustuaðili hans gafst upp
eftir að póstgátt hans hafði sprang-
ið hvað eftir annað. Forsvarsmað-
Morgunblaðið/Andrés
urinn róaðist ekki við þetta; sagðist
myndu finna sér nýjan þjónustuað-
ila og halda orrastunni afram, en
þá hófst áhlaup á fyrirtækið sjálft;
símbréfin bárast ú hundraðatali,
flest margir metrar af auðum
pappír, og starfsfólk hafði ekki
undan að skipta um rúllur. Símar
hringdu líka í sífellu og að
streymdu menn með pizzur, hús-
gögn, gosdrykki, hamborgara og
svo mætti telja. A endanum var
fyrirtækinu lokað um stundarsakir
og hætt var við frekari markaðs-
sókn inn á netið að sinni.
Af þessu má ráða að raslpóstur
fer mjög í taugamar á netnotend-
um og sá pirringur er fráleitt á
undanhaldi. Til er á netinu félags-
skapur sem berst gegn raslpósti.
Hann beinir spjótum sínum að net-
þjónustum, enda geta þeir gripið til
ýmissa ráða til að hemja raslpóst
og meðal annars komið í veg fyrir
að þeir sem senda slíkt geti nýtt
sér póstgáttir þeirra. Vilji netþjón-
usta ekki bregðast við á þann hátt
sem samtökin telja rétt lenda allar
póstsendingar frá viðkomandi net-
þjónustu í vandræðum, því aðrar
netþjónustur neita að taka við pósti
frá léni þjónustunnar og því verða
notendur hennar fyrir miklum
skakkaföllum og leita að lokum
annað. Þegar hafa nokkur slík mál
komið upp og ævinlega lyktað með
uppgjöf viðkomandi netþjónustu.
Margir hafa orðið til þess að
deila á þetta og segja ekki rétt að
gera netþjónustuna ábyrga fyrir
því hvaða umferð fer um net henn-
ar; það sé ekki hlutverk þeirra sem
selja aðgang að netinu að ritskoða
það sem þar fer fram. Kröfum um
slíkt megi líkja við að símafyrir-
tæki séu skylduð til að koma í veg
fyrir að menn klæmist í síma eða
hringi í fólk að kvöldlagi til að selja
orðabækur og ýmislegt skran.
Einnig segja menn sem svo að þeg-
ar félagsskapur sé tekinn upp á því
að þvinga netfyrirtæki til að rit-
skoða það sem fer um net þeirra sé
skammt í að úthýst verði þar fleiru
sem ýmsum hagsmunahópum sé á
móti skapi.
Vandamálið er vissulega ekki
bara vandamál einstaklinga, því
heildarhagsmunir eru í hættu.
Þannig er svo komið að margir net-
þjónustuaðilar hafa hætt að vista
fréttaþjónustur því streymið af
raslpósti þangað inn er slíkt að
tölvur nánast kikna undir álaginu.
Fjölmargar fréttarásir á netinu
era óstarfhæfar eða því sem næst
vegna raslpósts og margir grípa til
þess ráðs að skipta ört um netfang,
til að losna við ruslpóst; það líður
alltaf einhver tími áður en farið er
að dæla ruslinu í nýja netpósthólfið.
Sumir tölvupóstaðilar bjóða upp á
raslpóstsíur sem draga úr álaginu,
og reyndar geta einstaklingar keypt
sér forrit til að eyða jafnharðan
raslpósti, þó vissulega sleppi alltaf
einhver póstur í gegn, en einnig er
hætta á að póstur sem sannanlega
er ekki raslpóstur glatist.
svona málum með því að loka
aðgengi sendanda (loka not-
andanafni hans) og loka vefsiðu
viðkomandi ef ruslpóstur notað-
ur til að auglýsa hana.“
Maríus segir h3 engar form-
legar kærur hafi borist til ISnet
vegna ruslpósts, en nokkrar
kvartanir sem reynt sé að fylgja
eftir af bestu getu. „Þar sem við
gerum kröfu til okkar viðskipta-
vina að þeir undirriti notkunar-
skilmála þá er þetta ekki vanda-
mál á ISnet,“ segir hann og bæt-
ir við að þegar slík mál hafi
komið upp, hafi það ávallt verið
leyst á viðunandi hátt og ISnet
ekki þurft að grípa til lokunar á
samböndum vegna þessa. „En
við munum ekki hika við að loka
aðgangi aðila að ISnet sem ekki
tekur af fullri festu á notendum
sem verða uppvísir að sendingu
ruslpósts. Ef við gerðum það
ekki værum við að stofna teng-
ingum annarra aðila á ISnet í
hættu.“
Maríus segir að ruslpóstur
sæki enn í sig veðrið á netinu.
Eins og er eigi ruslpóstur á net-
inu aðallega upptök sín hjá stór-
um netþjónustum í Bandaríkun-
um sem ekki hafi sett sinum not-
endum neinar reglur um slíkan
póst enn sem komið er. Þessar
þjónustur séu þó að setja slíkar
reglur í stórum stíl, aðallega
vegna mjög öflugra varnarað-
gerða viðtakenda. Hann segist
ekki telja að rekstur póstlista sé
í hættu vegna flóðsins, en rekst-
ur þeirra verði erfíðari og menn
verði að vera betur á varðbergi
yfir því hvar slíkir listar séu
reknir. „Á Usenet er eins og er
næstum helmingi af öllum grein-
um hent í ruslpóstvörnum þar,
og fyrir vikið hefur dregið úr
slikum pósti þar.“
HONDA
4 d y r a
1 . 4 S i ______________________________
9 0 h e s t ö f L
Traustur bíll fyrir ungt fólk á öllum aldri
Innifaiið í verði bílsins
1400cc 16 ventla vél með tölvustýrðri innsprautun4
Loftpúðar fyrir ökumann og farþega4
Rafdrifnar rúður og speglar4
ABS bremsukerfi4
Samlæsingar 4
14" dekk4
Honda teppasett4
Ryðvörn og skráning4
Útvarp og kassettutæki 4
Honda Civic 1.5 LSi VTEC
1.550.000,-
115 hestöfl
Verð á götuna:1.455.000,-
Sjálfskipting kostar 100.000,-
Fjarstýröar samlæsingar
4 hátalarar
Hæðarstillanlegt ökumannssæti
Sjálfskipting 100.000,-
(H)
HONDA
Sfmi: 520 1100
33.990
I tölvum erum
við best
...langbest
^^tróíegavéívn )
íntel 166 MMX
32 mb SDRAM '■e°
3200 MB U-DMA
15’ skjár
Ati Xpression 3Dbooster 2mb
24 hraða geisladrif
Soundblaster 16
80 wött
33.6 bás fax & simsvari
4 mán. hjá Margmiölun
Windows 95b & bók
Win 95 lyklaborö & mús
Bókin um Windows 95
Deskjet 670C
og kapall
þessi vél á aöeins...
Sounblaster64 og
PC Works hátalarar
HANN ER
KOMINN AFTUR,
...loksmsj lokstns
ColorPage Live
Borðskann
SkannarA4
30Bita
4800 punkta upplausn
OPIÐ
Virka daga 10-19
Laugardaga 10-16
Sunnudaga 13-17
Grensásvegur 3 - Simi 588 5900 Fax 588 5905